Morgunblaðið - 25.07.2018, Side 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. JÚLÍ 2018
Tónastöðin • Skipholti 50d • Reykjavík • sími 552 1185 • www.tonastodin.is
Japanskt
meistaraverk
Landsins mesta
úrval af píanóum
í öllum verð�lokkum.
Hjá okkur færðu
faglega þjónustu,
byggða á þekkingu
og áratuga reynslu.
Hildur Loftsdóttir
hilo@mbl.is
„Þetta kom eiginlega til af tilviljun.
Derek Birkett, eigandi One Little
Indian-útgáfunnar, rakst á tónlist-
ina mína á netinu þótt hún sé óút-
gefin. Ég hef aldrei gefið neitt form-
lega út áður. Hann hafði síðan
samband við mig núna í byrjun árs,“
segir Gabríel Ólafsson, 19 ára tón-
skáld og píanóleikari sem hefur
fengið útgáfusamning við breska
fyrirtækið One Little Indian, sem
gefur út nokkra íslenska tónlist-
armenn, þ.á m. Björk. Hann heldur
tónleika í Hörpu mánudaginn 30.
júlí nk.
Bresk útgáfa unnin á Íslandi
„Ég hef verið að taka upp píanóið
hérna heima og síðan fer ég í upp-
tökur strax í framhaldinu af tónleik-
unum og tek þá upp strengjakvar-
tettinn sem spilar með mér. Hann er
skipaður framúrskarandi ungum ís-
lenskum strengjaleikurum sem ég
er svo heppinn að vinna með og
þekkja í gegnum tónlistarskólann.
Við tökum upp í Kaldalónssalnum
því þar er svo gott „sánd“. Útgáfan
verður svo um leið og ég er búinn að
klára plötuna. Ég er búinn að semja
allt á hana, og Birkett og félagar
hafa fengið að heyra það og eru bara
spenntir. Hún verður líklega hljóð-
blönduð og masteruð hér heima, en
ég hef áður unnið með Adda 800 sem
er mjög fær á því sviði. Þótt platan
sé unnin hér heima verður útgáfan
bresk og gefin út um allan heim.“
Vill verða kvikmyndatónskáld
„Það verða tíu lög á plötunni og
þau eru í svipaðri lengd og popplög,
en þau eru öll instrúmental; bara pí-
anó, strengir og slagverk. Ég nota
trommur en líka mikið klukkuspil,
sem er lítið hljóðfæri sem hljómar
mjög fallega ef það er notað rétt.
Tónlistinni svipar mest til kvik-
myndatónlistar. Það er vegna þess
að ég reyni mest að vekja tilfinn-
ingar. Ég legg mikla áherslu á til-
vinningavakningu hlustenda í lög-
unum mínum. Pælingin er að
stemning myndist og svo sé bara að
hlusta og njóta. Annars hugsa ég
ekki mikið út í það sem ég sem. Ég
sem bara það sem kemur til mín.
Nýjasta lagið var samið núna um
daginn, en elsta lagið heitir „Absent
Minded“ (Annars hugar). Ég samdi
það þegar ég var 14 ára og vann
lagasmíðakeppni MH með því.
Þessa gömlu melódíu vann ég síðan
aftur núna í fyrra og það er einmitt
lagið sem Birkett fann á netinu.“
Gabríel segir að draumur sinn
hafi alltaf verið að verða kvik-
myndatónskáld. „Þegar ég var 5 eða
6 ára horfði ég mikið á Disney Pix-
ar-myndir. Það er mjög skemmtileg
tónlist í þeim eftir menn eins og
Randy Newman og Thomas New-
man. Ég fékk strax mikinn áhuga og
keypti geisladiska með lögunum úr
þessum myndum. Síðan þá hef ég
alltaf haft mikinn áhuga á kvik-
myndum og uppáhaldshlutinn er
hvernig tónlistin spilar með mynd-
inni og gefur atriðunum meira til-
finningalegt gildi.“
Innblásinn af tónlist Jóhanns
Ludovico Einaudi og Jóhann Jó-
hannsson eru þau tónskáld sem eru í
mestu uppáhaldi hjá Gabríel.
„Einaudi kom til Íslands og ég
hitti hann og spjallaði við hann. Það
var mjög inspírerandi að fá að sjá
hvernig hann semur. Hann er mjög
vinsæll og samdi t.d. fyrir frönsku
kvikmyndina The Intouchables og
fékk verðlaun fyrir. Það er mjög fal-
leg píanótónlist í þeirri mynd.
