Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.06.2018, Blaðsíða 21
Á hverju ári halda Bandaríkin ráðstefnu
sem kallast Global Entrepreneurship Summit
og er haldin á mismunandi stöðum í heiminum
í hvert sinn. Teknir eru inn bandarískir frum-
kvöðlar en bandarísk sendiráð tilnefna einnig
frumkvöðla frá þeim löndum sem þau eru stað-
sett í. Bandaríska sendiráðið hér á landi til-
nefndi Söndru til að fara á ráðstefnuna sem
haldin var í nóvember í fyrra. Upphaflega átti
Sandra bara að fara út sem þátttakandi. „Svo
fékk ég bréf frá Hvíta húsinu þar sem mér var
boðið að halda ræðu á ráðstefnunni. Mín fyrstu
viðbrögð voru að þetta væri eitthvert gabb en
annað kom svo á daginn.“
Ráðstefnan var haldin í Hyderabad á Ind-
landi og þar varð uppi fótur og fit þar sem for-
sætisráðherra landsins, Narendra Modi, hafði
boðað komu sína á ráðstefnuna og þar með til
borgarinnar en þangað hafði hann aldrei kom-
ið áður. Auk hans var von á Ivönku Trump,
ráðgjafa Bandaríkjaforseta.
„Þetta var bara rosalegt. Það var búið að
hreinsa allar götur og taka fátækustu hópana
af götunni og flytja þá eitthvað annað. Á
opnunarhátíðinni voru 3.000 manns sam-
ankomnir í stórum sal og alls staðar risastórir
skjáir og enginn mátti fara fram af því að ind-
verski forsætisráðherrann og Ivanka Trump
voru á leiðinni. Öryggisgæslan var þvílík, ég
get varla lýst því. Þetta var rosalega fjarri
mínum raunveruleika; þarna sat ég á hvítum
leðursófa með minn eigin lífvörð og mátti ekki
einu sinni fara fram á klósettið. En opnunar-
hátíðin var rosalega flott, enda búið að und-
irbúa hana í eitt og hálft ár og sýnt beint frá
henni í indversku sjónvarpi.“
Sandra var sérstaklega valin úr hópi frum-
kvöðla á ráðstefnunni til að hitta indverska
forsætisráðherrann í stutta stund, en hún
mátti ekki taka af honum mynd sjálf. „Ég hefði
auðvitað getað verið hættuleg kona frá Íslandi
með stórhættulegan myndavélasíma,“ segir
hún og hlær, „en það var tekin mynd af okkur
saman og ég fékk hana senda. Svo ég á mynd
af mér með leiðtoga einnar stærstu þjóðar í
heimi. Sem betur fer, því annars hefði örugg-
lega enginn trúað mér. En þessi maður var
samt langt í frá merkilegasta manneskjan, að
mér finnst, sem ég hitti í þessari ferð.“
Þegar blaðamaður spyr nánar út í það segir
Sandra að hún hafi orðið djúpt snortin við að
hlusta á konu frá Namibíu sem hefur mátt þola
mikið mótlæti og miklar árásir. „Hún hefur
barist fyrir því síðustu ár að búa til ódýr dömu-
bindi og koma þeim í verslanir til að auka að-
gengi ungra stúlkna að bindum. Hún hefur líka
kennt bæði ungum stúlkum og ungum drengj-
um um blæðingar kvenna og eftir að hún byrj-
aði á því hefur unglingaþungunum fækkað
gríðarlega á svæðinu þar sem hún býr. En hún
hefur þurft að berjast fyrir þessu og mátt þola
mótlæti; þetta hefur þótt dónalegt og verið
sagt að ungir menn eigi ekkert að vita um
blæðingar kvenna.“
Reynsla sem ekkert námskeið
getur kennt
Sandra segist full tilhlökkunar að hefja störf
hjá Florealis og vera mjög ánægð með að
halda áfram að starfa í nýsköpunarumhverf-
inu. Hún nærist á þeirri orku og sköpun sem
sé til staðar í sprotafyrirtækjum. Aðspurð
hvort viðskiptaþróun heilli hana segir hún svo
vera. „Ég hef mikinn áhuga á markaðs-
setningu og sölu og ofboðslegan áhuga á sam-
skiptum; að skilja dýnamíkina þarna á milli,
taka nýjar hugmyndir og skilja hvernig ég geti
lyft þeim á næsta plan í gegnum viðskiptaþró-
un. En ég er auðvitað ekki með neina formlega
menntun á því sviði. Öll mín reynsla af við-
skiptaþróun, markaðssetningu og sölu hefur
algjörlega farið í gegnum það að reka mitt eig-
ið fyrirtæki. Og rekast á veggi,“ segir Sandra
og hlær. „Ég hef náð góðum árangri sem fram-
kvæmdastjóri Platome en það sem ég er
kannski stoltust af er að hafa byggt upp öflugt
teymi og gefið öðru ungu fólki tækifæri til að
blómstra. Það hefur líka verið rosalega lær-
dómsríkt.“
Súpan er búin og kaffibollinn tómur þegar
blaðamaður spyr hvort ákvörðunin að hætta
sem framkvæmdastjóri Platome hafi verið
auðveld.
„Nei, það var hún svo sannarlega ekki. Ég
ber sterkar taugar til Platome og ég hef skil-
greint mig töluvert út frá fyrirtækinu. Á tíma-
bili hugsaði ég sem svo að ég væri hreinlega að
bregðast sem manneskja ef ég stigi út úr fyrir-
tækinu. En svo hef ég náð að endurhugsa
þetta og mér finnst ég geta verið stolt af því
sem ég hef gert en ég get verið sterk annars
staðar líka og tekist á við nýjar áskoranir. Á
köflum hefur þetta verið alveg ótrúlega erfitt
og álagið gríðarlegt og ekki alltaf verið svig-
rúm til að sinna fjölskyldunni og áhugamálum
eins og maður hefði viljað. En myndi ég gera
þetta aftur? Ég hugsa það, því það sem ég
stend uppi með er svo dýrmætt. Það fær eng-
inn þessa reynslu sem ég hef með því að fara í
gegnum námskeið. Þetta er búið að vera eld-
raun.“
Sandra segist hvergi nærri hætt að setja sér
markmið og leggja upp leiðina að þeim. „Svo
ætla ég auðvitað að sinna dóttur minni og fjöl-
skyldu. Ef ég ætla að gera eitthvað vel í lífinu,
þá er það að vera góð móðir og eiginkona.“
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Sandra Mjöll var valin úr hópi frumkvöðla til að hitta Narendra Modi, for-
sætisráðherra Indlands, á ráðstefnunni Global Entrepreneurship Summit.
Sandra Mjöll, Þór og Birta fögnuðu ákaft þegar Sandra hafði varið
doktorsritgerð sína við Háskóla Íslands í fyrra.
’En myndi ég gera þetta aftur? Ég hugsa það, þvíþað sem ég stend uppi með ersvo dýrmætt. Það fær enginn
þessa reynslu sem ég hef með
því að fara í gegnum námskeið.
17.6. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21