Morgunblaðið - 12.07.2018, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 12.07.2018, Qupperneq 18
FRÉTTASKÝRING Þorgrímur Kári Snævarr thorgrimur@mbl.is Tveir risar alþjóðastjórnmál-anna hittast í Helsinki ámánudaginn, þeir DonaldTrump Bandaríkjaforseti og Vladímír Pútín Rússlandsforseti. Verður þetta fyrsti tvíhliða fundur þeirra og fyrsta skipti sem forsetar ríkjanna funda með þessum hætti frá því að Barack Obama og Dímítrí Medvedev funduðu fyrir tæpum ára- tug. Gestgjafi þessara leiðtoga stór- veldanna er Sauli Niinistö Finn- landsforseti. Niinistö hefur einnig lagt orð í belg í aðdraganda fund- arins og reyndi í orðsendingu að beina athygli gesta sinna að mál- efnum norðurslóða. Þar lagði hann meðal annars til að dregið yrði úr losun sóts sem hraðar bráðnun haf- íss á norðuríshöfum. Trump mætir til fundar með Pútín stuttu eftir fund með leiðtog- um aðildarríkja NATÓ og heimsókn til Bretlands þar sem hann mun hitta Elísabetu Bretlandsdrottn- ingu. Bandaríkjaforsetinn hefur spáð því að fundurinn með Pútín verði „sá auðveldasti af þeim öllum“. „Auðvitað eiga mennirnir að hittast“ Þó er tvíséð hvort verulegur ár- angur náist um einhver ákveðin mál- efni á fundinum. „Ég held að Rússar líti svo á að Krímskagi sé ekki til um- ræðu á neinum fundi, hvorki þessum né öðrum,“ sagði Albert Jónsson stjórnmálafræðingur um væntingar sínar til fundarins. „Krímskagi er hluti af Rússlandi samkvæmt lögum þar í landi frá 2014. Í Úkraínu liggur fyrir rammi að samkomulagi, Minsk- samkomulagið frá 2015. Þar eru tvenns konar vandamál; annars veg- ar það að stjórn Úkraínu hefur ekki pólitíska burði eða stuðning til þess að standa við þeirra hlið á Minsk- samkomulaginu og hefur ekki haft frá fyrsta degi. Petró Pórósjenkó kom til Kíev eftir að hafa gert Minsk-samkomulagið við Pútín og ESB og honum var sagt að gleyma þessu. Hann hafði ekki stuðning á þingi og hefur það enn ekki. Hitt vandamálið er að Rússar eru langt því frá hjálplegir og halda átökunum gangandi í Donbass-héraði eftir sín- um hentugleika.“ „Ég myndi halda að Trump líti fyrst og fremst til Sýrlands á þess- um fundi, og ég veit ekki hvort Pútín getur gefið honum neitt sem hann vill þar. Bandaríkjamenn og Ísraelar hafa miklar áhyggjur af Írönum en ég veit ekki hvort Pútín fæst til að gera neinar breytingar á afstöðu sinni í þá áttina.“ Albert telur að fundurinn muni fyrst og fremst snúast um að bæta samskipti ríkjanna en á ekki von á miklum áþreifanlegum niðurstöðum. Hann er þó ekki sammála gagnrýn- endum Trumps sem telja að með því að funda með Pútín sé Trump að veita rússneskum starfsbróður sín- um óverðskuldaða viðurkenningu. „Ég tek undir orð framkvæmda- stjóra NATO um að auðvitað eigi mennirnir að hittast, fara yfir málin og reyna að þoka þeim áleiðis í rétta átt. Sumir vilja bara hafa Pútín í skammarkróknum áfram en ég tek ekki undir þessa gagnrýni.“ Líklegast sagði Albert að ár- angur myndi nást í samræðum um kjarnavopn því forsetarnir gætu endurnýjað Start-sam- komulagið um langdræg kjarna- vopn frá 2010. Einnig gæti Trump rætt meint brot Rússa á samkomulagi um með- aldræg kjarnavopn frá árinu 1987. „Auðveldasti fundur- inn af þeim öllum“ 18 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. JÚLÍ 2018 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Eldri borg-arar þurfaað glíma við ógagnsætt og flókið kerfi. Þetta er niðurstaða út- tektar, sem fyrir- tækið KPMG gerði fyrir landlæknisembættið, og er síst of fast að orði kveðið. Það þekkja þeir, sem hafa þurft að kljást við kerfið, af eigin raun. Í úttektinni er fjallað um þær aðferðir, sem notaðar eru til að meta færni og heilsu eldri