Morgunblaðið - 12.07.2018, Qupperneq 44
FIMMTUDAGUR 12. JÚLÍ 193. DAGUR ÁRSINS 2018
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR.
1. Voru fluttir sofandi út úr hellinum
2. Rangfeðraður sonur vann …
3. Sorg að loknu þrekvirki
4. Rosalegt myndband af árekstri …
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Daníel Bjarnason tónskáld mun
semja tónlist í uppfærslu Borgarleik-
hússins á Ríkharði III eftir William
Shakespeare á næsta leikári en sýn-
ingin verður frumsýnd á Stóra sviði
leikhússins í lok desember.
Daníel var nýverið tilnefndur til tón-
listarverðlauna Norðurlandaráðs fyrir
óperuna Bræður sem byggð er á sam-
nefndri kvikmynd danska leikstjórans
Susanne Bier og fyrr á árinu varð
Daníel fyrstur til að hljóta sérstaka
viðurkenningu Samtóns og Íslensku
tónlistarverðlaunanna fyrir störf sín
og framlag til íslenskrar tónlistar. Þá
hlaut hann Norrænu kvikmyndatón-
skáldaverðlaunin 2018 fyrir tónlist
sína við kvikmyndina Undir trénu.
Hjörtur Jóhann Jónsson verður í titil-
hlutverki Ríkharðs III og Brynhildur
Guðjónsdóttir leikstýrir uppfærslunni.
Morgunblaðið/Valli
Daníel sér um tón-
listina í Ríkharði III
Svavar Knútur söngvaskáld heldur
tónleika í Hannesarholti í kvöld kl. 20
og mun á þeim flytja eigin lög, ný og
gömul, og sígild, íslensk sönglög.
Svavar mun einnig segja nokkrar
sögur og þá bæði sannar og lognar.
Hann hefur gefið út
fjórar sólóplötur hjá
Dimmu útgáfu auk
fleiri platna í sam-
starfi við aðra lista-
menn, þ. á m.
Kristjönu Stef-
ánsdóttur og
Ragnheiði
Gröndal.
Svavar Knútur leikur
lög og segir sögur
Á föstudag Suðaustan 5-13 m/s og rigning eða súld, en þurrt
norðaustanlands. Hiti 10 til 22 stig, hlýjast norðaustanlands.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Fremur hæg suðvestlæg átt og skýjað en úr-
komulítið um landið vestanvert, en bjartviðri á köflum austanlands.
Hiti 10 til 20 stig, hlýjast á Austurlandi.
VEÐUR
Valur vann frábæran 1:0-
sigur á norsku meisturunum í
Rosenborg í gær þegar liðin
mættust í fyrri leik liðanna í
fyrstu umferð Meistara-
deildar Evrópu í knattspyrnu
á Hlíðarenda. Það var mið-
vörðurinn Eiður Aron Sig-
urbjörnsson sem skoraði sig-
urmark leiksins á 84. mínútu.
Liðin mætast á nýjan leik í
Þrándheimi eftir viku og dug-
ar Val jafntefli til þess að fara
áfram í næstu umferð. »3
Frábær sigur
Vals á Rosenborg
Íslensk félagslið verða í eldlínunni í
fyrstu umferð Evrópudeildarinnar í
knattspyrnu í dag. Stjarnan tekur á
móti toppliði eistnesku deildarinnar,
Nõmme Kalju FC, í Garðabæ. ÍBV fær
Sarpsborg í heimsókn á Hásteinsvöll
og FH-ingar sækja finnska liðið Lathi
heim. Eyjamenn vonast til þess að
heimavöllurinn reynist
þeim happadrjúgur.
Stjörnumenn renna
örlítið blint í sjóinn
gegn sínum and-
stæðingi. »3,4
Íslensku liðin í eldlín-
unni í Evrópukeppni
Króatar mæta Frökkum í úrslitaleik
heimsmeistaramóts karla í knatt-
spyrnu í Moskvu á sunnudaginn. Kró-
atar unnu 2:1-sigur á Englandi í und-
anúrslitum keppninnar í Moskvu í
gær eftir framlengdan leik en það var
Mario Mandzukic sem tryggði Króöt-
um sigur með marki í síðari hálfleik
framlengingarinnar. England mætir
Belgíu í leik um þriðja sætið. »4
Króatar mæta Frökkum
í úrslitaleik HM
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Axel Helgi Ívarsson
axel@mbl.is
Geðfræðslufélagið Hugrún stendur
fyrir bingói í Stúdentakjallaranum
klukkan 20 í kvöld til styrktar störf-
um félagsins við fræðslu ungmenna
um geðheilsu, geðraskanir og úrræði
sem standa ungu fólki til boða.
