Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.06.2018, Síða 8
Í PRÓFÍL
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.6. 2018
SJÓNVARP Glover er höfundur FX-þáttaraðar-
innar Atlanta. Fyrsti þátturinn var frumsýndur í
september 2016 en þættirnir eru enn í framleiðslu.
Hann skrifar handritið, framleiðir og leikstýrir
sumum þáttanna. Hann leikur enn fremur aðal-
hlutverkið, Earnest „Earn“ Marks sem er umboðs-
maður frænda síns sem er rappari, en þættirnir
segja frá rappsenunni í Atlanta. Stephen, bróðir
hans, er einnig handritshöfundur þáttanna og
framleiðandi.
Glover hefur unnið til fjölda verðlauna fyrir
þættina. Hann var m.a. valinn besti leikarinn í
gamanþætti á Golden Globe-verðlaunahátíðinni
árið 2017, en þar voru þættirnir jafnframt verð-
launaðir sem bestu gamanþættirnir. Hann fékk
einnig Emmy-verðlaun fyrir leik sinn sem Earn og
var verðlaunaður fyrir leikstjórn. Chris Rock er á
meðal fjölmargra aðdáenda þáttanna og segir þá
vera þá bestu sem eru í sjónvarpi um þessar
mundir.
Bræðurnir Stephen Glover
og Donald Glover vinna saman
að gamanþáttunum Atlanta.
AFP
Verðlaunaðir
gamanþættir
DONALD GLOVER fæddist 25. september árið 1983 og er því 34 ára gamall.
Hann er tónlistarmaður og leikari. Glover fæddist á herstöð í Kaliforníu en ólst
upp í Georgíuríki. Hann er alls ekki skyldur leikaranum Danny Glover eins og
margir halda; móðir hans var dagmamma en pabbi hans bréfberi en hann var alinn
upp í Vottum Jehóva. Hann fór í listaskóla þegar hann var í gagnfræðaskóla og var
valinn sá sem væri „líklegastur til að skrifa fyrir The Simpsons“ í árbók skólans.
Hann fór síðan í Tisch School of the Arts sem er hluti af New York University.
Hann útskrifaðist þaðan með gráðu í skrifum en samhliða náminu vann hann í tón-
list sinni og starfaði sem plötusnúður, fyrst undir nafninu MC D en síðar sem mc
DJ.
Framleiðandinn David Miner hafði samband við Glover eftir útskrift en hann
hafði sent honum ýmis dæmi um skrif sín, m.a. hugmynd að handriti fyrir The
Simpsons. Miner og Tina Fey voru hrifin af því sem þau sáu og buðu honum að
ganga til liðs við handritshöfundateymi hjá NBC fyrir gamanþáttinn 30 Rock. Glo-
ver skrifaði fyrir 30 Rock á árunum 2006-2009 en hann kom jafnframt stundum
fram í þáttunum. Hann var verðlaunaður fyrir skrif sín í þriðju þáttaröð 30 Rock af
Writers Guild of America.
Rappnafn Glover er Childish Gambino en nafnið tók hann sér eftir að hafa búið
til nafn í gegnum Wu-Tang Clan nafnaleik á netinu. Hann sendi frá sér plötuna
Sick Boi sem hann gaf út sjálfur árið 2008.
Hann vakti ennfremur athygli í gegnum netgrínþáttinn Derrick Comedy sem
var á vegum New York University en sá þáttur naut vinsælda á YouTube. Hóp-
urinn sendi frá sér kvikmynd í fullri lengd, Mystery Team, árið 2009.
Hann varð þekktari eftir að hafa leikið í gamanþætti NBC Community þar sem
hann var í hlutverki Troy Barnes, íþróttastráks sem umfaðmar nördinn í sjálfum
sér. Hann dró sig í hlé frá þáttunum og lék aðeins í fimm af þrettán þáttum í
fimmtu þáttaröðinni. Honum var boðið að vera með í sjöttu þáttaröðinni en hann
afþakkaði. Hann fór að einbeita sér að tónlistarferlinum og sendi frá sér plötuna
Poindexter í september 2009 og 2010 komu fyrst I Am Just a Rapper og I Am Just
A Rapper 2 og Culdesac fylgdi í kjölfarið en þetta gaf hann allt saman út sjálfur.
