Morgunblaðið - 25.07.2018, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. JÚLÍ 2018
Dásamlegur þvottur
- einfalt, íslenskt
stjórnborð
Íslenskar leiðbeiningar fylgja.
Þurrkarinn TDB130WP fékk góða einkunn
í úttekt þýsku neytendasamtakanna árið 2017.
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is
Þvottavél 119.990 kr.
Þurrkari 149.990 kr.
25. júlí 2018
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 106.23 106.73 106.48
Sterlingspund 139.39 140.07 139.73
Kanadadalur 80.71 81.19 80.95
Dönsk króna 16.675 16.773 16.724
Norsk króna 12.987 13.063 13.025
Sænsk króna 12.023 12.093 12.058
Svissn. franki 106.87 107.47 107.17
Japanskt jen 0.9552 0.9608 0.958
SDR 149.11 149.99 149.55
Evra 124.25 124.95 124.6
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 150.8159
Hrávöruverð
Gull 1229.45 ($/únsa)
Ál 2074.5 ($/tonn) LME
Hráolía 73.22 ($/fatið) Brent
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Gengi hlutabréfa
í Högum hækkaði
um 3,83% í Kaup-
höllinni í um 229
milljóna króna við-
skiptum í gær.
Hlutabréf Haga
hafa hækkað um
rúmlega 28% frá
áramótum.
Næstmest
hækkaði gengi
bréfa Skeljungs í gær, eða um 2,89%.
Gengi bréfa Origo héldu einnig áfram
að hækka í gær, eða um 2,80%, en á
mánudaginn hækkaði gengi bréfanna
um 7,00%.
Mest voru viðskipti með hlutabréf í
Marel í gær, sem námu um 621 milljón
króna. Viðskipti með bréf Haga voru
næstmest og Eimskip kom þar á eftir,
en viðskipti með bréf félagsins námu
88 milljónum króna.
Úrvalsvísitalan hækkaði í viðskiptum
gærdagsins um 0,34%.
Hlutabréf í Högum
hækkuðu um tæp 4%
Markaður Bréf
Haga hækkuðu.
STUTT
BAKSVIÐ
Steingrímur Eyjólfsson
steingrimur@mbl.is
Ný útlán, að frádregnum upp- og
umframgreiðslum, til fyrirtækja í
byggingarstarfsemi og mannvirkja-
gerð hafa dregist saman um tæplega
helming, ef borinn er saman fyrri
helmingur ársins við sama tímabil í
fyrra. Þetta kemur fram í nýjum
hagtölum Seðlabanka Íslands er
snúa að nýjum útlánum innláns-
stofnana.
Í júní námu ný útlán til fyrirtækja
í byggingarstarfsemi 2,6 milljörðum
króna, en til samanburðar námu ný
útlán í júní í fyrra 3,6 milljörðum
króna.
Á fyrstu sex mánuðum ársins hef-
ur verið lánað til byggingafyrir-
tækja fyrir 8,0 milljarða króna, mið-
að við 15,4 milljarða króna á sama
tímabili árið 2017.
HB Grandi skekkir tölurnar
Ný útlán til fiskveiðifyrirtækja
fóru úr því að vera neikvæð um 110
milljónir króna á fyrri helmingi árs-
ins 2017, í 24 milljarða króna það
sem af er þessu ári. Í maí síðast-
liðnum voru útlán til fiskveiðifyrir-
tækja tæplega 22 milljarðar króna.
Í lok apríl var tilkynnt að
útgerðarfyrirtækið Brim hefði sam-
ið um kaup á 34,1% hlut í HB
Granda á 21,7 milljarða króna. Því
má ætla að ný útlán í maí til fisk-
veiðifyrirtækja hafi að mestu farið í
að lána fyrir umræddum kaupum.
Ný útlán til fyrirtækja í landbún-
aði jukust um tæp 40% miðað við
sama tímabil í fyrra og námu einum
milljarði króna á fyrstu sex mán-
uðum ársins.
Fyrirtæki í iðnaði fengu lánaða
frá innlánsstofnunum 17,2 milljarða
króna á fyrstu sex mánuðum ársins,
samanborið við 15,6 milljarða króna
á fyrri helmingi ársins 2017.
Ný útlán til flutninga- og sam-
göngufyrirtækja nema 7,6 milljörð-
um króna það sem af er ári, miðað
við 9,6 milljarða króna í fyrra. Það
er samdráttur um 21% milli tíma-
bila.
