Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.07.2018, Síða 16

Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.07.2018, Síða 16
VIÐTAL 16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8.7. 2018 J ón Sigurður Gunnarsson er búinn að æfa fimleika í 20 ár. „Og ég er ennþá að,“ segir Jón en þegar blaðamaður ræddi við hann voru aðeins nokkrir dagar í 26 ára afmælið. „Mjög tilvalin og góð þjálfun fyrir sirkus. Það er þekkt að fimleikamenn fari í sirkus, sér- staklega í Rússlandi og Kína,“ segir Jón sem er ennþá landsliðsmaður í áhaldafimleikum og keppti nú síðast á Norðurlandamóti fyrstu helgina í júlí. Hann varð Íslandsmeistari árið 2016 í fullorðinsflokki en hefur líka tekið nokkra titla í unglingaflokki. Efni þessa viðtals er samt ekki fimleikaferill- inn heldur sirkusferillinn en loftfimleikamað- urinn Jón er nýkominn úr hálfs árs ferðalagi þar sem hann ferðaðist í fimm mánuði með nýsjálenskum sirkus, Circus Aotearoa. Hann hefur verið alla tíð í Ármanni og komst þar í tengsl við Sirkus Íslands. „Það voru strákar í hópnum sem voru farnir að fikta við sirkuslistir því Sirkus Íslands var að æfa í Ármanni. Við hittum þessa trúða og lærðum alveg slatta af þeim og síðan árið 2014 byrjaði ég að vinna með Sirkus Íslands þegar við tókum fyrsta túrinn okkar. Við Sindri vinur minn úr fimleikunum síðan við vorum pínulitlir vorum með og erum ennþá með atriði saman,“ segir hann og á þar við Sindra Stein Davíðsson Diego en margir hafa áreiðanlega séð þá taka atriði saman. Erum að sprelligosast „Ég er í grunninn bara ofan á honum að gera handstöður og hoppa og við erum að fara í helj- arstökk og aðeins að sprelligosast. Við höfum lært á þessu að koma fram en það er stór partur af því að vera í sirkus. Við höfum báðir verið áð- ur í leikritum. Ég var í Borgarleikhúsinu árið 2007 í Gosa, þar lærði maður eitthvað. Sindri og fleiri úr sirkusnum hafa verið í Slá í gegn í Þjóð- leikhúsinu núna,“ segir Jón sem hefur gaman af því að sýna. Hann komst í tengsl við nýsjálenska sirkus- inn í gegnum Sirkus Íslands en sirkusstjórinn Lee Nelson hafði verið í sirkusskóla með eig- andanum, Damian Gordon. „Sonur Gordons, Matthias Goed kom hingað þegar við fengum sirkustjaldið okkar og hann hjálpaði okkur með það og hvernig þetta virkaði allt saman. Eftir túrinn í fyrrasumar sagði hann okkur að það væri laust pláss fyrir alþjóðlega sirkuslista- menn í sumarsýningunni 2018 Circus Aotearoa. Hann sagði að við gætum sótt um og hvernig þetta væri allt. Ég varð strax spenntur fyrir þessu en ég var búinn að vera í sama pakkanum hérna heima frá því að ég kláraði menntaskóla,“ segir Jón en úr varð að hann sendi inn mynd- bandsumsókn og komst að. Sirkusinn úti þekkti líka til hans og það hjálpaði líka að hann hafði reynslu af tjalduppsetningu. Jón var í MR og eftir það var hann búinn að skipta tíma sínum milli sirkussins, tónlistarnáms, en hann er í djasspíanónámi við FÍH, og fimleik- anna. „Ég hef alltaf náð að tvinna þetta saman, sirkus og fimleikana en það var erfiðara þarna úti en ég náði að fara á æfingar til að halda mér í formi en sirkusinn heldur manni líka í formi,“ segir hann en loftfimleikarnir og handstöðurnar krefjast mikillar líkamlegrar getu. Hann leitaði uppi fimleikafélög á stöðunum sem hann heimsótti með sirkusnum og nýtti sér aðstöðuna þegar hún var til staðar. Hann segir landslagið á Nýja-Sjálandi vera svipað og á Íslandi, sumarið sé hinsvegar lengra, landið stærra og því fleiri staðir til að heimsækja. Ferðaðist á leiðinni Hann ferðaðist með fjölskyldu sinni á leiðinni til Nýja-Sjálands og heimsótti Suður-Kóreu, Jap- an, Singapúr og Kúala Lúmpúr í Malasíu. Jón kom út til Nýja-Sjálands í janúar og þá hófust æfingar. Hann sýndi handstöðuatriði með sirkusnum og verður með sama atriðið á sýningum Sirkuss Íslands í sumar. Þegar þú ert að sýna, ertu þá meira og minna á hvolfi? „Já, líka dagsdaglega,“ segir Jón sem eyðir óvenjulega miklum tíma sínum á haus. „Ég er bara vanur því.