Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.06.2018, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.06.2018, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.6. 2018 Piera Aiello var heima á Sikiley í vikunni að ræða við fólk sem lifir í stöðugum ótta við hefndaraðgerðir mafí- unnar. Einn þeirra er bak- arinn Alessandro Marsicano frá Palermo, sem vitnaði gegn henni. „Ég flutti til Lundúna og opnaði bakarí í nágrenni Soho. En foringj- arnir fundu mig þar og börðu mig til óbóta úti á götu eitt kvöldið. Eftir að ég kynntist Pieru er ég vongóður um bjartari framtíð fyrir fjölskyldu mína,“ sagði hann við The Guardian. Líf hennar breyttist í sviphend-ingu þegar tveir skuggalegirnáungar gengu að kvöldlagi inn á flatbökustað þeirra hjóna, horfðu í augun á bónda hennar og skutu hann að því búnu til bana. Honum blæddi út í örmum hennar. Voðaverkið átti sér stað í bænum Partanna á vestanverðri Sikiley árið 1991. Fjórtán ára gömul hafði Pieta Aiello verið þvinguð til að ganga að eiga son mafíuforingjans Vito Atria, Nicolò, og nú, áratug síðar, var hann allur. Engum blandaðist hugur um það hver bæri ábyrgð á víginu – mafían. Alveg eins og þegar faðir hans var ráðinn af dögum sex árum áður. Nicolò hafði rætt um hefndir og hinir vildu verða fyrri til. Ákvað að bera vitni Þrátt fyrir úrtölur og ástlaust hjóna- band ákvað Aiello að standa í lapp- irnar og bera vitni gegn ódæðis- mönnunum. Það leiddi til handtöku og sakfellingar nokkurra alræmdra mafíósa á staðnum. Aðrir gengu þó áfram lausir og þar sem hún var orð- in uppljóstrari var líf Aiello í bráðri hættu. Henni var nauðugur einn kostur: Að fara í vitnavernd tveimur árum eftir morðið á eiginmanni hennar, skipta um nafn og flytja bú- ferlum frá Sikiley. Í aldarfjórðung var Aiello í „fang- elsi“ eins og hún orðar það í samtali við breska dagblaðið The Guardian. Vissulega náði mafían ekki í skottið á henni en lífið var dýru verði keypt; Aiello gat ekki um frjálst höfuð strokið og var sífellt á varðbergi. Það er að segja þangað til fyrr á þessu ári að hún ákvað að „taka aftur stjórnina á eigin lífi“ og bjóða sig fram til ítalska þingsins fyrir hönd Fimmstjörnuhreyfingarinnar rót- tæku. Sætti framboðið miklum tíðindum; ekki bara í ljósi sögunnar heldur líka fyrir þær sakir að Aiello, sem verður 51 árs í næsta mánuði, fór bókstaf- lega huldu höfði í kosningabarátt- unni. Allar ljósmyndir sem birtust af henni í blöðum og í auglýsingum voru skuggamyndir, þar sem andlit- ið mátti ekki þekkjast, og í sjón- varpsviðtölum sneri hún baki í myndavélina eða myndavélinni var hreinlega beint að gólfinu meðan hún hafði orðið. Stöku sinnum kom hún fram með slæðu fyrir andlitinu. Varð Aiello fyrir vikið þekkt sem „andlitslausi frambjóðandinn“. Ekki háði það þó Aiello, sem náði kjöri í kjördæmi sínu á Sikiley. Eftir að hafa setið á þingi í Róm í þrjá mánuði hefur Aiello komist að þeirri niðurstöðu að það sé of flókið mál að dulbúast lengur og felldi hún því „grímuna“ í vikunni. Og brosti framan í heiminn þegar fyrstu opin- beru ljósmyndirnar voru teknar af henni í 25 ár. „Eftir öll þessi ár á bak við tjöldin get ég nú loksins horfst í augu við heiminn án þess að óttast að einhver sjái mig,“ sagði hún við The Guardian. „Þetta er eins og að lifna við; á þessu tiltekna augnabliki líður mér eins og ég sé algjörlega frjáls.