Morgunblaðið - 16.08.2018, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 16.08.2018, Blaðsíða 50
50 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 2018 ✝ Kristín Guð-mundsdóttir fæddist á fæðing- ardeild Landspít- alans 19. desember 1957. Hún lést á líknardeild Land- spítalans í Kópa- vogi 2. ágúst 2018. Foreldrar henn- ar voru Guðmund- ur Kristjánsson, f. 18. maí 1928, d. 27. júlí 2007, og Jóna Þorsteins- dóttir, f. 25. mars 1930, d. 9. október 1996. Systkini Kristínar eru Margrét Guðmundsdóttir, f. 1953, maki hennar er Jón Guð- börn, Aron Daða Heimisson, f. 6. júní 2012, og Emilíu Diljá Heimisdóttur, f. 13. september 2017. Kristín ólst upp í Grindavík og gekk í Grunnskóla Grinda- víkur og fór svo í Héraðsskólann á Laugarvatni. Hún vann ýmis störf bæði í Reykjavík og Grindavík, m.a. í Gleraugna- versluninni Linsunni, Lands- bankanum, Íslandsbanka, Þor- birni og núna síðast sem skólaritari hjá Grunnskóla Grindavíkur. Kristín var mikil félagsvera og var hún m.a. í Kvenfélagi Grindavíkur í mörg ár og stofnaði hún félagið Birt- una ásamt Sveini Árnasyni sem er stuðningsfélag krabbameins- sjúkra í Grindavík. Útför Kristínar fer fram frá Grindavíkurkirkju í dag, 16. ágúst 2018, og hefst athöfnin klukkan 14. mundsson, f. 1952, Hermann Þorvald- ur Guðmundsson, f. 1961, maki hans er Kristín Edda Ragn- arsdóttir, f. 1961. Kristín giftist Hilmari Sigurðs- syni, f. 1947, þau skildu. Kristín eignaðist með Hilmari tvo syni, Heiðar Má Hilm- arsson, f. 26. febrúar 1991, og Heimi Daða Hilmarsson, f. 25. maí 1994. Unnusta Heimis Daða er Sara Stefánsdóttir, f. 22. nóv- ember 1994, og eiga þau tvö Elsku yndislega tengdamóðir mín. Það er svo margt sem ég get þakkað þér fyrir, þú skildir svo mikið eftir sem hefur gert mig að betri manneskju. Samband okkar var einstakt, þú varst mér eins og önnur móðir. Þú þekktir fatastíl- inn minn og keyptir stundum „Söruleg“ föt á mig. Við vorum svo góðar vinkonur. Við gerðum svona stelpulega hluti saman og þú elskaðir þegar við áttum stelpuspjall, enda áttu tvo syni sem voru ekki alveg í svoleiðis spjalli, þú veist hvað ég meina. Ég er svo þakklát fyrir allar stundirnar okkar saman, allar sumarbústaðaferðirnar, Spánar- ferðin og auðvitað stelpnaferðin til Glasgow. Ég, þú og mamma mín keypt- um okkur allar alveg eins náttkjól og áttum svo dýrmætar stundir saman í ferðinni. Ég er svo stolt að hafa gefið þér tvö barnabörn sem elska þig svo mikið og líta upp til þín. Þú varst svo góð amma og gerðir allt fyrir litlu ömmubörnin þín. Ef ömmustrákurinn þinn vildi fá vöfflur gerðirðu það án þess að blikka. Þið áttuð svo góðan tíma saman og gisti hann ótal sinnum hjá elsku ömmu sinni, þér fannst svo gott að hafa hann hjá þér. Þú náðir að vera viðstödd fæðingarn- ar þeirra og hlakka ég til að segja þeim frá því þegar þau verða eldri. Þú varst svo spennt að eign- ast litla ömmustelpu og að kaupa kjóla á hana. Þú náðir að kaupa einn fallegan kjól á litlu stelpuna okkar í síðustu ferðinni þinni til Akureyrar. Þann kjól ætla ég að varðveita vel og láta hana vera í honum á eins árs afmælinu sínu, hún verður svo falleg í honum. Ég gæti skrifað heila bók um þig og hvað þú varst mér kær. Minning þín er ljós í lífi okkar. Ég lofa að passa vel upp á strákana þína og vera til staðar fyrir þá. Ég lofa að passa vel upp á ömmubörnin þín og segja þeim sögur af yndislegu ömmu þeirra. Ég lofa að gera mitt besta og trúi ég því að þú fylgist með okkur. Takk fyrir að taka mér svona vel inn í fjölskylduna ykkar, það er eins og ég hafi alltaf verið með ykkur. Ég elska þig, Kristín mín, og söknuðurinn er