Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.07.2018, Síða 8
VETTVANGUR
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8.7. 2018
Okkur þykir veröldin fögurþegar við virðum fyrir okk-ur undur náttúrunnar,
hvort sem það er Drangey frá sund-
laugarbrúninni á Hofsósi, Hvassa-
hraunið á Reykjanesi, fegurstu að-
keyrslu að höfuðborg í heimi eða
Herðubreiðarlindir. Við slíka sýn
fyllist hjarta okkar þakklæti og
væntumþykju og til verður óumræði-
leg löngun til að vernda þessa feg-
urð.
Þessari umhyggju fyrir landinu,
þessari verndarhyggju hefur vaxið
ásmegin. Og það hefur gerst hratt.
Ætli það séu meira en tuttugu ár síð-
an hæðst var að þeim sem vildu
vernda landið gegn raski af völdum
mengandi stóriðju: „Ætlið þið okkur
að lifa af fjallagrösum?“ Nú vita allir
að það er einmitt, og öðru fremur,
hægt að lifa góðu lífi af landi sem enn
á sín fjallagrös.
Maðurinn hefur verið óvæginn við
móður jörð. Ágangurinn hefur stig-
magnast með aukinni tækni. Auk
allra framfara tækninnar í okkar
þágu, hefur tæknibyltingin jafn-
framt margfaldað eyðileggingarmátt
sinn. Fréttir af eyðileggingu regn-
skóganna, sem lýst hefur verið sem
öndunarfærum heimsins, bera þessu
vott að ekki sé minnst á okkur nær-
tækara dæmi, tunnurnar við hvert
heimili sem fá í sinn hlut plastið af
daglegri neyslu meðaljónsins. Og
meðaljónum fer fjölgandi sem kunn-
ugt er þótt lítið fari fyrir þeirri um-
ræðu í seinni tíð.
Hvert skyldi ég
vera að fara með
þessum þönkum?
Jú, ég er að reyna
að koma að því orð-
um hve mikilvægt
það er að láta nátt-
úruna njóta vafans
í glímunni við
ágengan manninn.
Tvennt vil ég nefna í því sambandi.
Þessi tvö atriði eru í reynd gagn-
verkandi.
Í fyrsta lagi hefur barátta náttúru-
verndarfólks fært þungamiðjuna til í
umræðunni sem áður segir. Ég spái
því að breytt afstaða í þjóðfélaginu
eigi enn eftir að færast í átt að kröfu
um náttúruvernd. Þar með breytast
allar forsendur sem þjóðfélagið
byggir ákvarðanir sínar á, hvort sem
er til nýtingar eða verndar. Þetta er
nokkuð sem áköfustu virkjunar-
sinnar verða að horfast í augu við.
Í öðru lagi nefni ég þáttinn sem
togar okkur í gagnstæða átt. Það er
aukin áhersla á arðsemi og gróða.
Með einkavæðingu orkuauðlindanna
er gróðaöflunum veittur að þeim
beinn aðgangur.
Þetta verður enn
augljósara þegar
eigendurnir eru
handhafar er-
lends fjármagns,
sem á sér sama-
stað í kaup-
höllum heimsins.
Ef fer fram sem
horfir verður þar
vélað um örlög fossins Drynjanda og
félaga hans um landið allt.
Þetta þarf að hafa í huga þegar
rætt er um rammaáætlunina svo-
nefndu, sem ætlað var að færa
ákvarðanir um verndun og virkjanir
inn í ásættanlegri farveg en verið
hefur um áratugi. Það hefur þó ekki
tekist betur en svo, að guðfaðir þess-
arar áætlunar hefur aldrei viljað
gangast við þessu afkvæmi sínu að
fullu, talið þar um að ræða hálfkarað
verk. Hjörleifur Guttormsson, nátt-
úrufræðingur með meiru, hefur
þannig sagt að sjálfan upphafsreit-
inn vanti í rammaáætlun. Aldrei sé
spurt hve mikið menn vilji virkja og
hvers vegna!
