Morgunblaðið - 25.07.2018, Blaðsíða 27
og rak hér meðferðarheimili fram
yfir síðustu áramót. Það voru ágætir
nágrannar.
Við hjónin vorum fyrst með
blandaðan búskap en héldum okkur
síðan að mestu við sauðfé og dún-
tekju. Æðarvarpið jókst um skeið en
nú hefur heldur dregið úr því, enda
hefur verð á dúni verið að lækka að
undanförnu.“
Sveinn var jafnframt sláturhús-
stjóri hjá Norðvesturbandalaginu í
Búðardal frá 1997 og síðan á vegum
Goða meðan það fyrirtæki var í
rekstri. Hann hefur auk þess verið
bílstjóri, fyrst hjá Vestfjarðaleið á
sumrin: „Ég byrjaði fyrst að aka
trukkum á hálendið fyrir Vest-
fjarðaleið og hef síðan haldið mig við
hálendisferðir, nú á eigin vegum.
Auk þess hef ég verið skólabílstóri
fyrir Auðarskóla í Búðardal á vet-
urna.“
Sveinn starfaði í ungmennafélag-
inu Dögun í Dölum og í ungmenna-
félaginu Íslendingi í Andakílshreppi,
sat í stjórn Ungmennasambands
Dalamanna og Norður-Breiðfirð-
inga og var formaður þess um skeið,
sat í hreppsnefnd Fellsstrandar-
hrepps , sat í búnaðarfélagsstjórn,
var einn af stofnfélögum og gjald-
keri björgunarsveitarinnar Óskar í
Dalabyggð og sat í stjórn Lions-
klúbbsins í Búðardal. Hann situr nú
í sóknarnefnd og í stjórn Veiðifélags
Fellsstrandar.
Og einhver áhugamál hjá Sveini
þegar búskapnum og akstrinum
sleppir?
„Við hjónin höfum verið dugleg að
ferðast og þá fyrst og fremst hér
innanlands. Þetta fallega land okkar
hefur upp á svo ótalmargt að bjóða,
að engum endist aldur til að skoða
nema brot af ómetanlegum náttúru-
perlum þess.“
Fjölskylda
Sveinn kvæntist 14.9. 1968 Þóru
Stellu Guðjónsdóttur, f. 18.9. 1947,
matráðskonu. Hún er dóttir Guðjóns
B. Gíslasonar og Ólafar Runólfs-
dóttur, bænda á Syðstu-Fossum í
Borgarfirði sem bæði eru látin.
Börn Sveins og Þóru Stellu:
Kjartan, f. 12.3. 1973, d. 19.3. 1973;
Anna Kristín, f. 16.4. 1971, aðstoð-
arleikskólastjóri, búsett í Garðabæ
og eru synir hennar Sveinn Sig-
urður, f. 1995, og Páll Halldór, f.
1996; Ingibjörg, f. 21.12. 1972, bóndi
og matráður á Ytri-Ey í Austur-
Húnavatnssýslu en maður hennar er
Stefán Stefánsson bóndi; Kristján
Ellert, f. 14.9. 1974, sjómaður í
Kópavogi.
Systkini Sveins eru Svavar, f.
26.6. 1944, fyrrv. alþingismaður,
ráðherra og sendiherra. í Reykjavík;
Helga Margrét, f. 29.10. 1949, búsett
í Noregi; Málfríður, f. 19.1. 1953,
starfar við umönnun eldri borgara,
búsett í Reykjavík; Valdimar, f. 4.6.
1956, rafvirki hjá Marel í Noregi;
Guðný Dóra, f. 20.3. 1961, forstöðu-
maður á Gljúfrasteini, búsett á
Hvanneyri; Kristín Guðrún, f. 25.5.
1963, kennari á Höfn í Hornafirði,
og Svala, f. 15.1. 1967, d. 26.11. 1971.
Foreldrar Sveins: Gestur Zóp-
hanías Sveinsson, f. 3.10. 1920, d.
29.12. 1980, bóndi og síðar verka-
maður í Hafnarfirði, og k.h., Guðrún
Valdimarsdóttir, f. 28.3. 1924, d.
16.12. 2016, húsfreyja.
Úr frændgarði Sveinn Kjartan Gestsson
Sveinn Kjar-
tan Gestsson
Guðbjörg Þorsteinsdóttir
húsfr. á Kjalvararstöðum
Halldór Þórðarson
b. á Kjalvararstöðum
Helga Halldórsdóttir
bóndakona og húsfreyja
Helgi J. Halldórsson
cand. mag.