Ný útlán jukust um 7%
Ný útlán í heild að frádregnum
upp- og umframgreiðslum námu 187
milljörðum króna á fyrri helmingi
ársins, eða um 11,5 milljörðum
meira en á sama tímabili í fyrra.
Ný lán til heimila jukust um 6,6%
milli tímabila. Íbúðalán með breyti-
legum vöxtum drógust saman um
6% á meðan íbúðalán með föstum
vöxtum jukust um rúmlega 64%, úr
13,2 milljörðum króna á fyrstu sex
mánuðum ársins í fyrra, í 21,8 millj-
arða í ár.
Bílalán til heimila jukust einnig
milli tímabila en á fyrri helmingi
ársins voru ný bílalán í kringum 6,9
milljarðar króna, samanborið við 6,6
milljarða króna í fyrra.
Eignir innlánsstofnana námu
3.599 milljörðum króna í lok júní og
hafa aukist um 179 milljarða frá ára-
mótum. Innlendar eignir námu tæp-
um 3.200 milljörðum króna og
erlendar eignir um 400 milljörðum.
Eigið fé innlánsstofnana nam 616
milljörðum króna í lok júní og hafði
það aukist um 5,5 milljarða í þeim
mánuði.
Lán til byggingafélaga
dragast saman um helming
Morgunblaðið/Ómar
Framkvæmdir Útlán til fyrirtækja í byggingarstarfsemi drógust saman um helming á fyrstu sex mánuðum ársins.
18% aukning í fyrirtækjalánum á fyrri helmingi ársins m.v. sama tímabil í fyrra
Fasteignaverð á höfuðborgarsvæð-
inu hækkaði um 0,8% milli maí og
júní. Hækkun húsnæðisverðs síð-
ustu 12 mánuði mældist 5,2% og
jókst í fyrsta skipti frá því í sept-
ember 2017, samkvæmt umfjöllun í
Hagsjá Landsbankans sem byggir
á nýjum tölum Þjóðskrár.
Landsbankinn varpar fram
þeirri spurningu hvort fasteigna-
markaðurinn sé farinn að hitna aft-
ur? Nú sé liðið ár frá því að verð-
hækkanir fasteigna á
höfuðborgarsvæðinu stöðvuðust
mjög snögglega. Bendir bankinn á
að fasteignaverð á höfuðborgar-
svæðinu hafi hækkað um 3,4% á
fyrri helmingi ársins, en um 1,8% á
síðari helmingi liðins árs.
Raunverð fasteigna var nú í júní
um 2,6% hærra en fyrir ári, að því
er fram kemur í Hagsjánni. Þar
sem verðbólga sé enn tiltölulega
lág haldist raunverð fasteigna stöð-
ugt þrátt fyrir hóflegar hækkanir.
„Þróunin allt frá miðju síðasta
ári
sýndi að kaflaskil urðu á fast-
eignamarkaðnum á höfuðborgar-
svæðinu. Síðustu tölur gætu verið
vísbendingar um að staðan sé að
breytast,“ segir í Hagsjá Lands-
bankans. Ársbreyting fasteigna-
verðs sé nú tekin að hækka eftir
samfellda lækkun í langan tíma og
framboð sé að aukast á minni íbúð-
um sem að öðru jöfnu ætti að
þrýsta verði upp á við. „Niðurstað-
an gæti því verið sú að vænta megi
nýrra verðhækkana, en örugglega í
mun hægari takti en á undanförn-
um árum.“
Morgunblaðið/Golli
Íbúðir Landsbankinn telur að vænta
megi nýrra verðhækkana fasteigna.
Vísbendingar um
breytingar á markaði
Árshækkun
húsnæðisverðs fer
á ný vaxandi
„Þetta kemur kannski ekki endi-
lega á óvart,“ segir Sigurður
Hannesson, framkvæmdastjóri
Samtaka iðnaðarins. „Við höfum
heyrt fréttir af því að hægt hafi á
uppbyggingu ferðaþjónustu, til
dæmis hóteluppbyggingu. Það
gæti skýrt þetta að einhverju
leyti. Það er minni vöxtur í þess-
um geira en áður, enda hefur ver-
ið heilmikil uppbygging á síðustu
árum.“
Ekki óvænt
SIGURÐUR HANNESSON,
FRAMKVÆMDASTJÓRI SI