Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.06.2018, Síða 36

Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.06.2018, Síða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.6. 2018 LESBÓK FÓLK Leikkonan Rose McGowan, sem er lands- mönnum líklega kunnust fyrir hlutverk sitt sem nornasystirin Paige Matthews í þáttunum Char- med, hefur verið ákærð fyrir eiturlyfjavörslu. Síð- astliðinn nóvember var hún handtekin fyrir vörslu á kókaíni, en lögfræðingur hennar segir að hún neiti sök. McGowan var ein þeirra kvenna sem sökuðu kvikmyndaframleiðandann Harvey Weinstein um kynferðisbrot, og hún ásakaði einnig leikkonuna Meryl Streep fyrir að hafa þagað yfir ofbeldi Wein- stein. McGowan heldur fram á Twitter aðgang sín- um að handtakan og ákæran séu hluti af samsæri til að þagga niður ásakanir hennar gegn Weinstein. Handtakan samsæri Rose McGowan er í vandræðum. SJÓNVARP Ungstirnið Millie Bobby Brown, sem er best þekkt fyrir hlut- verk sitt sem Eleven í þáttunum Stranger Things, hefur lokað Twit- ter aðgangi sínum. Hún gerði þetta í kjölfar þess að hópur óprúttinna nettrölla tók upp á því að taka myndir af henni og setja undir texta sem lögðu henni hatursorð gegn samkynhneigðum í munn. Brown hefur tekið virkan þátt í að styðja réttindi samkynhneigðra og fleiri jafnréttissamtaka, en hún er aðeins 14 ára gömul. Fæld frá Twitter Millie Bobby Brown. AFP Ekki hægja á rútunni! Rándýr rúta KVIKMYNDIR Ein frægasta rúta kvikmyndasögunnar hefur verið seld á uppboði á netinu fyrir 102 þúsund bandaríkjadali, eða tæpar ellefu milljónir króna. Rútan var notuð í hasartryllinum Speed þar sem Keanu Reeves barðist við að halda henni á yfir 50 mílna hraða, ellegar myndi hún springa í loft upp. Ekki er víst hvort rútan sé yfir höfuð ökuhæf í dag, en ekki er búið að reyna á vélarbúnaðinn. FÓLK Að sögn suður-kóreskra dagblaða tók Kim Jong-un sitt eigið klósett með í ferð sína á fund Donald Trump í Singapúr. Hann mun hafa tekið það með sér til að koma í veg fyrir að harðskeyttir rannsókn- armenn gætu nálgast hægðir hans í gegnum holræsakerfið og greint þær, en ásamt klósettinu var einnig tekin með brynvarin limmósína. Kim er ekki fyrsti þjóðarleiðtoginn til að taka klósett með sér á erlenda grund, en Bandaríkjaforsetar hafa til að mynda tekið slík með af ör- yggisástæðum. Kamar Kim Kim Jong-un TÓNLIST Ástralski poppdúettinn Savage Garden er ósáttur við nýjan bar í London sem heitir sama nafni. Sveitin deildi grein um barinn og spurðu hvort eigendur staðarins hefðu gert einfalda leit á netinu að nafninu. Aðrir notendur hafa bent á hræsni hjá sveitinni, en heitið er til- vitnun í bók Anne Rice frá 1985, Vampíran Lestat. Félagarnir í Savage Garden. Ósáttir við nafn Fyrr í vikunni var árshátíðleikjaunnenda haldin á E3leikjaráðstefnunni í Los Ang- eles. Ráðstefnan er stærst sinnar tegundar, en þar mætast risarnir í bransanum og keppa um athygli til kynna hvað er á döfinni hjá þeim hverju sinni. Rétt eins og á hvíta tjaldinu eru framhaldssraðir fyr- irferðarmestar í leikjaheiminum, og ár eftir ár fáum við sama grautinn í nýrri skál. Sumir brjóta reglulega upp og reyna að taka gamla leikjaröð í nýja