óbærilegur. Sjáumst seinna. Hetja varst’ til hinstu stundar heilbrigð lundin aldrei brást. Vinamörg því við þig funda vildu allir, glöggt það sást. Minningarnar margar, góðar mikils nutum, bjarminn skín. Bænir okkar heitar hljóðar með hjartans þökk við minnumst þín. (María Helgadóttir) Þín tengdadóttir Sara. Í dag verða sporin sérstaklega þung, því nú ætlum við að kveðja eitt hið fallegasta fljóð sem Ísland hefur alið, yndislega fallega manneskju, sem var tekin allt of fljótt frá okkur. Við ætlum að fylgja henni síðustu sporin, minn- ast hennar sem hugrakkrar og stoltrar konu sem aldrei barði sér á brjóst eða tróð sér fram fyrir aðra, hvað þá kvartaði yfir veik- indum sínum. Æðruleysið var hennar aðalsmerki. Hún miðlaði miklu, auðgaði líf okkar allra sem henni kynntumst. Fallega sólin hennar Kristínar er gengin til viðar, margra ára þrotlausri hetjulegri baráttu við krabbamein er lokið, þjáningar og verkir eru að baki. Sorgin og sökn- uður heltekur okkur, við beygjum af. Það eru dimmir dalir fram und- an, en það koma ljós sem við verð- um að fylgja eftir sem munu leiða okkur og lýsa okkur á réttan veg. Við hjónin kynntumst Kristínu fyrir sjö árum, þegar börnin okkar Sara og Heimir Daði rugluðu sam- an reytum sínum, saman eignuðust þau soninn Aron Daða sem var augasteinn okkar hjóna og auðvit- að ömmu Kristínar, lífið var svo fallegt. Heimsóknir Kristínar til okkar urðu tíðar, varð mikill kærleikur og vinskapur á milli fjölskyldna okkar enda ekki annað hægt því með Kristínu kom svo mikil hlýja og vinarþel til okkar að það var eins og við höfðum alltaf þekkst. Ást hennar og kærleikur til ný- fædds sonarsonar síns og unga parsins var svo fallegur og hug- ljúfur að það renna tár niður kinn- ar þeirra sem þetta rita. Ófá voru matar- og kaffiboðin sem við áttum saman. Ógleymanlegar sumarbú- staðarferðir þar sem spjallað var um heimsmálin og framtíð barnanna okkar. Sumarið 2016 fór- um við í ógleymanlega ferð með Kristínu til Spánar með börnum okkar, barnabarni og æskuvinkon- um Kristínar, gleðigjöfunum Gunnu Báru og Öbbu sem hafa ásamt fleirum vinkonum staðið sem klettar við hlið Kristínar, stutt hana á allan hátt í veikindum henn- ar, slegið um hana verndarhring, umvafið hana kærleik og ást, Ynd- islegir vinir. Megið þið allar saman hafa þökk fyrir, Guð blessi ykkur. Undanfarin jól höfum við átt saman, hlustað á jólaguðspjallið og borðað góðan mat, fallegar stundir sem gleymast ei. Nú verður allt breytt, jólin verða ekki söm sem fyrr, snjórinn mun falla öðruvísi. Yndislegar fallegar minningar um Kristínu okkar munu ávallt lifa með okkur, minningar sem við munum nú ylja okkur við og ávallt geyma í hjörtum okkar um ókomna tíð. Elsku Kristín mín, nú er komið að leiðarlokum, faðmlag þitt á afmælisdegi barnabarnsins okkar í júní var þétt og sterkt, ég vissi það í hjarta mínu að þetta var í síðasta sinn sem ég fengi að faðma þig. Þakka þér fyrir alla vináttuna og kærleikann til okkar hjóna. Við munum gera allt sem við getum til að styðja og styrkja unga fólkið okkar og barnabörnin okkar eins mögulega og við getum. Guð blessi minningu þína, þú verður ávallt í hjarta okkar um ókomna tíð. Við hjónin sendum sonum Kristínar, systkinum og fjölskyldu þeirra innilegar samúðarkveðjur. Guð blessi minningu Kristínar Guðmundsdóttur. Við sjáumst seinna í draumalandinu, kæri vin- ur. Stefán Sturla og Inga Ingólfsdóttir. Elsku Kristín okkar. Minning um yndislega manneskju lifir. Þú snertir hjörtu okkar á lífsleið þinni með góðmennsku og hlýju. Endalausar minningar skjóta upp kollinum við þessi skrif. Heim- sóknirnar til þín