Morgunblaðið - 16.08.2018, Blaðsíða 72

Morgunblaðið - 16.08.2018, Blaðsíða 72
FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 228. DAGUR ÁRSINS 2018 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR. 1. Flestir nota dósaopnara vitlaust 2. Guðrún Bergmann segir frá 3. „Túristavörtur“ valda jarðvegsrofi 4. Hafna „ósiðlegu“ kynlífsleiktæki »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Píanóleikarinn og tónskáldið Anna Gréta Sigurðardóttir kemur ásamt slagverksleikaranum Einari Scheving fram á Freyjujazz-tónleikum í Lista- safni Íslands í dag kl. 17.15. Leika þau tónlist eftir Önnu sem færð verður í nýjan búning sem hentar hljóðfæra- samsetningunni. Anna hefur sl. fjög- ur ár stundað nám í Konunglega tón- listarháskólanum í Stokkhólmi. Leika dúó fyrir píanó og trommur í dag Ljósmynd/Magnus Andersen  Technology and Touch / Tækni og snerting nefnist sýning sem opnuð verður í Grafík- salnum á Tryggva- götu 17 í dag kl. 14. Sýningarstjórar eru Carrie Ann Plank og Robynn Smith. Um er að ræða sam- sýningu grafíklistamanna í Reykjavík og í San Francisco. Markmiðið er að rannsaka og sýna nýsköpun í aðferð- um sem tengjast hefðbundnum tækni- legum útfærslum í grafíklist. Tækni og snerting opnuð í Grafíksalnum  Starfsár Sinfóníuhljómsveitar Íslands hefst með tvennum tón- leikum á Menningarnótt. Klukkan 15 eru fjölskyldutónleikar sem Bjarni Frímann stjórnar. Einleikari seinni tónleikanna, sem hefjast kl. 17, er Sigrún Eð- valdsdóttir og stjórn- andi Klaus Mäkelä. Starfsárið kynnt á Menningarnótt Á föstudag Norðan og norðaustan 8-13 m/s, en hægari NA-til. Skýjað og víða dálítil rigning um tíma. Léttir til S-lands um kvöldið. Hiti 6 til 14 stig, svalast fyrir norðan. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðan 3-10 m/s, skýjað og lítilsháttar rign- ing fyrir norðan og austan. Bjart með köflum S-lands og hiti að 18 stigum. Stöku síðdegisskúrir. Bætir í vind um landið V-vert í kvöld. VEÐUR Í íþróttablaðinu í dag er að finna samantekt um úrslit karlalandsliðanna í fót- bolta, handbolta og körfu- bolta á síðustu árum. Kem- ur í ljós að liðin eru orðin afskaplega farsæl á heima- velli í Laugardalnum og töl- urnar býsna merkilegar. Fara þarf nokkuð langt aftur í tímann til að finna tapleiki á heimavelli í mótsleikjum í fótboltanum og handbolt- anum. »2-3 Kunna vel við sig í Laugardalnum „Þetta verður krefjandi en skemmti- legt. Ég hef stefnt að þessu lengi og hef alltaf ætlað mér að taka skref upp á hærra stig,“ segir Sigríður Lára Garðarsdóttir, landsliðs- kona í knattspyrnu, sem gengin er í raðir besta liðs Noregs, ferfaldra meistara Lille- ström. »1 „Þetta verður krefjandi en skemmtilegt“ „Þegar maður er kominn svona langt eru liðin fljót að refsa manni. Við verðum að vera vakandi allan leikinn, bæði þegar við erum án boltans og ekki síður þegar við erum með hann,“ sagði Haukur Páll Sigurðsson, fyr- irliði Íslandsmeistara Vals í knatt- spyrnu, þegar Morgunblaðið spjallaði við hann um Evrópuleikinn gegn Sheriff á Hlíðarenda. » 4 Valsmenn þurfa að halda vöku sinni ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Við erum saman öllum stundum og oft veit ég hvað systir mín er að hugsa. Og eins og þú heyrir á tali okkar þá botna ég oft setningarnar sem systir mín kemur með og hún