Morgunblaðið - 16.08.2018, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 16.08.2018, Blaðsíða 30
BAKSVIÐ Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Lerkiblendingurinn hrymur hefur haldið sínu striki frá því að hann fór að sýna sig í fyrstu tilraunum hér á landi fyrir tæpum 20 árum. Hann er hraðvaxta, beinvaxinn og viðarmeiri heldur en lerkitegundir sem kennd- ar eru við Rússland og Evrópu, en til þessara tegunda á blendingurinn ættir að rekja. Átak var gert í rækt- un yrkisins fyrir um tíu árum og hef- ur hrymur nú verið gróðursettur um allt land, að líkindum hátt í 300 þús- und plöntur. Þröstur Eysteinsson, skógrækt- arstjóri og skógerfðafræðingur, seg- ir verkefnið hafa byrjað árið 1993, en hann var þá verkefnisstjóri yfir lerkikynbótum hjá Skógræktinni. Elstu hrymirnir voru ræktaðir í sér- stökum tilraunareitum og þeir elstu, sem eru á Höfða á Héraði og á Mó- gilsá, eru um það bil 20 ára. Hefur spjarað sig vel „Það er óhætt að segja að hrymur hafi spjarað sig mjög vel og þeir duglegustu eru sjálfsagt orðnir 11- 12 metra háir,“ segir Þröstur. „Þeir hafa ekki orðið fyrir skemmdum að ráði, tréð kelur ekki mikið í æsku, fer fljótt að vaxa og er beinvaxið og fallegt. Þá verður hrymur mun síður fyrir lerkibarrfelli, sem hefur truflað rússalerki á Suðurlandi á þessu vot- viðrasama sumri.“ Þröstur segir að þessi kynbætti blendingur rússalerkis og evrópu- lerkis hafi verið vel heppnaður, en hann er fenginn með víxlun á völd- um foreldrum. Kynbæturnar snúast ekki síst um val og notkun úrvals- trjáa til undaneldis og frærækt í gróðurhúsi. Mjög mikilvægt hafi verið að velja tré á Íslandi, sem hafi sýnt að þau standi sig vel við ís- lenskar aðstæður. Útkoman hafi verið lerkitré sem er miklu betur að- lagað íslensku loftslagi heldur en foreldrarnir. Sver stofn og 300% viðarmeiri Margir af elstu blendingunum hafa náð yfir tíu metra hæð og áætl- ar Þröstur að jafn gamalt rússalerki sé 7-8 metrar þannig að í hæðarvexti er munurinn um 30%. „Það segir þó bara hluta sögunnar því stofninn er líka miklu sverari og hvað viðarmagn áhrærir gæti mun- urinn verið um 300%. Það hefur hann frá evrópulerki-foreldrinu því evrópulerki hefur tilhneigingu til að verða sverara tré meðan rússalerkið er mjóslegið,“ segir Þröstur. Hann segir að fyrir um áratug hafi verið tekin ákvörðun um það hjá Skógræktinni að leggja áherslu á að hefja framleiðslu á blendingnum hrym frekar en hreinu rússalerki. Ágræðsla úrvalstrjáa var endur- tekin og stórt gróðurhús í Vagla- skógi notað fyrir kynbæturnar, sem fela í sér að finna sífellt betri rússa- lerki og evrópulerki sem fræmæður. Hrymur sem framleiddur var úr seinni ágræðslunni er álitinn betri en sá sem fyrst var framleiddur. Núna er unnið að því að auka fræ- magnið með örvandi aðgerðum sem stuðla að blómgun hjá foreldrunum og spírun fræs. Mismikið af fræjum verður til árlega, en annað til þriðja hvert ár skilar sæmilegu magni af fræi. Í fyrrahaust fékkst fræ sem á að duga til að framleiða á annað hundrað þúsund plöntur. Að sögn Þrastar hefur framleiðsla síðustu ára skilað plöntum sem nú er að finna í litlum hrymslundum um allt land. Vex vel á rýru landi „Hrymurinn, eins og annað lerki, hefur það fram yfir flest önnur tré að hann vex tiltölulega vel á rýru landi. Á gróðursnauðu landi þarf hrymurinn ekki að berjast í sam- keppni frá öðrum gróðri. Hann fer því strax að vaxa og hefur hraðari æskuvöxt heldur en flest önnur tré. Hrymurinn vex um 40-50 senti- metra eða meira á ári að jafnaði, sem er vel af sér vikið. Sitkagreni og fleiri tegundir geta náð þessum vexti þegar þær eru komnar vel á legg, en byrja mun hægar. Alaska- ösp, sem er ræktuð í frjósömu landi vex enn hraðar þegar hún er búin að koma sér fyrir og nota kannski 5-6 ár í að berjast við grasið,“ segir Þröstur. Hann segir enga ástæðu til ann- ars en að ætla að viður hryms sé svipaður og hjá öðru lerki og ætti að vera góður til ýmissar