Morgunblaðið - 12.07.2018, Blaðsíða 26
26 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. JÚLÍ 2018
Linda Mjöll hefur
kvatt.
Þessi fallega,
kraftmikla og skemmtilega bróð-
urdóttir mín hefur horfið á braut í
blóma lífsins. Hennar verður sárt
saknað.
Ég sit hljóð og hugleiði fallegar
minningar. Linda var strax sem
barn sérstaklega dugleg, glaðleg,
jákvæð og alltaf stutt í brosið.
Þegar hún var ung fékk ég hana
til þess að vinna í verslun minni
um tíma. Þá hafði hún kynnst
Palla sínum. Með útgeislun sinni
styrkri og fallegri röddu og bros-
inu sínu náði hún einstaklega vel
til fólks. Það var sannarlega gam-
an að vinna með henni og fá að
kynnast henni vel.
Síðar fékk ég hana til þess að
vinna að annars konar verkefni
með mér. Þar stóð hún sig ekki
síður en í versluninni, ávallt já-
kvæð og dugleg og stutt í hlát-
urinn. Hún hafði sínar skoðanir
og kom þeim fram og gerði það
vel.
Síðastliðið haust kvöddum við
Reynishvammshúsið og héldum
þar smá ættarmót. Það stóð ekki
á Lindu að taka þátt í því og gerðu
hún og systir hennar það með
sóma og sáu um skipulagningu og
veitingar. Þessi dagur var ein-
staklega fallegur. Nýfallinn snjór
og húsið í trjágarðinum eins og
mynd á jólakorti. Ég vissi að
Linda fór með pabba sinn þangað
um morguninn og tók fallegar
myndir. Svona var Linda, tók þátt
í öllu og lét sér fátt mannlegt óvið-
komandi.
Þrátt fyrir erfið veikindi sýndi
hún mikinn styrkleika í veikind-
um föður síns. Hún stóð eins og
klettur, fylgdist vel með öllu og
það var ótrúlegt hverju hún gat
áorkað. Hún var sannkölluð hetja.
Það er erfitt að hugsa til þess
að hún sé farin, þessi góða
mamma og mikla fjölskyldu-
manneskja, sem hugsaði fyrir svo
mörgu.
Hugur minn er hjá fjölskyldu
Lindu, Palla og börnum þeirra,
Andreu Örnu og Jakobi Felix.
Einnig hjá Guðrúnu, Hildi Brynju
og fjölskyldu hennar. Góður guð
veiti ykkur styrk í sorginni.
Unnur.
Linda Mjöll lífsglaða og
skemmtilega frænka mín hefur
lagt aftur fallegu brúnu augun sín
í hinsta sinn eftir erfið veikindi.
Komið er að kveðjustund, stund
til þess að minnast og þakka
Lindu minni fyrir samveruna.
Í minningunni var alltaf til-
hlökkunarefni á sumrin þegar von
var á Gunnu móðursystur minni
og Andrési með dætur sínar Hildi
Brynju og Lindu Mjöll í Syðri-
Vík, sveitina mína í Vopnafirði.
Þegar ég var 16 ára og fór til
Reykjavíkur fékk ég að búa einn
vetur hjá Gunnu frænku. Ég undi
mér vel hjá fjölskyldunni og átti
yndislegar stundir og dýrmætar
með litlu frænkunum mínum
Hildi og Lindu. Snemma kom í
ljós hvað Linda bjó yfir skemmti-
legum og sterkum persónuleika.
Minnisstæðar eru sundferðirnar
okkar um helgar. Það hefði verið
nærtækast fyrir okkur að fara í
Kópavogslaugina en við völdum
að gera úr þessu ferðalag og fara í
sund á Seltjarnarnesi. Til þess
þurftum við að taka þrjá strætis-
vagna hvora leið, hafa með okkur
nesti nú eða eins og við gerðum
oftast, fá okkur pylsu á leiðinni.
Linda Mjöll
Andrésdóttir
✝ Linda MjöllAndrésdóttir
fæddist 18. janúar
1979. Hún lést 27.
júní 2018.
Útför Lindu fór
fram frá Hjalla-
kirkju 9. júlí 2018
klukkan 13.
