Morgunblaðið - 12.07.2018, Síða 16
16 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. JÚLÍ 2018
Hlífar og undirföt
Angóruhlífarnar veita léttan stuðning við auma vöðva á
þrengja of mikið að. Angóran sér um að halda líkamanu
og hlýjum án þess að valda kláða.
Hlífarnar eru tilvaldar til hvers kyns útivista og
eins og hjólreiða, útihlaupa eða í golfið.
Úlnliðshlífar Langerma bolur Olnbogahlífar Hnéhlífar Mjóbakshlíf Axlastykki
Y L F A
ANGÓRA
Einnig fáanlegt í netverslun: www.lyfja.is
n þess að
m þurrum
íþrótta,
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Donald Trump Bandaríkjaforseti
gagnrýndi stjórnvöld í Þýskalandi
harkalega þegar tveggja daga leið-
togafundur Atlantshafsbandalagsins
hófst í Brussel í gær. Hann sakaði
Þjóðverja um að vera algerlega á
valdi Rússa vegna innflutnings á rúss-
nesku jarðgasi og krafðist þess að
Þýskaland og fleiri aðildarríki NATO
ykju fjárframlög sín til varnarmála.
Ráðamenn í NATO-ríkjum í Evrópu
óttast að togstreitan milli þeirra og
Trumps geti stefnt framtíð varnar-
bandalagsins í hættu og grafið undan
öðru fjölþjóðlegu samstarfi Vestur-
landa, m.a. í viðskiptamálum.
Evrópsku ráðamennirnir voru við-
búnir því að þetta yrði erfiðasti leið-
togafundur NATO í mörg ár vegna
viðskiptadeilna Bandaríkjanna og að-
ildarríkja í Evrópu og harðrar gagn-
rýni Trumps á lönd sem hann segir að
hafi ekki lagt nógu mikið af mörkum
til varnarsamstarfsins. Gert hafði ver-
ið ráð fyrir því að Trump myndi
árétta kröfu sína um aukin fjárfram-
lög NATO-ríkjanna en hvöss gagn-
rýni hans á Þýskaland á morgun-
verðarfundi með framkvæmdastjóra
bandalagsins, Jens Stoltenberg, virt-
ist koma mörgum á óvart. Þeir höfðu
búist við því að Trump og Stoltenberg
myndu hefja viðræðurnar með því að
skiptast á kurteislegum orðum á
morgunverðarfundinum en Trump
var ekki á þeim buxunum.
„Þýskaland er í haldi Rússa vegna
þess að það fær svo mikið af orku
sinni frá Rússlandi,“ sagði Trump og
skírskotaði til innflutnings Þjóðverja
á jarðgasi frá Rússlandi. Forsetinn
hafði áður gagnrýnt áform Þjóðverja
um að auka þennan innflutning með
fyrirhugaðri gasleiðslu, Nord Stream
2, frá Rússlandi á botni Eystrasalts til
Þýskalands. „Allir eru að tala um
þetta úti um allan heim, þeir segja að
við séum að borga ykkur milljarða
dollara til að vernda ykkur en þið eruð
að borga Rússum milljarða dollara,“
sagði Trump. Hann bætti við að Þjóð-
verjar væru svo háðir Rússlandi í
orkumálum að það væri „mjög slæmt
fyrir NATO“ og Þýskaland væri „al-
gerlega á valdi Rússlands“.
Angela Merkel, kanslari Þýska-
lands, neitaði þessu. „Ég hef sjálf
upplifað það að hluti Þýskalands var
hernuminn og á valdi Sovétríkjanna,“
sagði hún. „Ég gleðst yfir því að við
erum núna sameinuð í frelsi í Sam-
bandslýðveldinu Þýskalandi og getum
þess vegna mótað eigin sjálfstæða
stefnu og tekið okkar eigin sjálfstæðu
ákvarðanir.“ Merkel bætti við að
Þýskaland stæði í mikilli þakkarskuld
við NATO, m.a. vegna sameiningar
Þýskalands, en legði einnig mikið af
mörkum til bandalagsins. „Við leggj-
um til næstflesta hermenn og leggj-
um mestan hluta herafla okkar í þjón-
ustu NATO.“
Samkvæmt nýjustu upplýsingum
frá NATO námu ríkisútgjöld Þýska-
lands til varnarmála aðeins 1,24% af
vergri landsframleiðslu en í Banda-
ríkjunum er hlutfallið miklu hærra,
eða 3,5%. Ríkisstjórn Þýskalands hef-
ur tilkynnt að hún ætli að auka fram-
lögin til varnarmála um 80% á næstu
tíu árum en Trump sagði í gær að það
væri ekki nóg. „Þessi lönd þurfa að
auka framlögin þegar í stað, ekki á tíu
ára tímabili,“ sagði hann á fundinum
með Stoltenberg. „Þýskaland er auð-
ugt land. Þjóðverjar tala um að þeir
ætli að auka framlögin örlítið ekki síð-
Hafa áhyggjur af framtíð NATO
AFP
Togstreita Angela Merkel Þýskalandskanslari og Donald Trump Bandaríkjaforseti á leiðtogafundinum í Brussel.
Ráðamenn í Evrópulöndum óttast að hörð gagnrýni Trumps og viðskiptadeilur veiki varnarbanda-
lagið Trump gagnrýndi Þjóðverja harkalega á leiðtogafundi NATO og sagði þá vera á „valdi Rússa“
Útgjöldin aukist í 4%
» Donald Trump hvatti leið-
toga NATO-ríkjanna á fund-
inum í Brussel til að auka ríkis-
útgjöldin til varnarmála í 4% af
vergri landsframleiðslu.
» NATO-ríkin samþykktu árið
2014 að stefna að því að út-
gjöldin til varnarmála yrðu
a.m.k. 2% af landsframleiðslu
ekki síðar en 2024. Aðeins
fjögur ríki hafa náð því mark-
miði en nokkur eru nálægt því.