Morgunblaðið - 25.07.2018, Page 11
11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. JÚLÍ 2018
VÖNDUÐ JEPPADEKK
Á FRÁBÆRU VERÐI
STÆRÐ 315/70R17
49.600,- kr.
STÆRÐ 285/70R17
46.900,- kr.
ARCTIC TRUCKS | KLETTHÁLSI 3 | 110 REYKJAVÍK | 540 4900
WWW.ARCTICTRUCKS.IS
ÞÚ FÆRÐ JEPPADEKKIN HJÁ OKKUR!
stjórnar, gagnsæi eignarhalds og
þörf fyrir land með tilliti til notk-
unar. Tilheyri náttúruauðlindir, t.d.
vatns- eða jarðhitaréttindi, landinu
sem hlutaðeigandi vill kaupa skal
sérstaklega hugað að fyrrtöldum at-
riðum.
Við kaup á landi utan skipulags
þéttbýlis skal miða við að land sé
neðan við skilgreinda miðhálendis-
línu. Gerður er greinarmunur á
landi innan skipulags þéttbýlis, þar
með talið landi innan frístunda-
svæða, og landi utan skipulagðs
þéttbýlis. Að jafnaði eru kaup á af-
notarétti lands innan skipulagðs
þéttbýlis, fasteign ásamt lóðarétt-
ingum, samþykkt að öðrum skil-
yrðum uppfylltum. Einnig eru kaup
á eignarrétti lands innan skipulagðs
þéttbýlis samþykkt að öðrum skil-
yrðum uppfylltum. Miða skal við að
land sé ekki stærra en 5-10 hektarar
og að það sé eina eign viðkomandi
hér á landi.
Strangari takmarkanir
Samþykki fyrir kaupum á eignar-
rétti/afnotarétti á landi utan skipu-
lagðs þéttbýlis lýtur strangari tak-
mörkunum. „Ástæður þess
grundvallast fyrst og fremst á sjón-
armiðum um þörf fyrir vernd mat-
vælaframleiðslu til framtíðar, mik-
ilvægi þess að standa vörð um
fullveldi landsins, þar með upp-
kaupum á jarðnæði, möguleikum
komandi kynslóða til að njóta arðs af
auðlindum landsins til lengri fram-
tíðar, mikilvægi umhverfisverndar
og verndun menningar,“ segir í regl-
unum.
Yfirleitt er veitt samþykki fyrir
kaupum á landi/afnotarétti lands
(leigurétti) undir fasteign til að
halda þar heimili eða sem frístunda-
hús svo fremi sem landið er ekki
stærra en einn hektari og að um sé
að ræða einu eign viðkomandi hér á
landi.
Þá er yfirleitt veitt samþykki fyrir
kaupum á landi eða afnotarétti lands
til beinnar notkunar fyrir atvinnu-
starfsemi svo framarlega sem landið
er ekki stærra en 25 hektarar og að
það sé eina eign viðkomandi hér á
landi.
Að mati fyrrnefnds lögfræðings
takmarka umrædd lagaskilyrði fyrir
eignarhaldi erlendra aðila á fast-
eignum hér á landi í raun aðeins rétt
þeirra sem standa utan EES-
svæðisins. Borgurum og hluta-
félögum innan EES sé því frjálst að
kaupa hér jarðir til jafns við Íslend-
inga.
Félag sem á félag sem á…
Gagnsæi eignarhalds á jörðum er
lykilþáttur og eitt helsta áhyggju-
efnið í tengslum við frelsi útlendra
aðila til að kaupa jarðir hér á landi,
að mati lögfræðingsins. Samfélagið
hefur hagsmuni af því að hægt sé að
nálgast landeigendur við rekstur
sameiginlegra hagsmunamála, ef
upp koma ágreiningsmál eða þörf er
á þátttöku íbúa í málefnum svæð-
isins. Áhyggjur af gagnsæi eignar-
halds beinast ekki síst að félögum
sem eignast jarðir. Óljóst er hvernig
stjórnvöld gæta að endanlegu eign-
arhaldi ef um röð hlutafélaga er að
ræða eða hve vel er fylgst með
breytingum á eignarhaldi á jörðum
við kaup á hlutafélögum eða við
erfðir.
