Fréttablaðið - 13.10.2018, Blaðsíða 34
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um-
fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar-
efni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Sólveig Gísladóttir, solveig@frettabladid.is s. 512 5351 | Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 512 5349 |
Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is, s. 512 5368 Brynhildur Björnsdóttir, brynhildur@frettabladid.is, s. 512 5347
| Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@frettabladid.is, s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@frettabladid.is, s. 512 5358 |
Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is s. 512 5338
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Kristín Þorsteinsdóttir
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@
frettabladid.is, s. 512 5442, Atli Bergmann, atli@
frettabladid.is, s. 512 5457, Jón Ívar Vilhelmsson,
jonivar@frettabladid.is, s. 512 5429,
Lilja mátti ekki bíða mikið lengur með að fara til læknis. Hún segist hafa verið komin í
mikla lífshættu þar sem æðarnar
gátu lokast hvenær sem var. Eftir
að hún leitaði til læknis þurfti hún
engu að síður að hafa heilmikið
fyrir því að komast í hjartaþræð-
ingu. „Þegar ég fór að finna fyrir
verk í brjóstkassanum vissi ég auð-
vitað ekki nákvæmlega hvað þetta
var. Mig grunaði samt að hann
væri merki um eitthvað óeðlilegt.
Í hjartaþræðingunni kom í ljós að
þrjár af aðalæðunum voru mikið
stíflaðar. Lykla-Pétur stóð bara
með kippuna í dyrunum,“ segir
Lilja. „Ég fékk stoðnet í aðgerðinni,
var síðan sett á blóðfitulækkandi
lyf, blóðþynningarlyf og barna-
magnyl. Síðan tók endurhæfing
við,“ útskýrir hún.
Breyting til batn-
aðar
„Ég hafði ekki verið
á lyfjum áður og þau
fóru ekki vel í mig.
Þar fyrir utan leiðist
mér að taka lyf þó
ég viti að þau geti
auðvitað verið lífs-
nauðsynleg. Dóttir
mín, Ragga nagli,
kom til mín með
Cholesterol Pro frá
fyrirtækinu NOW.
Það er náttúruleg
vara sem getur
hjálpað til við að
halda kólesteróli
eðlilegu. Ég var
nýbúin að vera
í mælingu hjá
lækninum. Vonda
kólesterólið var
enn of hátt en þar
sem lyfin fóru illa
í mig ákvað ég að
prófa Cholesterol Pro. Ég fór aftur í
mælingu sex mánuðum síðar og þá
hafði orðið mikil breyting. Vonda
kólesterólið hafði lækkað umtals-
vert. Læknirinn taldi að lyfin sem
hann hafði gefið mér hefðu gefið
svona góða raun. Þegar ég sagði
honum að ég hefði ekki tekið þau
heldur náttúrlegt efni sem héti
Cholesterol Pro frá NOW trúði
hann mér varla. Bæði lækninum
og hjúkrunarfræðingnum fannst
þetta ótrúlegt. Síðan hef ég tekið
eina töflu á dag og veit ekki betur
en að allt sé í góðu lagi. Ég vonast
til að næsta mæling sýni það,“ segir
Lilja sem starfar á skrifstofunni hjá
Gaman ferðum sem er dótturfyrir-
tæki WOW air ásamt því að vera
fararstjóri víða um heim og skipu-
leggja hópferðir.
Barðist fyrir hjartaþræðingu
„Ég er enginn sérfræð-
ingur í náttúrulegum
efnum en veit að
Cholesterol Pro
hefur gert gott fyrir
mig. Reyndar fannst
læknunum í byrjun
algjör óþarfi hjá
mér að fara í
hjartaþræðingu
og ég þurfti að
hafa fyrir því að á
mig væri hlustað.
Ég hafði farið í
skanna tveimur
árum áður en fékk
aldrei niðurstöðu
frá þeirri rannsókn
frá lækninum. Það
liðu sem sagt tæp
tvö ár þar til ég
leitaði aftur læknis
þegar verkirnir
fóru að ágerast. Sá
sendi mig í þrek-
próf og skoðaði
jafnframt hvað hefði komið út úr
skönnuninni. Það var hann sem
sagði mér að mikil breyting hefði
komið í ljós þegar ég fór í skann-
ann. Ég væri greinilega með æða-
þrengsli. Ég hins vegar gleymdist
í skúffunni hjá lækninum og fékk
ekkert að vita,“ segir Lilja og vonar
að fleiri hafi ekki lent í því saman.
Fólk eigi rétt á að fá upplýsingar
sem koma fram í rannsóknum.
Konur öðruvísi en karlar
„Verkirnir sem ég fékk voru stað-
bundnir og leiddu ekki út í hand-
legg. Ég held að þetta sé skóla-
bókardæmi um það sem hefur
verið sagt að konur fái annars
konar einkenni vegna hjarta- og
æðasjúkdóma en karlar. Ég geng
mikið, spila golf og hef lengi spilað
badminton. Spilafélagi minn trúði
mér varla þegar ég sagðist hafa
farið í hjartaþræðingu. „Og þú sem
hleypur hraðar en vindurinn,“
sagði vinkona mín. Ég fann aldrei
fyrir neinu á hlaupum eða göngu.
Það var helst þegar ég var í hvíldar-
stöðu, til dæmis að lesa bók, sem
ég fann fyrir verknum,“ segir hún.
Lilja segist hafa góða reynslu af
vörunum frá NOW. Hún hefur tekið
inn D-vítamín frá NOW og segir að
það geri sér líka gott. „Lyf hafa auka-
verkanir en ekki heilsuvörurnar.
Þær eru því góður kostur fyrir mig.
Dóttir mín hefur mælt með þessum
vörum og sömuleiðis Guðrún Berg-
mann. Mér fannst því allt í góðu lagi
að prófa hvort þetta reyndist vel
fyrir mig og sé ekki eftir því.“
Lilja ákvað að sleppa blóðfitulækkandi lyfi og tók í staðinn Cholesterol Pro sem er náttúrlegt efni. Það hefur gefið góða raun. MYND/ERNIR
Cholesterol Pro
hefur reynst
Lilju mjög vel í
baráttunni við
of hátt kólest-
eról.
Í hjartaþræðing-
unni kom í ljós að
þrjár af aðalæðunum
voru mikið stíflaðar.
Lilja Hilmarsdóttir
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 3 . O K tÓ B E R 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R
1
3
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:3
0
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
1
2
-0
6
0
C
2
1
1
2
-0
4
D
0
2
1
1
2
-0
3
9
4
2
1
1
2
-0
2
5
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
0
4
s
_
1
2
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K