Áslaug Helgadóttir
aðstoðarrektor Land-
búnaðarháskóla Íslands
á Hvanneyri
Valdimar Davíðsson
b. á Guðnabakka, Hömrum
og síðast í Borgarnesi
Guðrún Valdimarsdóttir
húsfreyja og verkakona
Guðbjörg Valdimarsdóttir
húsfr. í Kópavogi
Arnar
Guðmundsson
ritari Sam-
fylkingar
Þorsteinn Valdimarsson
bílstj. í Borgarnesi
Björn Bjarki
Þorsteinsson
form. bæjarráðs
Bogarness
Guðbjörg Stefánsdóttir
húsfreyja og verkakona
Davíð Jakobsson
lausam. í Borgarfirði
Sigurbjörg Jónsdóttir
húsfreyja á Breiðabólsstað
Kristján Þórðarson
b. á Breiðabólsstað
Salóme Kristjánsdóttir
húsfr. á Sveinsstöðum
órður Kristjánsson
. á Breiðabólsstað
á Fellsströnd
Þ
b
riðjón Þórðarson
fyrrv. alþm. og
ráðherra
Gestur Sveinsson
bóndi og verkam. í Dalasýslu og Rvík
Jófríður Sveinsdóttir
húsfr. í Rvík
Aron Björnsson
læknir í Rvík
Kristinn Sveinsson
byggingam. í Rvík
gurjón Sveinsson
. á Sveinsstöðum
Si
b
Ólöf
igurjónsd.
úsfr. í Hfj.
S
h
Aðalheiður
Guðmundsd.
þjóðfræð.
Sveinn Hallgrímsson
b. á Sveinsstöðum
Haraldína Haraldsdóttir
vinnuk. á Snæfellsnesi
Hallgrímur Jónsson
verkam.
Jörundur Kristinsson
læknir í Rvík
Jóhannes Kristinsson
læknir í Garðabæ
Þórður Friðjónsson
forstjóri Kauphallar
Íslands
F
Helgi Þorgils Friðjónss.
myndlistarmaður
Svavar Gests-
son fv. alþm.,
ráðherra og
sendiherra
Svandís Sva-
varsdóttir
heilbrigðis-
ráðherra
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. JÚLÍ 2018
Íslenskt einangrunargler
í nýbygginguna, sumarbústaðinn
eða stofugluggann.
Fagleg ráðgjöf og öruggur afhendingartími.
Smiðjuvegi 2, Kópavogi – sími 4889000– samverk.is
Eggert Ólafur EggertssonBriem fæddist á Hjaltastöð-um í Skagafirði 25.7. 1867.
Foreldrar hans voru Eggert Ólafur
Gunnlaugsson Briem, sýslumaður á
Reynistað, bróðir Jóhönnu Krist-
jönu, ömmu Hannesar Hafstein, og
k.h., Ingibjörg Eiríksdóttir Briem, f.
Sverrisson, húsfreyja.
Föðurforeldrar Eggerts voru
Gunnlaugur Guðbrandsson Briem,
sýslumaður og kammerráð á Grund í
Eyjafirði og ættfaðir Briemættar, og
k.h., Valgerður Árnadóttir húsfreyja,
en móðurforeldrar hans voru Eiríkur
Sverrisson, sýslumaður í Kollabæ í
Fljótshlíð, og k.h., Kristín Ingvars-
dóttir húsfreyja.
Meðal systkina Eggerts voru Ei-
ríkur, prestaskólakennari, prófastur
og síðar prófessor og alþingismaður;
Kristín Claessen, amma Gunnars
Thoroddsen forsætisráðherra; Ólaf-
ur, oddviti, umboðsmaður og alþing-
ismaður á Álfgeirsvöllum; Páll, amt-
maður og alþingismaður, afi
Sigurðar Líndal; Elín skólastjóri og
Sigurður póstmálastjóri.
Eiginkona Eggerts var Guðrún
Jóndóttir Briem, organisti og for-
stöðukona Kvennaskólans í Ytri-Ey,
dóttir Jóns Þórðarsonar, prófasts í
Auðkúlu, og k.h., Sigríðar Eiríks-
dóttur yngri. Börn Eggerts og Guð-
rúnar: Sigríður, kennari í Reykjavík,
og Gunnlaugur, lögfræðingur og
ráðuneytisstjóri.
Eggert lauk stúdentsprófi frá
Lærða skólanum 1887 og cand. jur-
is.-prófi frá Kaupmannahafnarhá-
skóla 1893.
Eggert var málflutningsmaður við
Landsyfirréttinn 1893-96, sýslumað-
ur í Skagafjarðarsýslu frá 1897,
skrifstofustjóri í Stjórnarráðinu frá
1904, var annar yfirdómari og dóms-
málaritari við Landsyfirréttinn 1915,
var skipaður hæstaréttardómari
1919 og sinnti því embætti til 1935.