borgara, svoköll- uð InterRAI-mælitæki. Segir að þessi mælitæki nýtist mis- munandi vel vegna þess hve misjöfn þekking notenda sé á þeim. Færni- og heilsumat sé nauðsynlegt til að tryggja hlutleysi í mati á þörf, en óskilvirkni sé til staðar í öfl- un upplýsinga um ein- staklinga og úthlutun rýma. Að auki hafi ólíkt aðgengi að öðrum þjónustuúrræðum milli landshluta áhrif á matið. „Galli er á ferli aldraðra einstaklinga í gegnum kerf- ið,“ segir í úttekt KPMG. „Þeir þurfa að bíða lengi eftir úrræðum og lenda jafnvel á milli þar sem þörfum er ekki nægilega vel sinnt. Þetta veldur því að þeir enda í dýr- ara úrræði en þörf er á sem þjónar hvorki hagsmunum einstaklingsins né samfélags- ins.“ Yfirlýst stefna stjórnvalda er að aldraðir skuli dvelja sem lengst heima hjá sér. Þessi áhersla endurspeglast ekki í ráðstöfun fjármuna eins og fram kemur í úttekt- inni. Innlagnir á sjúkrahús voru 1,6% af vergri lands- framleiðslu hér á landi sam- kvæmt tölum frá 2015. Að- eins Svíar settu hærra hlutfall í málaflokkinn, 1,7%, Norðmenn aðeins minna og Danir og Finnar mun minna. Annað er uppi á teningnum þegar kemur að heima- hjúkrun. Þar nema útgjöldin 0,1% af vergri landsfram- leiðslu á Íslandi. Svíar eru næstir Íslendingum með 0,8%, en Danir verja mestu, 1,5%. Greinilegt er að hér á landi fara ekki saman hljóð og mynd í þessum efnum. Í úttektinni er einnig rakið hversu flókið geti verið fyrir aldraða að fóta sig í kerfinu. Í nútímastjórnsýslu ætti til- hneigingin að vera sú að ein- falda hlutina og gera þá að- gengilegri. Aldraðir þurfa hins vegar að leita úrræða á mörgum stöðum, allt eftir því um hvaða þjónustu er að ræða. Matsteymi metur þörf á heimahjúkrun, einn starfshópur metur þörf á heimaþjónustu, annar starfshópur tekur afstöðu til þess hvort réttur sé til að fá heimsendan mat, matshópur ræður því hvort tilkall sé til akstursþjónustu, fulltrúar taka á hvort bjóða eigi dagþjálfun og loks metur færni- og heilsumatsnefnd þörf fyrir hjúkrunarrými. KPMG bendir réttilega á að ekki sé „til staðar einn að- ili eða miðlægt fyrirkomulag sem ber ábyrgð á að velja heppilegustu úrræðin hverju sinni“. Vegna skorts á ódýr- ari kostum skapist þrýst- ingur á að nýta dýrustu úr- ræðin. „Slíkt kemur meðal annars fram í því að aldraðir eru vistaðir í neyðarúrræðum á sjúkrahúsum og eru að jafnaði um 100 aldraðir ein- staklingar á LSH sem ekki eiga að vera á spítala og þurfa annars konar þjón- ustu,“ segir enn fremur. „Vanræksla ódýrari þjón- ustuúrræða myndar umfram- og óþarfa eftirspurn eftir dýrustu þjónustuúrræðunum með tilheyrandi flösku- hálsum, sóun á fjármunum og þjónusturofi í vegferð ein- staklingsins.“ Síðan segir að ástæðan fyrir þessu sé meðal annars sú að „kerfið byggir meira á þörfum stofnana en ekki á þörfum einstaklinga“. Í Morgunblaðinu í gær segir Þórunn Sveinbjörns- dóttir, formaður Lands- sambands eldri borgara, að niðurstaða úttektar KPMG komi ekki á óvart. Hún finn- ur einkum að því að eldra fólk og aðstandendur þess viti ekki að það þurfi að hafa prófað „allar leiðir svo sem heimaþjónustu, heima- hjúkrun og hvíldarinnlögn ef það á að eiga einhverja von á að fá færni- og heilsumat“ og bætir við: „Það á ekki að þekkjast að fólk sem er yfir nírætt og brotnar eða veikist alvarlega eigi ekki möguleika á að komast á hjúkrunar- heimili fyrr en það hefur gengið fárveikt í gegnum prógram sem það jafnvel skilur ekki.