Morgunblaðið - 25.07.2018, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. JÚLÍ 2018 25
Raðauglýsingar
Félagsstarf eldri borgara
Árskógar Opið hús, t.d. vist og bridge kl. 13-16. Opið fyrir úti- og inn-
ipútt. Hádegismatur kl. 11.40-12.45. Kaffisala kl. 15-15.45. Heitt á
könnunni, Allir velkomnir. s: 535-2700.
Félagsmiðstöðin Vitatorgi Opið hjá okkur alla daga í sumar.
Hádegisverður frá 11:30-12:30 og kaffisala alla virka daga frá 14:30-
15:30. Helstu dagskrárliðir eru í sumarfríi í júlí og ágúst. Úti boccia
völlur verður á torginu í sumar og við minnum á skemmtilega
viðburði í hverfinu, Qigong á Klambratúni alla þriðju- og fimmtudaga
kl. 11 og Sund dans í Sundhöllinni alla miðvikudaga í júlí kl. 13. Vita-
torg sími: 411-9450
*Gjábakki kl. 9.00 Handavinna, kl. 13.00 Félagsvist.
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá 8-16, blöðin og púsl
liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, útvarpsleikfimi kl. 9.45,
hádegismatur kl. 11.30, handavinnuhópur kl. 13, stólaleikfimi og
slökun kl. 13 og eftirmiðdagskaffi kl. 14.30.
Hæðargarður 31 Félagsmiðstöðin opnar kl. 8.50, við hringborðið
kl.8.50, listasmiðjan er opin fyrir alla frá 9-16, ganga kl.10,
síðdegiskaffi kl.14:30, allir velkomnir óháð aldri upplýsingar í síma
411-2790.
Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl.8.30, morgunleikfimi kl.9.45,
viðtalstími hjúkrunarfræðings kl.10-12, upplestur kl.11, félagsvist
kl.14, bónusbíllinn kl.14.40, heimildarmyndasýning kl.16.
Seltjarnarnes Kaffispjall í króknum klukkan 10. Botsía í salnum
Skólabraut klukkan 11. Ganga frá skólabraut klukkan 14:30.
Vatnsleikfimi í Sundlaug Seltjarnarnes klukkan 18:30.
Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10 – 16. Heitt á
könnunni frá kl. 10 – 11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er
frá kl. 11.30 – 12.15 og panta þarf matinn daginn áður.
Handavinnuhópur hittist kl. 13.00. Kaffi og meðlæti er til sölu frá kl.
14.30 – 15.30. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er: 568-2586.
Félagslíf
Samkoma kl. 20 í Kristniboðs-
salnum. Ræðumaður Ragnar
Gunnarsson. Allir velkomnir.
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Ýmislegt
Glæsilegar eignarlóðir til sölu
í Fjallalandi við Leirubakka. Kjarri og
skógi vaxið land. Útsýni með því
fallegasta sem gerist. Mikil veður-
sæld. Aðeins 100 km frá Reykjavík og
60 km frá Selfossi.
Uppl í s 8935046.
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Stofnað 1986 • Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Húsviðhald
Hreinsa
þakrennur, laga
ryð á þökum
og tek að mér ýmis
smærri verkefni.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
✝ Jón Alfreðssonfæddist í
Reykjavík 4. febr-
úar 1938. Hann
lést á Landspít-
alanum við Hring-
braut 13. júlí 2018.
Foreldrar Jóns
voru Alfreð Jústs-
son, f. 17. nóv-
ember 1912, d. 8.
febrúar 1985, og
Hulda Helgadóttir,
f. 7. september 1915, d. 28.
september 2000. Systkini Jóns
eru Gunnar Þór, Baldur, Helgi
Már og Ásthildur, d. 14. sept.
2015. Jón giftist Vilhelmínu Al-
freðsdóttur, f. 1941. Þau skildu
1971 og eiga saman fjögur
börn. Þau eru Sonja Hulda, f.
1958, gift Sverri Garðarssyni,
f. 1956, þau eiga fjögur börn
og tíu barnabörn. Alfreð, f.
1960, giftur Andr-
ési Gruszka, f.
1971. Gunnar Þór,
f. 1962, giftur
Steinu Ósk, f.
