Morgunblaðið - 16.08.2018, Qupperneq 30
BAKSVIÐ
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Lerkiblendingurinn hrymur hefur
haldið sínu striki frá því að hann fór
að sýna sig í fyrstu tilraunum hér á
landi fyrir tæpum 20 árum. Hann er
hraðvaxta, beinvaxinn og viðarmeiri
heldur en lerkitegundir sem kennd-
ar eru við Rússland og Evrópu, en
til þessara tegunda á blendingurinn
ættir að rekja. Átak var gert í rækt-
un yrkisins fyrir um tíu árum og hef-
ur hrymur nú verið gróðursettur um
allt land, að líkindum hátt í 300 þús-
und plöntur.
Þröstur Eysteinsson, skógrækt-
arstjóri og skógerfðafræðingur, seg-
ir verkefnið hafa byrjað árið 1993,
en hann var þá verkefnisstjóri yfir
lerkikynbótum hjá Skógræktinni.
Elstu hrymirnir voru ræktaðir í sér-
stökum tilraunareitum og þeir elstu,
sem eru á Höfða á Héraði og á Mó-
gilsá, eru um það bil 20 ára.
Hefur spjarað sig vel
„Það er óhætt að segja að hrymur
hafi spjarað sig mjög vel og þeir
duglegustu eru sjálfsagt orðnir 11-
12 metra háir,“ segir Þröstur. „Þeir
hafa ekki orðið fyrir skemmdum að
ráði, tréð kelur ekki mikið í æsku,
fer fljótt að vaxa og er beinvaxið og
fallegt. Þá verður hrymur mun síður
fyrir lerkibarrfelli, sem hefur truflað
rússalerki á Suðurlandi á þessu vot-
viðrasama sumri.“
Þröstur segir að þessi kynbætti
blendingur rússalerkis og evrópu-
lerkis hafi verið vel heppnaður, en
hann er fenginn með víxlun á völd-
um foreldrum. Kynbæturnar snúast
ekki síst um val og notkun úrvals-
trjáa til undaneldis og frærækt í
gróðurhúsi. Mjög mikilvægt hafi
verið að velja tré á Íslandi, sem hafi
sýnt að þau standi sig vel við ís-
lenskar aðstæður. Útkoman hafi
verið lerkitré sem er miklu betur að-
lagað íslensku loftslagi heldur en
foreldrarnir.
Sver stofn og 300% viðarmeiri
Margir af elstu blendingunum
hafa náð yfir tíu metra hæð og áætl-
ar Þröstur að jafn gamalt rússalerki
sé 7-8 metrar þannig að í hæðarvexti
er munurinn um 30%.
„Það segir þó bara hluta sögunnar
því stofninn er líka miklu sverari og
hvað viðarmagn áhrærir gæti mun-
urinn verið um 300%. Það hefur
hann frá evrópulerki-foreldrinu því
evrópulerki hefur tilhneigingu til að
verða sverara tré meðan rússalerkið
er mjóslegið,“ segir Þröstur.
Hann segir að fyrir um áratug
hafi verið tekin ákvörðun um það hjá
Skógræktinni að leggja áherslu á að
hefja framleiðslu á blendingnum
hrym frekar en hreinu rússalerki.
Ágræðsla úrvalstrjáa var endur-
tekin og stórt gróðurhús í Vagla-
skógi notað fyrir kynbæturnar, sem
fela í sér að finna sífellt betri rússa-
lerki og evrópulerki sem fræmæður.
Hrymur sem framleiddur var úr
seinni ágræðslunni er álitinn betri
en sá sem fyrst var framleiddur.
Núna er unnið að því að auka fræ-
magnið með örvandi aðgerðum sem
stuðla að blómgun hjá foreldrunum
og spírun fræs. Mismikið af fræjum
verður til árlega, en annað til þriðja
hvert ár skilar sæmilegu magni af
fræi. Í fyrrahaust fékkst fræ sem á
að duga til að framleiða á annað
hundrað þúsund plöntur. Að sögn
Þrastar hefur framleiðsla síðustu
ára skilað plöntum sem nú er að
finna í litlum hrymslundum um allt
land.
Vex vel á rýru landi
„Hrymurinn, eins og annað lerki,
hefur það fram yfir flest önnur tré
að hann vex tiltölulega vel á rýru
landi. Á gróðursnauðu landi þarf
hrymurinn ekki að berjast í sam-
keppni frá öðrum gróðri. Hann fer
því strax að vaxa og hefur hraðari
æskuvöxt heldur en flest önnur tré.
Hrymurinn vex um 40-50 senti-
metra eða meira á ári að jafnaði,
sem er vel af sér vikið. Sitkagreni og
fleiri tegundir geta náð þessum
vexti þegar þær eru komnar vel á
legg, en byrja mun hægar. Alaska-
ösp, sem er ræktuð í frjósömu landi
vex enn hraðar þegar hún er búin að
koma sér fyrir og nota kannski 5-6
ár í að berjast við grasið,“ segir
Þröstur.
Hann segir enga ástæðu til ann-
ars en að ætla að viður hryms sé
svipaður og hjá öðru lerki og ætti að
vera góður til ýmissar notkunar.
