Fréttablaðið - 13.10.2018, Blaðsíða 78
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5407.
Elskuleg móðir mín,
tengdamóðir, amma og langamma,
Ingibjörg Benedikta
Jónsdóttir
frá Hellissandi,
Faxabraut 32c, Keflavík,
lést á Hrafnistu, Hlévangi, laugardaginn
6. október. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju
fimmtudaginn 18. október kl. 13.00.
Sólveig Anna Einarsdóttir Björn Rúnar Albertsson
Björn Björnsson
Sveindís Árnadóttir
Einar Árni Jóhannsson
Ingvi Steinn Jóhannsson
Þóra Björg Jóhannsdóttir
barnabarnabörn og aðrir aðstandendur.
Ástkær eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir, amma og langamma,
Guðný Margrét Árnadóttir
Rauðalæk 19, Reykjavík,
lést föstudaginn 28. september
á Landspítalanum í Fossvogi.
Útför verður frá Háteigskirkju
föstudaginn 19. október kl. 13.00.
Þorgrímur Jónsson
Bára Þorgerður Þorgrímsdóttir Ólafur Jónsson
Sigurður Trausti Þorgrímsson Zhanna Þorgrímsdóttir
Jón Þór Þorgrímsson Aldís Yngvadóttir
Herdís Þorgrímsdóttir Kristinn G. Hjaltalín
barnabörn og barnabarnabörn.
Útfararþjónusta
& lögfræðiþjónusta
Veist þú hvert eignir þínar renna eftir þinn dag?
Kynntu þér málið á heimasíðu okkar, www.útför.is.
Þar getur þú m.a. sett inn þínar forsendur
í reiknivél. Við aðstoðum þig við gerð
erfðaskrár, kaupmála og við dánarbússkipti.
Katla Þorsteinsdóttir,
lögfræðingur
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Með kærleik og virðingu
Útfararstofa Kirkjugarðanna
Vesturhlíð 2, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Þegar félagið var stofnað fyrir um það bil 90 árum voru fjárbændur úti um alla borg. Fólk var með sjálfsþurftar-búskap og átti kindur í bakgarðinum,“ segir Árni
Ingason, formaður Fjáreigendafélags
Reykjavíkur. Það er félagsskapur þeirra
sem stunda búskap í frítíma sínum í
Reykjavík og haldið verður upp á níutíu
ára afmæli hans með heilmiklu hófi í
kvöld í sal Garðyrkjufélagsins.
Sauðfjárbændurnir í borginni hafa
langflestir aðstöðu í svokallaðri Fjárborg
sem tilheyrir Hólmsheiði. En þannig
hefur það ekki alltaf verið eins og Árni
lýsir: „Gamla Fjárborg var þar sem Tengi
við Smiðjuveg er núna og þá var réttin
þar sem Staldrið er (nú hinum megin við
Reykjanesbrautina) en féð gekk meðal
annars í Breiðholtinu. Svo hófst upp-
bygging þar og um 1970 var gert sam-
komulag við þáverandi borgarstjóra,
Geir Hallgrímsson, um land og uppbygg-
ingu fjárhúsa á Hólmsheiði, þar sem við
erum núna. Svo eftir tvö ár verður nýja
Fjárborgin 50 ára. Þar hefur byggst upp
hverfi, upphaflega mátti bara vera fé
þar en svo fékkst heimild til að hafa þar
smalahesta. Þá komust hestar inn í Fjár-
borgina og þeir eru orðnir margir í dag.“
En hversu margt fé eiga Reykvíkingar?
„Það eru um 150 vetrarfóðraðar
kindur í Fjárborg, í 10 eða 11 húsum, og
þær eru í eigu margra, því oft eru fleiri en
einn eigandi á bak við hvert hús. Menn
sameinast um þennan búskap. Fólk er
með fimm ær og upp í 25. Fénu er alltaf
að fækka enda borgar sig fyrir okkur sem
þurfum að kaupa öll aðföng að fara út
í búð og kaupa okkur kjöt. En þetta er
fyrir gamanið gert.“
Afrétturinn er á Sandskeiði, norðan
Suðurlandsvegar, að sögn Árna, og
fjáreigninni tilheyra töluverðar smala-
mennskur, eins og vænta má, meðal
annars um Hengilssvæðið. „En það er
alltaf vel mannað í leitum, jafnvel um 40
manns sem mæta í þær og nánast smal-
að öxl við öxl í seinni tíð,“ segir hann.
