Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.07.2018, Page 28
FERÐALÖG … á meðal þeirra sem eiga rætur að rekja til Kansas-borgar eru leikararnir Paul Rudd, Joan Crawford og
Don Cheadle og tónskáldið Burt Bacharach?
Vissir þú að …
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8.7. 2018
Við erum sko ekki í Kansas,heldur Missouri,“ segir leið-sögumaðurinn við mig jafn-
vel áður en ég spyr. Í gegnum ferð-
ina er sú staðreynd, að Kansas City
eða Kansas-borg er ekki í Kansas
heldur Missouri, síendurtekin, enda
hefur það valdið nokkrum ruglingi í
gegnum tíðina, eða allar götur frá
því að borgin var formlega stofnuð
árið 1850. „En er Missouri-borg í
Kansas þá?“ spyr ég en fæ ekkert
svar.
Kansas-borg er þó ekki alveg
ótengd Kansas-ríki, en borgin liggur
á mörkum ríkjanna tveggja, og skar-
ast úthverfi hennar jafnvel yfir ríkja-
mörkin. Skoðunarferðirnar fara því
fram og til baka yfir „landamærin“,
og í einni slíkri sætir blaðamaður
færis þegar rútan er aftur lent
Missouri-megin. „I guess we’re not
in Kansas anymore?“ Viðbrögðin eru
dræm, svo ekki sé meira sagt.
„Varstu búinn að sitja á þessum
lengi?“ spyr einn kollegi minn í ferð-
inni og ljóst að oss er ekki skemmt.
Grillað á daginn
og djassað á kvöldin
Þegar lélegum bröndurum sleppir
býður Kansas-borg upp á ýmsa
kosti, ekki síst þegar kemur að mat
og drykk. Borgarbúar líta á sig sem
einhverja helstu meistara veraldar-
innar þegar kemur að því að grilla
mat, og má finna á nánast hverju ein-
asta götuhorni stað með upplýstu
neon-skilti þar sem á stendur B-B-Q.
Ef trúa má grobbi heimamanna er
„Kansas City Barbeque“ sér á báti
frá okkur hinum.
Og þeir hafa nokkuð til síns máls.
Þetta eru engar hálfeldaðar lamba-
kótilettur af ferðagasgrilli sem okk-
ur er boðið upp á, heldur stórar og
almennilegar sneiðar af nautakjöti,
svínarif sem búið er að elda alveg
hárrétt, kjúklingavængir sem
bráðna uppi í manni. „Vigtin á eftir
að hata mig eftir þessa ferð,“ hugsa
ég ósjálfrátt.
Eitt viðurnefni Kansas-borgar er
„París sléttunnar“. Nafnið á rót sína
að rekja til bannáranna, en þáver-
andi borgarstjóri Kansas-borgar,
Thomas Pendergast, var víst lítið
fyrir boð og bönn á vissum sviðum
mannlífsins. Á þeim tíma mátti segja
að Kansas-borg væri nokkurs konar
krossgötur Bandaríkjanna, enda
haganlega staðsett mitt á milli aust-
urs og vesturs, norðurs og suðurs, og
fylgdi því mikið mannlíf.
Alls kyns sprúttbúllur (e. Speak-
easy) lifðu góðu lífi og fékk borgin á
sig orð fyrir líflegt næturlíf á þeim
tíma. Djassinn var þar í aðalhlut-
verki, og eiga til dæmis goðsagn-
irnar Count Basie og Charlie Parker
rætur sínar að rekja til borgarinnar.
Þó að eflaust hafi næturlífið róast
Ljósmyndir/Sigurjón Ragnar
Grillmatur er í hávegum hafður í Kansasborg og stæra borgarbúar sig af því að
„Kansas City Grill“ standi skör framar en álíka matargerð annars staðar.
Nokkuð af veitingastöðum reyna að líkja eftir gömlu „sprúttbúllunum“ sem
spruttu upp á bannárunum, og er þar hægt að fá sér alls kyns kokteila.
Á krossgötum
Bandaríkjanna
Íbúar Kansas-borgar eru einkum þekktir fyrir þrennt: djass, grill og
íþróttaáhuga, og skín þetta þrennt í gegnum allt sem borgarbúar taka
sér fyrir hendur. Borgin er nú einn af áfangastöðum Icelandair
í Bandaríkjunum og fékk blaðamaður Morgunblaðsins að sitja í boði
félagsins í fyrstu ferðinni á milli Íslands og Kansas-borgar.
Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is
Kansasborg stendur nálægt landfræðilegri miðju
meginlands Bandaríkjanna og gegndi löngum því
hlutverki að vera „krossgötur Bandaríkjanna“.