Fréttablaðið - 13.10.2018, Blaðsíða 20
VR óskar eftir orlofshúsum
VR óskar eftir að leigja vönduð sumar hús eða
orlofsíbúðir til framleigu fyrir félagsmenn sína.
Leitað er eftir húsnæði á landsbyggðinni fyrir
næsta sumar.
Áhugasamir sendi upplýsingar á vr@vr.is
fyrir 20. nóvember 2018.
Eftirfarandi upplýsingar þurfa
að fylgja:
VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | SÍMI 510 1700 | WWW.VR.IS
• Lýsing á eign og því sem henni fylgir
• Ástand íbúðar og staðsetning
• Stærð, fjöldi svefnplássa og byggingarár
• Lýsing á möguleikum til útivistar og
afþreyingar í næsta nágrenni
Öllum tilboðum verður svarað.
Keflavík - KR 85-79
Keflavík: Michael Craion 27, Reggie Dupree
19, Hörður Axel Vilhjálmsson 14, Gunn-
ar Ólafsson 11, Guðmundur Jónsson 6,
Magnús Már Torfason 4, Ágúst Orrason 2,
Þröstur Leó Jóhannsson 2.
KR: Julian Boyd 29, Sigurður Á. Þorvaldsson
13, Jón Arnór Stefánsson 13, Björn Krist-
jánsson 9, Emil Barja 6, Orri Hilmarsson 5,
Dino Stipcic 2.
Haukar - ÍR 66-84
Haukar: Hilmar Smári Henningsson 18,
Marques Oliver 12, Kristinn Marinósson 10,
Kristján Leifur Sverrisson 8, Matic Macek 7,
Haukur Óskarsson 6, Hamid Dicko 3, Daði
Lár Jónsson 2.
ÍR: Gerald Robinson 23/15 fráköst, Justin
Martin 19, Sigurður Gunnar Þorsteinsson
17, Hákon Örn Hjálmarsson 16, Matthías
Orri Sigurðsson 4, Sæþór E. Kristjánsson 3,
Benóný Svanur Sigurðsson 2.
Nýjast
Domino’s-deild karla
ÍBV - Valur 18-18
ÍBV: Greta Kavaliuskaite 6, Arna Sif Páls-
dóttir 4, Ester Óskarsdóttir 3, Kristrún
Hlynsdóttir 2, Sandra Dís Sigurðardóttir 1,
Karólína Bæhrenz 1, Ásta B. Júlíusdóttir 1.
Valur: Lovísa Thompson 6, Sandra Erlings-
dóttir 5, Ragnhildur Edda Þórðardóttir 2,
Íris Ásta Pétursdóttir 2, Anna Úrsúla Guð-
mundsdóttir 1, Díana Dögg Magnúsdóttir 1.
Selfoss - Þór/KA 18-24
Selfoss: Sarah Boye Sörensen 6, Hrafn-
hildur Hanna Þrastardóttir 4, Perla Ruth
Albertsdóttir 3, Kristrún Steinþórsdóttir
3, Hulda Dís Þrastardóttir 1, Ída Bjarklind
Magnúsdóttir 1.
Þór/KA: Martha Hermannsdóttir 8, Katrín
Vilhjálmsdóttir 4, Hulda Bryndís Tryggva-
dóttir 4, Sólveig Lára Kristjánsdóttir 3,
Ásdís Guðmundsdóttir 2, Rakel Sara Elvars-
dóttir 1, Þórunn Eva Sveinbjörnsdóttir 1.
Efri
Fram 8
Valur 5
ÍBV 5
KA/Þór 4
Neðri
HK 4
Stjarnan 3
Haukar 2
Selfoss 1
Olís-deild kvenna
Þjóðadeildin
A-deild
Riðill 2
Belgía - Sviss 2-1
1-0 Romelu Lukaku (58.), 1-1 Mario
Gavranovic (76.) , 2-1 Lukaku (84.).
Riðill 4
Króatía - England 0-0
B-deild
Riðill 3
Austurríki - N-Írland 1-0
1-0 Marko Arnautovic (71.).
C-deild
Riðill 2
Eistland - Finnland 0-1
Grikkland - Ungverjaland 1-0
D-deild
Riðill 2
H-Rússland - Lúxemborg 1-0
Moldóva - San Marínó 2-0
Fótbolti Það má með sanni segja
að íslenska karlalandsliðið í knatt-
spyrnu hafi sýnt sitt rétta andlit
þegar liðið gerði jafntefli við Frakk-
land í vináttulandsleik liðanna í
Guingamp síðastliðið fimmtudags-
kvöld. Fréttablaðið fékk Ólaf Helga
Kristjánsson, þjálfara karlaliðs
FH, til þess að meta frammistöðu
íslenska liðsins í leiknum gegn
Frakklandi og spá í spilin fyrir leik-
inn gegn Sviss sem fram fer á Laugar-
dalsvellinum á mánudagskvöldið.
