Morgunblaðið - 12.07.2018, Síða 41

Morgunblaðið - 12.07.2018, Síða 41
MENNING 41 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. JÚLÍ 2018 Önnur kona hefur sakað franska kvikmyndaleikstjórann og -framleið- andann Luc Besson um að beita hana kynferðislegu ofbeldi, skv. vef breska dagblaðsins Guardian. Í maí síðastliðnum kærði 27 ára leikkona hann fyrir að byrla henni ólyfjan og nauðga henni en að þessu sinni er það 49 ára kona sem starfar við leik- araval í kvikmyndum sem sakar Besson um að hafa beitt hana ofbeldi og mun hún hafa sent saksóknara í París bréf þess efnis en lögreglan hefur nauðgunarkæruna til rann- sóknar. Besson hefur neitað allri sök og sagt kæru leikkonunnar hugarburð. Konan sem kærði Besson nú síðast vill ekki láta nafns síns getið og seg- ist bæði hafa orðið vitni að kynferð- isbrotum Besson og orðið fyrir þeim. Hún segir Besson hafa áreitt hana í hvert sinn sem þau voru ein saman í lyftu. Þá hafa tvær konur til viðbótar þessum tveimur greint franska vefn- um Mediapart frá því að Besson hafi hagað sér ósæmilega í þeirra garð og önnur segist hafa flúið skrifstofu hans í París skríðandi eftir gólfinu. Lögmaður Besson segir hann sak- lausan af öllum þeim brotum sem konurnar hafa sakað hann um. Framleiðslufyrirtæki Besson hefur auk þess lýst yfir stuðningi við hann „á þessum erfiðu tímum“. Besson sakaður um margvísleg kynferðisbrot AFP Kærður Besson hefur verið kærður fyrir nauðgun og sakaður um að brjóta á konum kynferðislega og áreita þær. Fjórar konur hafa borið hann sökum. Mauramaðurinn svokall-aði, Ant-Man, er ein afmýmörgum hetjumMarvel-smiðjunnar og ein sú minnst spennandi, verður að segjast, því Mauramaðurinn er ekki eiginleg ofurhetja, þ.e. manneskja með ofurmannlega krafta, heldur maður sem sækir krafta sína í tækn- ina, líkt og Járn- og Leðurblöku- mennirnir góðkunnu. Mauramað- urinn bregður sér í hátæknigalla og getur stækkað og minnkað sig að vild og það eldsnöggt. Þetta býður auð- vitað upp á mikla möguleika í kvik- myndaforminu, sem voru ágætlega nýttir í fyrstu myndinni um kappann og líka í framhaldsmyndinni sem nú skal tekin til kostanna. Og að þessu sinni fær kvenhetja, Vespan, að láta ljós sitt skína og Mauramaðurinn á það til að falla í skuggann af Vesp- unni (Lilly) og bardagafimi hennar. Mauramaðurinn, réttu nafni Scott Lang (Rudd), er í stofufangelsi í upp- hafi myndar. Sagan hefst þar sem frá var horfið í Captain America: Civil War en í henni brutu ofurhetjurnar í Avengers-hópnum hinn svonefnda Sekóvíu-sáttmála og komust í ónáð hjá Sameinuðu þjóðunum (þeir sem vilja vita meira um þá sögu alla geta kynnt sér hana á netinu). Lang fékk tveggja ára dóm fyrir brotið og af- plánar hann í stofufangelsi heima hjá sér með eftirlitstæki um ökklann. Fari hann út fyrir lóðina birtast á augabragði æstir laganna verðir sem eru býsna spaugilegir í myndinni, líkt og persónur hennar á heildina lit- ið. Uppfinningamaðurinn Hank Pym (Douglas) og dóttir hans Hope, sem einnig er Vespan, eru enn súr út í Lang fyrir að brjóta lögin en þurfa, tilneydd, að leita aðstoðar hans við að finna eiginkonu Pym og móður Hope, Janet, sem hvarf fyrir einum 30 árum inn í heim hins örsmáa, minnkaði sig nær óendanlega í því skyni að bjarga tugþúsundum frá tortímingu. Pym og Hope töldu Jan- et látna en ný uppgötvun bendir til þess að hún sé á lífi og að hægt sé að endurheimta hana og koma í upp- haflega stærð. Pym, Hope og Lang stilla saman strengi sína en að þeim steðjar mikil ógn því kvenvera ein sem kallar sig Ghost, Vofuna (Ka- men), ásælist hátæknigræjur Pym og það gerir einnig glæpaforingi sem er með kaupanda að herlegheitunum. Og Vofan er sérlega erfið við- ureignar því hún getur farið í gegn- um bæði fólk og hluti. Eins og heyra má er söguþráð- urinn