Linda var í essinu
sínu í þessum ferð-
um enda nóg um að
vera, hún var athug-
ul og hafði ánægju af
því að fylgjast með
fólkinu sem varð á
vegi okkar. Hún
hafði leiftrandi húm-
or og átti auðvelt
með að sjá spaugi-
legar hliðar mann-
lífsins. Linda var
uppátækjasöm og í henni leyndist
skemmtilegur prakkari. Oftar en
ekki kom það fyrir í pottinum að
fullorðið fólk, aðallega eldri karlar
fóru að horfa á mig og hana til
skiptis, ekki með vinalegum svip,
líklega hefur þá skvettugangur-
inn gengið úr hófi fram en Linda
leit á mig og yppti öxlum.
Linda var alltaf einstaklega
glaðlynd, jákvæð, röggsöm og úr-
ræðagóð og eitt af því sem ein-
kenndi Lindu var að láta ekki
smávægileg vandamál íþyngja
sér eða að flækja hlutina. Eitt
sinn vorum við frænkurnar í
skólagörðunum að setja niður
kartöflur og sá fyrir matjurtum.
Linda var með radísufræin sín í
boxi og vildi þá ekki betur til en
hún missti boxið á moldarstíginn
við hliðina á beðinu. Hildur systir
hennar var vön að vernda „Lillu
litlu systur“ eins og hún kallaði
hana gjarnan og hafði áhyggjur af
því að hún lenti í vandræðum.
Hildur fór að gera ráðstafanir en
þá sagði Linda „nei, nei, þetta er
allt í lagi Hildur, við gerum bara
svona“ og stráði mold yfir fræin
og brosti sínu einlæga brosi, og
málið leyst.
Elsku Linda mín, í dag verður
þér búin hin hinsta hvíla en minn-
ing þín er ljós sem lifir í hjarta
okkar um ókomin ár – elsku Palli,
Jakob Felix, Andrea, Gunna,
Hildur og fjölskylda Guð gefi ykk-
ur styrk og huggun í söknuði ykk-
ar og djúpri sorg.
Brynhildur Arthúrsdóttir.
Ég minnist fyrstu kynna af
Lindu mágkonu minni með hlý-
hug og þakklæti, alltaf hress, allt-
af jákvæð, opin og hláturmild.
Nýkynntum máginum var sam-
stundis tekið opnum örmum og
viðmót hennar slíkt að engu var
líkara en við hefðum þekkst alla
tíð. Enda var Linda félagslynd og
því vinmörg og ræktaði vina-
tengslin af kostgæfni. Fljótlega
eftir kynni okkar fluttu þau Palli
til Danmerkur til að stunda nám
og síðar Bretlands og því voru
fjölskyldufundir takmarkaðir við
jól og sumur fyrst um sinn.
Drifkraftur og dugnaður, sem
einkenndu Lindu, komu sterkt
fram þegar við fjölskyldan heim-
sóttum Lindu og Palla til Dan-
merkur ásamt foreldrum þeirra
systra Hildar og Lindu. Var hún
langt á undan okkur hinum í að
skipuleggja og drífa hlutina
áfram. Hún vílaði ekki fyrir sér að
eyða dýrmætum tíma frá krefj-
andi námi til að sjá til þess að allt
væri klappað og klárt í fríinu þeg-
ar fjölskyldan kom í heimsókn.
Græjaði hún m.a. bílaleigubíl, lítið
rúgbrauð, sem hún keyrði með
alla fjölskylduna í um Danmörku
þvera og endilanga.
Tveimur börnum og nokkrum
prófgráðum ríkari fluttu Linda og
Palli heim níu árum síðar. Fjölg-
aði þá samverustundum s.s. sum-
arhúsa- og veiðiferðum auk berja-
ferðanna ómissandi í Hlíðarvatn.
Ætíð var Linda framarlega í
flokki í skipulagningunni. Þá kíkti
hún iðulega í heimsókn í systra-
spjall og leikstund fyrir krakkana
sem allir höfðu gaman af.