Eggert var prófdómari við laga-
deild Háskóla Íslands og kennari í
kirkjurétti við guðfræðideild skól-
ans.
Eggert lést 7.7. 1936.
Merkir Íslendingar
Eggert
Ó.E. Briem
85 ára
Elísabeth Jónsson
Friðrik Magnússon
Jón Ölver Pétursson
Laufey Kristinsdóttir
80 ára
Guðrún Jóhannsdóttir
Michael Þórðarson
Róbert Árnason
75 ára
Jón E. Snorrason
Kristrún Ásgrímsdóttir
Svanhildur Magnúsdóttir
Valgerður J. Sigurðardóttir
70 ára
Bjarni Gunnarsson
Björn Emilsson
Ernst Elmar Geirsson
Fanney Hauksdóttir
Gunnur J. Gunnarsdóttir
Konráð Alexander Ottósson
Kristbjörg S.
Þorsteinsdóttir
Ronghua Qin
Sveinn Kjartan Gestsson
60 ára
Anna Josefin Jack
Arna B. Friðriksdóttir
Bozidar Galonja
Erna Svavarsdóttir
Guðlaug Sverrisdóttir
Guðrún S. Þorleifsdóttir
Helgi Kristinn Grímsson
Herdís Herbertsdóttir
Jóhanna S. Gísladóttir
Jón Ingvar Jónasson
Lucyna Kornet
Marta Matthíasdóttir
50 ára
Alfa Aradóttir
Beta Ásmundsdóttir
Cecilia Caturegli
Fjóla Hauksdóttir
Guðný Stefánsdóttir
Haukur Árnason
Hermann Stefánsson
Inga María Ingimarsdóttir
Johan Wichit Phahuphan
John William Grant
Karen Eva Vestfjörð
Oddfríður R. Þórisdóttir
Sigfús Bergmann
Önundarson
Sigríður I. Sigurjónsdóttir
Sigríður K. Ingvarsdóttir
Susanne Antoinette Elgum
40 ára
Adam Lipski
Ágúst Reynisson
Bjarni Þorgeir Jónsson
Florencio D. Germino
Fríða Ruth Heiðarsdóttir
Guðmundur Már Ketilsson
Hulda S. Guðmundsdóttir
Jóna Birna Ragnarsdóttir
Magnea Erna Auðunsdóttir
Ragnar Jónasson
Ragnheiður Á. Einarsdóttir
Sighvatur Hilmar
Arnmundsson
Sigríður Anný Axelsdóttir
Svava Björk Sigurðardóttir
Svava Pétursdóttir
Sveinn Rúnar Benediktsson
30 ára
Arnrún Tryggvadóttir
Crisley Jane Paran de la
Cruz
Helena Dögg Gunnarsdóttir
Lilly G. Sigurðardóttir
Linda María Geirsdóttir
Louise Chouhan
Rakel Rún Karlsdóttir
Samuel Nicholas Perkin
Sarunas Kungys
Þórunn Ósk Einarsdóttir
Til hamingju með daginn
30 ára Rakel ólst upp í
Kópavogi, býr í Reykjavík,
lauk BSc-prófi í jarðfræði
frá HÍ og er læknaritari.
Börn: Írena Kristín, f.
2012, og Ísak Karl, f.
2015.
Bræður: Kristófer Karls-
son, f. 1983, og Alexander
Karlsson, f. 1985.
Foreldrar: Benný Guðrún
Valgeirsdóttir, f. 1956, og
Vilhjálmur Karl Karlsson,
f. 1955. Þau er búsett í
Kópavogi.
Rakel Rún
Karlsdóttir
40 ára Sveinn lauk BSc-
prófi í viðskiptafræði og
BA-prófi í stjórnmálafræði
og er ráðgjafi hjá Crayon.
Maki: Margrét Björns-
dóttir, f. 1980, hjúkr-
unarfr. og fagstjóri..
Börn: Gerður María, f.
2006; Guðrún Marta, f.
2012, og Ragnhildur Mar-
grét, f. 2016.
Foreldrar: Benedikt Ósk-
ar Sveinsson, f. 1951, og
Gerður Ebbadóttir, f.
1950, d. 2004.
Sveinn Rúnar
Benediktsson
40 ára Svava ólst upp í
Reykjavík og býr þar og
starfar hjá Geysi.
Bræður: Ármann Atli Sig-
urðsson, f. 1971, leik-
skólakennari, og Bjartmar
Ingi Sigurðsson, f. 1975,
pípulagningarmaður.
Foreldrar: Sigurður Ósk-
arsson, f. 1949, bifvéla-
virki, og Málfríður Björns-
dóttir, f. 1948, lengi
starfsmaður við vistheim-
ili barna. Þau eru búsett í
Reykjavík.
Svava Björk
Sigurðardóttir