Morgunblaðið - 12.07.2018, Qupperneq 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. JÚLÍ 2018
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Héraðsdómur Vesturlands felldi í gær úr gildi
erfðaskrá látins manns, en hann hafði arfleitt
ættingja sína að eignum sínum. Atvik málsins
eru um margt talin sérstök og óvenjuleg.
Erfðaskrána gerði maðurinn árið 2004 í
þeirri trú að hann ætti enga skylduerfingja og
var það sérstaklega tekið fram í skránni.
Í faðernismáli á síðasta ári, eftir að mað-
urinn lést, var staðfest að hann átti einkason,
fæddan árið 1951, en móðir hans hafði skömmu
áður hafið sambúð. Síðar gekk hún í hjónaband
með manninum og var sonurinn feðraður hon-
um samkvæmt svokallaðri „pater est“-reglu.
Sonurinn greindi frá því fyrir dómi að hann
hefði frá barnsaldri vitað að maðurinn væri
ekki blóðfaðir hans, heldur maður sem móðir
hann kynntist ári áður en hann fæddist.
Röng hugmynd að baki erfðaskránni
Sóknaraðili í málinu, einkasonurinn, studd-
ist við 38. gr. erfðalaga þar sem fjallað er um þá
aðstöðu er ákvæði í erfðaskrá stafi af rangri
hugmynd arfleifanda. Samkvæmt 38. gr. ber
að meta slík ákvæði ógild ef telja má að röng
hugmynd (forsenda) hafi ráðið úrslitum um
efni ákvæðisins. Taldi sóknaraðili að val hins
látna á erfingjum hefði verið byggt á misskiln-
ingi um erfingja og að miða yrði við að hann
hefði ekki hagað arfleiðslunni með þeim hætti
sem hann gerði hefði hann búið yfir vitneskju
um að hann ætti einkason enda væri ráðstöf-
unin beinlínis óheimil samkvæmt ákvæðum
erfðalaga. Í 35. gr. laganna segir að arfleifanda
sé óheimilt að ráðstafa meira en 1/3 hluta eigna
sinna, eigi hann niðja.
Í niðurstöðu dómsins sagði að í erfðaskránni
væri sérstaklega tekið fram að arfleifandi ætti
engan skylduerfingja. „Verður ekki nægilega
um það ráðið af texta erfðaskrárinnar sjálfrar
eða öðrum gögnum málsins hvort X [hinn látni]
hefði eigi að síður, hefði honum verið ljóst að
hann ætti son, viljað nýta arfleiðsluheimild
sína í þágu varnaraðila að því marki sem lög
frekast heimiluðu. Að því gættu verður að telja
að framangreind villa hafi verið ráðandi
ástæða þess að umrædd ráðstöfun var gerð,“
sagði í forsendum úrskurðarins.
Samkvæmt úrskurðinum tekur einkasonur-
inn einn allan arf eftir föður sinn, þar með talda
fasteign sem hinn látni hafði ráðstafað einstak-
lingi með erfðaskránni, en sú ráðstöfun var lýst
ógild í ljósi þess að hún hefði byggt á erfðarétti
hans samkvæmt erfðaskránni.
Rangfeðraður sonur vann erfðamál
Erfðaskrá föðurins felld úr gildi Sonurinn tók allan arf Villa var ráðandi við gerð erfðaskrár
Nítján umsóknir bárust um starf
bæjarstjóra sameinaðs sveitarfé-
lags Sandgerðisbæjar og Sveitarfé-
lagsins Garðs og að auki sóttu fjórir
um, sem síðan drógu umsóknirnar
til baka. Bæjarstjórn vinnur úr um-
sóknum í samstarfi við ráðgjafafyr-
irtækið Hagvang.