“ Sirkusinn er með höfuðstöðvar á sveitabýli á norðureyjunni. „Þar var ekki einu sinni síma- samband þannig að við vorum bara að æfa. Þar var ágætis æfingaaðstæða og við vorum að æfa úti líka,“ segir hann. Fyrstu þrjár vikurnar fóru í æfingar, und- irbúning og að auglýsa túrinn og í lok janúar fór sirkusinn á fyrsta staðinn til að tjalda. Ferða- lagið stóð í fimm mánuði og dvaldi sirkusinn í viku á hverjum stað. Sirkusinn er án dýra eins og er orðið svo al- gengt núna. „Það er illa séð að vera með dýr því þarna eru þau ekki í sínu náttúrlega umhverfi,“ segir Jón en sirkusar með dýrum eru á leiðinni út þótt þeir séu ennþá til. Ferðalagið var tíu ára afmælisferðalag sirkussins undir þessu nafni en á undan því var sirkusinn með dýr. „Tjaldið sem við notuðum var gamalt og búið að nota það í 10- 15 ár. Það rúmar svipaðan fjölda og okkar tjald hér heima en það er miklu nýrra og mér finnst það flottara. Úti eru þau skipulagðari með tjald- ið og uppsetningu enda búin að vera að gera það sama í meira en áratug. Við vorum bara sex manns í því að setja upp tjaldið og það tók okk- ur aðeins sex klukkutíma. Hér tekur það aðeins meiri tíma og við erum miklu fleiri að gera þetta. Þarna úti var þetta eins og vel smurð vél.“ Mikil vinna að stilla öllu upp Circus Aotearoa ferðast um landið með tjaldið á bílum og með hjólhýsi í eftirdragi en sirkus- fólkið gistir í hjólhýsunum í kringum tjaldið. Sjálfur bjó Jón í rútu sem var búið að innrétta sem tvö herbergi ásamt frönskum sirkuslista- manni, sem var „djögglari“ og götulistamaður. Fyrrnefndur Goed keyrði rútuna en það þarf meirapróf í það en Jón fékk sjálfur þá ábyrgð að keyra bíl með hús sirkusstjórans og eldhúsið þeirra. „Við fórum nokkrar ferðir fram og til baka þegar við ferðuðumst á milli staða,“ segir Jón og útskýrir hversu mikil vinna það sé í kringum að ferðast með sirkustjald og minnst af þessari vinnu tengist loftfimleikum. „Þriðjudagar voru ferðadagar og þá settum við upp búðir. Mældum hvar tjaldið ætti að vera og settum hjólhýsin á rétta staði,“ segir hann en á miðvikudögum er tjaldið sett upp og grunnur- inn að stúkunni á meðan stelpur úr hópnum fóru í nálæga bæi til að auglýsa næstu sýningar. Einhver þarf síðan að vera á svæðinu alla vik- una til að vakta tjaldið. „Á fimmtudeginum var aftur vinna snemma um morguninn, við klár- uðum að setja upp tjaldið, veggina og innrétta sviðið, stúkurnar og baksviðið og þá eru stelp- urnar líka að hjálpa til. Við vorum orðin svolítið fljót að þessu þegar leið á túrinn. Á föstudeg- inum voru síðustu skrefin, að setja upp sjopp- una og allt fyrir framan því um kvöldið er fyrsta Á haus á Hobbitaslóðum á Nýja-Sjálandi. Ljósmynd/Lilja Draumland Alltaf á haus Jón Sigurður Gunnarsson er nýkominn úr fimm mánaða ferðalagi með sirkus á Nýja-Sjálandi. Jón er sannkallaður fjöllistamaður; hann er ekki aðeins landsliðs- maður í áhaldafimleikum, heldur er hann líka loftfimleikamaður, í djasspíanónámi við FÍH og nýbyrjaður að læra á brimbretti. Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Jón hlakkar til sirkussumarsins sem framundan er með Sirkusi Íslands.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.