í Njörvasundið til stóru frænku og þaðan í Klukku- bergið og svo strákanna sem voru þá komnir í líf þitt og okkar. Ég minnist mikillar ánægju þegar þið fluttuð svo til okkar suður til Grindavíkur og gleðistundunum fjölgaði ört, og allra góðu minn- inganna úr Mánasundinu. Líf þitt einkenndist af baráttu við þennan hræðilega sjúkdóm sem þú tókst á við af ótrúlegu æðruleysi og virðingu í öll þessi ár. Aldrei man ég til þess að hafa heyrt þig kvarta eða vera undir- gefin þessum sjúkdómi, sem lýsir þér einstaklega vel. Þú varst sannkölluð hetja. Þegar kallið kom var erfitt að takast á við það. Síðustu dagana var gott að vera hjá þér, enda hafðir þú svo góða nærveru. Nú er kominn tími til að kveðja í bili en við sjáumst síðar í sumarlandinu. Þú gengin ert hugglöð á frelsarans fund og fagnar með útvaldra skara, þar gleðin er eilíf, þar grær sérhver und. Hve gott og sælt við hinn hinsta blund í útbreiddan faðm Guðs að fara. Nú kveðja þig vinir með klökkva og þrá því komin er skilnaðarstundin. Hve indælt það verður þig aftur að sjá í alsælu og fögnuði himnum á, er sofnum vér síðasta blundinn.. (Hugrún) Elsku Heiðar Már, Heimir Daði, Sara og börn, innilegar sam- úðarkveðjur til ykkar á þessari sorgarstundu. Okkar litla fjöl- skylda stendur með ykkur á þess- um erfiðu tímum sem og um ókomna framtíð. Kveðja, Birkir, Inga og börn. Elsku Kristín okkar. Alltaf hefur þú verið stór hluti af lífi okkar og höfum við eiginlega litið á þig sem eina af ömmum okkar. Við höfum alltaf litið upp til þín vegna þess hve sterk og flott þú varst og munt þú alltaf vera fyr- irmynd okkar. Þú varst alltaf svo jákvæð og gerðir alltaf svo gott úr öllu. Við söknum þín mikið og munum allt- af elska þig. Hún var einstök perla. Afar fágæt perla, skreytt fegurstu gimsteinum sem glitraði á og gerðu líf samferðamanna hennar innihaldsríkara og fegurra. Fáar perlur eru svo ríkulega búnar, gæddar svo mörgum af dýrmætustu gjöfum Guðs. Hún hafði ásjónu engils sem frá stafaði ilmur umhyggju og vináttu, ástar og kærleika. Hún var farvegur kærleika Guðs, kærleika sem ekki krafðist endur- gjalds. Hún var vitnisburður um bestu gjafir Guðs, trúna, vonina, kærleikann og lífið. Blessuð sé minning einstakrar perlu. (Sigurbjörn Þorkelsson) Margrét Fríða, Viktor Örn og Rebekka Rut. Elsku Kristín frænka mín (móðursystir) hefur kvatt þessa jarðvist. Mikið er þetta skrítið og í raun enn svo óraunverulegt. Þótt að maður vissi í hvað stefndi er mað- ur aldrei viðbúinn þegar að enda- lokum kemur. Við vorum mjög nánar og oft á tíðum héldu margir að hún væri mamma mín eða stóra systir. Það var ekkert smá spennandi þegar ég var unglingur að skreppa til hennar í heimsókn þegar hún bjó í Reykjavík og gista og fara með henni í bíó og gera eitthvað skemmtilegt saman. Hún og vinkonur hennar voru svo miklar pæjur og maður leit mikið upp til þeirra. Þegar ég var orðin eldri urðum við meiri vin- konur og á tímabili bjó ég líka í bænum og var þá dugleg að fara í heimsókn til hennar og fjölskyldu hennar í Klukkubergið í Hafnar- firði. Mikið var ég glöð þegar þau ákváðu að flytja til Grindavíkur, en þá var ég sjálf flutt þangað og var að stofna mína fjölskyldu. Hún eignaðist tvo yndislega syni sem eru mér svo kærir og voru stolt hennar og yndi. Mikil var gleði hennar líka þegar hún eignaðist barnabörnin sín tvö og svo dásamlega tengdadóttur sem Kristín talaði um að það væri bara eins og hún hefði alltaf verið hjá þeim. Ein af síðustu samverum okkar var svo í júní þegar Heiðar Már útskrifaðist frá HÍ og mikið var hún stolt af honum og að ná að vera viðstödd útskriftina hans. Þegar