Þessi sóttu um í stafrófsröð:
Anna Gréta Ólafsdóttir sérfræð-
ingur, Ármann Jóhannesson ráð-
gjafi, Baldur Þ. Guðmundsson,
sjálfstætt starfandi, Bjarni Jónsson
framkvæmdastjóri, Björn Ingi
Knútsson ráðgjafi, Eysteinn Jóns-
son sérfræðingur, Gunnólfur Lár-
usson, rekstrar- og verkefnastjóri,
Hjördís Dröfn Vilhjálmsdóttir,
sjálfstætt starfandi, Kikka Krist-
laug María Sigurðardóttir kosn-
ingastjóri, Magnús Stefánsson bæj-
arstjóri, Ólafur Örn Ólafsson
áhafnastjóri, Özur Lárusson fram-
kvæmdastjóri, Rakel G. Brandt
M.Sc, Stefanía G. Kristinsdóttir
framkvæmdastjóri og Þorsteinn
Gunnarsson sveitarstjóri.
Nítján vilja stýra
nýju sveitarfélagi
Ferðamálastofa
hefur sent ábend-
ingu til Sam-
keppniseftirlits-
ins vegna starf-
semi hótelbókun-
arsíðunnar
booking.com. Til-
efnið er að Ferða-
málastofa telur
það vera álitamál
hvort skilmálar
fyrirtækisins standist samkeppnis-
lög þar sem þeir feli mögulega í sér
íþyngjandi skilyrði fyrir viðskipta-
vini þess og hindri þar með eðlilega
samkeppni, að því er fram kemur á
vefsíðu Ferðamálastofu.
Þar segir að margt bendi til þess
að markaðshlutdeild booking.com sé
komin yfir 50% á hótelbókanamark-
aði á netinu hér á landi. Líklega megi
telja að fyrirtækið hafi markaðsráð-
andi stöðu hérlendis.
Ferðamálastofa hefur beint því til
Samkeppniseftirlitsins að það taki til
skoðunar skilmála vefsíðunnar um
svokallaða „bestukjarameðferð“. Í
þeim skilmálum felst að viðskipta-
vinum fyrirtækisins, m.a. íslenskum
gististöðum, er ekki heimilt að bjóða
upp á betra verð en sem fram kemur
á booking.com. Komi slík staða upp
verður söluaðilinn annaðhvort að
bjóða kaupandanum að borga lægra
verðið eða greiða honum mismuninn,
hafi hann greitt hærra verðið. Einu
gildir hvort lægra verðið er á vefsíðu
umrædds gististaðar eða hjá keppi-
nautum booking.com.
Fyrirtækið innheimtir a.m.k. 15%
þjónustuþóknun af heildarkostnaði
gistingar og er áætlað að slík þóknun
fyrirtækisins vegna sölu gistingar
hér á landi nemi a.m.k. 5 milljörðum.
Vilja skoða
booking.com
Hótel Booking.com
er bókunarsíða.
Þóknun talin
vera 5 milljarðar
Ný Bosch
þvottavél
Bosch hefur í eina og hálfa öld haft það að markmiði að auðvelda
daglegt líf fólks.Nú eru 60 ár liðin frá því að fyrsta sjálfvirka Bosch
þvottavélin fór í framleiðslu.
Af þessu tilefni bjóðum við nú glænýja Bosch þvottavél á
einstaklega hagstæðu verði.
Vél þessi er búin langflestum þeim þvottakostum sem menn þurfa
á að halda í dagsins önn.Hún tekur mest 9 kg og er með íslensku
stjórnborði. 1400 sn./mín.Orkuflokkur A+++. Kolalaus, hljóðlátur og
sparneytinn mótor með 10 ára ábyrgð. Tromlan fer einstaklega vel
með þvottinn. 15 mín. hraðþvottakerfi. Við hönnun vélarinnar var
leitast við að gera hana mjög stöðuga og hljóðláta.
Við leggjum áherslu á
hágæða vörur og fyrsta
flokks þjónustu á góðu verði.
Gildir til og með 31. júlí eða á meðan birgðir endast.
A
Kynningarverð:
89.900 kr.
Fullt verð: 127.900 kr.
Þvottavél,WAT 2849BSNBylgjulagatromla