Hann hélt áfram að gera tónlist og ferðaðist um Bandaríkin með sýninguna
IAMDONALD árið 2011 en þetta var eins manns sýning þar sem blandað var
saman rappi, gríni og myndböndum. Sama ár kom út Camp, fyrsta hjóðversplata
hans. Hann kom síðan fram á Bonnaro-tónlistarátíðinni bæði sem rapparinn
Childish Gambino og sem grínisti. Hljóðversplatan Because the Internet fór beint
í sjöunda sæti á Billboard 200.
Ferill Glover er kominn á virkilegt flug sama hvort litið er til leiklistar- eða tón-
listarferils. Þriðja hljóðversplata hans Awaken, My Love! fékk margar tilnefn-
ingar til Grammy-verðlaunanna 2018 auk þess sem lagið „Redbone“ var verð-
launað. ingarun@mbl.is
TÓNLIST Í maí sendi hann frá
sér lagið „This Is America“ og
frumsýndi um leið umdeilt
myndband. Lagið fór beint á
toppinn á Billboard Hot 100-
listanum en þetta er fyrsta lag
hans sem fer á toppinn í Banda-
ríkjunum og það fyrsta sem fer
á topp tíu. Í myndinni syngur
hann, rappar og dansar og tek-
ur textinn á ýmsum málefnum
eins og skotárásum og hvernig
sé að vera svartur í Bandaríkj-
unum. Leikstjóri myndbandsins
er japanski kvikmyndagerð-
armaðurinn Hiro Murai, sem
hefur áður unnið með Glover.
Svona eru
Bandaríkin
Skjáskot úr myndbandinu
við lagið „This is America“.
VERKEFNI Nú síðast lék hann
Aaron Davis í ofurhetjumyndinni
Spider-Man: Homecoming og síð-
ast en ekki síst leikur hann ungan
Lando Calrissian í nýju Stjörnu-
stríðsmyndinni Solo: A Star Wars
Story. „Það er þó kannski helst
hin rísandi stjarna Donald Glover
sem stelur senunni sem Lando
Calrissian, hjartaknúsari og lífs-
kúnstner af Máttarins náð, og nær
Glover vel að taka taktana hans
Billys Dees Williams og gæða
Lando lífi,“ sagði í kvikmynda-
dómi Morgunblaðsins um
frammistöðu Glover.
Næst verður hann rödd Simba í
Konungi ljónanna í væntanlegri
endurgerð Disney á þessari vin-
sælu mynd frá 1994.
Í hlutverki Landos Calrissian.
Góðir taktar
í geimnum
Fjölhæfur
listamaður
Thandie Newton,
Woody Harrelson,
Ron Howard, Emilia
Clarke, Alden Ehren-
reich, Donald Glover
og Chewbacca á sýn-
ingu Solo: A Star Wars
Story í Cannes.
Hann kom fram á Grammy-
verðlaunahátíðinni fyrr á árinu.
’Rappnafn Glover erChildish Gambino ennafnið tók hann sér eftirað hafa búið til nafn í
gegnum Wu-Tang Clan
nafnaleik á netinu.
Hann mætti á eina
helstu samkomu ársins,
Met Gala, í New York í
maí íklæddur Gucci-
jakkafötum og -skóm.
AFP
Ólöf Erla Bjarnadóttir
Guðrún Borghildur Valdís Harrysdóttir
Íslensk hönnun - Íslenskt handverk
Vesturgötu 4, 101 Reykjavík, s. 562 8990
www.kirs.is,
Kirsuberjatréð Íslensk Hönnun
Opið: Mán.-fös. 10-18, lau. 10-17, sun 10-17