Fréttablaðið - 13.10.2018, Blaðsíða 2
Veður
Suðvestan 3-10 í dag og skúrir síð-
degis en léttir til norðaustan- og
austanlands. Kólnandi veður, hiti 0
til 6 stig, svalast í innsveitum fyrir
norðan. sjá síðu 46
Þýðingastyrkir eru veittir til
að þýða á íslensku mikilvæg
verk úr samtímanum, erlendar
fagurbókmenntir og fræðirit.
Jafnframt eru veittir styrkir til
þýðinga vandaðra, myndríkra
bóka fyrir börn og ungmenni.
Umsóknarfrestur er
til 15. nóvember 2018.
Umsóknareyðublöð
og nánari upplýsingar
á islit.is
Miðstöð íslenskra
bókmennta
auglýsir eftir
umsóknum um
þýðingastyrki
Biðu í röð við Hafnartorg
H&M opnaði verslun sína í hinu nýja og glæsilega húsnæði við Hafnartorg í miðborg Reykjavíkur í gær. Töluverð biðröð hafði myndast áður en
dyrnar voru opnaðar almenningi í fyrsta sinn. Létu viðskiptavinir sig hafa það fyrir gjafabréf og afsláttarkjör fram eftir degi. Fréttablaðið/anton brink
reykjavík Formaður borgarráðs
telur ekki að flokkur hennar sé
að taka skellinn fyrir mál sem eru
honum óviðkomandi. Heimildir
Fréttablaðsins herma að nokkurrar
gremju hafi gætt innan baklands
Viðreisnar vegna viðbragða kjör-
inna fulltrúa flokksins við málum
liðinna vikna.
Mál braggans í Nauthólsvík svo
og starfsumhverfi innan Orkuveitu
Reykjavíkur og dótturfyrirtækja
hafa verið mikið í umræðunni
undanfarið og hefur nokkuð mætt
á borgarfulltrúum af þeim sökum.
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri er
í veikindaleyfi og hefur það því oft
komið í hlut Þórdísar Lóu Þórhalls-
dóttur, formanns borgarráðs og
oddvita Viðreisnar, og Dóru Bjartar
Guðjónsdóttur, forseta borgar-
stjórnar og oddvita Pírata, að svara
fyrir hönd meirihlutans þegar málin
ber á góma.
Sem kunnugt er fór Viðreisn í
samstarf með síðasta meirihluta,
sem samanstóð af Samfylkingu,
Vinstri grænum og Pírötum, að
loknum kosningum í vor. Meðal
Viðreisnarmanna hefur því verið
fleygt að ekki sé rétt að flokkurinn
þurfi að svara fyrir illa unnin verk
annarra. Flokkurinn hafi ekki
komið að þessum málum og eigi því
ekki að falla á sverðið.
„Fólk innan flokksins er með
margs konar skoðanir á ýmsum
málum og okkur finnst eðlilegt að
það sé fjölbreytt sýn á hlutina. Við
erum ekki með eina ríkisskoðun og
teljum eðlilegt að fólk spyrji spurn-
inga,“ segir Þórdís Lóa.
Hún segir að þau líti ekki svo á
málið að þau séu að „falla á sverðið“.
Í hvert skipti sem mál braggans víð-
fræga hafi verið rætt hafi Viðreisn
sagt að málið sé alvarlegt og að gera
þurfi gangskör í ferlinu þar að baki.
„Við höfum ekki afsakað eitt né
neitt heldur ítrekað að við teljum
þetta alvarlegt. Eitt af stefnumálum
Viðreisnar er að sýna gagnsæja og
agaða fjármálastjórn. Þegar við
fréttum af málinu fórum við fyrst
fram á skoðun á því og nú síðast
heildarskoðun þannig að ekk-
ert verði skilið eftir. Vinnubrögð
okkar eru að fá allt upp á borðið og
taka síðan yfirvegaða og upplýsta
ákvörðun,“ segir Þórdís Lóa.