“ Ekki svo að skilja að hvers- dagslegt líf taki nú við hjá Aiello. Mafían gleymir engu, frekar en fíllinn, og þingkonan mun hér eftir sem hingað til njóta ítrustu verndar og ör- yggisgæslu. Hafi mafían haft horn í síðu Aiello áð- ur minnkar það ekki nú þegar hún hefur tekið upp markvissa baráttu gegn starfsemi hennar á þjóðþinginu. Síst virðist vera að draga úr skipulagðri glæpastarfsemi á Ítalíu og víðar og hefur Aiello skorið upp herör gegn mafíunni á breiðum grundvelli. Verður hún ráðherra? Í kosningabaráttunni og eftir að hún tók sæti á þinginu hefur Aiello líka verið óþreytandi að vekja athygli á stöðu fólks í hennar eigin sporum. „Ég á mér markmið; að vekja athygli þingheims á þeim dramatísku að- stæðum sem fólk sem ákveður að vitna gegn mafíunni neyðist til að búa við,“ segir hún. Fjölmörg mafíuvitni hafa fagnað kjöri Aiello og jafnvel léð máls á því að hún verði aðstoðarinnanríkis- ráðherra í næstu samsteypustjórn landsins. „Ég ákvað að bjóða mig fram til þess að þeir sem rísa upp gegn mafí- unni gleymist ekki,“ sagði Aiello við The Guardian. „Ég gerðist fram- bjóðandi vegna þess að ég, Piera Aiello, vildi endurheimta andlit mitt. Og mér tókst það.“ Ekkjan sem endurheimti andlitið Ekkjan sem hlaut frægð sem „andlitslausi fram- bjóðandinn“ í þingkosningunum á Ítalíu fyrr á árinu felldi „grímuna“ í vikunni enda staðráðin í að láta mafíuna ekki stjórna lífi sínu lengur. Svona kom Aiello gjarn- an fram áður. Barinn til óbóta Ljósmynd/The Guardian Eftir aldarfjórðungs hlé getur ítalski þingmaðurinn Piera Aiello loksins brosað óttalaus framan í heiminn. ’ Hefnd er réttur sem bragðast best borinn fram kaldur. Don Vito Corleone mafíuforingi. ERLENT ORRI PÁLL ORMARSSON orri@mbl.is JAPAN TÓKÍÓ Lögræðisaldurinn verður lækkaður úr 20 í 18 frá og með árinu 2022. Breytingin, sem er sú fyrsta sinnar tegundar í landinu í meira en 140 ár, gerir 18 ára unglingum meðal annars kleift að ganga í heilagt hjónaband án samþykkis foreldra sinna, auk þess sem þeir geta sótt um bankalán og kreditkort. Eftir sem áður mega Japanir þó ekki neyta áfengis eða reykja fyrr en þeir ná 20 ára aldri, að ekki sé talað um að stunda veðmál. ÍSRAEL TEL AVIV Ungfrú Írak 2017, Sarah Idan, kom í heimsókn til landsins í vikunni og hitti þar aftur vinkonu sína, Adar Gandelsman, ungfrú Ísrael 2017. Sjálfa sem Idan tók af þeim stöllum í Ungfrú heimur-keppninni í fyrra féll í grýttan jarðveg í heimalandinu og varð til þess að hún þurfti að fl ýja land ásamt fjölskyldu sinni eftir að þeim barst hver lífl átshótunin af annarri. BANDARÍKIN ST PAUL Þvottabjörn nokkur, sem er réttnefndur ofurhugi, gerði sér lítið fyrir og klifraði upp 25 hæða byggingu í borginni á dögunum. Honum var bjargað án skrámu af þaki byggingarinnar og sleppt aftur út í náttúruna. Fjöldi fólks fylgdist með ævintýrinu, bæði á staðnum og á netinu en myndir af dýrinu að klifra upp veggina fóru eins og eldur í sinu um heimsbyggðina. Þvottabjörninn gaf enga skýringu á athæfi sínu. TÉTSNÍA GROSNÍ Mohamed Salah, stjörnuleikmaður Egyptalands á HM, hefur fengið skömm í hatt- inn frá mannréttindasamtökum fyrir að hafa setið fyrir á ljós- mynd með hinum umdeilda leið- toga Tétsníu, Ramzan Kadyrov, á æfi ngu liðsins í vikunni. Kadyrov er grunaður um mannréttinda- brot, ekki síst gagnvart samkynhneigðu fólki, og hefur Salah meðal annars verið sakaður um að taka þátt í pólitískum áróðri.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.