Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.07.2018, Síða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8.7. 2018
VETTVANGUR
Hjartagátt lokuð
Búast má við miklu álagi á bráða-
móttöku Landspítalans í Fossvogi
þar sem starfsemi hjartagáttarinnar
hefur færst þangað yfir. Hjartagátt
Landspítalans hefur verið lokað
vegna skorts á sérhæfðum hjúkr-
unarfræðingum og verður ekki opn-
uð aftur fyrr en 3. ágúst.
Skiptar skoðanir
Samkvæmt nýrri könnun
MMR virðast landsmenn
ekki sammála um það hvort
hætta eigi dönskukennslu í
grunnskólum og kenna ann-
að tungumál í staðinn. And-
staða við breytingu á
dönskukennslu virðist
aukast eftir aldri og einnig
með aukinni menntun.
Herra hnetusmjör
í framleiðslu
Rapparinn Herra hnetu-
smjör hefur þróað eigið
hnetusmjör í samstarfi við
H-Berg. Mun smjörið koma
á markað í haust og standa
viðræður yfir við nokkrar
verslanir um sölu á því.
Of blautt fyrir malbikið
Illa hefur gengið að malbika stofnæðar á
og í kringum höfuðborgarsvæðið það sem
af er sumri vegna vætutíðar.
Sigþór Sigurðsson, framkvæmdastjóri
Hlaðbæjar-Colas, segir þetta verstu byrjun
á sumri sem hann hafi séð.
Morgunblaðið/Hari
VIKAN SEM LEIÐ
Þetta reykvíska sumar er búið að vera hræði-legt. Ég vinn í morgunútvarpi og við höfumtalað soltið um veðrið. Eiginlega helling.
Fyrst var það með vonarglætu. „Jæja. Það er farið
að birta og það er reyndar smá rigning.“ Nú erum
við farin að hvæsa milli samanbitinna tanna: „Hvað
haldið þið? Er ekki bara rigning, fimmtugasta dag-
inn í röð!“
Sumarið er eins og langur og leiðinlegur hand-
boltalandsleikur við Svía á tíunda áratugnum. Byrj-
aði ágætlega. Einn eða tveir sólarglennudagar, bara
til að segja okkur að við ættum ágætis möguleika.
Svo kom slæmi kaflinn sem virðist vera algjörlega
endalaus. Allt fer í rugl og rétt þegar við eigum smá
glætu, komumst inn í sendingu, þá ver sænska tröll-
ið einu sinni enn og við fáum á okkur mark úr
hraðaupphlaupi. Kristján Arason er farinn að nudda
á sér öxlina, Ólafur Stefánsson búinn að týna sér í
einhverjum heimspekilegum pælingum, tíminn líður
og skyndilega er leikurinn búinn – kominn vetur –
og við áttum aldrei möguleika.
Sjötíu sólskinsstundir í júní hljómar eins og ein-
hvers konar framúrstefnulegt vinnustaðagrín. Senni-
lega helmingurinn af þeim um miðja nótt þegar við
höfum nákvæmlega ekkert að gera við þær. Og svo
hugsar maður líka um vesalings fuglana sem koma
hingað í góðri trú og eru búnir að vera rassblautir í
allt sumar. Er það sanngjarnt?
Veðurfræðingar reyna að gefa okkur einhverjar
langsóttar skýringar á því að einhver hæðarhryggur
blablabla sé yfir suðaustan blablabla og það valdi
blablabla. Jájá. Þeir vita ekki rassgat. Maður sér
samt á þeim að þeir geta ekki falið spenninginn yfir
því að hundrað ára gömul met séu að falla. Ég held
að þeir liggi á bæn um enn einn rigningadaginn til
að vera heitustu gaurarnir á ráðstefnu veðurfræð-
inga í Umeå.
Ég vissi ekki að veður gæti skipt svona miklu máli
og haft svona mikil áhrif á mann. Konan mín talar
stundum um heimskautasumarið mikla ’93 þegar hún
ákvað að vinna aldrei aftur úti, eftir heilt sumar í
kraftgalla og með skíðahúfu. Ég verð að viðurkenna
að ég hef ekki tekið hana alvarlega. Fyrr en nú.
Maður hefði haldið að allir væru farnir til útlanda.
En það er ekki þannig. Margir taka ekki þá áhættu
að missa af íslenska sumrinu. Hvað ef maður lendir,
eftir góða níu tíma seinkun, á Tene í rigningu? Og
heima er sumarið loks komið og allir brosa mót sólu
á Austurvelli. Hver myndi vilja missa af því?
Það er meira að segja komin fram ný tegund af
hjátrú. Veðurhjátrú. Vinur minn telur sig eiga sök á
þessu með því að hafa byrjað of snemma að ganga í
stuttbuxum, aðrir að þeir hafi tekið grillið of
snemma fram. Ég tók enga áhættu og er enn með
sköfuna í bílnum.
Og á meðan við bíðum eftir sumrinu og maríner-
uðu grísahnakkarnir fara aftur í frystinn, þá veltir
maður því í alvöru fyrir sér hvernig standi á þessu.
Hvað höfum við gert? Ég er ekki að fara að trúa
einhverjum skýringum veðurfræðinga. Sá tími er
löngu liðinn. Það er einhver á bak við þetta. Mögu-
lega Bond-illmenni með veðurstýringargervitungl og
hvæsandi persa í fanginu. Ég yrði ekki hissa þó að
Bogi Ágústsson birtist brúnaþungur á skjánum. „Og
hér var að berast frétt: Aðskilnaðarsamtök Mývetn-
inga hafa lýst yfir ábyrgð á reykvíska sumrinu. Í
yfirlýsingu frá þeim kemur fram að með þessum að-
gerðum vilji þeir mótmæla auknu linmæli og lokun
neyðarbrautarinnar.“
Og þá komum við aftur að íslenska handbolta-
landsliðinu. Við erum búin að taka leikhlé og skipta
um markmann og spila maður á mann. Það gerist
ekkert. Þið getið hangið hérna í þessu rigningar-
rugli. Þetta sumar getur bara fokkað sér. Ég er
farinn.
Slæmi kaflinn
Á meðan ég man
Logi Bergmann
logi@mbl.is
’Ég yrði ekki hissa þó að Bogi Ágústsson birtist brúnaþungur á skjánum. „Og hérvar að berast frétt: Aðskilnaðarsamtök Mývetninga hafa lýst yfir ábyrgð á reyk-víska sumrinu. Í yfirlýsingu frá þeim kemur fram að með þessum aðgerðum vilji þeirmótmæla auknu linmæli og lokun neyðarbrautarinnar.“
UMMÆLI VIKUNNAR
’Þetta er allt á sömu bókina lært.Ragnar Þór Ingólfsson,
formaður VR, um launahækkanir
48 forstöðumanna ríkisstofnana.
Byggingarkranar hafa ekki
verið fleiri í Reykjavík í sex
ár. Þeir sem skoðaðir eru á
ári stefna í að ná sama fjölda
og þegar mest lét árið 2007.
Opið: 8-18 virka daga 10-14 á laugardögum Síðumúla 22 | Sími 517 0404 | serefni.is
Veldu betri málningu
PALLAOLÍA
• Allround olían er efnisrík gæðaolía sem endist lengur
• Margir fallegir litir*
* Litur á palli EJLINGE
Ármúli 7, Reykjavík | Sími 568 0708 | www.fako.is
Borð 136.900
TILBOÐ 82.140
Stóll 18.900
Spegill 38 cm
8.900
Spegill 32 cm
6.900
Stóll 29.900
30-50%afsláttur afvöldum
vörum