1962, þau eiga
fjögur börn og
þrjú barnabörn.
Vilhelmína, f.
1969, gift John
Brøndum, f. 1958,
þau eiga fimm
börn. Jón giftist
Ingu Maríusdóttur, f. 1931, d.
1997. Börn Ingu eru María,
Hrefna og Snorri. Árið 1998
hóf Jón sambúð með Jóhönnu
Jóhannesdóttur, f. 1938. Börn
hennar eru María, Soffía, Ólaf-
ur, Hrafnhildur, Jóhannes og
Gunnsteinn.
Útför Jóns fór fram 19. júlí
frá Guðríðarkirkju í Grafar-
holti.
Elsku Jón afi.
Mér og Baldvin fannst alveg
ómetanlegt að þú og Jóhanna
skylduð heimsækja okkur í Óð-
insvé þann 25. apríl síðastlið-
inn. Þú hrósaðir heimilinu okk-
ar mikið, þér fannst það fallegt.
Við sátum og spjölluðum um
allt og ekkert. Drukkum mikið
af kaffi og fengum okkur sæta-
brauð. Ég man við hlógum mik-
ið, þá sérstaklega að mynd-
bandinu sem þú sýndir okkur.
Ég hafði aldrei séð þig hlæja
eins mikið og þá. Ég sýndi
mömmu, pabba, Villu og Sig-
nýju það áðan og það sem þeim
fannst það fyndið líka. Þegar
þið kvödduð okkur þá faðm-
aðirðu mig svo fast að þér og
kreistir á mér höndina. Mig ór-
aði ekki fyrir því að það yrði í
seinasta skiptið sem ég myndi
hitta þig. Mér fannst þú vera
svo hress og mér fannst þú líta
svo vel út.
Ég vildi óska þess að afa-
sambandið hefði verið meira í
gegnum árin. Það var eitthvað
sem ég þráði alltaf. Ég vonaðist
til þess að sambandið myndi
halda áfram að eflast og styrkj-
ast eins og mér fannst það hafa
gert seinasta eina og hálfa árið
en snögglega varst þú kallaður
eitthvert annað. Það var erfitt
að vera fjarverandi þá en á
sama tíma hugsaði ég til allra
góðu stundanna sem við höfum
átt með ykkur.
Við komum og hittum ykkur
í seinustu Kanaríferðinni ykkar
í fyrra. Þar var yndislegt að
koma til ykkar, setjast út í sól-
bað og spjalla við ykkur um
daginn og veginn. Við fórum
líka út að borða í tilefni afmæl-
is þíns á uppáhaldsveitinga-
staðinn þinn. Þú splæstir á
okkur, mömmu, pabba og Bald-
vin í þriggja rétta. Mér fannst
staðurinn eins æðislegur og þér
fannst hann. Ég man hvað mér
fannst það fyndið þegar þú
pantaðir þér eftirréttinn,
„quiero fresa con crema, por
favor“ því þú varst svo hrika-
lega ánægður með spænskuna
þína.
Um seinustu jól þegar ég og
pabbi komum til ykkar á að-
fangadag velti ég því mikið fyr-
ir mér af hverju í ósköpunum
jólatréð væri ekki komið inn í
stofu, klukkan var nú orðin
rúmlega 14. Þegar ég fór að
spyrjast um það komst ég að
því að það mætti alls ekki taka
tréð inn fyrr en kl. 18 því það
hafði langamma alltaf gert.
Tréð væri tekið inn þá og
skreytt um leið. Mér fannst það
nú heldur undarlegt og Jó-
hanna var nú sammála mér en
svona var hefðin og svona átti
þetta að vera.
Ég hringdi í þig á áttræð-
isafmælinu þínu – spjallaði
lengi við þig. Þér fannst dag-
urinn nú ekkert sérstakur þar
sem þú lást bara í flensu en
varst ánægður með það að ég
skyldi muna eftir þér.
Annars minnist ég rósanna
þinna sem þú unnir svo og
jarðaberjanna í Langagerði og
allra þeirra notalegu stunda
sem við áttum saman á pall-
inum í Vinamótum þar sem þið
Jóhanna sátuð svo oft í sólbaði,
þú að lesa bók og Jóhanna að
prjóna. Það sem þú varst nú
heppinn með hana Jóhönnu því
hún er yndisleg kona.