Við kaup á fasteign í Noregi þarf
nýr eigandi að leita samþykkis
þarlendra yfirvalda fyrir kaup-
unum. Norsk lög gera ekki grein-
armun á þjóðerni þeirra sem
kaupa þar fasteignir. Ákvæði laga
gilda því jafnt um Norðmenn, rík-
isborgara á EES-svæðinu og aðra.
Frá þessari meginreglu laganna
um leyfisskyldu eru gerðar sér-
stakar undantekningar.
Gerð fasteignar ræður
Í fyrsta lagi eru gerðar und-
antekningar eftir tegund fast-
eignar. Ekki þarf leyfi yfirvalda ef
um er að ræða óbyggðar lóðir eða
land þar sem ætlunin er að halda
heimili eða hafa frístundahús ef
leyfi hefur fengist frá skipulags-
yfirvöldum fyrir bústað eða fast-
eignin hefur verið skipulögð undir
byggð. Ekki þarf leyfi ef keyptar
eru óbyggðar fasteignir sem ekki
eru innan svæðis sem er skipulagt
í þágu landbúnaðar eða útivistar.
Ekki þarf heldur leyfi yfirvalda
vegna kaupa á byggðri fasteign
(landi með húsi) ef hún er minni
en tíu hektarar og ræktað land er
ekki meira en 3,5 hektarar. Þá er
gerð krafa um að nýr eigandi
hyggist ekki breyta notkun á fast-
eigninni í bága við skipulagsáætl-
anir.
Eigandinn skiptir máli
Í öðru lagi gilda undantekningar
frá leyfisskyldu eftir því hver nýi
eigandinn er. Kaupandi sem er ná-
tengdur seljanda þarf ekki að
sækja um leyfi. Ríki og sveit-
arfélög eru líka undanþegin leyf-
isskyldu og eins fjármálastofnanir
þegar um fullnustugerð er að
ræða. Sé fasteignin í byggð og
ræktað land meira en 3,5 hektarar
eða skóglendi á fasteigninni
stærra en 50 hektarar er gerð
krafa um að kaupandinn, sé hann
maki seljanda, í sambúð með hon-
um eða annar ættingi seljanda,
setjist að á fasteigninni innan
eins árs frá kaupunum og hafi þar
búsetu í að minnsta kosti fimm
ár. Hann verður líka að flytja lög-
heimili sitt á fasteignina.
Heilsársbúseta
tekin til greina
Afnema má með reglugerð und-
anþágur frá leyfi yfirvalda með
reglugerð í tilviki ýmissa fast-
eigna, einkum þeirra sem ætlaðar
eru til búsetu. Ef leyfisskylda er
sett á með reglugerð getur eig-
andi komist hjá leyfisveitingu ef
hann skuldbindur sig til að hafa
heilsársbúsetu á fasteigninni.
Slíka reglugerð má aðeins setja til
að koma í veg fyrir að fasteignir
sem á að nota til heilsársbúsetu
verði notaðar í frístundatilgangi.
Allir jafnir fyrir lögunum
Norsk lög gera ýmsar kröfur til
eignarhalds yfir jörðum og ná þær
til allra, Norðmanna, EES-borgara
og annarra. Stærð fasteignanna
getur haft þar áhrif og tengsl
kaupanda við fyrri eiganda. Einnig
eru gerðar ýmsar kröfur til heils-
ársbúsetu á fasteignum til þess
að undanþága fáist fyrir leyfi. Eft-
irlitsstofnun EFTA (ESA) skoðaði
það 2012 hvort búsetuskilyrði
norsku laganna samræmdust
reglum EES-samningsins. Nið-
urstaða ESA var að áskilnaður um
heilsársbúsetu bryti ekki í bága
við EES-samninginn.
