Morgunblaðið - 16.08.2018, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 16.08.2018, Blaðsíða 41
41 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 2018 Litbrigði Öll él birtir upp um síðir, segir máltækið, og hvað sem sumrinu líður leynast mörg gullkorn í náttúrunni. Í Húnavatnssýslu má til dæmis sjá hesta setja skemmtilegan svip á umhverfið. Eggert Rétt fyrir þinglok samþykkti Alþingi frumvarp mitt um ný persónuverndarlög sem innleiða reglugerð ESB um sama efni (skammstöfuð GDPR). GDPR kom til fram- kvæmda 25. maí í ESB. Þingmenn höfðu sumir á orði að frum- varpið hefði komið of seint fram og því gæfist þeim lítill tími til að ræða það efnislega. Ég benti hins vegar á að í raun hefði ég lagt málið fram of snemma en tók undir að æskilegt hefði verið að málið hefði fengið lengri tíma hjá þinginu. Þessi málsmeðferð á sér hins vegar skýringu. Síðan þá hefur borið á gagnrýni á form innleið- ingarinnar, þ.e. að ekki hafi verið stuðst við svokallað tveggja stoða kerfi EES-samningsins. Sú gagn- rýni er ekki ný af nálinni og kann að eiga rétt á sér en það er þó ekki ein- hlítt. Innleiðingin gaf mér hins veg- ar tilefni til þess að íhuga stöðu ís- lenskrar löggjafar í því alþjóðasamstarfi sem við eigum. Málsmeðferðin Það er óvenjulegt að frumvarp til laga sem ætlað er að innleiða lög- gjöf ESB á grundvelli EES- samningsins sé lagt fram á Alþingi áður en viðkomandi löggjöf er form- lega tekin upp í EES-samninginn. Það var ekki fyrr en 6. júlí sl. sem GDPR var tekin upp í EES- samninginn. Ólíkt flestum gerðum ESB sem Ísland þarf að taka upp á vettvangi EES kveður GDPR á um háar sektir á fyrirtæki sem ekki hlíta gerðinni og miðla persónu- upplýsingum til ríkja sem ann- aðhvort hafa ekki innleitt GDPR (í tilviki ríkja á EES-svæðinu) eða hafa fengið sérstaka vottun er lýtur að persónuvernd (Bandaríkin eru dæmi um slíkt ríki en Kína ekki). Evrópskir aðilar hefðu því þurft að hugsa sig tvisvar um áður en per- sónuupplýsingum var miðlað til m.a. íslenskra aðila eftir að GDPR var tekin upp í EES-samninginn í júlí ef gerðin hefði þá ekki samhliða verið komin inn í landslög. Af þessum sökum taldi ég nauðsynlegt að tryggja að frumvarpið yrði að lög- um ekki síðar en þegar GDPR yrði tekin upp í EES. En hefði frumvarpið getað komið fyrr fram? Nei, ekki svo nokkru nemi, því að forsenda framlagningar þess var að fyrir lægi með hvaða hætti og hvenær GDPR yrði tekin upp í EES-samninginn. Í þeim efn- um var það skýr afstaða Íslands að reyna til þrautar með samkomulagi við samstarfsríki okkar í EES að byggja á hefðbundnum aðferðum EES-samningsins, tveggja stoða kerfinu. Það lá ekki fyrir fyrr en um áramót að ekki var samstaða um það, hvorki af hálfu EFTA- ríkjanna né ESB. Það var svo ekki fyrr en í apríl að drög að texta fyrir upptöku GDPR í EES-samninginn lá fyrir. Í kjölfarið lagði utanríkisráðherra fram þingsályktunartillögu um heimild til þess að taka GDPR upp í EES-samninginn. Í forföllum utanríkisráðherra mælti ég fyrir tillögunni samhliða fram- sögu um frumvarp mitt. Það hefði verið enn undarlegra fyrir Alþingi að fjalla um frumvarp mitt áður en tillaga utanríkisráðherra var kynnt. EES-samningurinn EES-samningurinn einkennist af því að vera tveggja stoða kerfi þar sem EFTA-stoðin er látin spegla samsvarandi stofnanir Evrópusam- bandsins. Þannig höfum við tryggt forræði á ákvörðunum okkar í sam- hengi við EES-samninginn eins og hægt er og því hafa íslensk stjórn- völd ætíð lagt mikla áherslu á að viðhalda því kerfi. Með upptöku GDPR í EES-samninginn var vikið frá tveggja stoða aðferðinni og þess í stað er það evrópska persónu- verndarráðið sem getur tekið ákvarðanir er lúta að túlkun persónuverndarreglugerðarinnar og sem binda Persónuvernd á Íslandi. Evrópska persónuverndarráðið er nefnd forstjóra allra persónuvernd- arstofnana EES-ríkjanna auk þess sem fulltrúar Evrópsku persónu- verndarstofnunarinnar og fram- kvæmdastjórnar ESB eiga þar seturétt. Við umfjöllun um hið nýja persónuverndarfrumvarp komu fram