Morgunblaðið - 25.07.2018, Blaðsíða 36
MIÐVIKUDAGUR 25. JÚLÍ 206. DAGUR ÁRSINS 2018
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR.
1. Brúðkaup Ragnhildar …
2. Byrjar 17 ára í læknisfræði
3. Neyðast til að flýja í sjóinn
4. Guns N’ Roses mætt á …
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Tónlistarmaðurinn Teitur Magn-
ússon og hljómsveitin Æðisgengið
troða upp á Dillon við Laugaveg ann-
að kvöld kl. 21.30. Önnur breiðskífa
Teits, Orna, kemur út degi síðar og
verða án efa leikin nokkur lög af
henni auk eldri laga. Aðgangur er
ókeypis en frjáls framlög vel þegin.
Teitur og Æðisgengið
skemmta á Dillon
Kvartett Einars
Scheving,
trommuleikara og
tónskálds, leikur í
tónleikaröð Nor-
ræna hússins í
kvöld kl. 21.
Kvartettinn skipa,
auk Einars, þeir
Skúli Sverrisson,
Eyþór Gunnarsson og Óskar Guð-
jónsson en allir eru þeir tónlistar-
menn í fremstu röð.
Kvartett Einars í
Norræna húsinu
Kammerkór Hallgrímskirkju,
Schola cantorum, syngur íslenskar
og erlendar kórperlur eftir Jón Ás-
geirsson, Jón Nordal, Sigvalda Kalda-
lóns, Händel, Byrd,
Sigurð Sævarsson,
Þorkel Sigur-
björnsson og
Hjálmar H. Ragn-
arsson í kirkjunni
í dag kl. 12.
Stjórnandi kórs-
ins er Hörður
Áskelsson.
Íslenskar og erlendar
kórperlur í hádeginu
Á fimmtudag Gengur í austan og norðaustan 10-18 m/s, hvassast
við suðausturströndina. Talsverð rigning sunnan og austan til, en
dregur úr vindi og úrkomu um kvöldið. Hiti 9 til 17 stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðaustan 8-13 m/s suðvestan til, en ann-
ars hægari. Áfram skúrir um mestallt land, en léttir til norðanlands
um kvöldið. Hiti 8 til 16 stig, hlýjast austan til.
VEÐUR
Þrír leikir fóru fram í 11. um-
ferð Pepsi-deildar kvenna í
knattspyrnu í gær. Í Grinda-
vík tóku heimakonur á móti
Breiðablik þar sem gestirnir
unnu þægilegan 2:0-sigur
með mörkum frá þeim Öglu
Maríu Albertsdóttur og Berg-
lindi Björgu Þorvaldsdóttur.
Þá vann ÍBV sigur á FH í Eyj-
um, 3:2, í miklum markaleik
og Selfoss vann svo fallbar-
áttuslaginn gegn KR í Vest-
urbænum, 1:0. »2-3
Blikar endur-
heimtu toppsætið
Knattspyrnukonan Dagný Brynj-
arsdóttir er að fara af stað á nýjan
leik eftir að hafa eignast strák 12.
júní og telur að ekki sé útilokað að
hún geti leikið með landsliðinu gegn
Þjóðverjum og Tékkum í byrjun sept-
ember. „Ég ætla ekki að búa til ein-
hver óþarfa meiðsli með því að fara
fyrr af stað,“ segir Dagný
sem ætlar að spila
með Selfyssingum út
tímabilið en gæti síð-
an farið aftur til
Bandaríkjanna.
»1
Ekki útilokað að ná
landsleikjunum
Íslenska karlalandsliðið í handknatt-
leik, skipað leikmönnum 20 ára og
yngri, mætir Slóveníu í dag í lokaleik
sínum í milliriðli Evrópumótsins sem
fram fer í Celje í Slóveníu. Strákarnir
gerðu 25:25-jafntefli við Serbíu í gær
og leika því hreinan úrslitaleik við
heimamenn í Slóveníu í dag klukkan 17
að íslenskum tíma um það hvort liðið
fer áfram í undanúrslit mótsins. »4
Íslensku strákarnir í
dauðafæri í Slóveníu
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
„Það má segja að flugið hafi verið
fyrsta ástríðan. Fyrsta flugtímann
tók ég 12 ára gamall og þá varð ekki
aftur snúið,“ segir Brynjar Örn
Sveinjónsson, flugmaður og aðstoð-
armaður yfirflugstjóra hjá Cargolux.