átt, eða breyta í það minnsta um umhverfi og sögusvið. Aðrir finna ekki fyrir sömu sköpunarþörf og gefa nánast út sama leikinn ár eft- ir ár, og eru íþróttaleikjaraðir á borð við Fifa og Madden þar rammsekar. Framhaldsraðir eru ekki slæmar í sjálfu sér, en það er samt hollt að hrista upp og prófa nýja hluti. Bless- unarlega eru nokkrir athyglisverðir nýliðar á leiðinni sem létu sjá sig á ráðstefnunni í ár. Transhúmanískur tryllir Witcher leikirnir ruddu sér til rúms á markaðnum með offorsi og eru nú komnir í hóp með þeim stærstu. Nú virðast framleiðendur þeirra fara í allt aðra átt með Cyberpunk 2077, hlutverkaleik með litríka en heldur dystópíska framtíðarsýn í Kaliforníu árið 2077. Í leiknum verður bylting- arkennd framtíðartækni allsráðandi – fólk fær sér tungumálaígræðslur auk þess sem tilfinningar og kenndir annarra má nálgast sem afþreying- arefni. Leikurinn verður líklega stút- fullur af samfélagsádeilu í bland við hasarinn og hamaganginn sem gerði Witcher svo vinsælan. Ein á reki Þeim sem nenna ekki endalausu of- beldi í leikjunum sínum má benda að horfa á einlægustu kynningu ráð- stefnunnar, en hana flutti höfund- urinn að baki Sea of Solitude. Hún var augljóslega taugaóstyrk og með sviðsskrekk en hafði svo mikla ástríðu fyrir leiknum að hún vildi flytja kynninguna sjálf. Ævintýra- leikurinn tekur á sálfræði- og fé- lagslegum vandamálum eins og þunglyndi og útskúfun. Sögusviðið er heimur þar sem fólk breytist smám saman í skrímsli ef það verður of einmana. Leikmaðurinn bregður sér í hlutverk ungrar konu sem hefur orðið að slíkri ófreskju og snýst leik- urinn um að verða aftur að mann- eskju með því að takast á við tilfinn- ingar sínar og eiga samskipti við aðra sem eru á svipuðu reki. Kynn- irinn sagði að eigin tilfinningar hefðu verið innblástur á bak við leikinn svo það má búast við mikilli hjartnæmi. Torskilinn snillingur Eftir að Sony tóku við sérvitra gull- kálfinum Hideo Kojima hafa þeir gefið honum autt blað til að vinna með snargeðveikar hugmyndir sín- ar. Kojima, sem er einn umdeildasti og áhrifamesti leikjahönnuður heims, er þekktastur fyrir Metal Ge- ar seríuna sem hann sagði skilið við eftir stormasamt samband við leikja- framleiðandann Konami. Kojima hefur lengi verið kenndur við metn- aðarfull en ruglandi skrif, en stikl- urnar fyrir Death Stranding gefa til kynna að nú nái sturlunin hámarki. Öllu er tjaldað til, og ljá stórleik- aranir Mads Mikkelsen og Norman Reedus leiknum raddir sínar og útlit. Leikurinn er vægast sagt gull- fallegur, þrátt fyrir truflaðan efnivið, og má þess geta að landslag leiksins var að miklu leiti byggt á Íslandi sem Kojima heimsótti við framleiðslu leiksins, svo það er spurning hvort megi líta á þetta sem góða landkynn- ingu. Death Stranding er innblásinn af íslenskri náttúru. Nýir leikir á borði Þúsundir heimsóttu stærstu leikjaráðstefnu heims til að kynna sér væntanlega tölvuleiki, en hverjir þeirra eru virkilega nýir og ekki gamlir titlar í nýjum búning? Arnar Tómas Valgeirsson arnart@mbl.is Gestir á E3 ráðstefnunni prufukeyra Battlefield V, nýjasta leikinn í röðinni. AFP

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.