Morgunblaðið - 16.08.2018, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 16.08.2018, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 2018 Fæst í Apóteki Garðabæjar og Lyfjaveri Suðurlandsbraut Sælir, kæru foreldrar. Þetta eru að- stæður sem ansi margir foreldrar geta tengt við. Áður en farið er í ein- hverjar aðgerðir er mikilvægt, eins og alltaf ef við ætlum að breyta hegðun barna, að byrja á því að kortleggja stöðuna vel. Fyrir það fyrsta þarf þetta ekki að vera vanda- mál. Margir foreldrar hafa ekkert á móti því að barnið sofi upp í og á meðan það hefur ekki neikvæð áhrif á svefn barns og foreldra og er ekki að hamla barninu í því að gista til dæmis hjá ömmu og afa er kannski engin ástæða til að bregðast við. Þreytandi að fá tær í nasir og olnboga í auga Barnið mun að öllum líkindum vaxa upp úr því að vilja sofa uppi í hjá foreldrum. Stundum eru það nefnilega foreldrarnir sem eiga erf- itt með að sleppa þessu taki af ung- unum sínum. Ef þið eruð hins vegar orðin uppgefin á því að fá litlar tær í nasirnar og olnboga í augað, eða að vakna úti á brún í ykkar eigin rúmi og geta ykkur hvergi hrært, horfir málið öðruvísi við. Svefn er fjölskyldunni nefnilega afar mikilvægur, sérstaklega yngstu meðlimunum, því að þreyta getur haft mikil áhrif á skap og líðan. Því fyrr sem við komum á góðum svefn- venjum, þeim mun betra. Eins og með allar aðrar breytingar í lífi barna er undirbúningur hjálplegur. Gott er að fara yfir með barninu áð- ur en til breytinganna kemur hvað er fram undan og mikilvægt er að barnið finni að foreldrarnir hafi fulla trú á því að þetta sé verkefni sem barnið ræður við. Oft er gott að tengja svona nýjar venjur við einhverjar nýjar að- stæður, til dæmis ef barnið fær nýtt rúm eða nýtt sængurverasett (með uppáhalds ofurhetjunni sinni) eða aðrar breytingar eru gerðar á her- berginu. Eins og alltaf er rútína af hinu góða og er gott að nýta tæki- færið þegar svona breytingar eru gerðar og skapa góðar venjur í kringum svefnrútínuna ef hún er ekki eins og við viljum hafa hana. Breyttar aðstæður fyrir barn eru þroskaferli Til dæmis að lesa bók með for- eldri í stutta stund, fá svo knús og söng eða hvað sem ykkur hugnast vel og er raunhæft fyrir ykkur. Og eins og alltaf þegar við viljum sjá breytta hegðun hjá börnunum okkar er mikilvægt að við séum samkvæm sjálfum okkur. Það getur verið freistandi að leyfa barninu að sofa uppi í bara eina nótt en þá þurfum við líka að vera meðvituð um að við getum verið að fara nokkur skref til baka í því ferli sem hafið er. Það getur tekið á að halda út svona breytingaferli og þá getur verið gott að hafa það á bak við eyrað að með því að aðstoða börnin okkar við að takast á við svona breytingar erum við að skapa þeim tækifæri til að æfa sig í því að takast á við breyttar aðstæður, sem er færni sem mun sannarlega nýtast þeim vel á lífsleið- inni. Gangi ykkur vel! Nætursvefninn. Fimm ára barn skríður upp í á nóttunni og foreldrarnir eru búnir að fá nóg. Fimm ára og neitar að sofa í eigin rúmi Ung hjón í Kópavogi eiga fimm ára son sem hefur yf- irtekið hjónarúmið. Þau hafa lesið sér til, gúgglað og reynt ýmis ráð til fá hann til að sofa í eigin rúmi en hann kemur alltaf upp í á nóttunni. „Annaðhvort tökum við ekki eftir því eða erum of þreytt til að standa í stappi við hann um miðja nótt.“ Hvað er til ráða? Ljósmynd/Thinkstock Emil Hallfreðsson knattspyrnu- kappi er flestum fótboltaáhuga- mönnum þessa lands, sem er nokkurn veginn öll íslenska þjóð- in, vel kunnur eftir frækilega frammistöðu sína og félaga á HM í Rússlandi í sumar. Færri vita að Emil er mikill fjölskyldumaður, en hann á tvö börn með konu sinni Ásu Maríu Reginsdóttur, þau Emanuel sex ára og Andreu Alexu tveggja ára. Hér deilir hann fimm af bestu uppeld- isráðum sínum með lesendum Fjölskyldunnar. 1 Ómæld ást Mikilvægast af öllu er auðvitað að sýna þeimómælda ást, koma fram við þau af virðingu og hlúa að þeim svo þau vaxi og dafni sem best. Ég vil meina að það sé mikilvægast af öllu að þau finni fyrir því að þau séu elskuð og viðurkennd eins og þau eru. 2 Að gefa þeim tíma Ég hef takmarkaðan tíma eins og flestirforeldrar en ég nýti hvert tækifæri til að vera með þeim. Oft er ég hundþreyttur eftir erfiðar æfingar/leiki en skutla þeim alltaf í skólann/leikskólann á morgnana. Pabbi sér um sína. 3 Að viðurkenna tilfinningar barnanna Börn þurfa að fá við-urkenningu á tilfinningum sínum rétt eins og við fullorðna fólkið. Grátur er af hinu góða og þannig fá þau útrás fyrir til- finningar sínar og líður betur eftir á. Að vera til staðar fyrir þau í blíðu og stríðu styrkir sambandið. 4 Kvöldbænir Við gefum okkur alltaf tíma til að fara meðkvöldbænirnar. Þá þökkum við Guði fyrir daginn, biðjum fyrir fjölskyldu, vinum og hinum ýmsu dýrum og fyrir morg- undeginum. Þessi stund er mér mjög mikilvæg og börnin fara að sofa umvafin kærleika og friði. 5 Minn tími einn með börnunum Það hljómar eigingjarnt enég fæ ekki mikinn tíma einn með börnunum. Ég bý mér því sem oftast til stundir þar sem við förum þrjú út, setjumst inn á kaffibar, ræðum málin og fáum okkur eitthvað gott að borða, því meira Nutella, því betra. Morgunblaðið/Eggert 5 UPPELDISRÁÐ Emils Hallfreðssonar Uppeldisráð Hér má sjá Emil Hallfreðsson, leikmann númer 20, í hörkubaráttu í leik Íslands og Króatíu í HM í Rússlandi. Spurningum sem berast Fjölskyld- unni á mbl.is svar- ar SÓL sálfræði- og læknisþjón- usta en þar starfar hópur fagfólks sem leggur metnað sinn í að veita börnum, ungmennum og fjöl- skyldum þeirra góða þjónustu. Nánari upplýsingar á www.sol.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.