Ósérhlífin var Linda með ein-
dæmum, alltaf boðin og búin að
hlaupa undir bagga, redda, gera
og bjarga. „Nú drífið þið ykkur út
og við pössum fyrir ykkur,“ sagði
hún oft. Í einni fjölskylduveiðiferð
þegar allir voru komnir í hús og
farnir að gera klárt til veiða
heyrðust hlátrasköll þeirra systra
úr eldhúsinu þegar uppgötvaðist
að gleymst hafði að kaupa grill-
matinn fyrir ferðina. Voru góð ráð
dýr, en Linda strax komin í sím-
ann að finna næstu búð, rak hún
svo alla út að veiða og keyrði sjálf
150 km í næstu búð.
Allt lék í lyndi og lífið blasti við
þegar ógæfan barði dyra og
Linda og síðar Andrés pabbi
þeirra systra greindust bæði með
illvígt krabbamein. Börðust þau
hetjulega við mein sín og harkaði
Linda af sér eigin veikindi til að
standa með föður sínum fram að
andláti hans í janúar síðastliðn-
um.
Lífið er ekki alltaf sanngjarnt
og á tímum tækni og vísinda spyr
maður sig hvernig megi standa á
því að ung fjölskyldukona í blóma
lífsins er tekin frá eiginmanni,
börnum, fjölskyldu og vinum af
ólæknandi meini. Fátt verður
svara en upp úr tómarúminu skín
birta bjartra minninga sem ylja
um ókomna tíð.
Ég votta Palla, Jakobi Felix,
Andreu Örnu og Guðrúnu tengda-
móður minni mína dýpstu samúð.
Egill Örn Petersen.
Það er sárt að kveðja góðan
vin. Þá leitar maður í minninguna,
minninguna sem er svo falleg.
Hlátur og hlýja koma mér fyrst í
hug. Linda hafði einstaka nær-
veru sem einkenndist af einlægri
gleði. Hún gladdist yfir svo
mörgu. Eigin afrekum og ann-
arra, stórum sem smáum. Linda
var stolt af fólkinu sínu, Palla,
börnunum og vinum sínum, og
sýndi það óspart. Hún átti auðvelt
með að hrósa fólki og hvetja það
áfram og sýndi ósvikinn og ein-
lægan áhuga. Jafnvel þegar hún
sjálf var mikið veik spurði hún um
fólkið manns. Hún var líka forvit-
in, einstaklega forvitin. Þessi
áhugi hennar á mönnum og mál-
efnum gerði hana svo skemmti-
lega og samtölin svo áhugaverð.
Og við hlógum mikið. Æðruleysi,
dugnaður og elja einkenndu hana
alla tíð og voru hennar vopn í
þeim erfiðu verkefnum sem hún
tókst á við. Linda snerti við öllum
þeim sem kynntust henni og ég
var svo lánsöm að fá að vera í
hennar hópi.
Ég kveð þig, elsku Linda mín,
með þakklæti fyrir vináttuna okk-
ar. Árin voru alltof fá en þau voru
góð. Við vinkonurnar munum
halda minningunni um þig lifandi
í hjörtum okkar um ókomna tíð.
Og við munum aftur hlæja.
Elsku Palli, Jakob og Andrea.
Við fjölskyldan vottum ykkur og
fjölskyldum ykkar okkar dýpstu
samúð. Megi minningin um fal-
legu Lindu okkar lifa.
Hvíldu í friði, elsku vinkona
mín.
Lukka.
Það er með brotið hjarta og
með miklum söknuði sem ég kveð
þig, elsku fallega Linda mín. Sálu-
félagi minn og samferðakona frá
fimm ára aldri. Þú ert svo stór
hluti af öllum mínum minningum
frá því ég man eftir mér að mér
finnst það óskiljanlegt að þú sért
hér ekki lengur. Í þriðja bekk
skrifaði ég við spurningu í sam-
félagsfræðibók um hvaða merkis-
viðburður hefði átt sér stað árið
sem ég fæddist að Linda Mjöll
Andrésdóttir, besta vinkona mín,
hefði fæðst í janúar sama ár! Við
ólumst upp saman og áttum ynd-
islega barnæsku, við töluðum oft
um hversu lánsamar við værum.
Daltúnið stóð okkur alltaf opið og
mikið sem var brallað þar. Við
prófuðum allar íþróttir sem hugs-
ast getur og kom fljótt upp
keppnisskapið og metnaðurinn.
Fótboltinn og skíðin áttu þó hug
þinn allan. Í fjöllunum leið okkur
vel og við gátum sungið og verið
með fíflalæti eins og við vildum.