ég eignaðist mín börn var hún mikið til staðar og hjálp- aði til þegar mikið gekk á. Börnin mín litu á hana sem sína þriðju ömmu, en hún var þeim svo góð og var alltaf svo stolt af öllum afrek- um þeirra. Hún kom með á dans- sýningar, íþróttamót og ýmsa við- burði í skólanum og var ekki spör á hrós og hvatningarorð til þeirra. Hún var mikil félagsvera og kom með mér í Sjálfstæðisfélag Grindavíkur. Það var skemmtileg- ur tími og gaman að geta deilt þessu áhugamáli með henni. Þeg- ar veikindin voru farin að draga af henni dró hún sig úr starfinu en spjallaði oft við mig um pólitíkina. Við náðum líka að vera sam- starfskonur þegar hún fór að vinna í grunnskólanum, það var alveg frábært að ná alltaf að hitta hana á hverjum degi í annríkinu. Hún hafði alveg yndislega nær- veru og var mjög jákvæð mann- eskja. Hún greindist með krabba- mein fyrst árið 1995. Baráttan hennar stóð yfir í 23 ár. Hún átti Kristín Guðmundsdóttir ✝ Einar KristjánGuðmundsson fæddist í Reykjavík 16. september 1991. Hann lést 2. ágúst 2018. Foreldrar Ein- ars Kristjáns eru Guðmundur Gunn- arsson, f. 24. júlí 1967, og Ingifríður Ragna Skúladóttir, f. 4. október 1967. Synir þeirra eru Guðmundur Dór Guðmundsson, f. 16. sept- ember 1991, og Hrafnkell Skúli Guðmundsson, f. 9. september 1995. Maki Guðmundar Gunn- arssonar er Thassanai Thaeb- thao, f. 10. mars 1984. Sonur þeirra er Aron Máni Guð- mundsson, f. 9. febrúar 2015. Maki Ingifríðar Rögnu er Guðmundur Guðbjartsson, f. 6. júní 1966. Sonur þeirra er Patrik Birnir Guðmunds- son, f. 5. júní 2002. Dóttir Ingifríðar er Alexía Ýr Magn- úsdóttir, f. 2. apríl 1987. Dóttir Einars Kristjáns og Tiffany Buot Navarro, f. 4. apr- íl 1995, er Alía Margrét Ein- arsdóttir, f. 23. apríl 2015. Útför Einars Kristjáns fer fram frá Seltjarnarneskirkju í dag, 16. ágúst 2018, klukkan 15. Elsku Diddi minn. Að hugsa til þess að ég muni aldrei aftur knúsa þig er erfiðara en hægt er að útskýra í orðum. Minningarn- ar hellast yfir mig. Þegar þú fæddist, allur blár og marinn öðrum megin eftir fjörug- an bróður þinn, hvernig þú teygð- ir úr þér í hitakassanum, loksins með nóg pláss. Fyrstu dagarnir þínir á vökudeild. Þú varst stærsta barnið þar og varst fljót- ur að koma til. Þegar þú veiktist einungis sex vikna af kíghósta og lást inni á spítala í margar vikur eyddi ég dögunum hjá þér með Gumma Dór með mér en varð að sofa heima án þín. Það var erfitt. Hversu glaður þú varst sem barn. Vaknaðir alltaf brosandi all- an hringinn. Við foreldrarnir vor- um ekki alveg jafn hress og þú á morgnana og ekki bróðir þinn heldur, sem vildi frekar kúra fram eftir. Prakkarasvipurinn þinn og öll prakkarastrikin. Hvernig þú tókst alltaf á þig sökina þegar þið vinirnir gerðuð eitthvað af ykkur. Hinir hlupu alltaf í burtu en þú stóðst eftir og tókst við skömm- unum þegar þið voruð staðnir að verki. Hversu hamingjusamur þú varst þegar við bjuggum á Havaí að geta alltaf bara verið í stutt- buxum og bol og þurfa ekki að vera í skóm. Hvað þú elskaðir Sandy Beach og Boogie boarding. Hversu heillaður þú varst af arineldi og gast setið með mér tímunum saman og horft í eldinn. Ást þín á allri tónlist og þá sér- staklega á klassík þegar þú varst lítill. Þú kallaðir alla klassíska tón- list Beethoven, alveg sama hvaða verk var um að ræða. Þú hélst þó sérstaklega upp á Tunglskinssón- ötuna og Óðinn til gleðinnar. Tón- listarsmekkurinn breyttist með árunum og ýmislegt nýtt bættist við. Þú spilaðir Eminem út í eitt á tímabili, en fannst ekkert gaman þegar þú komst að því að mér þótti þetta góð tónlist. Sterki strengurinn á milli ykk- ar