Óánægjuraddir hafa einnig heyrst
innan raða Pírata en í dag fer fram
opinn félags- og borgarafundur
um „braggasukkið í Nauthóls-
vík“. Fundurinn hefst klukkan 13 í
höfuðstöðvum flokksins, Tortuga.
Ekki náðist í Dóru Björt við vinnslu
fréttarinnar þrátt fyrir ítrekaðar til-
raunir.
joli@frettabladid.is
Viðreisn telur sig ekki
falla á pólitískt sverð
Raddir hafa heyrst innan raða Viðreisnar um að óskiljanlegt sé að flokkurinn
sé að svara fyrir klúður annarra. Oddvitinn segir eðlilegt að flokksmenn deili
ekki allir sömu skoðun. Svör flokksins séu í fullu samræmi við stefnumál hans.
bragginn í nauthólsvík bíður þess að verða kláraður. Fréttablaðið/SteFán
Fólk innan flokks-
ins er með margs
konar skoðanir á ýmsum
málum og okkur finnst
eðlilegt að það sé fjölbreytt
sýn á hlutina.
Þórdís Lóa
Þórhallsdóttir,
formaður
borgarráðs
reykjavík „Það er framkvæmda-
stopp. Hins vegar er ekki mikið
eftir,“ segir Bjarni Brynjólfsson,
upplýsingastjóri Reykjavíkurborg-
ar, um stöðu framkvæmdanna við
Nauthólsveg 100.
Hin endurbyggðu hús við Naut-
hólsveg hafa í daglegu tali verið köll-
uð „bragginn“ en hann er þó aðeins
þriðjungur framkvæmdarinnar.
Um er að ræða bragga, skemmu og
svokallað náðhús auk nýrrar tengi-
byggingar.
„Aðeins á eftir að ljúka frágangi
við fyrirlestrasalinn eða náðhúsið
svokallaða,“ segir Bjarni um hverju
sé ólokið. Aðspurður hvenær áætl-
uð verklok séu virðist það óljóst.
„Framhaldið er ekki klárt.“
Upphafleg kostnaðaráætlun verk-
efnisins hljóðaði upp á 158 millj-
ónir en framkvæmt hefur verið fyrir
415 milljónir. – smj
Lítið eftir en allt
stopp í bragga
skipulagsmál Aukning á þunga-
flutningum um Vesturlandsveg,
sjón- og hljóðmengun, auk mögu-
legra áhrifa vegna sandfoks er meðal
þess sem skipulagsnefnd Mosfells-
bæjar segist hafa áhyggjur af vegna
áforma um iðnaðaruppbyggingu í
Álfsnesvík.
Sérstaklega lúta áhyggjur skipu-
lagsnefndar að áhrifum iðnaðar-
uppbyggingarinnar á íbúðar- og
útivistarsvæði í Mosfellsbæ.
„Skipulagsnefnd gerir ekki
athugasemd við drög að tillögu að
breytingu á Aðalskipulagi Reykja-
víkur 2010-2030 ásamt drögum að
umhverfisskýrslu en leggur áherslu
á að umhverfisáhrif breytingarinnar
verði metin sérstaklega með tilliti
til hagsmuna byggðar- og útivistar-
svæða í Mosfellsbæ,“ segir í bókun
skipulagsnefndarinnar. – gar
Hafa áhyggjur af Álfsnesvík
álfsnesvík er neðan við athafnasvæði Sorpu. Fréttablaðið/anton brink
1 3 . o k t ó b e r 2 0 1 8 l a u g a r D a g u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð
1
3
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:3
0
F
B
1
0
4
s
_
P
1
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
1
1
-B
7
0
C
2
1
1
1
-B
5
D
0
2
1
1
1
-B
4
9
4
2
1
1
1
-B
3
5
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
0
4
s
_
1
2
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K