Sem fullorðnar sungum við líka á
leiðinni upp í stólalyftunni og
fundum upp á fimmaurabröndur-
um. Fótboltinn lá vel fyrir þér og
þú varst eins og klettur í vörninni
hjá Blikunum. Í lífinu varstu einn-
ig besti varnarmaður sem hugs-
ast getur; alltaf umhugað um að
vernda og berjast fyrir þína.
Árin okkar í Kaupmannahöfn
eru ógleymanleg, fylgdumst að í
barneignum og eyddum yndis-
legum tíma saman með börnun-
um okkar. Mikið sem þú varst
yndisleg og góð móðir. Þú naust
þín best í móðurhlutverkinu.
Jakob Felix okkar og Andrea
Arna eru svo lánsöm að þú fékkst
það hlutverk að vera mamma
þeirra.
Metnaðurinn fyrir lífinu og
fólkinu þínu leyndist engum. Góð
menntun var þér kappsmál og þú
sóttir þér bestu mögulegu mennt-
un með mikilli prýði. Þú og Palli
þinn eignuðust draumaheimilið
ykkar og fylgduð draumum ykkar
í leik og starfi. Ómetanlegar
minningar frá ófáum glæsilegum
heimboðum í Bæjartúnið, sum-
arbústaðaferðum og útlandaferð-
um þar sem þið Palli settuð mark
ykkar á matarmenningu vina-
hópsins og fjörstigið hækkaði allt-
af um tíu stig. Það var alltaf svo
skemmtilegt í kringum þig, elsku
Linda, og mikið höfum við notið
lífsins og haft það gaman saman.
Það mun ég muna.
Háa skilur hnetti
himingeimur,
blað skilur bakka og egg,
en anda, sem unnast,
fær aldregi
eilífð að skilið.
(Jónas Hallgrímsson)
Mínar innilegustu samúðar-
kveðjur sendi ég Palla, Jakobi
Felix, Andreu Örnu, Guðrúnu,
Hildi Brynju og fjölskyldu. Minn-
ingin um yndislegu Lindu Mjöll
okkar mun lifa í hjörtum okkar
allra.
Elska þig ávallt, ætíð og að ei-
lífu.
Þín ástkæra vinkona,
Elín Þórunn Stefánsdóttir.
Að setjast niður og skrifa
minningargrein um eina af sínum
bestu vinkonum er þyngra en tár-
um taki.
Baráttujaxlinn okkar, hún
Linda Mjöll, var engri lík. Hún
kenndi okkur að gefast ekki upp
fyrir því sem að höndum bæri.
Það var gott að leita til hennar.
Hjá henni fékk maður ávallt þann
stuðning sem til þurfti til að
ganga í málin. „Af hverju skyldir
þú ekki geta gert þetta eins og
hver annar,“ spurði hún gjarnan.
Baráttuþrek sitt sýndi hún svo
sannarlega í erfiðum veikindum
sínum. Hún lét aldrei hugfallast,
gafst aldrei upp. Það var sjúk-
dómurinn sem náði yfirhöndinni
og tók hana frá okkur.
Þrátt fyrir langa baráttu við
erfið veikindi var húmorinn alltaf
til staðar hjá Lindu og gat hún
komið með sína yndislegu brand-
ara alveg fram á síðasta dag. Fal-
leg rödd hennar hljómar enn fyrir
eyrum mér. Mér er svo minnis-
stætt þegar rödd hennar hljómaði
við hinar ýmsu aðstæður, hvort
sem það var í boðum, í miðbænum
eða í yndislegum ferðum vina-
hópsins. Ógleymanlegur er söng-
ur hennar til mín í 35 ára afmæl-
inu mínu er hún söng, að venju
eins og engill, lagið Ást sem var í
miklu uppáhaldi hjá henni. Eftir-
farandi erindi úr laginu verður
ávallt sérstaklega táknrænt fyrir
mig í minningu minni um elsku-
lega vinkonu mína.
Söngur í þöglum skógum
og þögn í borganna dyn,
þú gafst mér jörðina og grasið
og guð á himnum að vin.
