Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.07.2018, Síða 12
ÚTTEKT
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8.7. 2018
Eftir að tveir fremstu sparkendur samtím-ans – og mögulega allra tíma – stimpluðusig út af heimsmeistaramótinu í Rúss-
landi um liðna helgi bendir allt til þess að þeir
komi til með að setjast í helgan stein án þess að
handleika stærsta bikarinn af þeim öllum, sjálf-
an heimsbikarinn. Þegar HM fer næst fram, í
Katar að fjórum árum liðnum, verður Portúgal-
inn Cristiano Ronaldo orðinn 37 ára og Argent-
ínumaðurinn Lionel Messi 35 ára. Auðvitað er
ekki hægt að útiloka að þeir snúi aftur þá, enda
um einstaka íþróttamenn að ræða, en líkurnar
eru sannarlega ekki með þessum ágætu köpp-
um lengur. Þess utan hverfist þetta ekki bara
um þá tvo, liðin í kringum þá þurfa að taka
hressilegum framförum í millitíðinni.
Ronaldo komst lengst í undanúrslit HM, í
Þýskalandi 2006, en Messi fór alla leið í úrslita-
leikinn í Brasilíu fyrir fjórum árum, þar sem
Argentína laut í gras gegn Þýskalandi eftir
framlengdan leik. Nær verður víst ekki komist.
Enn í skugganum?
Portúgal hefur raunar aldrei hampað heimsbik-
arnum, nokkuð sem Argentína hefur gert í tví-
gang, 1978 og 1986. Í seinni skiptið fór maður að
nafni Diego Armando Maradona fyrir liðinu en
við hann er Messi gjarnan spyrtur. Hvor var
betri? mun sagan áfram spyrja. Tölfræðin mun
alltaf segja Messi; fleiri titlar, miklu fleiri mörk
og þar fram eftir götunum. Á móti kemur
heimsbikarinn hans Maradona; sem hann vann
nánast upp á eigin spýtur. Undan þessu svíður
Messi. Og mun svíða.
Ronaldo og Messi geta huggað sig við það að
þeir eru alls ekki í slæmum félagsskap; margir
af fremstu sparkendum sögunnar hafa þurft að
bíta í það súra epli að verða aldrei heimsmeist-
arar. Lítum á nokkra.
Kunnasti Portúgalinn til að gera atlögu að
heimsbikarnum, fyrir utan Ronaldo, er án efa
Eusébio, sem varð markakóngur á HM 1966 í
Englandi. En liðið féll út í undanúrslitum. Þar á
eftir kemur líklega Luis Figo. Loðvík Fíkja,
eins og góður maður kallaði hann.
Þegar listar þessa efnis er teknir saman trón-
ir Hollendingurinn Johan Cruyff ósjaldan á
toppnum. Hann var einn besti leikmaður heims
á árunum um og upp úr 1970 og leiddi stríð-
mannað lið sitt alla leið í úrslitaleikinn gegn
heimamönnum á HM í Vestur-Þýskalandi 1974.
Það fór á sama veg og hjá Messi, nema hvað
þýska stálið kramdi hjarta Cruyffs í venjuleg-
um leiktíma. Sem er sennilega mannúðlegra.
Holland aldrei unnið
Cruyff var genginn úr skaftinu fjórum árum
síðar, þegar Holland tapaði aftur í úrslitaleik,
það sinnið fyrir öðrum gestgjöfum, Argentínu.
Til að gera langa sögu stutta þá hefur Hol-
land, þrátt fyrir allar sínar erkikempur gegnum
tíðina, aldrei unnið heimsbikarinn. Seinasta
gullkynslóð, Arjen Robben, Robin van Persie,
Wesley Sneijder og þeir kappar, komust reynd-
ar mjög nálægt því; töpuðu fyrir Spánverjum í
úrslitaleik í Suður-Afríku 2010. Í framlengingu.
Nema hvað?
Í millitíðinni lögðu menn eins og Marco van
Basten og Ruud Gullit allt í sölurnar. Án árang-
urs.
Maðurinn sem ógnaði veldi Maradona einna
helst á níunda áratugnum, Frakkinn Michel
Platini, lauk líka ferlinum án þess að komast í
tæri við heimsbikarinn; féll út í undanúrslitum
bæði 1982 og 1986. Og fyrir hverjum? Auðvitað
Vestur-Þjóðverjum. Þeim hjartaböðlum. Eigi
að síður eru margir á því að Frakkar hafi aldrei
átt betra lið en auk Platinis voru þar sögufrægir
miðvellingar eins og Jean Tig-
ana og Alain Giresse.
Af seinni tíma Frökkum sem
misstu af þeim stóra má nefna Ís-
landsvininn Eric Cantona.
