Fréttablaðið - 13.10.2018, Blaðsíða 88

Fréttablaðið - 13.10.2018, Blaðsíða 88
KOMDU Í – dásamleg deild samfélagsins OPIÐ UM HELGAR FRÁ KL. 11 – 17 K V IK A Svart og hvítt er yfirskrift sýningar sem verður opnuð í dag, laugardag­inn 13. október, í Lista­safni Reykjavíkur. Þar getur að líta um þrjátíu ný og nýleg svarthvít málverk eftir Erró. Þar blandar hann saman sögu­ legum persónum og fígúrum teikni­ myndasagna. „Ég hef alltaf öðru hvoru gert svarthvítar myndir, nokkrar á ári,“ segir Erró. „Svo sá ég merki­ lega sýningu á safni í Vínarborg um Bruegel og syni hans tvo. Þegar hann dó héldu þeir áfram að nota vinnustofu hans og gerðu svart­ hvítar eftirmyndir af litmyndum hans til að útvega sér peninga. Ég sá þarna heilan vegg af svarthvítum myndum og það kveikti í mér.“ Spurður hvernig hann fari að því að finna fyrirmyndir til að nota í myndir sínar segir hann: „Þegar ég ferðast fer ég í bókabúðir og finn þar mikið af efni og svo er mikið um að fólk sendi efni til mín. Fólk, sem ég þekki alls ekkert, hugsar: Þetta væri gott fyrir hann. Á vinnu­ stofunni er ég með sextíu skúffur og í þeim er alls kyns efni, ein skúffan er með myndum af fjöllum, önnur með myndum af einræðisherrum og svo framvegis.“ Alveg eins og Napóleon Erró er orðinn 86 ára og segir um aldurinn: „Mig langar mjög mikið til að verða 88 ára, það er svo falleg tala enda uppáhaldstala Kínverja.“ Hann er enn gríðarlega vinnusam­ ur. „Ég vakna klukkan hálf átta og fer á hverjum degi á vinnustofuna og er þar til klukkan sex eða sjö. Laugardagur og sunnudagur eru sérstaklega drjúgir, ef ég er ekki truflaður af símanum. Stundum hringir síminn tuttugu sinnum á dag og þá er útilokað að vinna. Þess vegna slekk ég oft á honum. Ef ég vinn ekki þá drepleiðist mér. Ég fæ mér blund fjórum til fimm sinnum á dag og vakna upp eins og ég hafi sofið heila nótt. Þegar fór að bera á þessu var sagt við mig: Þú ert alveg eins og Win­ ston Churchill en núna þegar ég Drepleiðist ef ég vinn ekki Erró sýnir svarthvítar myndir í Listasafni Reykjavíkur. Er 86 ára en vinnur svo að segja á hverjum degi. Veitir styrk úr sjóði til minningar um móðursystur sína. Að þessu sinni sýnir Erró svarthvítar myndir í Listasafni Reykjavíkur, en slíkar myndir hefur hann alltaf gert öðru hvoru. FRéttAbLAðið/ANtoN bRiNk „Svo er mikið um að fólk sendi efni til mín,“ segir Erró. FRéttAbLAðið/ ANtoN bRiNk Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@frettabladid.is Stundum hRingiR Síminn tutt- ugu Sinnum á dag og þá ER útiLokað að Vinna. þESS VEgna SLEkk ég oft á honum. blunda oftar en áður er sagt: Þú ert alveg eins og Napóleon.“ tuttugu skrímsli Við opnun sýningarinnar veitir Erró styrk úr sjóði sem hann stofnaði til minningar um móðursystur sína, Guðmundu S. Kristinsdóttur. „Hún var mér sem önnur móðir og ég bjó um tíma hjá henni. Hún safnaði myndum og var mjög skemmtileg kona. Hún átti um tuttugu mismun­ andi skrímsli og þegar börn komu í heimsókn setti hún þau upp á borð og trekkti þau upp. Börnin fylgdust agndofa með þegar skrímslin fóru af stað og stundum greip hræðsla um sig.