Þetta er að sjálfsögðu grund-
vallaratriði. Ef á daginn kemur að
megin markmið virkjana, og þar með
alls rasksins af þeirra völdum, er að
fylla vasa þeirra sem ásælast að fjár-
festa í móður jörð, þá þarf það að
sjálfsögðu að koma fram í umræðu
um kosti þess og galla að virkja eða
vernda.
Þótt endanleg ákvörðun eigi að
ráðast af þáttum sem standa fyrir ut-
an slíkar vangaveltur, hljóta þær
engu að síður að skipta máli þegar
örlög okkar stórfenglegu náttúru eru
ráðin.
Stórfenglegur heimur virkjaður
’Hjörleifur Guttorms-son, náttúrufræðingurmeð meiru, hefur þannigsagt að sjálfan upphafs-
reitinn vanti í ramma-
áætlun. Aldrei sé spurt
hve mikið menn vilji
virkja og hvers vegna!
Morgunblaðið/RAX
Úr ólíkum
áttum
Ögmundur Jónasson
ogmundur@ogmundur.is
Ragnheiður Elín Árnadóttir, fv.
ráðherra, skrifaði á Facebook: „Hey
þú þarna veðurfræðingur. Ertu til í
að gera mér
greiða? Haltu
bara áfram að spá
rigningu, sú spá
gengur alltaf eftir
hjá þér og þú ert
orðinn nokkuð
góður þar. Ef það er eitthvað sem
er ömurlegra en rigningarspá sem
gengur alltaf eftir þá er það sól-
skinsspá sem stenst ekki. Eins og í
dag. Kveðja, trúgjarna veðurbugaða
konan í Keflavík sem fór í alvöru að
leita að bikiníinu þegar hún sá sól-
arspá.“
Vegna fréttar mbl.is um góða um-
gengni Japana á HM í fótbolta rifjar
Þorgrímur
Þráinsson upp
þegar húsvörður
á leikvanginum í
Nice kom inn í
búningsklefa eft-
ir leikinn við
England á EM
2016. „Ég hef verið húsvörður á
þessum velli í rúmlega áratug. Ekk-
ert landslið í heiminum hefur gengið
jafn vel um klefann og Ísland. Skil-
aðu kveðju!“
Páll Bergþórsson lagði orð í
belg í launadeilu ljósmæðra við rík-
ið. „Hér er hundgamall karl með af-
skiptasemi. Það er barist gegn því
að ljósmæður fái hækkun tiltölulega
lágra grunnlauna vegna þess að
heildarlaun hverrar starfskonu séu
svo há. Þetta eru vanhugsuð rök.
Heildarlaunin eru svona há að með-
altali vegna þess að of fáar ljós-
mæður eru starfandi. Með hækkun
grunnlauna ætti aðsóknin að starf-
inu að vaxa. Þá mundu heildarlaunin
hjá hverri ljósmóður nefnilega
fremur lækka en hækka. En með því
væri samt með tímanum stefnt að
sanngirni, heilbrigðu jafnvægi og
forsvaranlegu álagi.“
AF NETINU
SÍGILDIR SUNNUDAGAR
Fyrsta flokks
kammertónlist
Sígildir sunnudagar eru klassísk
tónleikaröð þar sem boðið er upp
á fjölbreytt úrval kammertónleika.
Sunnudaga
kl. 17:00 í Hörpu
Bragð af
vináttu • Hágæðagæludýrafóður
framleitt
í Þýskalandi
• Bragðgott og
auðmeltanlegt
• Án viðbættra
litar-, bragð- og
rotvarnarefna
Útsölustaðir: Byko,
Dýraland, Gæludýr.is,
4 loppur, Multitask,
Launafl, Vélaval, Landstólpi.
Nú finnur
þú það sem
þú leitar að
á FINNA.is