Morgunblaðið - 25.07.2018, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. JÚLÍ 2018
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Heimsmeist-aramótkarla í
knattspyrnu fór
ekki fram hjá
mörgum og áhorf-
endum Ríkissjón-
varpsins var engr-
ar undankomu
auðið. Ekki var aðeins sýnt frá
leikjum, heldur hamrað á því í
auglýsingum, sem sýndar voru
í tíma og ótíma, að mótið væri á
dagskrá þess.
Nú er komið í ljós að þessar
auglýsingar voru alls ekki aug-
lýsingar. Þær voru kynningar.
Á þessu mun vera reginmunur.
Auðvelt hefði átt að vera að
átta sig á því að þetta voru ekki
auglýsingar. Þær voru ekki
birtar í sérstökum og skýrt af-
mörkuðum auglýsingatímum
Ríkisútvarpsins.
Ástæðan fyrir því að þetta er
yfirhöfuð til umræðu er að for-
sætisráðherra féllst á að lesa
línu úr þjóðsöngnum upp að
beiðni Ríkisútvarpsins. Upp-
takan á lestrinum var notuð
með öðrum hætti en kynnt
hafði verið þegar óskað var eft-
ir honum. Sendi forsætisráðu-
neytið því fyrirspurn til út-
varpsstjóra og vakti athygli á
því að ekki væri heimilt að
birta þjóðsönginn í annarri
mynd en þeirri upprunalegu
eða nota hann á nokkurn hátt í
viðskipta- og auglýsingaskyni.
Ríkisútvarpið mótmælti því
að þetta væri lögbrot og benti á
að kynningin hefði einskorðast
við ljóð Matthíasar Jochums-
sonar og teldist því ekki flutn-
ingur á þjóðsöngnum í skiln-
ingi laganna.
Þess utan gæti
notkunin tæplega
talist í auglýsinga-
skyni þar sem um
væri að ræða dag-
skrárkynningu fyr-
ir heimsmeist-
aramótið.
Gildir þá greini-
lega einu að kynningunni var
ætlað að draga sem flesta
áhorfendur að viðtækjunum á
sama tíma og auglýsingadeild
stofnunarinnar var á fullri ferð
að ná til sín sem flestum
auglýsendum. Harðfylgið fór
ekki framhjá keppinautunum.
„Þeir ryksuguðu þetta upp,“
sagði einn þeirra í samtali við
Morgunblaðið í júní.
Svo veraldleg markmið
hvörfluðu vitaskuld ekki að
þeim sem sáu um kynning-
arnar. Í svari Ríkisútvarpsins
til forsætisráðuneytisins segir
að það sé eitt helsta markmið
þess að „stuðla að félagslegri
samheldni í íslensku sam-
félagi“ og flutningur ljóðsins í
dagskrárkynningunni hafi mið-
að að því að „sameina þjóðina“.
Markmiðið með kynningunni
hafi verið að „skapa stemningu
og þjappa þjóðinni saman“ í að-
draganda HM.
Á meðan óbreyttir fjölmiðlar
birta auglýsingar til að koma
sér á framfæri og vekja á sér
athygli er viðfangsefni ríkis-
miðilsins öllu háleitara. Hann
stuðlar jafnvel í dagskrárkynn-
ingum að „félagslegri sam-
heldni í íslensku samfélagi“ og
leitast við „að þjappa þjóðinni
saman“. Að nokkrum manni
skuli detta í hug að bendla slíkt
við auglýsingar!
Ríkisútvarpið aug-
lýsir ekki dagskrá
heldur kynnir til að
stuðla að félagslegri
samheldni í íslensku
samfélagi}
Þjóðinni þjappað saman
Venesúela varvelstætt ríki.
Svo hófst bylt-
ingarhetjan
Chavez, aðdáandi
Fidels Castros, til
valda og tók til við
að koma á sósíal-
isma. Ný skýrsla
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sýn-
ir hvernig til tókst. AGS segir
að verðbólgan verði sennilega
orðin milljón prósent í lok árs-
ins og efnahagsöngþveitið eftir
því. Þjóðartekjur gætu dregist
saman um 18% til viðbótar við
það hrun sem orðið er. AGS
segir að efnahagslega fárviðrið
í landinu minni helst á ógöng-
urnar í Þýskalandi upp úr
heimsstyrjöldinni fyrri. Í þeim
jarðvegi uxu og döfnuðu
kommúnismi og nasismi, sem
varð að lokum ofan á, með þeim
hörmungum fyrir Þýskaland
og umheiminn sem fylgdu.
AGS segir að hrun efnahags-
lífsins í Venesúela,
stjórnlaus verð-
bólga og ólýsan-
legur samdráttur
muni hafa sífellt
meiri neikvæð
áhrif á gengi þjóða
í næsta nágrenni.
