Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.07.2018, Síða 37
milljónir manna sem muni einungis
nýta sér þjónustuna einu sinni í mán-
uði. Hægt er að líkja þessu við hlað-
borð þar sem gestir borða eins og
þeir geta í sig látið – einungis örfáir
borða yfir sig.
Lowe segir að líkt og tíðkist í upp-
hafi slíkrar þjónustu sé MoviePass
rekið með tapi en stefni að því að ná
nægilega stórum hópi notendafjölda
sem nýti þjónustuna einu sinni í mán-
uði til að reksturinn fari að skila
hagnaði. Móðurfélag MoviePass lagði
í vikunni fram 1,2 milljarða banda-
ríkjadala til að viðhalda vexti fyrir-
tækisins.
Kvikmyndahúsakeðjur í Banda-
ríkjunum lýstu áhyggjum yfir rekstr-
arlíkani MoviePass sem þeir töldu
ekki fýsilegt til lengri tíma. Ef fyrir-
tækið færi á hausinn hefðu fyrrver-
andi notendur þjónustunnar óraun-
sæjar væntingar um verð á bíó-
miðum. Hver sem örlög MoviePass
verða hafa einhverjar kvikmynda-
húsakeðjur í Bandaríkjunum í kjöl-
farið farið af stað með sínar eigin
áskriftaþjónustur. AMC-keðjan býð-
ur til að mynda áskrifendum upp á
þrjá bíómiða á viku fyrir tæplega 20
bandaríkjadali á mánuði.
Passi í Paradís
Kvikmyndahús á Íslandi bjóða ekki
upp á mánaðarlega áskriftarþjónustu
en hjá sumum þeirra er hægt að
kaupa kort til nokkurra mánaða eða
eins árs. Smárabíó og Háskólabíó
bjóða upp á árskort fyrir um 38 þús-
und krónur. Miðað við miðaverð í dag
þarf að nýta kortið rúmlega tvisvar í
mánuði áður en það fer að borga sig.
Bíó Paradís býður upp á árskort fyrir
um 18 þúsund krónur, svo að ef farið
er einu sinni í mánuði er kortið búið
að borga sig.
Hrönn Sveinsdóttir, framkvæmda-
stjóri Bíós Paradísar, segir árskorta-
hafana tryggan og stækkandi kúnna-
hóp. „Þetta er fólk sem veit að það er
að fara á fleiri en einn viðburð hjá
okkur á mánuði. Við erum með eitt-
hvað fyrir alla svo þetta fer ekki eftir
ákveðnum smekk heldur er þetta að-
allega fyrir þá sem hafa gaman af því
að fara í bíó. Nú erum við farin að
birta dagskrána okkar langt fram í
tímann, sem gerir fólki kleift að
skipuleggja sig betur. Þá er auðveld-
ara að sjá hagnaðinn af því að vera
árskortshafi, en þeim fer fjölgandi
hjá okkur.“
Spurð hvort fólk sé fúsara til að
borga meira fyrir veitingar þegar það
fær miðann á góðum kjörum segist
Hrönn halda að svo sé. „Við erum
með þá sérstöðu að við erum með bar
þar sem fólk getur tekið með sér
drykki inn í sal. Ég held að þegar fólk
er búið að gera góð kaup og komið í
gírinn með vinum sínum þá sé það
ekki spurning að það fer að splæsa
meira á sig. Þetta er allt partur af
upplifuninni: að sitja í bíósal með
fólki og njóta góðra veitinga.“
8.7. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 37
TÓNLIST Nýtt tónlistarmyndband sautján ára
gamla rapparans Lil Pump við lagið Drug Addicts
kom út í vikunni þar sem partíljónið og leikarinn
Charlie Sheen er í stóru hlutverki. Í myndbandinu
eru Pump og Sheen á vappinu um geðsjúkrahús
þar sem sjúklingarnir reykja, drekka og taka pillur
innan um fáklædda hjúkrunarfræðinga, en Sheen
er klæddur sem læknir.
Aðkoma Sheen að myndbandinu er athyglisverð,
en hann hefur margoft komist í fréttirnar fyrir
áfengis- og fíkniefnavanda sinn og stormasöm sam-
bönd í ástarlífi sínu. Leikferill Sheen hefur ekki
verið farsæll upp á síðkastið en hann lék síðast í
kvikmyndinni 9/11 sem fékk hroðalega dóma.
Dr. Sheen
Charlie Sheen
KVIKMYNDIR Morðóða dúkkan Chucky
er mögulega á leiðinni aftur á hvíta tjaldið
í væntanlegri mynd í Child’s Play-röðinni.