efasemdir um að sú einnar stoðar nálgun sem valin var stæðist stjórnarskrá og því er nauðsynlegt að skýra þetta mál nánar. Stjórnarskráin Upp úr aldamótum hófst þróun í ESB þar sem aukin áhersla var lögð á að koma á fót sameiginlegum stofnunum sem höfðu það markmið að aðstoða framkvæmdastjórn ESB við framkvæmd og þróun Evr- ópulöggjafar á ýmsum sérsviðum. Fyrst þessara stofnana var Mat- vælastofnun Evrópu (EFSA), þá Siglingamálastofnun Evrópu (EMSA) og Flugöryggisstofnun Evrópu (EASA). Þessar stofnanir hafa fremur takmarkaðar valdheim- ildir en þó getur EASA tekið ákvarðanir sem eru bindandi fyrir aðildarríki og lögaðila í aðildarríkj- unum, svo sem flugvélaframleið- endur og flugrekstraraðila. Í kjölfar 2008-kreppunnar var svo komið á fót stofnunum á sviði fjármálaréttar sem hafa ýmiss konar heimildir til að binda stjórnvöld og lögaðila, þ. á m. fjármálafyrirtæki á Íslandi. Íslensk stjórnvöld hafa alltaf lagt mikla áherslu á að tryggja að vald til ákvarðana á sviði EES-mála fari ekki til stofnana ESB heldur haldist innan stofnana í samstarfi okkar, sem eru helstar EFTA-skrifstofan, Eftirlitsstofnun EFTA og EFTA- dómstóllinn. Þetta er tveggja stoða kerfið í hnotskurn. Rétt er þó að hafa í huga að EES-samningurinn bannar ekki að vikið sé frá tveggja stoða kerfinu í einstaka málum, enda hefur það verið gert nokkrum sinnum og stofnunum ESB þannig falið að setja reglur sem gilda á öllu EES-svæðinu. Þegar GDPR kom til umræðu fór fram ítarleg greining á möguleikum okkar til aðildar að regluverki ESB. Þar sem slíkar lausnir þurfa að vera ákveðnar í samráði við samstarfs- ríki okkar lagði EFTA-skrifstofan fram fjórar mismunandi leiðir til að tryggja aðild okkar að evrópska persónuverndarráðinu. Fyrsta leið- in, sem á endanum varð fyrir valinu, var að við ættum aðild að ráðinu og hlytum úrskurðum þess án sér- stakrar aðlögunar á grundvelli EES-samningsins. Önnur leiðin fól í sér hina hefðbundnu tveggja stoða lausn þar sem Eftirlitsstofnun EFTA tæki hina bindandi ákvörðun samhliða ákvörðun evrópska persónuverndarráðsins og þær yrðu samhljóða. Sú þriðja var að evr- ópska persónuverndarráðið gæti tekið ákvarðanir sem væru ekki bindandi heldur myndi stjórnvald EFTA-ríkisins sjálft taka ákvörðun sem hefði hliðsjón af ákvörðun ráðs- ins. Og að lokum var sá kostur að EFTA myndi spegla evrópska per- sónuverndarráðið með sínu eigin ráði. Í ljósi afdráttarlausrar afstöðu ESB var það bara fyrsti kosturinn sem kom raunverulega til álita. Hér er um flókið samspil Evrópu- réttar og íslenskrar stjórnskipunar að ræða. Stefán Már Stefánsson prófessor emeritus var fenginn til að kanna þá kosti sem í boði voru. Álitsgerð hans, sem byggði að veru- legu leyti á fyrri rannsóknum hans og Bjargar Thorarensen prófessors frá árinu 2012, sagði að sennilega væri tveggja stoða leiðin heppileg- ust en fyrsta leiðin sem valin var gæfi ekki gott fordæmi. Þó gætu all- ar þær leiðir sem skoðaðar voru staðist íslenska stjórnskipan. Að sömu niðurstöðu komust aðrir sér- fræðingar á sviði EES-réttar sem leitað var til. Þegar kom að samráði innan EFTA-ríkjanna kom í ljós að Norð- menn vildu hafa náið samstarf við Evrópska persónuverndarráðið um túlkun persónuverndarreglugerðar ESB og því hugnaðist þeim í raun bara fyrsti kosturinn. Róðurinn við að tryggja tveggja stoða kerfið var því þungur og niðurstaða samninga- viðræðna samstarfsríkja okkar og ESB varð fyrsta leiðin sem lýst var hér á undan. Það er þó tekið skýrt fram af öllum samningsaðilum EES-samningsins með sérstakri yfirlýsingu að hér sé ekki um for- dæmi að ræða. Að sjálfsögðu er yf- irlýsing sem þessi ekki bindandi. Hún skiptir hins vegar máli í sam- starfi okkar í EES, sem er í stöð- ugri þróun. Þá er rétt að geta þess að komið var til móts við Ísland að nokkru leyti með því að við höfum rýmri heimildir til að koma sjón- armiðum okkar á framfæri innan stjórnar Evrópska persónuvernd- arráðsins við ákvarðanatöku en venjan er í sambærilegum ráðum. Þetta ferli, sem var á forræði