Morgunblaðið - 25.07.2018, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. JÚLÍ 2018
//////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////
///////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////
Þorgrímur Kári Snævarr
thorgrimur@mbl.is
Leikkonan Laufey Haraldsdóttir
tók fyrir stuttu að sér hlutverk hold-
gervings Íslands þegar hún lék fjall-
konuna á samkomu Íslendinga í
Lundúnum hinn 17. júní síðastliðinn.
Hún er enn að gera íslenskri leiklist
góð skil í Bretlandi með þátttöku
sinni í Edinborgarleiklistarhátíðinni
sem haldin verður í ágúst. Laufey
mun fara með hlutverk í leikritinu
The Squirrel Plays eftir bandaríska
leikskáldið Miu McCullough.
Íkornar tákn fyrir fóstur
Í viðtali við Morgunblaðið segist
Laufey hafa séð færslu um prufur
fyrir sýninguna á Facebook-síðu
sem notuð er til að tengja konur í
sviðslistum.
„Ég vissi að mig langaði að fara til
Edinborgar og sótti um að fara í
prufur fyrir nokkrar sýningar sem
eru á leiðinni þangað. Það sem heill-
aði mig við þessa sýningu var að
þetta er bandarískt verk, sem teng-
ist náminu mínu, það er eftir konu,
er fyndið og fjallar um mikilvæg efni
og þær sögðu strax að þær væru
búnar að redda gistingu í Edinborg,
sem allir segja mér að sé mesta ves-
enið við það að fara á hátíðina. Ég
fór í prufu, leikstjórinn og framleið-
andinn voru búnar að senda mér
tvær senur, ég las fyrir tvo mismun-
andi karaktera og hef greinilega
staðið mig vel því þær hringdu
nokkrum dögum seinna og buðu mér
hlutverkið,“ segir Laufey.
Sýningin Squirrel Plays fjallar á
gamansaman máta um barneignir,
fóstureyðingar og ákvörðunarrétt
kvenna yfir eigin líkama. Að sögn
Laufeyjar snýst sagan um ung hjón
sem kaupa sitt fyrsta hús og komast
að því að íkorni er fastur á háaloft-
inu.
„Í verkinu eru íkornar tákn fyrir
börn og fóstur og húsið táknar þess-
vegna líkama konunnar,“ segir
Laufey. „Í uppsetningunni er lítið
um sviðsmynd en í staðinn notum við
leikararnir líkama okkar til að búa
til húsgögn fyrir aðra leikara í sýn-
ingunni, fjórir af fimm leikurum í
sýningunni eru kvenkyns þannig að
við sem húsgögn fær vonandi áhorf-
endur til að hugsa um sínar eigin
hugmyndir um líkama kvenna og
viðhorf samfélagsins til líkama
kvenna.“
Í leikritinu leikur Laufey Nancy,
nágranna hjónanna. „Hún er svolítil
terta og helst til fordómafull og
dónaleg við nágranna sína en þarf
svo að biðja um aðstoð þegar hún
kemst að því að það er óvæntur
íkorni á háaloftinu sem hún vill losna
við án þess að eiginmaðurinn taki
eftir. Hlutverkið er mjög skemmti-
legt fyrir mig því hún er alveg á
mörkum þess að vera fáránleg en er
samt mjög byggð á raunverulegum
konum sem ég hef hitt og séð, sér-
staklega í Bandaríkjunum. Banda-
rísku meðleikararnir mínir hlæja oft
að því að þegar ég er komin í búning
er ég alveg eins og mömmur bekkj-
arsystkina þeirra úr barnaskóla.“
Laufey segir andann góðan í leik-
hópnum en bætir við að tíminn muni
leiða í ljós hvort það endist fram að
lokum ágústmánuðar. Hópurinn er
alþjóðlegur en auk Laufeyjar eru í
honum fimm leikkonur frá Banda-
ríkjunum, ein frá Hollandi og einn
karlleikari frá Bretlandi. „Honum
finnst erfitt að vera eini Bretinn í
mjög bandarískum hóp en hann á
margar systur þannig að hann er
vanur að vera eini strákurinn,“ segir
Laufey.
Langaði alltaf að
vera fjallkonan
Laufey útskrifaðist með BA-
gráðu úr Rose Bruford-leiklistar-
skólanum í Lundúnum í fyrra og
hefur búið og starfað þar síðan þá.
Aðspurð segist hún stundum fá
heimþrá og segist alltaf fara í leik-
hús þegar hún kemur til Íslands.