Hins vegar hefur Jóhann
Jóhannsson hefur alltaf verið uppá-
haldstónskáldið mitt og inspírerað
mig frá upphafi. Ég fékk mikinn
innblástur frá honum við gerð þess-
arar plötu, allt frá fyrstu plötunni
hans til þeirrar nýjustu; kvik-
myndatónlistarinnar sem hann
samdi. Ég náði ekki að hitta hann
áður en hann lést, en hef farið á tón-
leika hjá honum og fyrirlestra.“
Gabríel segir að það verði að
koma í ljós hvort hann verði kvik-
myndatónskáld eða ekki.
„Ég tek bara eitt skref í einu, og
vil sjá fyrst hvernig gengur með
plötusamninginn. Skemmtilegast
við hann finnst mér að fólk út um
allan heim mun heyra tónlistina
mína. Það finnst mér ótrúlega
spennandi tilhugsun. En þá kemur
líka í ljós hvort það sé einhver áhugi
á henni, og hvort ég fæ að semja við
einhverja mynd í framtíðinni.“
Heiður að tilheyra hópnum
- Hvernig finnst þér að feta í fót-
spor alls þess frábæra íslenska tón-
listarfólks sem er á samningi hjá
One Little Indian?
„Það er mjög góð tilfinning. Þetta
er stórkostlegt tónlistarfólk sem
hefur verið hjá þessari útgáfu og
það er mikill heiður að fá að tilheyra
þess hópi. Björk er brillíant, ég
hlusta mikið á Ásgeir Trausta og
Emilíana Torrini er í miklu uppá-
haldi hjá mér, ég hef alltaf hlustað
mikið á hana.“
Gabríel segir að fyrir þá sem ekki
komist á tónleikana í Hörpu sé hægt
að fylgjast með honum á Facebook
undir nafninu Gabríel Ólafs, en
hann setji gjarna myndbönd þar inn
með tónlistinni sinni, og jafnvel eitt-
hvað af tónleikunum, því þeir verði
teknir upp bæði í hljóði og mynd.
„Platan sjálf kemur svo út á Spo-
tify-tónlistaveitunni og verður lík-
lega bara gefin út á vínyl, en ekki
geisladisk. Ég elska vínylplötur
þannig að það verður gaman að eiga
eina með sinni eigin tónlist á,“ segir
Gabríel Ólafsson tónlistarmaður
sem spennandi verður að fylgjast
með í framtíðinni.
Ungtónskáld Gabríel tekur upp fyrstu plötuna sína þar sem hann leggur áherslu á tilfinningavakningu áheyrenda.
Reyni mest að vekja tilfinningar
Gabríel Ólafsson píanóleikari hefur fengið samning við útgáfufyrirtækið One Little Indian
„Ég sem bara það sem kemur til mín,“ og svipar því alltaf mest til kvikmyndatónlistar
Hulu hefur verið svipt af 12 metra
hárri veggmynd eftir bandaríska
popplistamanninn Keith Haring í
Amsterdam. Frá þessu er sagt á
fréttasíðu New York Times.
Um er að ræða veggmynd sem
Haring málaði utan á byggingu sem
þá var geymsla Stedelijk-listasafns-
ins árið 1986. Myndin er af risavax-
inni furðuveru; blendingi hunds og
fisks; með eina af persónum Har-
ings ríðandi á bakinu. Ólíkt flestum
öðrum verkum Harings frá þessu
tímabili, sem voru oft litríkar, er
myndin máluð með hvítum línum.
Þegar listasafnið flutti úr bygg-
ingunni var henni breytt í frysti-
geymslu og einangrunarplötur úr
áli voru settar yfir veggmyndina
árið 1989.
Það var hollenski vegglistamað-
urinn Aileen Middel, einnig kölluð
Mick La Rock, sem átti frumkvæði
að því að verkið var afhjúpað á ný.
Hún sá ljósmynd af verkinu fyrir
fjórum árum og einsetti sér að láta
fjarlægja álplöturnar svo hægt yrði
að njóta myndarinnar á ný. Segir
hún upplifunina af afhjúpuninni
ólýsanlega.
AFP
Veggjalist Vegfarandi myndar verkið sem Keith Haring málaði árið 1986.
Gömul veggmynd
eftir Haring afhjúpuð