“ Sjóðurinn veitir styrki til lista­ kvenna. „Það er vegna þess að það er miklu erfiðara fyrir konur en karla að komast áfram í myndlist­ inni. Ég þekki unga franska lista­ konu sem ég sendi á mörg gallerí með myndir sínar. Þar fékk hún yfirleitt boð frá yfirmönnum um að fara með þeim á ströndina yfir helgina.“ Erró býr í París. „Ég er með mjög stóra vinnustofu í fimmtánda hverfi, sem ég borgaði til helminga með málverkum. Ég bý í sjötta hverfi, á rólegum stað, á fimmtu hæð og það er mjög fallegt tré fyrir utan gluggann minn sem nær upp á sjöttu hæð. Það var sjálfur Baude­ laire sem plantaði því á sínum tíma og það er vel varið.“ Þetta er í fyrsta sinn í þrjú ár sem Erró kemur hingað til lands. „Ég vildi svo gjarnan tala oftar íslensku og hefði gaman af að æfa mig á henni en það gerist sjaldan. Ég tala hana bara eins og ég get,“ segir hann. Það tekst alveg ágætlega hjá honum. Kammermúsíkklúbburinn heldur tónleika í Norðurljósasal Hörpu á morgun sem hefjast klukkan 16. Þar leika Anna Guðný Guðmunds­ dóttir, Áshildur Haraldsdóttir og Bryndís Halla Gylfadóttir á píanó, flautu og selló. „Við spönnum eiginlega tónlistarsöguna fyrir þessa hljóðfærasamsetningu,“ segir Áshildur. „Tríó fyrir flautu, píanó og selló eru sjaldgæf en Haydn samdi nokkur slík og við spilum eitt sem er líflegt og bjart. Svo kemur verk eftir Hummel sem hafði áhrif á sína samtíð við upp­ haf rómantíska tímabilsins. Ég sem flautuleikari er þakklát fyrir að fá að spila þetta verk, það eru ekki til mörg kammerverk eða sónötur fyrir flautur frá rómantíska tíma­ bilinu. Viðarflautan hefur líklega ekki þótt hafa nógu stóran hljóm fyrir það mikla tilfinningarót.“ Eftir hlé ætla þær stöllur að fagna því með tveimur verkum Atla Heimis að hann varð átt­ ræður nýlega og síðan að minnast tónskáldanna Jórunnar Viðar og Þorkels Sigurbjörnssonar. „Jórunn hefði orðið hundrað ára á árinu og Þorkell áttræður,“ bendir Áshildur á. „Við spilum Dans tunglsins eftir Jórunni og lagið hans Þorkels heitir Skiptar skoðanir, það er voða mikið leikhús – ég segi ekki meira. Svo endum við á frönsku verki með miklu flæði frá fyrri hluta 20. aldar, það heitir Þrjár vatnslitamyndir.“ Þessar þrjár konur hafa þekkst lengi. „Við Bryndís Halla erum systradætur og byrjuðum að spila saman í jólaboðum og við þrjár höfum oft spilað saman, auk þess erum við allar í Sinfóníunni,“ segir Áshildur. „En ég hef aldrei áður spilað hjá Kammermúsík­ klúbbnum.“ – gun Voða mikið leikhús – ég segi ekki meira Þær hafa þekkst lengi, bryndís Halla, Anna Guðný og Áshildur. 1 3 . o k t ó b e r 2 0 1 8 L A U G A r D A G U r48 m e n n i n G ∙ F r É t t A b L A ð i ð menning 1 3 -1 0 -2 0 1 8 0 4 :3 0 F B 1 0 4 s _ P 0 8 8 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 7 3 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 1 1 1 -B B F C 2 1 1 1 -B A C 0 2 1 1 1 -B 9 8 4 2 1 1 1 -B 8 4 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 1 0 4 s _ 1 2 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.