Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.07.2018, Side 26

Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.07.2018, Side 26
Hinn franski Michel Platini (t.v.) á heimsmeistaramótinu sem haldið var í Argentínu 1978. Á þeim tíma voru stuttbuxurnar mjög stuttar og náðu ekki niður á mið læri. Fjörutíu árum síðar, í Rússlandi 2018, er franski framherjinn Olivier Giroud (t.h.) kominn í töluvert síðari buxur. AFP Maradona (t.v.) fagnar hér marki gegn Englandi á heimsmeistaramótinu 1986. Þá var stuttbuxnatískan á vellinum ennþa í styttra lagi. Landi hans Messi (t.h.) er öllu alvarlegri í Rússlandi fjörutíu árum síðar, enda í talsvert síðari stutt- buxum og varð þar að auki að sætta sig við tap gegn Frökkum. Wikimedia AFP Stuttbuxur portúgalska landsliðsins á HM 2018 eru vissulega í síðari kantinum að mati margra. AFP Belgíski dómarinn John Langenus dæmdi á fyrsta heimsmeistaramótinu sem haldið var í Úrúgvæ árið 1930. Hann hefði vel get- að farið á ball í þessum búningi. Wikimedia Augu heimsbyggðar- innar beindust að hin- um portúgalska Cristiano Ronaldo þegar hann bjó sig undir að taka aukaspyrnu skammt fyrir utan vítateig Úrú- gvæ á heimsmeistaramótinu í knattspyrnu í júní síðastliðnum. Það sem vakti þó ef til vill hvað mesta eftirtekt, a.m.k. af við- brögðum á samfélagsmiðlum að dæma, var undirbúningur Ronaldos áður en hann tók spyrnuna. Hann togaði stutt- buxurnar langt upp á læri, svo rækilega að þær minntu helst á nærbuxur. Ekki er vitað hvað vakti fyrir honum með þessu uppá- tæki, e.t.v. á hann auðveldara með að ná góðri spyrnu þegar loft leikur um lærin. AFP Fólk horfir á heimsmeistaramótið í knattspyrnu af mismunandi ástæðum. Sumir vegna ánægj- unnar af að horfa á fótbolta. Aðrir vegna íturvaxinna líkama í stuttbuxum sem hafa síkkað, styst, þrengst og víkkað á víxl. Guðrún Óla Jónsdóttir gudruno@mbl.is Bretinn Charlie Roberts, sem spilaðim.a. með Manchester United á Eng-landi í upphafi síðustu aldar, náði ekki að spila með enska landsliðinu á heims- meistaramótinu í fótbolta á meðan hann lifði. Þrátt fyrir það hafði hann sín áhrif á keppnina, að minnsta kosti hvað bún- ingana varðar. Áður fyrr spiluðu menn í svokölluðum pokabuxum úr flóneli og náðu þær niður fyrir hné eins og reglur knattspyrnusambandsins kváðu á um. Roberts, ásamt nokkrum öðrum úr liðinu, mætti hins vegar á völlinn í stuttum buxum sem náðu niður á læri. Brátt fetuðu fleiri í fótspor hans en þó héldu sumir áfram að spila í pokabuxunum enn um sinn. Stuttbuxurnar sem landsliðsmenn hafa íklæðst á heimsmeistaramótinu í fótbolta hafa verið í ýms- um útfærslum; þröngar, víðar, stuttar og síðar. Á fyrstu heimsmeistaramótunum voru stutt- buxurnar til að mynda frekar síðar og víðar en eftir því sem árin liðu styttust þær. Á áttunda og níunda áratugnum voru þær mjög stuttar og heldur þröngar. Á heimsmeistaramótinu í Bandaríkjunum árið 1994 höfðu þær síkkað töluvert og náðu jafnvel niður fyrir mið læri og næstum því niður að hnjám. Ronaldo þakkar kannski fyrir að pokabux- urnar séu ekki notaðar á leikvellinum í dag en þar sem tískan virðist fara í hringi á hann ef til vill ekki von á góðu. Stuttbuxur á HM AFP Á heimsmeistaramótinu í Frakklandi 1998 spilaði enska landsliðið í búningum sem voru vel víðir, bæði að ofan og neð- an. Hér er Paul Scholes á fleygiferð í leik Englands á móti Túnis. Á öðru heimsmeistaramótinu, sem haldið var á Ítalíu árið 1934, voru leikmenn í síð- um stuttbuxum sem voru beinar niður. Þær voru mjög herralegar við skyrtulegar íþróttatreyjurnar. AFP AFP TÍSKA 26 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8.7. 2018 Gallabuxnaefni fer aldrei úr tísku og sumarið er tíminn til að þora. Calvin Klein og Fendi klæddu fyrirsætur sínar í gallaefni frá toppi til táar á tískupöllunum í vor. Gallabuxnaefni frá toppi til táar

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.