Morgunblaðið - 12.07.2018, Page 1

Morgunblaðið - 12.07.2018, Page 1
F I M M T U D A G U R 1 2. J Ú L Í 2 0 1 8 Stofnað 1913  162. tölublað  106. árgangur  RAFRÆNN PÓSTUR FRÁ ÞVÍ OPINBERA LISTSÝNING Á DJÚPAVOGI MYNDIR AF SUMRINU Í REYKJAVÍK RÚLLANDI SNJÓBOLTI/11 38 DAGLEGT LÍF 12VIÐSKIPTAMOGGINN Hátíðarfundur Alþingis verður á Þingvöllum 18. júlí. Þann dag fyrir 100 árum var samningum um fullveldi Íslands lokið með undirritun sambandslaganna sem tóku síðan gildi 1. des- ember 1918. Forseti Íslands og þingmenn ásamt erlendum sendiherrum munu ganga fylktu liði niður Almannagjá til að vera viðstaddir fundinn. Mun hann fara fram undir berum himni á sérstaklega byggðum þingpöllum. Að sögn Einars Á.E. Sæmundsen, þjóðgarðsvarðar á Þingvöllum, er það tveggja til þriggja daga vinna að setja upp pallana fyrir fund- inn samanborið við tveggja til þriggja vikna vinnu fyrir Kristnitökuhátíðina árið 2000. Nú var ákveðið að flytja pall- ana í þjóðgarðinn með þyrlu til að flýta fyrir ferlinu. Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Undirbúningur fyrir hátíðarfund Ari Edwald, for- stjóri Mjólkur- samsölunnar (MS), segir sölu á skyri í Rússlandi ganga vonum framar. Pantanir hafi streymt inn og fleiri versl- anakeðjur sett sig í samband við framleiðandann en reiknað var með. Áformað er að framleiða sem nemur tvöfaldri ársneyslu á Íslandi innan þriggja ára. Þá hefur verið samið við dótturfélag japanska stórfyrirtækisins Nippon um dreif- ingu á skyri í Japan. Hyggst Nipp- on nota skyrið sem stökkpall að auknum umsvifum í mjólkurgeir- anum. MS stofnaði í byrjun mánaðarins dótturfélagið Ísey Exports um sölu á skyri á erlendum mörkuðum. Ari segir vörumerkjasamninga greiða fyrir þeirri sókn. „Það eru auðvitað mörg lönd eftir og við höfum metn- aðarfull markmið um að Ísey skyr verði þekktasta skyrvörumerki heims,“ segir Ari. Hann segir það ekki mundu koma á óvart ef árleg framlegð Ísey Exports af þessari starfsemi færi yfir milljarð króna að fáum árum liðnum. »ViðskiptaMogginn Pantanir streyma inn í Rússlandi Ari Edwald  Pálmi V. Jónsson, prófessor og yfirlæknir á öldrunarlækninga- deild Landspítalans, segir að ný skýrsla KPMG um færni- og heilsu- mat veki upp hugsanir um hvaða valkostir geti verið til staðar við hjúkrunarheimilisdvöl. Nú sé tæki- færi til að taka kröftuglega á mál- um og bæta þjónustu við aldraða án þess að einblína á heimahjúkrun í óbreyttri mynd eða stöðuga fjölgun hjúkrunarrýma. »10 Margar leiðir til að bæta líðan aldraðra Teitur Gissurarson teitur@mbl.is „Við erum alltaf undirmannaðar. Á hverri einustu vakt.“ Þetta segir Arn- dís Pétursdóttir, ljósmóðir á með- göngu- og sængurlegudeild Land- spítalans, í sam- tali við Morgun- blaðið. Arndís er ein þeirra ljós- mæðra sem hefur staðið vaktina síð- an uppsagnir 12 ljósmæðra tóku gildi um síðustu mánaðamót. „Ég er búin að vera að vinna alla daga nema einn síðan 1. júlí og það er bara mjög þung stemning í vinnunni,“ segir Arndís en hún segir að ljósmæður af öðrum deildum spít- alans hafi verið færðar til í þeim til- gangi að manna meðgöngudeildina. Þrátt fyrir það vanti nú um tvær til fjórar ljósmæður á hverja vakt en grunnmönnun á dagvakt á deildinni er sjö ljósmæður og fjórar á nætur- vakt. Meiri hætta á mistökum „Það eru margar sem eru ekki bún- ar að segja upp. En það eru líka margar sem eru að hugsa um að segja upp,“ segir Arndís en aðspurð hvort hún sé í hópi þeirra sem eru að hugsa um að segja upp kveður hún já við. „Það er engin okkar sem getur unnið svona endalaust,“ bætir hún við. Spurð um hvað hafi breyst í starf- semi deildarinnar á síðustu dögum svarar Arndís: „Þjónustan við skjól- stæðinga deildarinnar, nýbakaða for- eldra og nýbura, er skert. Við höfum minni tíma til að sinna hverri konu fyrir sig. Við hlaupum meira og verð- um langþreyttar. Það er meiri hætta á að við gerum mistök.“ Framhaldið óljóst Samninganefndir ríkisins og ljós- mæðra funduðu í húsakynnum ríkis- sáttasemjara í gær. Beggja vegna samningaborðsins segjast aðilar vera komnir að þolmörkum sínum og í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi sagðist Gunnar Björnsson, formaður samninganefndar ríkisins, hafa þegar nýtt umboð sitt til samninga til hins ýtrasta. Hljóðið var svipað í Katrínu Sif Sigurgeirsdóttur, formanni samn- inganefndar ljósmæðra, sem sagði í samtali við Morgunblaðið í gær- kvöldi: „Það er svo langt í land að það hefur ekki einu sinni verið boðaður annar fundur.“ Allar vaktir eru undirmannaðar  Skert þjónusta og ljósmæður eru orðnar langþreyttar Arndís Pétursdóttir MBáðar nefndir komnar … »2 Morgunblaðið/Eggert Fundað Samninganefnd ríkisins á fundi hjá ríkissáttsemjara í gær.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.