Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.07.2018, Page 18

Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.07.2018, Page 18
VIÐTAL 18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8.7. 2018 Þ egar Sveinn Sigurjónsson sá jörðina Þverárkot auglýsta til sölu árið 1989 féll hann fyrir staðnum og hefur alið manninn þar meira og minna síðan og haft þar fasta búsetu og lögheimili frá árinu 1999. Hann heldur hross á staðnum og tekur þátt í uppgræðslu- verkefni Landgræðslu ríkisins ásamt því að vinna að skógrækt. Þverárkot hafði verið eyðibýli lengi þegar hann keypti það, en áður fyrr var þar stundaður búskapur enda var bærinn í alfaraleið við Svínaskarð sem er gömul þjóðleið. Þar var jafnan gisti- staður þeirra sem ráku fé um Svína- skarð. Síðasti bóndinn í Þverárkoti á undan Sveini mun hafa verið Oddur Einarsson en bærinn lagðist í eyði eftir að hann drukknaði í einni af án- um sem renna um land Þverárkots. Þegar Sveinn keypti bæinn til- heyrði hann Kjalarneshreppi en þeg- ar það sveitarfélag sameinaðist Reykjavík 1998 færðist Þverárkot yfir til Reykjavíkur, í póstnúmer 116. „Mér líður vel hérna en veturnir eru erfiðir út af færðinni,“ segir Sveinn sem leggur ekki í vana sinn að kvarta. „Pabbi er sveitamaður í grunninn og vanur að bjarga sér,“ segir Kolbrún Anna dóttir hans. Hún hefur staðið í því undanfarin ár að reyna að fá samgöngur við bæinn í lag svo hægt sé að fá þjónustu að bænum, en rekur sig víða á veggi. Ekki er fært upp að Þverárkoti nema á jeppa því fara þarf yfir Þver- ána og hún getur verið vatnsmikil og straumhörð. Bæði er slysahætta mik- il og þá segir Kolbrún ljóst að sjúkra- bíll eða slökkvilið kæmust ekki yfir ána ef á þyrfti að halda. Erfitt getur reynst að komast yfir ána á sumrin en þegar Sveinn talar um að veturnir geti verið erfiðir út af færðinni þá er það ekki svo að erfitt sé að komast akandi yfir ána, heldur er það einfaldlega ekki alltaf hægt. Ekki bara af því áin sjálf sé frosin og illfær heldur er ekki hægt að komast á bíl lengra en að Hrafnhólum, því snjómoksturstæki fara ekki lengra. Sveinn fer því fótgangandi þegar ófært er á bíl. Það er eina leiðin til að komast að heiman og heim. Í nokkrar vikur á hverjum vetri leggur Sveinn, sem verður áttræður á næsta ári, jeppa sínum við næsta bæ, Hrafnhóla, og gengur yfir tún og svo yfir ána Þverá. „Þetta losar um kíló- metra, leiðin sem ég fer þarna yfir. Það eru svo misjafnar aðstæður, stundum á ís og stundum veður mað- ur bara yfir. Það er ekki hægt að vera á venjulegum stígvélum, maður þarf að vera í klofstígvélum. Það eru svo miklar sveiflur í svona fjallalækjum. Þegar það er rigning og snjóbráð get- ur þetta verið eins og straumhart stórfljót,“ segir Sveinn. Það eru einmitt þessar aðstæður yfir vetrartímann sem Kolbrún og fleiri aðstandendur Sveins hafa áhyggjur af. Til að komast að Þverárkoti er ekið eftir Þingvallavegi og beygt svo upp til vinstri skömmu eftir að komið er framhjá Gljúfrasteini. Fyrst er ekið framhjá þremur bæjum sem tilheyra Mosfellsbæ og eru við skráðan veg. Tveir innstu bæirnir við afleggjar- ann, Hrafnhólar og Þverárkot, til- heyra Reykjavík, og standa báðir við óskráðan veg. Hrafnhólar fá þó þjón- ustu á borð við snjómokstur og sorp- hirðu, en þjónusta við Þverárkot er engin. Á ekki að þurfa að vaða yfir á til að komast heim „Þetta er alveg rosalega duglegur maður, mikil seigla og hann kvartar aldrei. En ég á alveg