En elsku afi minn,
Þó að vitskert sé veröld
þá um veginn geng ég bein
því ég er umvafin englum
aldrei ein – aldrei ein.
(Valgeir Skagfjörð)
Ég veit að Inga hefur tekið
fagnandi á móti þér í blóma-
brekkunni.
Þín dótturdóttir,
Una Áslaug.
Jón Alfreðsson
Nú kveð ég hér
með trega Vagn
Boysen góðan
kennara og frá-
bæran samstarfsmann og fé-
laga til margra ára í Iðnskól-
anum í Hafnarfirði. Það er
sérstaklega ljúft að minnast
allra samskipta við Vagn, hann
var svo ljúfur og í raun sann-
gjarn en hafði samt sínar
skoðanir á mönnum og mál-
Vagn Preben
Boysen
✝ Vagn PrebenBoysen fæddist
7. apríl 1944. Hann
lést 7. júlí 2018.
Útför Vagns fór
fram frá Lang-
holtskirkju 24. júlí
2018.
efnum. Hann var
einstaklega þægi-
legur í allri um-
ræðu og samskipt-
um og hafði ekki
þörf fyrir að nota
stór orð um hlut-
ina, og þegar svo
hógvær maður tjá-
ir sig rís alla jafn-
an engin ágrein-
ingur en samtalið
verður bæði gef-
andi og fróðlegt.
Ég minnist núna margra
skemmtilegra samtala okkar
og þá ekki síst frásagna hans
eftir að þau hjónin eignuðust
draumastaðinn sinn á Fjóni í
Danmörku. Smábýli þar sem
hann endurbætti lóð og húsa-
kynni og eignaðist síðan bát til
að róa frá ströndinni sem var
tiltölulega stutt frá. Það var
mjög gaman að hlusta á hann
segja frá þessum aðstæðum og
þessum draumi sínum og ekki
síst að sýna og segja hvernig
hann tókst á við ýmsar hug-
myndir og breytingar. Vagn
kappkostaði að gera allt eins
vel og á varð kosið, því að þau
hjónin stefndu á að geta verið
þarna löngum stundum eftir
starfslok.
Ég nam tæknifræði í Óðins-
véum á Fjóni og hef sterkar
taugar þangað og ég sagði
honum að leiðin lægi þangað
fyrr en seinna og að ég gæti
vel hugsað mér að heimsækja
hann og sjá aðstæður og
fannst honum það alveg upp-
lagt. Sú ferð hefur því miður
ekki verið farin en hjá mér er
ekki minnsti efi að ég hefði
fengið góðar móttökur hjá
honum og Ásu.
Vagn var hárskurðarmeist-
ari og hafði umsjón með her-
raklippingum á hársnyrti-
deildinni. Síðan ég hóf
kennslu í IH 1999 fór ég
reglulega í hárklippingu í
skólanum okkar og Vagn kom
jafnan að þeirri klippingu til
að leiðbeina nemendum að
meira eða minna leyti og hann
var svo laginn og gerði þetta
svo vel, að ég sagði gjarnan
við nemendur, þið verðið að
láta Vagn kenna ykkur líka
hvernig hann nuddar hár-
svörðinn það er svo einstak-
lega gott fyrir þann sem er í
klippingu.
Vagn var einstaklega nota-
legur og ljúfur maður sem
gott var að eiga samleið með á
vinnustað, hann var einstak-
lingur sem var gott að hitta á
hverjum virkum degi árum
saman, hann skilur eftir ein-
göngu góðar og ljúfar minn-
ingar.
Guð styrki fjölskyldu hans.
Henry Þór.
Elsku mamma,
mikið finnst mér
óraunverulegt að
þú sért ekki lengur
hérna hjá okkur,
seinustu dagar hafa verið mjög
erfiðir án þín og skrýtið að geta
ekki talað við þig. Fráfall þitt
var mjög skyndilegt og eitthvað
sem maður átti ekki von á, en
það er huggun harmi gegn að
þú ert komin til pabba sem ég
veit að beið þín þegar þú komst
heim og ég veit líka að þú
beiðst eftir að hitta hann aftur.