“ Eins og áður sagði blasa þessar brotalamir við hverj- um þeim, sem þarf að fást við kerfið, og ætti ekki að þurfa sérstaka úttekt til að draga veikleikana fram. Land- læknir hefur gert sérstakt minnisblað um úrbætur. Þar ættu þarfir þeirra, sem þurfa á þjónustunni að halda, að ganga fyrir. Eldri borgurum er gert erfitt fyrir með flókinni og ógagn- særri stjórnsýslu} Ógagnsæi og flækjur M ikil íþróttaveisla hefst í dag norður á Sauðárkróki, þar sem fram fer Landsmót Ungmennafélags Íslands. Samhliða því verður Lands- mót UMFÍ fyrir 50 ára og eldri haldið en Unglingalandsmótið fer síðan fram í Þor- lákshöfn í ágúst. Þessi mót eru mikilvægur vettvangur fyrir íþróttafólk á öllum aldri og öllum getustigum og til vitnis um hversu líflegt og fjölbreytt íþróttalíf er í landinu. Landsmótið er með nýju sniði þetta árið, þar sem einstaklingar 18 ára og eldri geta nú skráð sig til leiks, hvort sem þeir eru í íþrótta- og ungmennafélagi eða ekki. Það verður keppt í ríflega 30 greinum en auk þess geta gestir prófað ýmsar íþróttagrein- ar og hreyfingu á mótinu því boðið verður upp á kennslu, opna tíma og kynningar fyrir áhuga- sama. Ungmennafélögin lögðu grunninn að íþróttamenn- ingu hér á landi og þau gegna enn í dag mikilsverðu hlutverki með því að stuðla að fjölbreyttri íþrótta- iðkun almennings. Innan Landssambands ung- mennafélaganna eru nú 340 félög og félagsmenn rúmlega 160 þúsund, eða um 47% landsmanna. Það var mikil framsýni af stofnendum ungmennafélag- anna fyrir daga fullveldisins að leggja ríka áherslu á heilsueflingu í gegnum hreyfingu og félagsstarf. Rannsóknir hafa í seinni tíð sýnt fram á veigamikið samspil hreyfingar, sjálfstrausts og al- mennrar vellíðanar. Félagslíf ungs fólks á Íslandi var líka fremur fábrotið í ár- daga ungmennafélaganna og segja má með sanni að þau hafi einnig lyft grettis- taki þar. Ungmennafélagshreyfingin kemur að ótal verkefnum sem tengjast forvarn- arstarfi, menningarmálum og útivist. Einna dýrmætasta starf hennar að mínu mati felst í því að auka virkni fólks, hvort heldur í félagsstörfum eða á íþróttasvið- inu. Þessi virkni verður okkur sífellt þýð- ingarmeiri, ekki síst á tímum þar sem vísbendingar eru um að félagsleg ein- angrun sé að aukast í samfélaginu. Það er aðall ungmennafélaganna að all- ir séu velkomnir og geti tekið þátt í íþrótta- og félagsstarfi og fundið sér hreyfingu við hæfi. Mikilvægi hreyfingar allt lífið er óumdeilt en okkur sem stöndum að íþrótta- og æskulýðsmálum hér á landi er einnig félagslegt og menningarlegt gildi íþrótta afar hugleikið. Þetta nýja fyrirkomulag sem prófað verður á landsmótinu 2018 mun vonandi hvetja fleiri til þess að stíga fram á völlinn – hvort sem þau vilja keppa í fótbolta, frisbígolfi eða stíg- vélakasti, eða einfaldlega prófa eitthvað alveg nýtt. Það er aldrei of seint að byrja. Lilja Dögg Alfreðsdóttir Pistill Íþróttaveisla á Landsmóti UMFÍ Höfundur er mennta- og menningarmálaráðherra. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen Gera má ráð fyrir að fundur að- ildarríkja NATO sem hófst í gær muni varpa skugga yfir fund Trumps og Pútíns á mánudag- inn. Enn er stormasamur fundur Trumps með leiðtogum G7- þjóðanna í fersku minni og hvernig þeim fundi var fylgt eft- ir með blíðum og vinsamlegum fundi með Kim Jong-un, einræð- isherra Norður-Kóreu. Ef viðmót Trumps milli þessara funda breytist eins mikið og þá má ætla að þeir Pútín verði mestu mátar í næstu viku. Trump hóf NATO-fundinn með því að gagnrýna Þýska- land harðlega og saka landið um að vera í vas- anum á Rússum vegna stórtækra olíuviðskipta milli landanna. Óvíst er hvað Vladímír Pútín finnst um þessa ásökun. Tvö andlit Trumps LEIÐTOGAFUNDIR Albert Jónsson AFP Auðvelt Babúskur með myndum af Pútín og Trump til sölu í bókabúð í Helsinki. Ekki er langt í að frummyndirnar sjálfar mæti til leiks í borginni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.