ekki upp á marga fiska í þessu nýjasta ævintýri Marvel en ágætt spaug og sprell og hasaratriði bæta fyrir slakt handrit. Brellumeistarar fara á flug í æsilegum bílaeltinga- leikjum um götur San Francisco þar sem bæði bílar, menn og Pez-kallar stækka og minnka. Einna skemmti- legust eru atriðin þar sem stækk- unar- og minnkunarbúnaður Maura- mannsins gefur sig hvað eftir annað þannig að hann fer í heldur óheppi- legar og gagnslausar stærðir. Hinn mjög svo vinalegi Paul Rudd stendur sig vel að vanda, gamanleikari að upplagi og frábær sem slíkur og gaman er að sjá Vespuna, leikna af hinni sjarmerandi Lilly, í stærra hlutverki en í fyrri mynd (er ekki annars kominn tími á Marvel-mynd með kvenhetju í aðalhlutverki?). Ant-Man and the Wasp er fyrst og fremst létt skemmtun og afþreying, fulllétt ef til vill og illskan er af held- ur skornum skammti. Það vantar al- mennilegan vondan karl, eða konu, þó Kamen geri sitt besta í heldur óspennandi hlutverki Vofunnar. Þessi skortur á ógn og mikla áhersla á grín og sprell verður þess valdandi að myndin er dálítið úr takti við aðr- ar Marvel-myndir og þann mikla teiknimyndasagnaheim sem þær sækja í. Það er hins vegar ágætt að ofbeldið er ekki svo gróft að banna þurfi myndina börnum undir 16 ára aldri enda ættu börn á aldrinum 12- 16 ára líka að fá að njóta þessara kvikmynda. En sem fyrr segir er sagan heldur óspennandi og óáhugaverð og hand- ritið ekki upp á marga fiska (að ekki sé minnst á furðulegheit á borð við þau að geta lifað af í 30 ár í míkrós- kópískum heimi án drykkjar og mat- ar, líkt og Janet virðist hafa tekist, og mæta svo eldhress til leiks á ný og meira að segja stífmáluð) sem gerir að verkum að þessi nýjasta Marvel- mynd fellur ekki í flokk þeirra bestu og mun eflaust fljótlega falla í gleymskunnar dá. Ef Mauramað- urinn og Vespan væri mjólkurvara væri hún í besta falli léttmjólk. Hún er samt sem áður ágætisskemmtun og óhætt að mæla með henni nú þeg- ar vel viðrar á höfuðborgarsvæðinu til bíóferða. Sambíóin Kringlunni, Egilshöll og Álfabakka Ant-Man and the Wasp bbbnn Leikstjóri: Peyton Reed. Aðalleikarar: Paul Rudd, Evangeline Lilly, Michael Peña, Michael Douglas, Laurence Fish- burne, Walton Goggins og Hannah John-Kamen. Bandaríkin, 2018. 118 mín. HELGI SNÆR SIGURÐSSON KVIKMYNDIR Mikið fjör en lítil spenna Risastór Mauramaðurinn getur stækkað sig og minnkað að vild eins og sjá má af þessari stillu. Soffía Sæmunds- dóttir myndlist- arkona opnar sýninguna Trú flytur fjöll í Gall- eríi Göngum í dag kl. 16. Gall- eríið er í gang- inum sem liggur milli Háteigs- kirkju og safn- aðarheimilis hennar. Gengið er inn frá safnaðar- heimilinu. Soffía sýnir málverk og smáverk gerð á undanförnum árum sem öðl- ast nýtt samhengi og tilgang þegar þau eru valin saman undir þessum titli, skv. tilkynningu. Sum þeirra hafa verið sýnd áður, en önnur gerði Soffía fyrir sýninguna. Trú flytur fjöll Soffía Sæmundsdóttir Bragi Árnason og Davíð Rist halda tónleika í kvöld kl. 21 á Dillon við Lauga- veg. Þeir munu flytja eigin lög og nokkur eftir aðra og segja inn á milli frá tilurð laga og texta. Bragi er leik- ari og söngvari og hefur m.a. sett á svið eigin söngleik, Barry and his Guitar. Davíð er laga- smiður og stofn- aði nýverið eigin hljómsveit. Bragi og Davíð kynnt- ust í lagasmíðanámi í tónlistardeild Listaháskóla Íslands þar sem þeir voru undir handleiðslu Péturs Ben og Sóleyjar Stefánsdóttur. Þeir lýsa lögum sínum sem dægurlögum og eru innblásnir af ólíkum tónlistar- tegundum, m.a. sál og fönki. Tónleikar á Dillon Davíð Rist Bragi Árnason Glæsilegt úrval af trúlofunar- og giftingarhringa- pörum Hátúni 6a | Sími 577 7740 | carat.is | acredo.is Verð á pari: 239.181 kr. ICQC 2018-20

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.