NOREGUR
Lofoten Norðmenn hafa nokkuð strangar reglur um fasteignakaup.
Yfirvöld þurfa að samþykkja fasteignakaup
Takmarkanir vegna fasteigna-
kaupa eru í dönskum lögum og
ráðast þær mikið af tilgangi
kaupanna. Einstaklingar sem
hvorki eiga lögheimili í Dan-
mörku né hafa átt þar lögheimili
áður í samfellt fimm ár þurfa að
sækja um leyfi til dóms-
málaráðherra til að eiga fast-
eign. Sama gildir um félög sem
ekki eru heimilisföst í Dan-
mörku.
Til eru undanþágur frá því að
þurfa leyfi ráðherra til að eiga
fasteign. Ríkisborgarar innan
EES-svæðisins þurfa ekki leyfi
ráðherra ef þeir eru launþegar í
Danmörku, hafa þar evrópskt
dvalarleyfi, stunda eða ætla að
stunda sjálfstæðan atvinnu-
rekstur í Danmörku eða ætla að
stofna þar útibú eða opna skrif-
stofu eða veita eða taka við
þjónustu í landinu. Félög sem
hafa höfuðstöðvar eða varn-
arþing innan ríkja EES eru einn-
ig undanskilin leyfi ráðherra ef
þau reka eða ætla að reka útibú
eða skrifstofur í Danmörku eða
veita þar þjónustu. Reglurnar
gilda aðeins um fasteignir þar
sem búseta er fyrirhuguð árið
um kring og um húsnæði fyrir
atvinnustarfsemi.
Tilgangur
kaupanna
ræður miklu
DANMÖRK
Kaupmannahöfn Danir setja ým-
is skilyrði fyrir fasteignakaupum.
Vaxandi áhugi útlendinga á fast-
eignakaupum í Færeyjum er farinn
að valda heimamönnum áhyggjum.
Annika Olsen, borgarstjóri í Þórs-
höfn, sagði í samtali við færeyska
Kringvarpið að stjórnmálamenn
verði að bregðast við þessu sem
fyrst. Kringvarpið hefur undanfarið
fjallað um aukna ásókn útlendinga í
fasteignir í Færeyjum.
Fram kom í viðtalinu við Anniku
að engin lög komi í veg fyrir fast-
eignakaup útlendinga. Þetta er
vandamál að hennar mati. Annika
hét á stjórnmálamennina að setja
lög til að koma böndum á þetta. Mál-
ið sé orðið mjög alvarlegt. Við blasi
að útlendingar geti keypt upp fær-
eyskar byggðir og það muni hafa
miklar afleiðingar fyrir allt landið.
Færeyskir fasteignasalar finna
fyrir auknum áhuga útlendinga og fá
nær daglega fyrirspurnir frá fólki
sem vill eignast hús í Færeyjum. Til-
gangurinn er yfirleitt að nota hús-
næðið sem sumarhús.
Útoyggjafelagið vill að settar séu
reglur um fasteignakaup útlendinga
í Færeyjum. Það vill tryggja að
heimamenn og afkomendur þeirra
geti fengið íbúðarhúsnæði á heima-
slóðum. Félagið leggur til að sett
verði á búsetuskylda að hluta eða
öllu leyti eða að lagt verði gjald á
húseigendur sem ekki nýta eign sína
sjálfir og vilja ekki leigja hana út.
Félagið óttast að spurn útlend-
inga eftir húsnæði í hinum dreifðu
byggðum muni leiða til hærra hús-
næðisverðs sem aftur minnki mögu-
leika heimamanna á að kaupa.
gudni@mbl.is
Aukin ásókn
í hús í Færeyjum
Útlendingar vilja kaupa fasteignir
Morgunblaðið/Einar Falur
Færeyjar Útlendingar sýna mikinn
áhuga á að kaupa þar húsnæði.