Morgunblaðið - 12.07.2018, Page 10

Morgunblaðið - 12.07.2018, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. JÚLÍ 2018 Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is „Það er hægt að útfæra þjónustu við eldra fólk með fjölbreyttari hætti en nú er gert og auka líkur á bættum lífsgæðum þess. Þróa má viðbótar- þjónustu sem er í senn hagkvæm og til þess fallin að styðja við starfs- gleði þeirra sem veita þjónustuna,“ segir Pálmi V. Jónsson, yfir- læknir öldrunar- lækningadeildar Landspítalans og formaður færni- og heilsumats- nefndar höfuð- borgarsvæðisins sem metur þörf ein- staklinga til dvalar á hjúkrunar- heimilum. Hann segist sáttur við að embætti landlæknis skyldi óska úttektar KPMG á færni- og heilsumati og notkunar á matstækjum fyrir þjón- ustu við langveikt fólk. Pálmi tekur undir það sem fram kemur í skýrsl- unni að nýta þurfi betur heimaþjón- ustumatið, InterRAI-HC, til þess að finna hver sé þjónustuþörf hvers einstaklings fyrir sig. „Skýrslan gefur heilbrigðisyfir- völdum, ríki og sveitarfélögum kær- komið tækifæri til þess að setjast nið- ur og ræða möguleika á betri þjónustu við eldra fólk með minnk- uðum tilkostnaði,“ segir Pálmi sem bendir á fimm atriði til úrbóta. „Í fyrsta lagi þarf að fjölga líknar- rýmum á höfuðborgarsvæðinu að lág- marki um 10 því allt að 25% af beiðn- um um færni- og heilsumat á hjúkrunarheimili sem unnin eru á Landspítala eru fyrir einstaklinga sem eru fyrirsjáanlega svo veikir og með skertar lífslíkur að rými á líknar- deild er það sem þetta fólk þarf, en ekki hjúkrunarheimili. Með líknar- deildarýmum fengi þetta fólk betri þjónustu og viðeigandi undirbúning fyrir lífslok sem eru skammt undan,“ segir Pálmi og bætir við að árið 2011 hafi líknardeild með níu legurýmum verið lokað á Landakoti en í gegnum þá deild fóru 100 manns á ári að meðaltali. Hver þeirra lifði í einn mánuð að meðaltali eftir innlögnina. Pálmi segir að í öðru lagi sé skort- ur á öldrunargeðlækningum einn veikasti hlekkur öldrunarþjónustu. „Það vantar litlar öldrunargeð- deildareiningar fyrir um tíu manns sem veita sérhæfða þjónustu við eldra fólk með alvarleg geðræn ein- kenni sem núverandi þjónusta nær ekki að mæta á fullnægjandi hátt. Þetta eru einstaklingar með alvarlegt þunglyndi, alvarlega kvíðaröskun eða aðsóknarkennd, ranghugmyndir, geðrof og annað slíkt, “ segir Pálmi og bætir við að tillaga um öldr- unargeðdeild hafi verið á fram- kvæmdarstigi árið 2007 en hún hafi verið slegin út af borðinu í kjölfar hrunsins. Geta náð undraverðum árangri „Ef eldra fólk með geðsjúkdóm fær ekki viðeigandi greiningu, með- ferð og aðtoð tapar það færni og líður miklar þjáningar. Þetta er sá hópur einstaklinga sem getur með réttri meðhöndlun náð undraverðum ár- angri, bættum lífsgæðum, sjálfs- bjargargetu og búið áfram í sjálf- stæðri búsetu í stað þess að vera þrýst ótímabært inn á hjúkrunar- heimili,“ segir Pálmi. Þriðja atriðið sem Pálmi telur að stuðlað geti að því að aldraðir geti verið lengur utan hjúkrunarheimila með stuðningi sé að mæta þeim hópi eldra fólks sem þjáist af viðvarandi þunglyndi, kvíðaröskun og einmana- kennd og eiri því ekki heima. „Þrátt fyrir að það sé yfirlýst markmið í lögum um málefni aldr- aðra að styðja það til búsetu heima eins lengi og kostur er, þá er ákveð- inn hópur fólks sem þrífst ekki heima. Þetta fólk gæti nýtt sér vel sambýlisform í líkingu við þjónustu- íbúðir sveitarfélaga. Þetta geta verið allt að 100 manns á höfuðborgar- svæðinu á hverjum tíma sem þrýst er á um að komist inn á hærra þjón- ustustig, það er hjúkrunarrými, þar sem þjónustuíbúðir á vegum sveitar- félaga eru ekki í boði,“ segir Pálmi og bætir við að ef þessi hópur fólks kom- ist inn í sambýlisþjónustu geti líðan og lífsgæði þess snarbatnað til mikilla muna og úrræðið sé hagkvæmt. Vandinn sé hins vegar sá að það sé á ábyrgð sveitarfélaga að útfæra úr- ræðið. Í Reykjavík sé slíkt úrræði tekju- og eignatengt fremur en þarfa- tengt og í mörgum sveitarfélögum sé slík þjónusta ekki í boði og það sé vert að skoða. Efling heimahjúkrunar er fjórða atriðið sem bætt getur stöðu aldraðra og frestað því að þeir þurfi á hjúkr- unarrými að halda. „Að mínu viti þarf að gera heima- hjúkrun að fjölfaglegu starfi þar sem hjúkrunarfræðingar og annað starfs- fólk í umönnun vinnur í teymi með læknum, félagsráðgjöfum og sjúkra- og iðjuþjálfurum. Efla þarf tengsl heimahjúkrunar við heimilislækna. En eldra fólk hefur oft og tíðum misst tengslin við þá vegna þess að það er tilhneiging miðaldra fólks að leita frekar til sérfræðinga en heimilis- lækna. Það þarf líka að efla tengsl við öldrunarlækningadeild Landspít- alans sem býður upp á sérhæfða greiningarvinnu,“ segir Pálmi og bætir við að ákveðin hreyfing sé kom- in í gang sem stefni í þessa átt. Enn öflugri heimaþjónusta er til þess fall- in að stuðla að því að veikt eldra fólk geti búið lengur heima. Nýjar þjónustubrautir Fimmta atriðið sem Pálmi nefnir er að innleiða InterRAI-HC-mat í heimaþjónustu á höfðurborgarsvæð- inu og á landsvísu. „Matið er fjölþætt og fangar þarfir og viðfangsefni hjá hverjum ein- staklingi. Með matstækinu er hægt að búa til nýjar þjónustubrautir og skilja betur hvar fólk er statt á hverj- um tíma. Þannig er hægt að auka lík- urnar á því að hægt sé að grípa inn í til þess að koma í veg fyrir að fólk þurfi að fara á hjúkrunarheimili,“ segir Pálmi og bætir við að nú sé tækifæri til þess að taka kröftuglega á málum. Hægt að gera öðruvísi og betur  Úrræði við einmanaleika, kvíða og þunglyndi  Stofna þarf líknardeild og geðdeild fyrir aldraða Ljósmynd/ThinkstockPhotos Lífsgæði Það eru ýmsar leiðir færar til þess að bæta lífsgæði aldraðra. Pálmi V. Jónsson Módel: Kolfinna Nikulásdóttir ray-ban.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.