Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.06.2018, Page 37
Rúntað með róbótum í Cyberpunk 2077.
Mads Mikkelsen í Death Stranding.
Leikmenn munu sigla ólgusjó tilfinninga í Sea of Solitude.
KVIKMYNDIR Ný mynd um fleyga fíls-
ungann Dúmbó er væntanleg á næsta ári
í leikstjórn Tim Burton. Ásamt
Dúmbó, sem verður tölvugerður, verða
meðal annars leikararnir Colin Farrell,
Danny DeVito og Eva Green. Dúmbó var
ein af fyrstu teiknimyndum Walt Disn-
ey, frumsýnd árið 1941 og byggð á sam-
nefndri barnabók. Hún segir frá stóreyrða
fílsunganum Dúmbó, lífi hans í fjölleikahúsi
og undraverðum hæfileikum hans til flugs.
Leiknar endurgerðir á sígildum Disney-
myndum hafa verið vinsælar nýlega, en síð-
ast voru það Skógarlíf og Fríða og dýrið.
Burton stýrir Dúmbó
Fílsunginn
Dúmbó.
17.6. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 37
KVIKMYNDIR Ewan McGregor mun fara með hlutverk
Danny Torrence í kvikmyndaaðlögun bókarinnar Dr.
Sleep sem er framhald af hryllingssögunni The Shining.
McGregor var valinn fram yfir stórleikara á borð við
Chris Evans, Jeremy Renner og Matt Smith. Í Dr. Sleep
er Danny orðinn fullorðinn og þarf að takast á við þann
sálræna skaða sem atburðirnir á hótelinu í The Shining
höfðu í kjölfar sér. Hann enduruppgötvar náðargáfu
sína og hóp fólks sem hefur sömu hæfileika og kemst að
því að þeir séu sterkastir í nærveru deyjandi fólks.
Stephen King, höfundur bókanna, var óánægður með
hina sígildu útgáfu Stanley Kubrick frá árinu 1973, en
nýja myndin verður ekki framhald af henni.
McGregor í framhaldi The Shining
Reuters
Ewan McGregor.
SJÓNVARP Aðdáendur Suður-Dakóska
vestrabæjarins Deadwood geta fagnað
happi, en þættirnir verða endurlífgaðir
í formi kvikmyndar. Þættirnir eru í há-
vegum hafðir og þykja einstaklega
vandaðir, en þeim var aflýst af sjón-
varpsstöðinni HBO eftir þrjár seríur
vegna mikils framleiðslukostn-
aðar. Þættirnir voru meðal dýr-
ustu þátta sem gerðir hafa verið
og kostaði hver þáttur um 450
milljónir króna. Hugmyndir að
myndinni hafa verið á lofti síð-
an þáttunum lauk og stefnt er
á að tökur hefjist í haust.
Myndin mun vonandi ljúka
sögunni á viðunandi hátt en
henni var hvergi nærri lokið
þegar þáttunum var aflýst.
Höfundur þáttanna, David
Milch, semur handritið að
myndinni, en hún á að
höfða til áhorfenda þátt-
anna jafnt og þeirra sem
hafa ekki séð þá áður.
Það hefur reynst þrauta-
samt að safna saman starfsliði
þáttanna enda tólf ár liðin síð-
an þáttunum var aflýst. Sviðs-
mynd þáttanna stendur sem
befur fer enn að mestu
óbreytt og hefur verið nýtt
fyrir önnur verkefni, nú síðast
af Quentin Tarantino í Django
Unchained. Því miður er ljóst
að ekki munu allir íbúar
Deadwood snúa aftur, en Po-
wers Boothe sem lék kráareig-
andann Cy Tolliver lést í fyrra
og Ralph Richeson sem lék
kokkinn Richardson lést árið
2015.
Timothy Olyphant og Shane Black snúa
aftur sem Seth Bullock fógeti og kráar-
eigandinn Al Swearengen.
VESTUR Í BÆ
Aftur til
Deadwood
Powers Boothe.
Þeir sem hafa einhvern tím-
ann spilað Tetris að einhverju
ráði kannast mögulega við þá
skrítnu tilfininngu að sjá
kubbana fyrir sér falla og
detta í raðir löngu eftir að
spilun er hætt, í hugsunum og
jafnvel draumum. Tetris-
áhrifin, eins og þau nefnast
réttilega, eru viðurkennt fyr-
irbæri og grundvöllurinn að
nýjum leik sem er nefndur
beint eftir þeim, Tetris Effect.
Hönnuður leiksins segist vilja
hámarka þessi áhrif en leik-
urinn er eins konar Tetris á
sterum, með fjölbreytilegri
tónlist og nýstárlegri grafík.
Það er svo annað mál hvort
nauðsynlegt sé að setja sígild-
an leik eins og Tetris í slíkan
búning.
Tetris nýtur enn vinsælda, en hann
var fyrst gefinn út árið 1984.
Tetris-áhrifin
Sími: 411 5000 • www.itr.is
Fyrir líkama og sál
Laugarnar í Reykjavík
Frá
morgnifyrir alla
fjölskylduna
í þínu
hverfi t i l kvölds