„En ég ætla að vera erlendis aðeins
lengur,“ segir hún þó. „Ég er búin að
vera mikið í spunasenunni hérna í
London. Það er baktería sem ég
smitaðist af hjá Dóru í Improv Ís-
land í sumarfríinu fyrir fyrsta árið
mitt í leiklistarskólanum. Ég er líka
byrjuð að reyna aðeins fyrir mér í
uppistandi og öðru gríni og grínsen-
an hér í London er of spennandi til
að slíta mig frá henni strax.“
Laufey segist uppnumin yfir því
að hafa fengið að leika Fjallkonuna á
þjóðhátíðinni í Lundúnum. „Þegar
ég var sjö ára fór ég í þjóðbúningi að
horfa á fjallkonuna flytja ræðu og
var alveg heilluð. Svo þegar ég var
unglingur var ég nokkur ár í fána-
borginni á Austurvelli með skát-
unum og stjórnaði henni meira að
segja með vinkonum mínum eitt eða
tvö ár. En mig langaði alltaf meira
að vera í skautbúningi heldur en í
bláu skátaskyrtunni.
Hátíðarhöldin í Lundúnum voru
kannski ekki mikil miðað við þau
sem ég er vön í Reykjavík en ég fékk
að vera í skautbúningi - með
strumpahattinn og allt - og lesa fal-
legt ættjarðarljóð, sem var nógu
mikill heiður fyrir mig. Ég fékk því
miður ekki að fara í búningnum í
hoppukastalann, en ég fékk SS-
pylsu,“ segir Laufey að lokum.
Á sviði í Skotlandi
Laufey Haraldsdóttir leikur á Edinborgarhátíðinni
Fjallað um ákvörðunarrétt kvenna yfir líkama sínum
Íkornar Laufey (lengst til hægri) ásamt samleikurum sínum á æfingu fyrir Squirrel Plays.
Sjónvarpsþáttaröð sem Netflix
hyggst gefa út 10. ágúst næstkom-
andi hefur fallið misvel í kramið og
hafa rúmlega 100.000 undirskriftir
safnast til að hvetja Netflix til að
hætta við útgáfu þáttanna. Þætt-
irnir heita Insatiable og fjalla um
feitlagna stúlku sem er lögð í ein-
elti af skólafélögum sínum. Eftir að
saumað er fyrir munn stúlkunnar
grennist hún og verður vinsæl, en
hyggur síðan á hefndir gegn fyrr-
verandi kvölurum sínum.
Stiklur að þáttunum hafa verið
gagnrýndar fyrir að ýta undir hlut-
gervingu á líkömum kvenna og fitu-
smán gegn konum sem ekki upp-
fylla staðla samfélagsins í
líkamsfegurð. Óseðjandi Debby Ryan fer með aðalhlutverkið í þáttaröðinni Insatiable á Netflix.
Netflix sakað um hlutgervingu og fitusmán í nýjum þáttum
Aðdáendur hinnar geysivinsælu
Guardians of the Galaxy-kvik-
myndasyrpu virðast enn ekki hafa
gefið leikstjórann James Gunn upp
á bátinn. Disney rak Gunn sem leik-
stjóra myndanna vegna gamalla
tísta sem komu nýlega upp á yf-
irborðið af Twitter-síðu hans. Lík-
legt þykir að átt sé við tíst þar sem
Gunn gerði grín að málefnum eins
og barnaníði og alnæmi.
Nú hafa hins vegar 230.000 skrif-
að undir í undirskriftasöfnum á vef-
síðunni Change.org til að hvetja
Disney til að endurráða Gunn.
Chandler Edwards, sem stendur að
baki söfnuninni, segist gera sér
grein fyrir að ólíklegt sé að Disney
verði talið hughvarf en segist þó
vona að hægt verði að koma í veg
fyrir að mistökin verði endurtekin.
„Ég er sammála því að ef fólk segir
eitthvað rugl í starfi hjá kvik-
myndaveri á verið allan rétt á að
reka það til að forðast hneyksli. En
þetta er annað mál því Gunn sagði
þessa brandara löngu áður en hann
vann fyrir Disney og auk þess voru
þetta brandarar. Ég er sammála
flestum, þar á meðal Gunn sjálfum,
að brandararnir voru ömurlega
ófyndnir en þetta voru samt brand-
arar, ekki skoðun hans. Bara léleg
tilraun til að vera fyndinn.“
AFP
Rekinn James Gunn, nú fyrrverandi leikstjóri Guardians of the Galaxy-myndanna.
230.000 krefjast endurráðningar Gunn