Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.07.2018, Side 23

Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.07.2018, Side 23
8.7. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23 Skyrbúðingur og bláber Fyrir 6 SKYRFROÐA 200 ml mjólk 200 g skyr hreint 150 g flórsykur limesafi Þeytið mjólk, skyr og flórsykur saman. Bætið limesafa saman við. Hellið þessu svo í rjómasprautu og notið 3-4 gashylki til að ná réttri áferð. Þá er hægt að sprauta þessu í ílát. Geymið í kæli yfir nótt. BLÁBERJAKRAP 100 g sykur 50 g glúkósi ½ l bláberjasafi 150 ml vatn Hitið í potti að suðu. Bætið því næst við 4 g af þykkingarefni og hrærið saman með töfrasprota. Nauðsynlegt er að gera þetta daginn áður og frysta. HVÍTSÚKKULAÐIOSTAKREM 125 g rjómaostur 125 g mascarponeostur 80 g sykur 175 g hvítt súkkulaði 120 g þeyttur rjómi Bræðið saman yfir vatnsbaði ost, sykur og súkkulaði. Þeytið rjóma og blandið honum varlega saman við með sleikju. HAFRA-CRUMBLE 100 g haframjöl 250 g sykur 200 g hveiti 150 g smjör við stofuhita kanilstöng Blandið öllu saman og dreifið á bökunarpappír. Bakið í 20 mín- útur á 160°C. Crème brûlée- kleinuhringur Hugmyndin að þessum eft- irrétti er fengin að láni frá matarmarkaði í Kaup- mannahöfn en starfsfólk Einsa kalda fór þangað í skemmtiferð. Þar smökkuðu þau svipaðan rétt og Einsi linnti ekki látum fyrr en kokkurinn þar var búinn að ljóstra upp leyndarmálinu á bak við réttinn. Hins vegar er nú leyndarmálið vel varð- veitt í Eyjum og þurfa því les- endur að gera sér ferð á Einsa kalda vilji þeir smakka! Fyrir 6 300 gr hrossalund Skerið hrossalundina í 6 þunn- ar sneiðar, brúnið létt á pönnu á báðum hliðum. MARÍNERING FYRIR KJÖTIÐ 1 stk. laukur 3 hvítlauksgeirar 50 ml mirin (hrísgrjónaedik) 50 ml Teríakísósa 4 msk. sesamolía 50 g brennt hvítlauksmauk (fæst í krukku í asíubúðum) 200 ml olía pipar Setjið allt hráefnið, fyrir utan olíu, saman í matvinnsluvél og maukið. Hellið olíunni ró- lega í mjórri bunu saman við. Látið hrossakjötið marínerast í um 10 mín- útur í leginum. DJÚPSTEIKTIR ÆTIÞISTLAR 2 stykki Jerúsalem ætiþistlar Skerið ætiþistlana í man- dólíni, setjið í ísskalt vatn með smá salti. Þerrið og djúpsteikið. Saltið. MANGÓKREM OG MEÐLÆTI 1 poki frosið mangó Setjið mangóið í blandara og maukað vel. SKRAUTRÓFA 1 stk skrautrófa Skerið þunnt í mandól- íni og piklið. PIKKLÖGUR 1 hluti vatn1 hluti sykur 1 hluti eplaedik Takið fallegan disk og penslið hann með smá af maríneringunni. Raðið hrossakjötssneiðunum í hring ásamt pikklaðri skrautrófu og djúpteikt- um ætiþistlum. Setjið mangósósuna inn á milli. Njótið! Hrossa-tataki Forréttur fyrir 6 12 humarhalar 12 risahörpudiskar 2 pokar chilihnetur Pillið humarhalana og mænudragið. Maukið chilihnetur í blandara. Veltið humrinum upp úr hnetublöndunni og steikið á pönnu upp úr olíu og smjöri til helminga. Kryddið með salti og ljósum pipar. MARÍNERING FYRIR HÖRPUSKEL 1 hluti brætt smjör 1 hluti hunang 1 hluti sítrónusafi Látið fiskinn liggja í leginum í klukkustund og brúnið fallega á öllum hliðum. Látið hvíla létt í hálfa mínútu. STEINSELJU-BASILMAUK 2 stk steinseljurót, flysjuð og skorin í kubba Sjóðið rótina í rjóma, þar til hún er orðin vel mjúk. Sigtið hana frá rjómanum og setjið í blandara ásamt smjörklípu, salti og pipar eftir smekk. Geymið. Takið því næst: búnt af basiliku 100 g rifinn parmesan 3 hvítlauksgeira 50 g furuhnetur salt og ljósan pipar smá sítrónuolíu Slítið laufin frá stilkum og setjið í mat- vinnsluvél ásamt hvítlauk og furuhnetum. Hellið rólega sítrónuolíu saman við, þar til áferðin er passleg. Blandið þessu því næst saman við stein- seljurótina með töfrasprota. RJÓMA-SMJÖRSÓSA 5 geirar skalottlaukur 3 geirar hvítlaukur 1½ dl hvítvín 1 l rjómi 200 g smjör í kubbum Takið skalottlauk og hvítlauk og svitið á pönnu. Bætið hvítvíni saman við og sjóðið niður um helming. Hellið rjómanum saman við og sjóðið áfram niður. Þegar sósan er orðin vel þykk er hún tek- in af hitanum. Í lokin er svo 200 g af smjöri, sem er skorið í kubba, bætt saman við var- lega með sleikju. Humar og risahörpuskel

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.