„Heildarbragurinn og holningin
á liðinu var allt önnur í þessum
leik en í síðustu tveimur leikjum
liðsins. Það verður að taka það með
í myndina að Erik Hamrén hafði
afskaplega stuttan tíma til þess að
undirbúa liðið fyrir fyrstu leiki sína
í starfi og þá vantaði fjölmarga lykil-
leikmenn í liðið í frumraunum hans.
Verkskipulagið og vinnuframlagið
var til fyrirmyndar í leiknum í gær
og þarna þekkti maður liðið á nýjan
leik,“ segir Ólafur Helgi um muninn
á leikjunum gegn Sviss og Belgíu í
Þjóðadeild UEFA í september og svo
leiknum gegn Frakklandi í gær.
„Við þéttum raðirnar inni á mið-
svæðinu og Alfreð Finnbogason lék
einkar vel sem fremsti varnarmaður
og samvinna hans og Gylfa Þórs Sig-
urðssonar við að loka á sendinga-
leiðir í gegnum miðju vallarins var
með eindæmum góð. Varnarlínan
stóð sig frábærlega og mér fannst
Ragnar Sigurðsson og Kári Árnason
eiga einkar góðan leik. Uppstill-
ingin að hafa Birki Má [Sævarsson]
og Hólmar Örn [Eyjólfsson] gekk
vel upp og þeir stóðu sig báðir vel.
Birkir Már ógnaði með hraða sínum
og Hólmar Örn gerði hlutina einfalt
og vel,“ segir hafnfirski þjálfarinn
um varnarvinnu liðsins.
„Það var svo ofboðslega gaman að
sjá hversu langt Rúnar Alex [Rúnars-
son] er kominn í þroskaferli sínu
sem leikmaður. Hann var eins og
ávallt yfirvegaður í uppspilinu og
öflugur í aðgerðum sínum í víta-
teignum. Hannes Þór [Halldórsson]
Heildarbragurinn á íslenska
liðinu allt annar í þessum leik
Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu náði vopnum sínum á nýjan leik eftir fremur slaka frammistöðu í
tvígang þegar liðið gerði jafntefli við ríkjandi heimsmeistara á fimmtudagskvöldið. Fram undan er seinni
leikur liðsins gegn Sviss í Þjóðadeild UEFA sem leikinn verður á Laugardalsvellinum á mánudaginn.
Gylfi Þór Sigurðsson, fyrirliði íslenska liðsins, átti afbragðs leik gegn Frökkum bæði í vörn og sókn. Ólafur Kristjáns-
son segir hann og Alfreð Finnbogason vera meðal lykilmanna í góðum varnarleik hjá liðinu. NORDiCpHOtOS/GEtty
kom svo vel inn í leikinn og honum
líður augljóslega vel fyrir aftan Kára
og Ragnar. Ég hef orðið þess heiðurs
aðnjótandi að þjálfa þá báða og það
er gaman að sjá hversu vel við erum í
sveitt settir með markmenn, bæði til
skamms tíma og til framtíðar,“ segir
Ólafur Helgi um markmannasveit
íslenska liðsins.
„Það sem gladdi mig eiginlega
mest var þorið við að halda bolt-
anum og hversu vel uppspilið var
framkvæmt. Fyrra markið var svo
eftir frábæra pressu hjá Alfreð sem
sýndi styrk sinn í varnarleiknum og
útsjónarsemina í sóknarleiknum
með því að finna Birki [Bjarnason]
sem kláraði færið af stakri prýði.
Við vorum búnir að skapa fjöl-
mörg góð færi eftir hálftíma leik
og það er afar jákvætt að sjá hvað
sóknar leikurinn gekk smurt,“
segir hann um sóknarleikinn.
„Við þurfum að spila á svipaðan
máta gegn Sviss og við gerðum
gegn Frakklandi til þess að ná í hag-
stæð úrslit í þeim leik. Við vorum
fremur gisnir inni á miðsvæðinu
í fyrri leiknum gegn Sviss, en það
var allt annað uppi á teningnum
á móti Frökkum. Við þurfum að
halda áfram að beina þeim út á við
þegar við verjumst og verja hjartað
í vörninni og á miðjunni jafn vel
og við gerðum á fimmtudaginn. Ef
við gerum það þá er ég bjartsýnn á
jákvæða niðurstöðu,“ segir prófess-
orinn um komandi verkefni.
hjorvaro@frettabladid.is
Það sem gladdi mig
eiginlega mest var
þorið við að halda boltanum
og hversu vel uppspilið var
framkvæmt. Við þurfum að
spila á svipaðan máta gegn
Sviss og gegn Frakklandi til
þess að ná í hagstæð úrslit.
Ólafur Helgi Kristjánsson
1 3 . o k t ó b e r 2 0 1 8 l A U G A r D A G U r20 S p o r t ∙ F r É t t A b l A ð i ð
Sport
1
3
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:3
0
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
1
1
-D
4
A
C
2
1
1
1
-D
3
7
0
2
1
1
1
-D
2
3
4
2
1
1
1
-D
0
F
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
1
0
4
s
_
1
2
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K