Blendingsþróttur við víxlun
Spurður hvort ekki megi nota fræ
af hrym í kynbæturnar segir Þröst-
ur að lítið sé varið í fræ af annarri
kynslóð og hrymstré gefi ekki af sér
áhugavert fræ.
„Það sem þarna kemur fram kall-
ast blendingsþróttur og verður til
þegar talsvert óskyldum foreldrum
er víxlað saman. Blendingsþrótt-
urinn kemur við upphaflegu kyn-
blöndunina og kemur fram með
þessum aukna vaxtarhraða en hverf-
ur með annarri kynslóð. Ef hrym er
víxlað við annan hrym, þá erum við
komin með skyldleikarækt og fáum
ekki þennan blendingsþrótt heldur
hið gagnstæða.
Blendingsþróttur er ekki almenn-
ur meðal trjáa, en gerist í sumum
tilvikum vegna þess hvernig genin
raðast saman. Það er þekkt í lerki-
ættkvíslinni og reyndar líka hjá ösp-
um, en yfirleitt ekki hjá öðrum
trjám.
Hraustur hrymur um allt land
Hraðvaxta, beinvaxinn og viðarmeiri heldur en aðrar lerkitegundir Árangursríkar kynbætur
hófust fyrir um 25 árum Vel aðlagaður að aðstæðum Hrymslundi er nú að finna víða um land
Ljósmynd/Þröstur Eysteinsson
Skógrækt Myndarleg hrymstré í lundi á Höfða á Fljótsdalshéraði. Þesi tré
eru um 20 ára, en nú hafa hátt í 300 þúsund hrymstré verið gróðursett.
30 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 2018
Þröstur telst vera „faðir“ hryms-
ins og spurður hvort árangurinn
hafi komið á óvart, segir hann að
það hafi eiginlega verið „hunda-
heppni hvernig þetta þróaðist“.
„Hugmyndin var að reyna að
bæta Rússalerkið, fá það betur
aðlagað, betri vöxt og beinni tré.
Þegar ég var að velja tré benti
Sigurður Blöndal, skógræktar-
stjóri 1977-1989, mér á stakt
Evrópulerkitré í Hallormsstaðar-
skógi. Hann fór með mig á stað-
inn og tréð er vissulega sérstakt
að því leyti að það er þráðbeint
og fallegt. Það hefur aldrei orðið
fyrir skemmdum, en flest Evrópu-
lerkitré á Íslandi eru kræklótt
vegna þess að þau vaxa lengi
fram eftir á haustin og verða þar
af leiðandi fyrir kali.
Sigurður sagði að ég yrði að
hafa þetta tré með í kynbótunum
sem ég gerði. Ég tók sprota af
því og græddi á Rússalerki og
blómgun varð strax mikil þannig
að það reyndist auðvelt að fá fræ
og búa til blendinginn með víxlun
við rússalerki 1996, þremur árum
eftir ágræðslu. Þar með urðu
fyrstu plönturnar til og blending-
urinn var með í afkvæmatilraun-
um sem settar voru út 1999.
Strax árið 2003 var komið í
ljós að Hrymur var orðinn mun
stærri og meiri heldur en rússa-
lerkitrén frá sama tíma, sem voru
þó alveg ágæt,“ segir Þröstur.
Heiti blendingsins sótti Þröstur
í Völuspá, en Hrymur var jötunn
sem kom að austan og varði sig
með skildi. Lerkið kemur einnig
að austan og yrkið hefur varnir
gegn óhagstæðu veðurfari Ís-
landi.
Heppni hvernig þetta þróaðist
NAFNIÐ SÓTT TIL JÖTUNSINS HRYMS Í VÖLUSPÁ
Skógræktarstjóri Sjálfa Þrastar Ey-
steinssonar tekin i hrymslundi.
Bæjarráð
Garðabæjar
samþykkti á
fundi sínum í
fyrradag að
lækka laun
Gunnars Ein-
arssonar bæj-
arstjóra.
Eftir að
Gunnar tók sæti
sem bæj-
arfulltrúi í kjölfar sveitarstjórn-
arkosninga sagðist hann líklega
mundu afþakka laun sem fylgdu
þeirri stöðu. Samkvæmt sveit-
arstjórnarlögum er það óheimilt
og voru bæjarstjóralaun hans því
lækkuð.
Heildarlaun Gunnars eru kr.
2.213.799 á mánuði. Starfinu
fylgja að auki afnot af bifreið af
gerðinni Toyota Land Cruiser og
greiðir hann af henni allan
rekstrarkostnað.
Gunnar Einarsson
bæjarstjóri
Lækka laun bæj-
arstjóra
Sindragata 12c | Ísafirði | Sími 456 1300 | smidjan@velsmidjan.is
HLÍFÐARHÚÐ Á RÚÐUR
u Kemur í veg fyrir að óhreinindi safnist
á rúðuna / sólaselluna
u Eykur öryggi og útsýni allt að
tvöfalt í bleytu og rigningu
u Kemur í veg fyrir að flugur, drulla,
snjór og ísing safnist á rúðuna
u Heldur regnvatni frá rúðunni
u Býr til brynju á rúðunni fyrir
leysiefnum og vökvum
u Þolir háþrýstiþvott
u Virkar við -30°C til + 30°C
u Endingartími er 6 – 12 mánuðir
Frábært á bílrúður – gluggarúður – sólasellur