Brynjar segir áhugann á flugi hafa
kviknað vegna þess að hann bjó í Suð-
urhlíðunum rétt við flugvöllinn og
móðir hans var flugmaður með einka-
flugmannspróf. Brynjar telur að fáar
konur hafi verið með einkaflug-
mannspróf á þeim tíma. En sem bet-
ur fer hafi það breyst og konum fjölg-
að í flugstéttinni.
„Flugáhuginn hjá mér var svo mik-
ill að ég keypti 10 flugtíma fyrir ferm-
ingarpeninginn minn. 15 ára tók ég
bóklega einkaflugmannsprófið, safn-
aði tímum þar til ég var 17 ára en þá
mátti ég taka verklega prófið,“ segir
Brynjar sem á sautjánda afmælisdeg-
inum tók bílpróf fyrir hádegi og
einkaflugmannsprófið síðdegis. Sam-
hliða námi í MH safnaði Brynjar flug-
tímum með flugi innanlands á tveggja
sæta vélum. Hann fór til Spánar að
loknu stúdentsprófi og útskrif-
aðist árið 2001 sem atvinnu-
flugmaður frá British Aero-
space Flight Training-
flugskólanum.
Bynjar, sem hefur flogið
til yfir 90 áfangastaða út um
allan heim, er búsettur ásamt
eiginkonu, Rakel Sif Sigurð-
ardóttur, og dætrunum
Margréti Maríu og Sóleyju
Bellu í Lúxemborg. Brynjar
útskrifaðist 2018 með BA í
lögfræði frá Háskóla Ís-
lands.
„Flugmenn eiga það allir
sameiginlegt að hafa aflað sér
mikillar og dýrmætrar þekkingar á
sínu sviði. Það getur í raun gerst fyr-
irvaralaust að flugmenn nái ekki
fyrsta flokks læknisskoðun og missi
atvinnuflugmannsleyfið og mögu-
leikann á að afla sér tekna,“ segir
Brynjar um þá ákvörðun að fara í
lögfræðinám með flugmannsstarf-
inu.
„Námið tók mig fimm ár. Það gat
verið snúið að búa erlendis, stunda
nám á Íslandi og fljúga út um allan
heim á sama tíma. Það þurfti mikið
skipulag og velvilja og hefði ekki
gengið upp nema með stuðningi fjöl-
skyldu og eiginkonu,“ segir Brynjar
sem las námsbækur í stoppum á milli
flugferða, á frídögum í Lúxemborg og
flaug til Íslands til þess að mæta í þau
verkefni sem þurfti. Próf tók hann
ýmist í HÍ, hjá ræðismanninum í
Lúxemborg eða á skrifstofu EFTA-
dómstólsins í Lúxemborg.
„BA-ritgerðina skrifaði ég að mestu
leyti í Kína og aðeins einu sinni lenti ég
í vandræðum með próftöku á Íslandi
en þá var ég veðurtepptur í fimm daga
í Túrkmenistan og þurfti að taka
áfangann upp aftur,“ segir Brynjar og
hvetur fólk til þess að láta draumana
rætast og láta engan segja sér hvað
það geti eða hvað það geti ekki.
„Ef þú leggur hart að þér getur þú
flest af því sem þú ætlar þér.“
Í fyrsta flugtímann 12 ára
Tók bílpróf og
flugpróf á 17 ára
afmælisdaginn
Fjölskyldan Brynjar Örn Sveinjónsson á kunnuglegum slóðum í flugstjórnarklefanum á leið í sumarfrí til Taílands.
Með Brynjari eru dæturnar tvær, Margrét María og Sóley Bella, og eiginkonan Rakel Sif Sigurðardóttir.
„Ég fæ sérstaka sýn á
heiminn með því að vera
flugmaður og fljúga út
um allan heim,“ segir
Brynjar Örn Sveinjónsson
flugmaður.
Hann segir að af mörg-
um stöðum sem hann hef-
ur flogið til standi S-
Ameríka, Taíland og
Alaska upp úr.
Brynjar Örn segir
það krefjandi en fallegt að fljúga
til Suður-Ameríku með sína fallega
náttúru.
„Ég er duglegur að skoða mig
um á þeim stöðum sem ég flýg til.
Fyrsta árið mitt var ég eins og
ferðamaður í hverju stoppi en þau
geta varað allt að fimm dögum,“
segir Brynjar Örn sem skoðaði
m.a. Kínamúrinn og ýmsa aðra
merka staði þegar hann var í fimm
daga stoppi í Kína.
LÍF FLUGMANNSINS
Fær sérstaka sýn á heiminn