Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.07.2018, Side 2

Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.07.2018, Side 2
Í FÓKUS 2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8.7. 2018 Ritstjórn Árni Matthíasson arnim@mbl.is Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is Viðtalið við Reem Almohammad, unga stúlku á Akureyri, sem birtisthér í blaðinu fyrir tveimur vikum, og viðtalið við Beatriz Soares La-deira, unga stúlku í Reykjavík, sem birtist á síðum þessa blaðs fyrir einni viku, voru eins og svart og hvítt. Upplifun þeirra af Íslandi er eins ólík og orðið getur. Beatriz, sem Inga Rún Sigurðardóttir blaðamaður ræddi við, er frá Bras- ilíu og gengur allt í haginn en hún flutti hingað til lands með fjölskyldu sinni fyrir hálfu öðru ári. Hún fékk til að mynda hæstu einkunn á samræmdu prófi í íslensku í vor. Sem verður að teljast með miklum ólíkindum. Í viðtalinu kemur fram að Beatriz hafi gengið vel að aðlagast, hún á fullt af vinum og hefur meiri tíma til að sinna ballettinum og öðrum hugðarefnum með náminu hér á landi en heima í Brasilíu. Reem, sem Ásdís Ásgeirsdóttir blaðamaður talaði við, er frá Sýrlandi og kom hingað sem flóttamaður ásamt fjölskyldu sinni fyrir tveimur og hálfu ári. Hún er tvítug og hefur allt aðra sögu að segja; henni hefur ekki gengið eins vel og Beatriz að ná tökum á ís- lenskunni, hefur ekki eignast vini og finnst hún höfð út undan. Hún segir unglinga mun opnari í Sýrlandi. „Einu sinni tók ég matinn minn og settist hjá krökkunum [í Verkmenntaskólanum á Akureyri] og þau horfðu á mig og ég fann að ég var ekki velkomin þarna. Ég reyndi að blanda geði við krakkana en fékk ekki góðar móttökur,“ segir Reem í viðtalinu og faðir hennar bætir við að sama sé upp á teningnum hjá unglingsbræðrum hennar. „Við lifum í mikilli streitu. Við þurfum meiri hjálp frá kerfinu,“ segir hann. Nú eru auðvitað tvær hliðar á öllum málum en ég trúi samt ekki öðru en að yfirvöld í mínum gamla heimabæ hafi sest rækilega yfir frásögn Reem Almo- hammad. Upplýsingarnar sem þar koma fram eru sannarlega sláandi. Haf- andi alist þar upp er ég vitaskuld ekki dómbær en gjarnan er sagt að erfitt sé að kynnast Akureyringum; þeir séu lokaðir. Mögulega eru Reem og fjöl- skylda hennar að rekast á þann vegg. Alltént vona ég að slæðan sé fólki ekki þyrnir í augum, eins og hún gefur sjálf í skyn. Það væri dapurlegt. Margar fleiri spurningar vakna; eins og hvort auðveldara sé að nálgast fimmtán ára íslensk ungmenni en tvítug og hvort vald á íslenskunni skipti sköpum þegar kemur að aðlögun og tengslamyndun útlendinga. Að ekki sé talað um trúarbrögðin; eru önnur trúarbrögð en kristni fyrirstaða? Beatriz og Reem ala sama drauminn í brjósti; að verða læknar. Meðan Beatriz sér engin ljón á veginum hefur Reem þetta að segja: „Mig dreymir en ég sé ekki að það muni rætast.“ Er virkilega svona miklu lengra til Sýrlands en Brasilíu? Beatriz Soares Ladeira Morgunblaði/Arnþór Birkisson (Ó)velkomin til Íslands Pistill Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is ’Þau horfðu á mig ogég fann að ég varekki velkomin þarna. Égreyndi að blanda geði við krakkana en fékk ekki góðar móttökur. Reem Almohammad Morgunblaðið/Ásdís Omran Kassoumeh Já, ég fer á útihátíð í Túnis. SPURNING DAGSINS Ætlar þú á einhverja útihátíð í sumar? Páll Guðnason Nei, en ég er að fara á tónleika með Guns N’ Roses. Jóhann Grétar Ágústsson Nei, ekki neina. Ari Páll Karlsson Ég fór á Secret Solstice og læt það duga. Ritstjóri Davíð Oddsson Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal Umsjón Eyrún Magnúsdóttir, eyrun@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Útgáfufélag Árvakur hf., Reykjavík. KARL ÓTTAR PÉTURSSON SITUR FYRIR SVÖRUM Forsíðumyndina tók Ásdís Ásgeirsdóttir Karl Óttar Pétursson er framkvæmdastjóri þungarokkshátíðarinnar Eistnaflugs sem haldin verður í Neskaupsstað dagana 11. til 14. júlí. Hátíðin verður nú haldin í fjórtánda skipti og er hægt að nálgast miða á www.tix.is. Hvað er búist við mörgum málmhausum á hátíðina í ár? Verða þeir fleiri eða færri en í fyrra? Við búumst við um það bil fimmtán- hundruð manns en við vitum svo sem aldrei hversu margir það verða. Útlend- ingunum hefur fækkað mjög mikið síð- ustu ár sem eru venjulega svo skipulagð- ir, en Íslendingar bóka sig alltaf svo seint. Miðasalan í ár hefur gengið betur en í fyrra svo við vonum að aðsóknin verði meiri. Hvar fara herlegheitin fram? Hátíðin verður haldin í íþróttahúsinu í Neskaupstað. Beitiskólinn verður með off-venue og svo verður Stálsmiðjan þar sem nemendur úr Lista- háskólanum munu sjá um listviðburði og annað slíkt. Hverjar eru helstu bomb- urnar á dagskránni í ár? Við verðum náttúrlega með Watain og Batushka sem eru stórir í svartmetalnum. Kreator er líka geggjað band og mjög virkt í dag. Sólstafir eru búnir að vera að gera það gott er- lendis. Svo verður svartmetal-plötusnúðurinn Pert- urbator sem kannski ekkert of margir þekkja, en hann gerði allt vitlaust á hátíðinni fyrir tveimur ár- um með eins konar Black Metal DJ-setti. Svo náðum við þeim einstaka árangri að fá Anathema til að spila hjá okkur en þeir spila alla jafna ekki á þunga- rokkshátíðum. Við munum bjóða fólki að kaupa partí- miða undir miðnætti til að sjá Agent Fresco og Gus Gus. Þarf eitthvað að stressa sig á veðrinu? Nei, það er búið að vera svo geggjað veður fyrir aust- an, sem virðist bara ætla að halda áfram. Hefur afstaða hátíðarinnar gagnvart fávitum breyst eitthvað? Það er alltaf bannað að vera fáviti á Eistnaflugi sem og annars staðar. Morgunblaðið/Valli Eistun taka á loft

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.