(Sigurður Nordal)
Vinahópurinn hefur verið mjög
duglegur að hittast og gert mikið
saman. Yndislegar minningar
þeirra samverustunda munu
hjálpa okkur að komast í gegnum
þennan erfiða tíma eða eins og
fram kemur í þessum orðum: „Þá
er ljúft að lifa og dreyma og líta
yfir farinn veg. Minningarnar
mun ég geyma á meðan lífs ég
anda dreg.“
Elsku Linda okkar skilur eftir
sig stórt skarð og verður hennar
sárt saknað. Við munum halda
minningu hennar á lofti meðal
annars með því að gleyma aldrei
þeirri þrennu, sem vinahópurinn
hefur í hávegum haft, að konur
geta allt, að gleyma ekki að hafa
húmorinn með í för og að gefast
aldrei upp.
Við Finnur, Elín Helga og
Elma Björg vottum Palla, Jakobi,
Andreu og fjölskyldunni allri okk-
ar dýpstu sambúð vegna fráfalls
elsku Lindu.
Hvíldu í friði elsku Linda. Guð
blessi minningu þína.
Þín vinkona,
Þórunn Hulda Vigfúsdóttir.
Þú vinkona mín með þitt fallega hjarta,
ég kveð þig í dag, hugsa um brosið þitt
bjarta.
Þú gafst mér svo margt sem ég gat ekki
sjálf,
án þín er ég ekki heil heldur hálf.
Þú alltaf átt stað í mínu lífi, minni sál.
Þú varst mín stoð og mín stytta, þú
varst þú.
Þú varst þú sjálf.
(Ari Már Heimisson.)
Elsku hjartans vinkona!
Það er svo sárt að þurfa að
kveðja þig allt of snemma. Það
vita það allir sem þekktu þig að þú
gafst lífinu skærustu litina. Þú
varst gleðin og hamingjan í vin-
kvennahópnum, alltaf brosandi,
hress og glöð. Ég er þakklát fyrir
allt sem þú varst mér og mínum.
Þú vildir alltaf öllum það besta og
varst mín mesta hvatning hvort
sem var í lífi, námi eða starfi. Þú
varst metnaðarfull, sjálfstæð og
vissir alltaf hvert þú vildir stefna.
Þú varst stolt af lífi ykkar Palla.
Móðurhlutverkið var þér það
mikilvægasta og þú gerðir það svo
vel. Fjölskyldan var þér allt og þið
stóðuð þétt saman þegar að veik-
indi elsku pabba þíns lögðust
þungt ofan á veikindi þín. Við
kvöddum góðan mann allt of
snemma. Þú varst hetja, kvartað-
ir aldrei, tókst á við veikindi þín af
æðruleysi og nýttir tímann vel,
þvílík kona!
Ég er þakklát fyrir tímann,
vináttuna, gleðina, útilegurnar,
smitandi hláturinn, utanlands-
ferðirnar, brandarana, matarboð-
in, börnin, Palla og þig.
Elsku Palli, Jakob Felix, Andr-
ea Arna, Guðrún, Hildur Brynja
og ykkar kæra fjölskylda, megi
minningin um frábæra eiginkonu,
móður, dóttur og systur hjálpa
ykkur og styrkja í sorginni. Við
erum hérna fyrir ykkur, alltaf!
Elsku Linda, ég elska þig alltaf
og ég mun hafa þig í hjarta mínu
þangað til ég hitti þig hinum meg-
in.
Megas segir það best:
Ég sakna þín í birtingu að hafa
þig ekki við hlið mér
og ég sakna þín á daginn þegar
sólin brosir við mér.
Og ég sakna þín á kvöldin þegar
dimman dettur á.
En ég sakna þín mest á nóttinni
er svipirnir fara á stjá.
Svo lít ég upp og sé við erum
saman þarna tvær
stjörnur á blárri festinguni sem
færast nær og nær.
Ég man þig þegar augu mín eru
opin, hverja stund.
En þegar ég nú legg þau aftur, fer
ég á þinn fund.
(Megas.)
Þín vinkona,
Vaka Dóra.
Ég sit hér og syrgi hana Lindu
og hugsa um tímann sem ég fékk
að eiga með henni, tíma sem ég
mun geyma í minningunni um fal-
lega sál og frábæran vin.
Vin sem aldrei brást og var
alltaf tilbúinn að hlusta og hjálpa.