Íbúar þessa
fyrrum auðuga olíuríkis ganga
um eins og betlarar í sífelldri
leit að einhverju matarkyns,
lyfjum eða öðrum brýnum
nauðsynjum. Slík leit ber lítinn
árangur, sem ýtir undir stór-
flótta í átt til nágrannalanda,
sem eiga nóg með sig. AGS
segir að skortur á rafmagni og
vatni og hrun almennra sam-
gangna bætist við aðra eymd.
Og eins og fyrirsjáanlegt er við
slíkar aðstæður verða vopn-
aðar glæpaklíkur fyrirferðar-
miklar. Draumsýn sósíalism-
ans hefur jafnan endað í þeim
raunveruleika. En þetta varð
þó óvenjulega fljótt.
Það þarf einstaka
útsjónarsemi til að
kollsteypa efnuðu
landi svo fljótt. En
sósíalismanum er
fátt ómögulegt}
Heimatilbúin hörmung
U
m liðna helgi gekk ég eina fjöl-
förnustu gönguleið á Íslandi,
Laugaveginn. Í Land-
mannalaugum þar sem gangan
hefst var margt fólk sem var
ýmist að leggja af stað í gönguferðir eða að
tjalda til að njóta staðarins. Á leiðinni breytt-
ist náttúran hratt, fyrst um sinn er auðvelt að
gleyma sér í litadýrð svæðisins og gufustrók-
unum sem víða stíga upp úr hverasvæðinu í
kringum gönguleiðina. Þegar gengið er áfram
taka við snjóskaflar og svartir sandar á víxl í
bröttum brekkum. Seinna taka við grænar
hlíðar og fjöll og bæði Mýrdals- og Eyjafjalla-
jökull blasa við. Misvatnsmiklar ár sem þarf
að vaða og einstök gljúfur og moldarstígar
niður í náttúruparadísina sem Þórsmörk er.
Á svona göngu leiðir maður hugann að því
hversu mögnuð íslensk náttúra er enda laðar
hún að sér milljónir ferðamanna til að berja hana augum.
Það kom mér nokkuð á óvart hversu ósnortin náttúran
er á þessari gönguleið miðað við fjöldann sem fer hana á
hverju sumri. Þó eru fjölmargar áskoranir sem blasa við.
Spurningar eins og hver ber ábyrgðina á landinu, hvern-
ig við erum að ganga um landið og hvað þarf að gera til
að ráða við áganginn án þess að náttúran láti á sjá?
Það leiðir hugann að fréttum um óbyggðanefnd og
þann gríðarlega kostnað og tíma sem farið hefur í verk-
efni hennar, langt umfram áætlanir, hvort sem er áætlað
heildarumfang eða árleg framúrkeyrsla fjárheimilda.
Verkefni nefndarinnar er að fá úr skorið hvar
mörk þjóðlendu liggja, hvaða lönd tilheyri
ríkinu á hálendinu og hvaða lönd séu einka-
lönd í byggð. Forsaga nefndarinnar er löng
en hún teygir anga sína aftur á miðja síðustu
öld þegar upp risu deilur um afnot og eign-
arrétt á hálendissvæðum. Heildarkostnaður
vegna nefndarinnar, um tveir milljarðar
króna, er margfalt meiri en gert var ráð fyrir
í upphafi enda átti nefndin að ljúka störfum
árið 2007.
Margir hafa haft efasemdir um störf nefnd-
arinnar og þessa stefnu. Það má setja stórt
spurningarmerki við þá stefnu ríkisins að
kosta til hundruðum milljóna við að ná meira
landi undir eignarhald og ábyrgð ríkissjóðs,
að framkvæma þá stefnu á óheimilum yf-
irdrætti og að ná á sama tíma ekki utan um
það stóra verkefni sem verndun og varðveisla
íslenskrar náttúru er – á tímum sem rúmlega 2,5 millj-
ónir ferðamanna sækja okkur heim á ári.
Ef til vill færi betur á því að ríkið einbeitti sér að því að
sinna þeim verkefnum sem nú þegar fylgja þeirri ábyrgð
sem felst í því að eiga land. Þar liggja nú þegar fjölmarg-
ar áskoranir og þeim fer ekki fækkandi á því landi sem
ríkið á nú þegar.
Áslaug Arna
Sigurbjörns-
dóttir
Pistill
Ríkislandið sem óx og óx
Höfundur er formaður utanríkismálanefndar
og ritari Sjálfstæðisflokksins.
aslaugs@althingi.is
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
BAKSVIÐ
Erna Ýr Öldudóttir
ernayr@mbl.is
Veiking Golfstraumsins gætivaldið tímabili hraðrarhlýnunar yfirborðs sjávar.Niðurstöður þess efnis
birtu vísindamennirnir Xianyao
Chen og Ka-Kit Tung í grein í vís-
indatímaritinu Nature.