Framleiðendurnir á bak við nýju myndina
unnu síðast að hryllingsmyndinni It þar
sem skelfilegi trúðurinn Pennywise
hræddi líftóruna úr áhorfendum. Í kjölfar
vinsælda er kjörið að endurgera aðra
ó-barnagælu en Child’s Play-myndirnar
komu fyrst út á níunda áratugnum. Það er
ekki ljóst hvort myndin verður um upp-
runalegu brúðuna Chucky eða nýja brúðu
en aðför Hollywood að nostalgíunni gerir
fyrri kostinn helst til líklegri.
Brjáluð brúða
Það er erfitt að gleyma dúkkunni Chucky.
Cuba Gooding Jr. var áberandi leikari á tíunda ára-tugnum. Hann hóf leikferil sinn sem barn þarsem hann átti meðal annars lítil hlutverk í sjón-
varpsþáttunum Macgyver og kvikmyndinni Coming to
America, en hann skaust fram á sjónarsviðið árið 1991 í
fyrsta aðalhlutverki sínu sem Tre Styles í gettó-
dramanu Boyz n the Hood sem hlaut góðar
viðtökur. Í kjölfarið fékk hann aukahlutverk
í nokkrum stórmyndum, þar á meðal A Few
Good Men með Tom Cruise, Demi Moore
og Jack Nicholson. Hápunktur ferilsins
var svo þegar Gooding lék aftur á móti
Tom Cruise í Jerry Maguire sem kom út
1996. Fyrir leik sinn í myndinni sem
NFL-leikmaðurinn Rod Tidwell fékk
Gooding Óskarsverðlaun sem besti leik-
ari í aukahlutverki.
Eftir Jerry Maguire lék Gooding aft-
ur á móti Jack Nicholson í hinni vel
heppnuðu As Good as it Gets, en ferill
hans varð brokkgengari eftir því sem á
leið. Gooding lék í fjölbreyttum myndum
sem nutu mismikillar velgengni. Hann
lék í dramatískum myndum eins og Men
of Honor og Pearl Harbor sem og gaman-
myndum eins og Rat Race. Margar myndir
hans á þessum tíma fengu slæma dóma, þar
á meðal Daddy Day Camp og Snow Dogs. Í
kjölfarið fóru þær myndir sem Gooding lék í
flestar beint á myndbandaleigurnar.
Í nýlegu viðtali segir Gooding stærstu mistök sín hafa
verið að hlusta ekki á Cameron Crowe, leikstjóra Jerry
Maguire, sem sagði honum að taka bara að sér hlutverk hjá
góðum leikstjórum. „Ég sagði nei við marga góða leik-
stjóra. Á endanum gáfust þeir upp á að bjóða mér hlut-
verk.“ Upp á síðkastið hefur ferill Cuba verið á uppleið á ný,
einna helst í sjónvarpi, en hann fék lof fyrir hlutverk sitt
sem OJ Simpson í þáttunum American Crime Story: The
People vs. OJ Simpson.
HVAÐ VARÐ UM:
Cuba Gooding Jr.
Fjörugir sleðahundarnir í Snow Dogs áttu þátt í að draga
efnilegan feril Goodings á myndbandaleigurnar.
Cuba
Gooding
Jr.?
Cuba Gooding Jr. froðubaðar sig í hlutverki sínu sem Rod Tidwell í Jerry Maguire.
lækka upphitunarkostnað
Rafstjórn tekur út og þjónustar
kæli- og loftræstikerfi
Varmadælur
Stangarhyl 1A • 110 Reykjavík • Sími 587 8890 • rafstjorn.is
Verð frá kr.
181.890 m/vsk
Undirbúningsstyrkir og styrkir til minni
sýningarverkefna allt að 500.000 kr.
Styrkir til stærri sýningarverkefna,
útgáfu-/rannsóknarstyrkir og aðrir
styrkir allt að 2.000.000 kr.
M
yn
dl
is
ta
rs
jó
ðu
r
Veittir verða
Upplýsingar um myndlistarsjóð,
umsóknareyðublað, úthlutunarreglur
og leiðbeiningar er að finna á vefsíðu
myndlistarráðs, myndlistarsjodur.is
Úthlutað verður í september
Úthlutað er tvisvar úr sjóðnum árinu 2018
Umsóknarfrestur er til miðnættis 20.ágúst 2018
Opnað verður
fyrir umsóknir
í myndlistarsjóð
9. júlí