það sem ég segi. Oft er talað við okkur tvær sem eina manneskju sem getur verið pirrandi. Við hins vegar þekkjum ekkert annað líf en þetta og tökum þessu bara létt,“ segir Elín Hrönn Jónsdóttir í Hveragerði. Elín Hrönn og Hrefna Ósk eru eineggja tvíburar fæddar 11. sept- ember 1997, dætur Jóns Gísla Guð- laugssonar og Þorbjargar Elvu Óskarsdóttur. Þær fóru á dögunum til Twinsburg í Ohio-ríki í Banda- ríkjunum þar sem í ágústbyrjun ár hvert er haldin hátíðin Twins Days Festival; alþjóðleg hátíð tvíbura. Sterk tengsl og samkennd Að þessu sinni sóttu um 2.900 pör tví- og þríbura Twins Days Festival en hátíðin hefur verið haldin árlega frá árinu 1976. Og það að hátíðin sé í Twinsburg, sem er 18.000 manna bær skammt frá Cleveland í Ohio, er engin tilviljun. Þangað komu snemma á 19. öldinni landnemarnir og tvíburabræðurnir Móses og Ar- on Wilcox frá Connecticut. Aðeins nánustu vinir og fjölskylda þekktu sundur bræðurna sem voru mjög samrýmdir og að sjálfsögðu er stað- urinn eftir þeim nefndur, Tvíbura- borg þýtt á íslensku. „Það var á síðasta ári sem við El- ín heyrðum fyrst um Twins Days Festival sem við að sjálfsögðu leit- uðum uppi á netinu og fannst þetta áhugavert. Um daginn vorum við svo að velta fyrir okkur hvað við ættum að gera um verslunar- mannahelgina og þá kom upp þessi geggjaða hugmynd að fara til Bandaríkjanna á þessa hátíð. Fyr- irvarinn var örskammur, en allt gekk þetta upp og upplifunin var einstök. Og þarna fannst mér ég finna vel fyrir þessum sterku tengslum og samkennd sem yf- irleitt er milli tvíbura. Það má segja að einhver sérstakur andi hafi legið í loftinu á hátíðinni,“ segir Hrefna Ósk sem telur líklegt að þær systur séu fyrstu Íslendingarnir sem sækja þessa hátíð. „Við ætlum að sjálfsögðu aftur til Twinsburg og auðvitað væri gaman að halda tvíburahátíð á Íslandi, ef stemning er fyrir slíku,“ segir Elín Hrönn. Þess má geta að Hrefna Ósk stofn- aði nýlega á Facebook hópinn Ein- eggja tvíburar á Íslandi og vill fá sem flesta þar með. Í minningu bróður Elín Hrönn og Hrefna Ósk í Hveragerði luku stúdentprófum frá Kvennaskólanum vorið 2016 og hafa síðustu misserin unnið hjá Kjörís í Hveragerði. Jafnhliða bæj- arhátíð Hvergerðinga Blómstrandi dögum, sem er um helgina, stendur fyrirtækið fyrir Ísdeginum þar sem gestum og gangandi verður boðið upp á ís í ótal bragðtegundum, auk þess sem ýmsir stíga á svið, svo sem tvíburasysturnar sem þar verða í hlutverkum persóna úr Latabæ, sem Leikfélag Hvera- gerðis sýndi á síðastliðnum vetri. Voru systurnar þar meðal leikara en þær hafa tekið virkan þátt í leik- listarstarfi í mörg ár. Brugðið sér þar í ýmis hlutverk og sem tvíburar hafa þær oft komið leikhúsgestum á óvart. Systurnar ætla þó að byrja ísdaginn á því að taka þátt í Reykja- víkurmaraþoninu þar sem þær ásamt mörgum öðrum Hvergerð- ingum munu hlaupa til styrktar Birtu, styrktarfélagi, í minningu Mikaels Rúnars bróður þeirra sem lést af slysförum á síðasta ári. Tvíburar á alþjóðlegri hátíð  Hveragerðis- systur meðal 2.900 para í Ohio Jónsdætur Elín Hrönn, til vinstri, og Hrefna Ósk sem eru fæddar 11. september 1997. Fáir þekkja þær í sundur. Ljósmynd/Úr einkasafni Tvíburar Íslenskar systur og banda- rískir bræður í Twinsburgh.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.