Árni segir á annað hundrað manns
í félaginu. Þar af bara einn sem er
einungis með kindur, aðrir bæði með
hesta og kindur en meirihluti félags-
manna er eingöngu hestamenn. „Þátt-
taka í félaginu er skilyrði fyrir því
að fá hús í Fjárborg,“ útskýrir hann.
„Fjáreigenda félagið virkar þannig líka
sem húsfélag. Svo er einn félagsmaður
með fé utan Fjárborgar. Það er Ólafur
Dýrmundsson, fyrrverandi ráðunautur
Bændasamtakanna, sem hýsir sínar
kindur uppi í Jóruseli í Breiðholti.“
Innan félagsins eru margir sérstakir
karakterar, að sögn Árna. „Margir
þessir eldri eru uppaldir í sveit og vanir
skepnuhaldi. Svo hefur orðið nýliðun,
það hefur komið inn ungt fólk sem
finnst gaman að vera með kindur og
það er vel.“
Hvernig verður þetta hóf hjá ykkur í
kvöld?
„Bara hefðbundið. Við ætlum að hitt-
ast og borða góðan mat, Ari Eldjárn
ætlar að skemmta okkur og svo kemur
hljómsveit að spila fyrir dansi.“
gun@frettabladid.is
Með kindur í bakgarðinum
Frístundabændur í borginni fagna níutíu ára afmæli Fjáreigendafélags Reykjavíkur í
kvöld með góðri veislu, gamanmálum og dansi. Árni Ingason er formaður félagsins.
Árni Ingason segir marga sérstaka karaktera innan Fjáreigendafélagsins. FréttablaðIð/ErnIr
það er alltaf vel
mannað í leitum,
jafnvel um 40 manns sem
mæta í þær og nánast smalað
öxl við öxl í seinni tíð.
Fyrsti grínþáttur Fóstbræðra fór í loftið þennan
mánaðardag árið 1997. Upphaflegir meðlimir þess
gríngengis voru Jón Gnarr, Sigurjón Kjartansson,
Helga Braga Jónsdóttir, Hilmir Snær Guðnason og
Benedikt Erlingsson. Hilmir Snær var aðeins með
í einni seríu en þá kom Þorsteinn Guðmundsson í
hans stað. Í þriðju seríu bættist Gunnar Jónsson í
hópinn.
Fóstbræður slógu strax í gegn og eru reglulega
endursýndir, auk þess sem búið er að horfa á mörg
atriði úr þáttunum mörg þúsund sinnum á YouTube.
Margir ódauðlegir karakterar urðu til í þáttunum, til
dæmis Júlli, Gyða Sól og Helgi, persónulegi trúba-
dorinn.
Þeir hrifsuðu líka til sín verðlaun. Þátturinn var
valinn besta leikið sjónvarpsefni ársins 1999 á
Edduverðlaunahátíðinni og ári síðar var hann valinn
skemmtiþáttur ársins. Þá hlaut Jón Gnarr verðlaun
sem leikari ársins í aðalhlutverki fyrir frammistöðu
sína í þáttunum árið 2001 og það ár var Ragnar Braga-
son tilnefndur sem leikstjóri ársins fyrir Fóstbræður.
Þ ETTA G E R ð I ST : 1 3 . o kTÓ B E R 1 9 9 7
Fóstbræður flugu af stað
1 3 . o k t ó b e r 2 0 1 8 L A U G A r D A G U r38 t í m A m ó t ∙ F r É t t A b L A ð i ð
tímamót
1
3
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:3
0
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
1
1
-E
8
6
C
2
1
1
1
-E
7
3
0
2
1
1
1
-E
5
F
4
2
1
1
1
-E
4
B
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
1
0
4
s
_
1
2
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K