Gumma Dórs. Þið gátuð rifist eins og hundur og köttur en hvor án annars gátuð þið ekki verið. Við pabbi þinn munum passa hann fyrir þig og ég veit að þú vakir yfir honum. Hversu góður þú varst við dýr, enda ákvað hann Askur að hann væri þinn hundur en ekki minn og fylgdi þér alla sína ævi og fær nú að sofa með þér í eilífðinni. Ást þín og þolinmæði gagnvart yngri bræðrum þínum. Þú pass- aðir alltaf svo vel upp á Kela þeg- ar hann var lítill. Hljópst til þegar hann grét og stakkst upp í hann duddunni. Nenntir endalaust að hafa Patta yfir þér og spila við hann. Kenndir honum á tölvu og kynntir honum þína uppáhalds- tónlist. Hvað þú elskaðir Alíu þína meira en allt annað. Þú varst ein- staklega góður pabbi og það var yndislegt að fá að fylgjast með ykkur saman. Nú fæ ég ekki lengur símtöl: „Hæ mamma. Ertu til í að bjóða mér í mat? Mig vantar svo mömmumat. Hæ mamma. Ertu til í að koma eitthvað út? Bara kíkja í Kolaportið eða Smáralind? Hæ mamma. Ertu að verða búin í vinnunni? Ég á tvo fyrir einn á American Style.“ Sem betur fer á ég hundruð textaskilaboða frá þér í símanum mínum. Öll enda þau á sama veg: „Takk mamma mín. Ég elska þig.“ Þú færð að hvíla hinstu hvílu hjá langömmu þinni sem þú elsk- aðir svo mikið og varst skírður í höfuðið á. Það veitir mér smá huggun. Hjarta mitt er í þúsund molum. Ég veit að ég verð að halda áfram án þín. Ég fæ ekki lengur að horfa í fallegu bláu augun þín eða faðma þig að mér. En ég mun alltaf elska þig meira en orð fá lýst. Sofðu rótt elsku drengurinn minn. Mamma. Margs er að minnast nú við ótímabært fráfall Einars Krist- jáns okkar. Hann átti sín æskuár á Seltjarnarnesinu við nám og leik ásamt systkinum sínum og vinum. Fyrir rúmum þremur ár- um varð hann þeirrar gæfu að- njótandi að eignast dótturina Alíu Margréti, sem var honum mikill gleðigjafi. Yndislegt var að sjá hve vel hann hugsaði um hana þegar hún var hjá honum í lengri eða skemmri tíma. Þá fékk hann oft góða hjálp hjá ömmu sinni, sem hann var í einstaklega góðu sambandi við. Við minnumst Einars með miklum söknuði og munum leitast við að halda góðu sambandi við Alíu litlu. Við biðjum honum blessunar á Guðs vegum. Amma og afi, Margrét og Moritz. Þær eru ljúfsárar minningarn- ar sem koma í hugann þegar við minnumst Einars Kristjáns. Í æsku vorum við systurnar gjarn- an kallaðar „stúlkurnar í Gaul- verjabæ“ enda liggur okkur öll- um hátt rómur. Strákarnir hans Dumma voru hins vegar kallaðir „drengirnir í Villingaholti“. Það var ýmislegt sem strákunum hans Dumma datt í hug og komu þeir sér ósjaldan í vandræði með hinum ýmsu uppátækjum. Það er óhætt að segja að flestar hug- myndirnar áttu sér uppsprettu hjá Einari. Kemur í hugann atvikið þegar þeir bræður ákváðu að setja launaseðla í ristavélina til að sjá hvað myndi gerast. Leiddi þetta til þess að ristavélin stóð í ljósum logum og pabbi þeirra þurfti að mála eldhúsvegginn upp á nýtt. Við áttum margar góðar stundir saman hjá ömmu og afa í Garðs- endanum. Á okkar yngri árum sátum við oft á bekknum við eld- húsborðið og gæddum okkur á rjómaís með súkkulaðisósu sem við hrærðum svo saman í einn graut. Svo sátum við oft niðri í kjallara og horfðum á sömu teiknimyndirnar aftur og aftur á VHS-spólunum hennar ömmu. Einar Kristján var ör persónu- leiki. Hann sat sjaldan kyrr í langa stund og var ófeiminn að tala við fólk. Hann hafði unun af veislum eins og þeir feðgar eiga allir sameiginlegt. Þá fannst hon- um brauðtertan hennar mömmu best og spurði hann oft hvort hún myndi ekki örugglega búa til Einar Kristján Guðmundsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.