Þar segir m.a. frá því að rann-
sóknir til þessa gefi til kynna að
skyndileg kuldatímabil á norð-
urhveli jarðar séu tengd veikingu á
sjávarstraumakerfi Golfstraumsins,
mögulega vegna aukins magns
ferskvatns. En að sú ályktun – sem
sé oft dregin af líkani sem miði við
ástandið án tillits til iðnvæðing-
arinnar – eigi e.t.v. ekki við heiminn
eins og hann sé í dag með hraðri los-
un gróðurhúsalofttegunda. Ef um-
rætt líkan ætti við, þá hefði veiking
Golfstraumsins, sbr. árin 1975-1998,
átt að leiða til kælingar á norð-
urhveli jarðar.
Chen og Tung segjast í grein
sinni sýna fram á að nýlegt tímabil
lágstreymis Golfstraumsins hafi
verið tímabil hraðrar hlýnunar yfir-
borðs sjávarins.
Þeir segja að almennt séð, á
tímum hlýnunar vegna gróðurhúsa-
lofttegunda, hafi aðalhlutverk Golf-
straumsins, að flytja yfirborðshita
sjávar norður á bóginn og hlýja Evr-
ópu og Norður-Ameríku, breyst í að
steypa hitanum niður í hafdjúpin í
Atlantshafinu og tempra þar með
hlýnun jarðarinnar í heild.
Á hröðu hlýnunarskeiði frá
miðjum níunda áratugnum þar til
upp úr aldamótum hafi Golfstraum-
urinn þar með komið um helmingi
umframhlýnunar á heimsvísu fyrir í
hafdjúpunum og þar með dregið úr
hraða hnattrænnar hlýnunar.
Sjávarmælingar frá árinu 2004
sýni nú að Golfstraumurinn hafi
veikst og að dregið hafi úr hitaupp-
töku undirdjúpanna. Vísindamenn-
irnir segja niðurstöðurnar, sem
byggðar séu á nokkrum óháðum
mælingum, sýna að breyting á Golf-
straumnum frá árinu 1940 eigi sér
skýringu í náttúrulegum breyt-
ingum á milli áratuga frekar en af
mannavöldum. Marktækar vísbend-
ingar í norðanverðu Norður-
Atlantshafi í dag bendi til að yfir-
standandi veikingu Golfstraumsins
muni ljúka, en að lágmarkið haldist
áfram, jafnvel í tvo áratugi í viðbót.
Miðað við fyrri gefnar forsendur
muni því minni hitaupptaka sjávar
koma fram sem tímabil hraðrar
hlýnunar jarðarinnar.
Öðrum þykir vel í lagt
„Hinn mikli Carl Sagan sagði
eitt sinn að óvenju stórar fullyrð-
ingar krefðust óvenju góðra sann-
ana, þannig að við lásum grein Chen
og Tung af mikilli athygli,“ sögðu vís-
indamennirnir Stefan Rahmstorf og
Michael Mann, sem virðast hneyksl-
aðir á birtingu vísindagreinarinnar í
jafn virtu tímariti og Nature. Þeir
gagnrýna hana á síðunni RealCli-
mate.org og segja að meginforsenda
niðurstöðu greinarinnar, að sterkur
Golfstraumur ásamt auknu magni
gróðurhúsalofttegunda steypi hlýju
yfirborði sjávarins niður í undir-
djúpin og hiti þau, sé studd veikum
sönnunum og mælingum sem voru
sumar teknar við óvenjuleg skilyrði
fyrirbærisins El Niño. Fram að
þessu hafi verið talið að sterk-
ir hafstraumar eins og Golf-
straumurinn kæli und-
irdjúpin. Sýnt hafi verið
fram á, með víðtækum mæl-
ingum, að það eigi við bæði
þegar náttúrulegar sveiflur
eigi sér stað á milli áratuga
og við skilyrði vaxandi magns
gróðurhúsalofttegunda í loft-
hjúpnum.
Veikur Golfstraumur
hraði hlýnun jarðar
„Vísindamenn hafa sagt sitt á
hvað síðastliðna tvo áratugi.
Sum líkön hafa sagt að það ætti
að hlýna og önnur að það muni
kólna,“ segir Héðinn Valdimars-
son, haffræðingur hjá Hafrann-
sóknastofnun.
„Þau hita-, kulda- og breyti-
legu skeið sem verið hafa í sjón-
um við Ísland sl. tæp 100 árin,
eru taldar vera að mestu leyti af
náttúrurlegum orsökum, því
það verða sveiflur í veð-
urkerfum.“
Hann segir að hlýr og saltur
sjór hafi borist til landsins á
sama tíma og golf-
straumurinn hafi átt að
vera orðinn veikur en
að kólnað hafi aftur frá
árinu 2010. „Nátt-
úrulegur breytileiki í
sjó á Íslandsmiðum
virðist yfirgnæfa breyt-
ingar af mannavöld-
um.“
Kólnar í sjón-
um við Ísland
NÁTTÚRULEGUR BREYTI-
LEIKI VIRÐIST VEGA ÞUNGT
Héðinn Valdimarsson
Ljósmynd/NASA
Golfstraumurinn Þessi litríka mynd er tekin úr geimnum. Svartir og blá-
ir litir sýna kaldan sjó við Ameríku en rauðu og gulu hlýjan strauminn.