Eðli málsins samkvæmt er leit-
un að Þjóðverja sem aldrei varð
heimsmeistari; ætli Karl-Heinz
Rummenigge sé ekki þeirra fræg-
astur. Hann laut í gras í úrslitaleik
bæði 1982 og 1986 en hafði lagt
skóna á hilluna þegar Þjóðverjar
sýndu og sönnuðu að allt er þegar
þrennt er, á Ítalíu 1990. Og höfðu
þá sjálfan Maradona undir. Einnig
má nefna markvörðinn geðþekka Oliver Kahn
en hann tapaði úrslitaleiknum gegn Brasilíu
2002. Í því liði var einnig Michael Ballack.
Besta liðið sem ekki vann
Brasilía hefur fimm sinnum orðið heimsmeist-
ari, einu sinni oftar en Þýskaland, og fyrir vikið
ekki margir af helstu leikmönnum þeirra verið
skildir út undan. Zico kemur fyrst upp í hugann
og félagar hans í ’82-liðinu sem vann hug og
hjarta heimsbyggðarinnar á mótinu á Spáni en
féll óvænt út fyrir Ítalíu í milliriðlum. Það er að
margra mati besta liðið sem aldrei vann HM og
örugglega betra en mörg lið sem fóru alla leið.
En að því er víst ekki spurt. Af þeim höfðingjum
má einnig nefna Sócrates sáluga, Falcão og
Éder.
Af kunnum Ítölum sem aldrei urðu heims-
meistarar nægir að nefna Paolo Maldini og Ro-
berto Baggio. Og af Spánverjum Raúl og Emilio
Butragueño.
Ef við förum lengra til baka hittum við fyrir
Ferenc Puskás, aðalsprautuna í gullaldarliði
Ungverja. Hann var maður mótsins í Sviss 1954
en tapaði úrslitaleiknum. Gegn hverjum? Jú, jú,
Vestur-Þjóðverjum.
Önnur stjarna þeirra tíma, Alfredo Di Stéf-
ano, komst aldrei á lokamót HM og náði hann
þó að leika landsleiki fyrir hönd bæði Argentínu
og Spánar.
Ekki einu sinni Best
Sama máli gegnir um eina helstu kempu sjö-
unda áratugarins, Norður-Írann George Best,
og svo bestu leikmenn Wales gegnum tíðina,
Ian Rush, Mark Hughes, Ryan Giggs og Gareth
Bale.
Úr því við erum á Bretlandseyjum
er óhætt að greina til Englend-
ingana Kevin Keegan, Paul Gasco-
igne, Gary Lineker, Tony Adams og
David Beckham.
Afríkuþjóð hefur aldrei unnið HM
og þar með ekki goðsagnir eins
og Roger Milla frá Kamerún
og George Weah Líberíu-
forseti.
Af Norðurlandabúum
má nefna Peter Schmeichel
og Laudrup-bræður frá
Danmörku og Svíana
Gunnar Nordahl, Zlat-
an Ibrahimović og
Henrik Larsson.
Og ef við ætlum
alla leið með pæl-
inguna hendum við
að sjálfsögðu Ás-
geiri Sigurvins-
syni og Eiði
Smára Guðjohn-
sen inn í hringinn.
Búmm, búmm, húh!!!
Hjartasár á HM
Messi og Ronaldo ganga bognir af velli á HM í Rússlandi. Er stóri draumurinn þeirra endanlega úti?
AFP
Ítalski varnarjaxlinn Paolo Maldini rifaði seglin
eftir langan feril án þess að verða heimsmeistari.
Norður-Írinn George Best varð aldrei svo
frægur að taka þátt í lokamóti HM.
Hollendingurinn Johan Cruyff er af mörgum tal-
inn besti leikmaðurinn sem aldrei vann HM.
Þrátt fyrir Guðs gjöf og góðan vilja gengur rófan ekki hjá Lionel Messi og Cristiano Ronaldo á HM. Ekki svo að
skilja að þeir séu í vondum félagsskap en fyrir á listanum yfir leikmenn sem ekki hafa unnið mótið eru kappar eins
og Johan Cruyff, Michel Platini, Ferenc Puskás, Zico, George Best og Paolo Maldini. Ekki leiðum að líkjast!
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Ungverjinn Ferenc Puskás var töframaður með
knöttinn. Hér er hann kominn af léttasta skeiði.
Brasilíski snillingurinn Zico sat eftir með sárt
ennið á HM 1982 eftir alveg geggjuð tilþrif.
Michel Platini í leik með Frökk-
um gegn Ítölum á HM 1986.
David Beckham er í hópi
fjölmargra frambærilegra
Englendinga sem aldrei
hafa unnið HM.
Reuters