Aldrei heyrði ég þig kvarta um
hlutskipti þitt, þ.e. að missa
pabba og standa ein eftir með
okkur systkinin, og það hefur
alls ekki verið auðvelt að halda
utan um allt það sem fylgdi því
að vera nýflutt í hálfklárað ein-
býlishús með okkur en með
sanni má segja að þú stóðst þig
Elín
Magnúsdóttir
✝ Elín fæddist29. september
1941. Hún lést 10.
júlí 2018.
Útför Elínar var
gerð frá Fossvogs-
kirkju 20. júlí 2018.
eins og hetja í
þessu og kláraðir
það með sóma. Það
má segja með
sanni að það var
sama á hverju
gekk að aldrei
heyrði ég þig
kvarta þó maður
sæi að það tæki á.
Eftir að þú
veiktist hefur hug-
urinn reikað um
tímans rás og ég verð að segja
að minningarnar eru mér óend-
anlega dýrmætar og ég hefði
svo virkilega viljað að þær yrðu
fleiri, markmiðið var að klára
meðferðina og fara til Edin-
borgar í haust og bæta fleiri
minningum í bankann eins og
við töluðum um eftir að þú
komst heim, ég trúi því að þú
fylgist með þegar við förum og
eins og Gunnar minn sagði þá
verður mynd af þér tekin með í
ferðina og við lyftum glasi fyrir
þig en það verður ekki sterkt í
glasinu ég lofa þér því.
Þú elskaðir að ferðast og
sagðir oft að þegar þú værir
komin inn í vél og hún að tak-
ast á loft og þú fyndir að dekk-
in væru búin að sleppa braut-
inni að þá liði þér svo vel og
bara góðir tímar framundan í
nýjum ævintýrum og hvers-
dagsleikinn væri skilinn eftir.
Alltaf varstu að gera eitthvað
í höndunum og handverk þitt
var umtalað fyrir hvað það væri
fallega unnið og það var í raun
alveg sama hvað þú gerðir það
var allt sem lék í höndunum á
þér og alltaf tókstu með þér
eitthvað að gera í höndunum
þegar þú fórst í ferðir bæði
heim í sveitina þína og í aðrar
ferðir. Enda var oft setið við á
kvöldin eftir ferðir dagsins og
gripið í handavinnu og rætt um
daginn og veginn. Þú kenndir
okkur að meta og njóta þess að
gera eitthvað í höndunum og
það hefur skilað sér sannarlega
til okkar systkina.
Þú varst einstök kona og ég
segi að með sanni vann ég í
lottói lífsins þegar ég fékk þig
sem móður og ég veit að Halla
og Gunnar hafa notið þeirra
forréttinda deila lífi sínu með
þér en það er ekki sjálfgefið í
dag að svo sé.
Ég þakka þér fyrir allt það
sem þú hefur gefið mér, elsku
mamma, og ég kveð þig með
söknuði þangað til við sjáumst
aftur.
Þín dóttir,
Erla.
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda
Morgunblaðinu greinar eru
vinsamlega beðnir að nota inn-
sendikerfi blaðsins. Smellt á
Morgunblaðslógóið í hægra
horninu efst og viðeigandi lið-
ur, „Senda inn minning-
argrein,“ valinn úr felliglugg-
anum. Einnig er hægt að slá
inn slóðina www.mbl.is/
sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður
greinin að hafa borist eigi síðar
en á hádegi tveimur virkum
dögum fyrr (á föstudegi ef út-
för er á mánudegi eða þriðju-
degi).
Þar sem pláss er takmarkað
getur birting dregist, enda þótt
grein berist áður en skila-
frestur rennur út.
Lengd | Minningargreinar sem
birtast í Morgunblaðinu séu
ekki lengri en 3.000 slög. Ekki
er unnt að senda lengri grein.
Lengri greinar eru eingöngu
birtar á vefnum. Hægt er að
senda örstutta kveðju,
HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur.
Ekki er unnt að tengja við-
hengi við síðuna.
Minningargreinar