svakalega erfitt með að skilja af hverju þetta þarf að vera svona. Það þarf bara að setja brú yfir þessa á og klára þennan veg. Þetta er fullorðinn maður, hann býr í Reykjavík og hann á ekki að þurfa að vaða yfir á til að komast heim. Þetta er hlægilegt og skammarlegt fyrir borgina. Það væri alveg rosalega sorglegt ef hann þyrfti að týna lífi í þessum aðstæðum, sem eru svo aug- ljóslega óréttlátar,“ segir Guðbjörg Sigurjónsdóttir skólastjóri Söng- skóla Sigurðar Demetz og systir Sveins. Hún vill að Reykjavík, sveitarfé- lagið sem bróðir hennar býr í og greiðir sín gjöld til, finni lausn. „Það á bara enginn að þurfa að vera í þess- um aðstæðum. Hann þarf á þessum vegi að halda en það virðast allir geta ýtt þessu frá sér og enginn tekur ábyrgð á því að klára þetta.“ Nágranni Sveins tekur í svipaðan streng og segir það verulega óþægi- legt að vita af Sveini í ánni. „Þetta er skelfileg aðstaða. Það er auðvitað bara alveg hryllingur að horfa á eftir kallinum, stundum í blindbyl. Maður er bara alltaf á tánum hvort hann skili sér heim,“ segir Logi Ólafsson, íbúi á Hrafnhólum, sem er næsti bær við Þverárkot. Logi hefur búið ásamt fjölskyldu sinni á Hrafnhólum frá árinu 2012. „Það er fín þjónusta til okkar. Það er allavega mokað að Hrafnhólum og ruslabíll tekur ruslið einu sinni í mánuði.“ Ekkert farsímasamband og ekkert netsamband er á þessum slóðum þannig að Sveinn getur ekki hringt eftir aðstoð eða látið vita af sér lendi hann í vandræðum í ánni eða á leið sinni á milli bæjanna. Og þótt sé fært á bíl er ekki alltaf einfalt að komast yfir ána á bíl yfir köldustu mánuðina. 300 metrar sem þarf að laga „Hann pabbi er með hamar í bíln- um og þarf oft að eyða kannski Sveinn Sigurjónsson er alinn upp við það að bjarga sér en nú er ættingjum hans og vinum nóg boðið. Kolbrún Anna Sveinsdóttir segir að leggja þurfi veg yfir ána Þverá svo hann komist öruggur heim og geti fengið þjónustu sem aðrir telji sjálfsagða. Morgunblaðið/RAX Útvörður borgarinnar Tæplega áttræður Reykvíkingur, Sveinn Sigurjónsson múrarameistari, þarf að leggja bíl sínum í eins kílómetra fjarlægð frá heimili sínu og vaða eða ganga á ótraustum ís yfir á til að komast heim á veturna. Vegagerðin segist geta lagfært veginn að bænum og tekið inn á vegaskrá að nýju en skilyrðið er að Sveinn greiði helming kostnaðar, rúmar sex milljónir króna hið minnsta, úr eigin vasa. Borgin sækir ekki sorp á bæinn meðan vegurinn liggur yfir óbrúaða á og biður Svein að keyra ruslið rúma 16 kílómetra til að koma í tunnur. Ættingjar og vinir eru ósáttir við að Sveinn þurfi að búa við þessar aðstæður. Eyrún Magnúsdóttir eyrun@mbl.is Sveinn á leið yfir Þverá. Í nokkrar vikur á hverjum vetri verður ófært heim að bænum og hann þarf að vaða yfir ána. Myndin er tekin í desember 2017. Úr einkasafni Gula línan sýnir skráðan veg sem Mosfellsbær sér um viðhald á. Rauð lína er óskráður vegur en bæirnir sem nýta hann, Hrafnhólar og Þver- árkot, eru í Reykjavík. Hluti rauða vegarins hefur verið lagður afgangs- malbiki af borginni og grænn kross sýnir hvar Vegagerðin kom fyrir veg- riði. Síðasti hluti rauða vegarins, sem liggur yfir Þverá og í átt að Þverár- koti, fæst ekki lagður nema eigandi borgi helming. Svínaskarðsleið, sem borgin leggur nú afgangsmalbiki, er ekki á korti enda ekki vegur heldur slóði sem hefst mitt á milli Hrafnhóla og Þverárkots og liggur í norðaustur.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.