Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.08.2018, Page 4
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5.8. 2018
Frídagur í mótsögn
Frídagur verslunarmanna ergamalgróin hefð sem teygirsig aftur til nítjándu aldar
þegar verslunareigendur í Reykja-
vík gáfu starfsmönnum sínum frí á
rúmhelgum degi. Í
fyrstu var heiti
dagsins bók-
staflegt en eftir
seinni heimsstyrj-
öldina varð hann
smám saman að
almennum frídegi.
Á sjöunda ára-
tugnum fóru
landsmenn svo að
nýta helgina til að
efna til útihátíða
víðsvegar um land
og ferðast víðs-
vegar um land. Í
dag er versl-
unarmannahelgin
stærsta ferðahelgi
ársins en frídagur
verslunarmanna
virðist að hluta til hafa glatað
merkingu sinni þar sem margar
verslanir standa opnar.
Frídagur allra nema
verslunarmanna
Stéttarfélagið VR hefur lengi bent
á að frídagurinn sé að útvatnast. Á
heimasíðu sinni skoraði VR fyrr í
vikunni á atvinnurekendur að gefa
verslunarfólki frí á frídegi versl-
unarmanna. Þar kemur fram að á
síðustu árum hafi færst í aukana að
verslanir og þjónustufyrirtæki hafi
opið á frídegi verslunarmanna sem
veldur því að verslunarfólk þurfi að
standa vakt á þessum degi sem er
því sérstaklega helgaður.
Stefán Sveinbjörnsson, fram-
kvæmdastjóri VR, segir að félagið
fái tíðar fyrirspurnir um frídag
verslunarmanna. „Það er mikilvægt
að fólk sé meðvitað um að það er
ekki vinnuskylda á þessum degi.
Það þarf að semja sérstaklega um
að unnið sé á honum eins og öðrum
stórhátíðardögum. Þessi þróun hef-
ur átt sér stað hægt og bítandi á
undanförnum árum og það er oft
sagt að þeir einu sem vinni á frí-
degi verslunarmanna séu versl-
unarmenn, þótt það sé ekki alveg
rétt.“
Stefán segir að opnar verslanir
séu tíðari í mat- og dagvörugeir-
anum en í sérvörugeiranum.
„Ástæðan er einfaldlega að fólk vill
alltaf hafa opið. Það eru þó fyr-
irtæki sem standa sig mjög vel í
þessum málum og eiga hrós skilið.
Til dæmis hafa Fjarðarkaup lengi
haft lokað yfir alla verslunar-
mannahelgina. og Bónus hefur lok-
að á mánudeginum. Við viljum
hvetja fólk sem vill sýna málinu
samstöðu til að versla ekki á þess-
um degi.“
Gamalgrónar hefðir
Gísli Sigurbergsson, verslunarstjóri
Fjarðarkaupa, segir að verslunin
hafi haft lokað yfir verslunar-
mannahelgina síðan hún opnaði.
„Búðin er fjörutíu og fimm ára
gömul og það voru einhver ár þar
sem var ekki opið á laugardögum
hjá okkur. Svo hefur aldrei verið
opið á sunnudögum, svo það hefur
alltaf verið lokað hjá okkur um
þessa helgi,“ segir Gísli.
„Starfsfólkið okkar er auðvitað
mjög ánægt með þetta og okkar
góðu fastakúnnar gefa okkur mikið
hrós fyrir þetta.“ en verslunin fékk
jákvæð viðbrögð við færslu sinni
um lokunina á Facebook síðu sinni.
Gísli segist ekki hafa orðið var við
viðskiptavini sem séu óánægðir
með þetta. „Þeir fara þá bara eitt-
hvað annað að versla. Maður gerir
sér grein fyrir því að það væri ekki
hægt að hafa allar búðir lokaðar
um þessa helgi. Ég held samt að
fólk kæmist alveg af þótt væri lok-
að á mánudeginum, á þessum frí-
degi verslunarmanna.“
Guðmundur Marteinsson, fram-
kvæmdastjóri Bónuss, segir að lok-
unin hafi fylgt versluninni frá upp-
hafi. „Það hefur verið lokað á
frídegi verslunarmanna síðan hún
var opnuð árið 1989. Starfsfólk okk-
ar er ánægt með þetta og við-
skiptavinir okkar hafa flestir sýnt
þessu skilning í gegnum árin og
finnst þetta sjálfsagt. Ef það er
ekki lokað á frídegi verslunar-
manna þá hvenær?“ segir Guð-
mundur. „Hvert fyrirtæki verður
þó að taka þessa ákvörðun fyrir
sig“ bætir hann við aðspurður
hvort honum finnist að fleiri versl-
anir ættu að fylgja fordæmi þeirra.
Margar verslanir eru
opnar á frídegi versl-
unarmanna.
Morgunblaðið/Valli
Ekki fá allir verslunarmenn frí á mánudaginn þótt stórhátíðardagurinn sé helgaður þeim. Stéttarfélagið VR skoraði á
verslunareigendur að gefa starfsfólki sínu frí á mánudeginum þar sem margar verslanir eru opnar.
Bónus Lokað
Costco Lokað
Fjarðarkaup Lokað
Kringlan Lokað
Smáralind Lokað
10-11 Opið
Hagkaup Opið í völdum
verslunum
Iceland Opið
Krambúðin Opið
Krónan Opið
Melabúðin Opnuð kl. 12
Nettó Opið
Nóatún Opið
Hvar er lokað á
frídegi verslunar-
manna?
’
...til uppbótar fyrir allt það strit og eril er þeir
hafa í kauptíðinni og oftar.
Tímaritið Ísafold um fyrsta frídag verslunarmanna.
Gísli Sigurbergsson segir Fjarðarkaup fá hrós frá fastakúnnum fyrir lokunina,
en verslunin hefur haft lokað um verslunarmannahelgina frá upphafi.
Morgunblaðið/Ófeigur
Guðmundur
Marteinsson
Stefán
Sveinbjörnsson
INNLENT
ARNAR TÓMAS VALGEIRSSON
arnart@mbl.is