Félagið var stofnað árið 2016 af
nemendum á heilbrigðisvísindasviði
Háskóla Íslands og heldur það fjöl-
marga fyrirlestra um geðheilbrigði
fyrir nýnema í framhaldsskólum á
hverju skólaári.
Spjöldin seldust upp í fyrra
Svokallað „geðveikt bingó“ er nú
haldið þriðja sumarið í röð og hefur
það fengið gríðarlega góðar und-
irtekir síðustu tvö skiptin, segir
Kristín Hulda Gísladóttir, formaður
Hugrúnar, í samtali við Morg-
unblaðið. Hefur jafnan verið fullt
hús af fólki í Stúdentakjallaranum
þegar fjáröflunarbingóið er haldið.
„Við lentum í því í fyrra að þurfa að
sækja fleiri bingóspjöld með hraði
vegna þess að þau spjöld, sem við
vorum með, seldust upp,“ segir
Kristín til marks um þátttökuna.
Ferðast í skóla um allt land
Yfir 80 háskólanemar tóku þátt í
fræðslustarfi Hugrúnar á síðasta
starfsári, en félagið reynir að halda
fyrirlestra í öllum framhaldsskólum
landsins og voru einungis örfáir
skólar sem ekki náðist að heimsækja
á liðnu skólaári. Það gefur því auga
leið að ferðakostnaður
er stærsti útgjaldalið-
urinn.
Félagið þróar
fræðsluefni sitt fyrir
skóla í samvinnu við
fagaðila og eru sum-
urin notuð til að
breyta og bæta efnið
hverju sinni. „Eins
og núna í sumar er-
um við aðeins að breyta áherslum,
t.d. erum við að auka umfjöllun okk-
ar um kvíða og þunglyndi vegna
þess að þörfin er mest þar,“ segir
Kristín. Aðspurð segir hún það
koma sér og öðrum sífellt á óvart
hvað framhaldsskólanemar í dag eru
með opið hugarfar og eru tilbúnir til
að ræða erfið mál sem varða geðheil-
brigði.
Telur hún ungu kynslóðina vera í
fararbroddi hvað varðar breytingu á
þjóðfélagsumræðu um geðvanda-
mál. „Þau vita að það á að vera sjálf-
sagt mál að leita sér aðstoðar hvort
sem það er hjá fagaðilum eða vinum.
Það eitt og sér er mjög stór hluti,
þ.e. að fólk sé reiðubúnara nú en áð-
ur til að ræða geðheilbrigðismál við
aðra í kringum sig,“ segir Kristín.
Geðveikt bingó í kjallaranum
Félagið Hugrún
fræðir ungmenni
um geðheilbrigði
Morgunblaðið/Eggert
Fjáröflunarbingó F.v. þær Kristín Hulda Gísladóttir, formaður Hugrúnar, og Sonja Björg Jóhannsdóttir, markaðs-
stýra Hugrúnar, fyrir utan Húrra Reykjavík í gær. Um 350 þúsund krónur söfnuðust í fjáröflunarbingói síðasta árs.
Hugrún heldur úti vefsíðunni
gedfraedsla.is þar sem hægt er að
finna ýmsar upplýsingar
tengdar andlegri heilsu. „Í
sumar erum við að sam-
ræma efnið sem er á vefsíð-
unni og efnið sem við förum
með í framhaldsskólana. Á
vefsíðunni eru upplýsingar
um alls konar geðraskanir
auk upplýsinga sem við náum
ekki að tala um á fyrirlestr-
unum,“ segir Kristín. Félagið hóf
einnig herferð undir myllumerkinu
#hugud fyrr á árinu, sem ætlað er
að vekja athygli á geðheilbrigði og
geðsjúkdómum. Deila ýmsir ein-
staklingar reynslu sinni af geð-
sjúkdómum í samnefndu veftíma-
riti á vefsíðu Hugrúnar. Þá er
félagið einnig virkt á samfélags-
miðlum, s.s. Facebook og Snap-
chat, þar sem geðheilbrigð-
ismálum eru gerð frekari skil.
Fræðsla á samfélagsmiðlum
FÉLAGIÐ HELDUR ÚTI FRÓÐLEGRI VEFSÍÐU UM GEÐHEILBRIGÐI