notkunar. Blendingsþróttur við víxlun Spurður hvort ekki megi nota fræ af hrym í kynbæturnar segir Þröst- ur að lítið sé varið í fræ af annarri kynslóð og hrymstré gefi ekki af sér áhugavert fræ. „Það sem þarna kemur fram kall- ast blendingsþróttur og verður til þegar talsvert óskyldum foreldrum er víxlað saman. Blendingsþrótt- urinn kemur við upphaflegu kyn- blöndunina og kemur fram með þessum aukna vaxtarhraða en hverf- ur með annarri kynslóð. Ef hrym er víxlað við annan hrym, þá erum við komin með skyldleikarækt og fáum ekki þennan blendingsþrótt heldur hið gagnstæða. Blendingsþróttur er ekki almenn- ur meðal trjáa, en gerist í sumum tilvikum vegna þess hvernig genin raðast saman. Það er þekkt í lerki- ættkvíslinni og reyndar líka hjá ösp- um, en yfirleitt ekki hjá öðrum trjám. Hraustur hrymur um allt land  Hraðvaxta, beinvaxinn og viðarmeiri heldur en aðrar lerkitegundir  Árangursríkar kynbætur hófust fyrir um 25 árum  Vel aðlagaður að aðstæðum  Hrymslundi er nú að finna víða um land Ljósmynd/Þröstur Eysteinsson Skógrækt Myndarleg hrymstré í lundi á Höfða á Fljótsdalshéraði. Þesi tré eru um 20 ára, en nú hafa hátt í 300 þúsund hrymstré verið gróðursett. 30 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 2018 Þröstur telst vera „faðir“ hryms- ins og spurður hvort árangurinn hafi komið á óvart, segir hann að það hafi eiginlega verið „hunda- heppni hvernig þetta þróaðist“. „Hugmyndin var að reyna að bæta Rússalerkið, fá það betur aðlagað, betri vöxt og beinni tré. Þegar ég var að velja tré benti Sigurður Blöndal, skógræktar- stjóri 1977-1989, mér á stakt Evrópulerkitré í Hallormsstaðar- skógi. Hann fór með mig á stað- inn og tréð er vissulega sérstakt að því leyti að það er þráðbeint og fallegt. Það hefur aldrei orðið fyrir skemmdum, en flest Evrópu- lerkitré á Íslandi eru kræklótt vegna þess að þau vaxa lengi fram eftir á haustin og verða þar af leiðandi fyrir kali. Sigurður sagði að ég yrði að hafa þetta tré með í kynbótunum sem ég gerði. Ég tók sprota af því og græddi á Rússalerki og blómgun varð strax mikil þannig að það reyndist auðvelt að fá fræ og búa til blendinginn með víxlun við rússalerki 1996, þremur árum eftir ágræðslu. Þar með urðu fyrstu plönturnar til og blending- urinn var með í afkvæmatilraun- um sem settar voru út 1999. Strax árið 2003 var komið í ljós að Hrymur var orðinn mun stærri og meiri heldur en rússa- lerkitrén frá sama tíma, sem voru þó alveg ágæt,“ segir Þröstur. Heiti blendingsins sótti Þröstur í Völuspá, en Hrymur var jötunn sem kom að austan og varði sig með skildi. Lerkið kemur einnig að austan og yrkið hefur varnir gegn óhagstæðu veðurfari Ís- landi. Heppni hvernig þetta þróaðist NAFNIÐ SÓTT TIL JÖTUNSINS HRYMS Í VÖLUSPÁ Skógræktarstjóri Sjálfa Þrastar Ey- steinssonar tekin i hrymslundi. Bæjarráð Garðabæjar samþykkti á fundi sínum í fyrradag að lækka laun Gunnars Ein- arssonar bæj- arstjóra. Eftir að Gunnar tók sæti sem bæj- arfulltrúi í kjölfar sveitarstjórn- arkosninga sagðist hann líklega mundu afþakka laun sem fylgdu þeirri stöðu. Samkvæmt sveit- arstjórnarlögum er það óheimilt og voru bæjarstjóralaun hans því lækkuð. Heildarlaun Gunnars eru kr. 2.213.799 á mánuði. Starfinu fylgja að auki afnot af bifreið af gerðinni Toyota Land Cruiser og greiðir hann af henni allan rekstrarkostnað. Gunnar Einarsson bæjarstjóri Lækka laun bæj- arstjóra Sindragata 12c | Ísafirði | Sími 456 1300 | smidjan@velsmidjan.is HLÍFÐARHÚÐ Á RÚÐUR u Kemur í veg fyrir að óhreinindi safnist á rúðuna / sólaselluna u Eykur öryggi og útsýni allt að tvöfalt í bleytu og rigningu u Kemur í veg fyrir að flugur, drulla, snjór og ísing safnist á rúðuna u Heldur regnvatni frá rúðunni u Býr til brynju á rúðunni fyrir leysiefnum og vökvum u Þolir háþrýstiþvott u Virkar við -30°C til + 30°C u Endingartími er 6 – 12 mánuðir Frábært á bílrúður – gluggarúður – sólasellur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.