utanríkisráðuneytisins sem EES- mál en dómsmálaráðuneytis sem persónuverndarmál, var unnið í nánu samráði við Alþingi og í mars 2018 samþykkti utanríkismálanefnd Alþingis þá leið sem valin hafði ver- ið eftir nákvæma skoðun á kostum okkar og álitsgerðum helstu sér- fræðinga. Fyrir liggur einnig ein- róma álit stjórnskipunar- og eftir- litsnefndar Alþingis um að það framsal valds til Evrópska persónu- verndarráðsins sem GDPR kvæði á við um væri vel afmarkað og hvorki íþyngjandi fyrir ríki né einstaklinga. Hvers eðlis er framsalið? Staða Íslands gagnvart ákvörð- unum Evrópska persónuverndar- ráðsins skiptir miklu máli. Íslensk stjórnvöld hafa seturétt í ráðinu með tillögurétt en án atkvæð- isréttar. Hins vegar er afstaða landsins færð til bókar í fundargerð og við töku ákvarðana. Heimildir Evrópska persónuverndarráðsins til töku ákvarðana lúta eingöngu að því hvernig túlka beri efnisákvæði GDPR. Að þessu leyti er nið- urstaðan í reynd ekki svo ólík því sem gildir á tilteknum öðrum svið- um þar sem íslensk stjórnvöld hafa fallist á að alþjóðlegir dómstólar og stofnanir geti túlkað tiltekna al- þjóðlega sáttmála sem Ísland á aðild að. Það myndi sennilega ekki hvarfla að íslenskum dómara að túlka Mannréttindasáttmála Evr- ópu með öðru lagi en talið er heimilt og skylt samkvæmt dómafram- kvæmd Mannréttindadómstóls Evr- ópu. Eitt þeirra meginákvæða sem Ís- land hefur undirgengist er holl- usturegla 3. gr. EES-samningsins, sem felur í sér að samningsaðilar, þ. á m. Ísland, skuli gera allar viðeig- andi almennar eða sérstakar ráð- stafanir til að tryggja að staðið verði við þær skuldbindingar sem af samningnum leiðir. Aðilar samn- ingsins skulu varast ráðstafanir sem teflt geta því í tvísýnu að mark- miðum samningsins verði náð. Í næstum öllum tilvikum ber því ís- lenskum stjórnvöldum að fara að túlkun Evrópska persónuverndar- ráðsins án tillits til þess hvaða út- færsla af hinum fjórum mögulegu hefði orðið fyrir valinu til að tryggja aðild okkar að persónuverndar- regluverki ESB og hvort heldur bindandi ákvörðun væri tekin af EFTA, Eftirlitsstofnun EFTA eða Persónuvernd. Hér er því enn sem komið er um formlegt álitamál að ræða fremur en efnislegt. Framhald EES Með persónuvernd er leitast við að tryggja þau grundvallarmann- réttindi sem friðhelgi einkalífs er. Það er mikilvægt að Íslendingum sé búin sama réttarvernd og borgurum ESB-ríkja. Um leið er mikilvægt að tryggja að íslensk fyrirtæki hafi sömu möguleika á að vinna með og miðla persónuupplýsingum og önn- ur fyrirtæki á EES-svæðinu. Þessi sjónarmið vógu þyngst við úrlausn þessa máls, bæði af hálfu utanríkis- ráðherra og mín. Á hinn bóginn er ekki óeðlilegt að rædd sé framtíð EES í ljósi þróunar ESB sem hér hefur verið lýst. ESB hefur reyndar frá upphafi tekið sí- felldum breytingum. Þeir sem skuldbundu Ísland á vettvangi EES máttu hafa gert sér grein fyrir því og þá um leið að sú stöðuga þróun kynni að hafa áhrif á samstarfið við EES-ríkin. Þá hafa stjórnskipunar- leg álitaefni blasað við Íslandi frá því að EES-samningurinn öðlaðist lagagildi hér árið 1993, bæði al- mennt og í einstökum tilvikum. Al- þingi tók hins vegar ákvörðun um þátttöku okkar í EES og við höfum svarað einstökum álitaefnum einnig með ákvörðunum Alþingis. Það breytir því ekki að það er sjálfsagt og eðlilegt að velta fyrir sér á hverj- um tíma hvort það gjald sem Ísland greiðir fyrir þátttöku í EES, m.a. í því formi að sætta sig við úrskurðarvald utan Íslands fremur en að reka sjálft enn eina ríkisstofn- unina, skilar árangri fyrir þjóðina. Það sama á reyndar við um allt það alþjóðasamstarf sem Ísland á í. Eftir Sigríði Á. Andersen » Það er mikilvægt að Íslendingum sé búin sama réttarvernd og borgurum ESB-ríkja. Um leið er mikilvægt að tryggja að íslensk fyrir- tæki hafi sömu mögu- leika á að vinna með og miðla persónuupplýs- ingum og önnur fyrir- tæki á EES-svæðinu. Sigríður Á. Andersen Höfundur er dómsmálaráðherra. EES og fullveldi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.