Skarð hefur verið höggvið í
mitt hjarta og söknuðurinn er sár,
en það sem mér mun hjálpa, er að
hafa að hafa þekkt þig í öll þessi
ár.
Stattu ei við leiðið mitt lengur,
leitaðu mín ekki þar.
Ég sef ekki svefninum langa,
ég sef ekki par.
Ég er stormur sem strauk þína vanga,
ég er steinninn sem situr þú á.
Ég er draumur sem lætur þig langa,
að lifa og þrá.
Ég er sjórinn svo úfinn og æstur,
ég er alda sem fellur að strönd.
Ég er fossinn svo fagur og glæstur,
og friðarbönd.
Stattu ei við leiðið mitt lengur,
leitaðu frekar að ró.
Þú veist að um aldur og ævi,
ég alls ekki dó.
(Lovísa María Sigurgeirsdóttir.)
Hvíldu í friði, elsku Linda.
Þinn vinur,
Ari.
Í dag kveðjum við kæra vin-
konu með söknuði og sorg. Góðan
vin sem þurfti að kveðja þennan
heim allt of snemma. Eftir situr
minning um yndislegan gleðigjafa
sem skipaði stóran sess í okkar
litla en samheldna vinahópi.
Það fyrsta sem kemur í hugann
þegar við minnumst Lindu er
hress og glaðleg stelpa sem var
hrókur alls fagnaðar. Vinur sem
var ávallt tilbúin að hlusta og
hjálpa. Vinur með stórt hjarta.
Vinur sem geislaði af lífsgleði.
Vinur sem bjó yfir ótrúlegum
styrk, þrautseigju og umfram allt
æðruleysi. Falleg manneskja sem
gaf okkur svo mikið.
Það er erfitt til þess að hugsa
að þú verðir ekki með okkur í
næstu óvissuferð, á næstu Bagga-
lútstónleikum, í næstu sumarbú-
staðaferð eða í næstu afmælis-
veislu. Þú skilur eftir þig stórt
skarð í vinahópnum en það skarð
virðist samt lítið miðað við missi
fjölskyldu þinnar. Við munum
passa upp á og hlúa vel að Palla og
börnunum og styðja þau í þeirra
sorg.
Það er sagt að dauðinn hafi
þrjú stig. Það fyrsta er þegar
maður gefur frá sér síðasta and-
varpið og augun ljúkast aftur.
Annað stigið er þegar maður er
jarðaður. Þriðja og síðasta stigið
er svo þegar einhver segir nafnið
manns í síðasta sinn. Linda, við
munum passa vel upp á að nafnið
þitt ómi áfram um ókomna tíð og
minnast þín með hlýju og gleði í
hjarta.
Þú verður alltaf með okkur og
átt ætíð stað í okkar hjarta.
Takk fyrir árin okkar saman.
Takk fyrir að vera alltaf hreinskilin og
trú.
Takk fyrir allar stundirnar saman.
Takk fyrir að vera alltaf þú.
Fyrir hönd vina þinna í Háfn-
um,
Davíð Már
Sigursteinsson.
Elsku fallega vinkona mín er
fallin frá eftir harða baráttu við
krabbamein.
Linda Mjöll var einstakur
gleðigjafi sem allir elskuðu að
vera í kringum. Hún var vinur
vina sinna og passaði vel upp á
fólkið í kringum sig. Það var aldr-
ei lognmolla í kringum Lindu og
hún var alltaf til í að sprella og
hafa gaman og átti alltaf brandara
í pokahorninu ef á þurfti að halda.
Réttlætiskenndin og keppnis-
skapið voru hennar einkenni og
þau fylgdu henni í gegnum veik-
indin sem hún tókst á við af miklu
æðruleysi og jákvæðu hugarfari.
Elsku vinkona mín, takk fyrir
allan sönginn, hláturinn, brandar-
ana og gleðina sem fylgdu þér alla
tíð. Ég er ótrúlega þakklát fyrir
okkar vináttu og allt sem þú
kenndir mér. Það eru sönn for-
réttindi að hafa fengið að fylgja
þér í gegnum lífið hetjan mín, ég
elska þig alltaf.
Elsku Palli, Andrea Arna, Jak-
ob Felix, Guðrún og Hildur