Morgunblaðið - 25.07.2018, Síða 33
Draghálsi 18-26, 110 Reykjavík | Sími 588 1000 | netsofnun.is
Við bjóðum upp á hentugar og
infaldar fjáröflunarleiðir fyrir
élagasamtök og einstaklinga.
þróttafélög • starfsmannafélög •
emendafélög • saumaklúbbar • o.
Kíktu á www.netsöfnun.is
og kynntu þér möguleikana.
e
f
í
n
kóra
fl
r
.
Fjáröflun
»Bandaríska rokk-
sveitin Guns N’ Ro-
ses hélt tónleika á Laug-
ardalsvelli í gærkvöldi.
Voru þeir hinir fjöl-
mennustu sem haldnir
hafa verið hérlendis en
yfir 23.000 miðar seld-
ust á þá. Íslenska rokk-
sveitin Brain Police sá
um að hita upp mann-
skapinn og var ljós-
myndari Morgunblaðs-
ins mættur snemma á
svæðið til að mynda
stemninguna. Eins og
sjá má af meðfylgjandi
myndum var hún býsna
góð og allir í stuði.
Rokkararnir í Guns N’ Roses léku á fjölmennustu tónleikum Íslandssögunnar á Laugardalsvelli
Morgunblaðið/Valli
Laugardalsvöllur Áður en tónleikarnir hófust náði röð gesta upp á Suðurlandsbraut en síðan var þétt staðið á vellinum og ánægjusvip mátti sjá á hverju andliti enda frægir rokkarar á ferð.
Maðurinn með hattinn Gítarleikarinn Slash lék listir sínar á tónleikunum.
Litríkt Söngvarinn Axl Rose kunni
vel við sig á stóra sviðinu á vellinum
og viðstaddir mynduðu og klöppuðu
og skemmtu sér vel.
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. JÚLÍ 2018
ICQC 2018-20
Í fyrsta sinn í sögu bresku Man Boo-
ker-verðlaunanna hefur myndasaga
komist á lista yfir tilnefnd verk. Frá
þessu er greint á fréttavef The Gu-
ardian.
Myndasagan sem um er að ræða
ber titilinn Sabrina og er eftir Nick
Drnaso, 29 ára gamlan myndasögu-
höfund frá Chicago. Drnaso hefur áð-
ur unnið bókaverðlaun LA Times fyr-
ir safnbók sína, Beverly. Í bókinni er
sagt frá stúlku að nafni Sabrina sem
hverfur en skilur eftir sig mynd-
bandsupptöku með vísbendingum um
hvarf sitt. Fjallað er um þau áhrif sem
hvarf Sabrinu hefur á hennar nán-
ustu; systur hennar, Söndru, og kær-
asta hennar, Teddy. Bókin tekur fyrir
ýmis málefni samtímans eins og fals-
fréttir, félagslega einangrun á upplýs-
ingaöldinni, samsæriskenningar og
byssulöggjöf. Verkinu hefur verið
hrósað í hástert strax frá útgáfu þess.
Sigurvegari valinn í október
Eins og stendur eru nú þrettán höf-
undar tilnefndir til Man Booker-
verðlaunanna: Sex frá Bretlandi, þrír
frá Bandaríkjunum, tveir frá Írlandi
og tveir frá Kanada. Reglum keppn-
innar var breytt svo hægt væri að til-
nefna verk utan Bretlands svo lengi
sem þau séu skrifuð á ensku og birt í
Bretlandi.
Dómnefnd Man Booker-verð-
launanna mun velja sex verk af til-
nefningarlistanum í september og
loks velja sigurvegarann hinn 16.
október næstkomandi. Sigurvegarinn
mun hljóta 50.000 punda pen-
ingaverðlaun.
„Í ljósi breytinga sem orðið hafa á
formi skáldskaps var það bara tíma-
spursmál að myndasaga yrði tilnefnd
til verðlaunanna,“ sögðu dómarar
keppninnar um tilnefningu Drnasos.
thorgrimur@mbl.is
Sá fyrsti Drsano er fyrsti mynda-
söguhöfundurinn sem tilnefndur er
til Man Booker verðlaunanna.
Myndasaga tilnefnd
til Booker-verðlauna