Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.08.2018, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.08.2018, Blaðsíða 31
Trump var kjörinn. Þeir kröfðust þess að forsetinn hætti þegar í stað við fundinn með Pútín. Hefðbundnu fjölmiðlarnir fjölluðu um þessar ákærur með þeim hætti að ætla mætti að þeir hefðu ekki lesið þær. Hér heima létu hinir ólesnu á fréttastofu „RÚV“ eins og venjulega. Þeir hefðu betur hlustað fyrst á lagaprófessorinn Alan Dershowitz, einn frægasta verj- anda Bandaríkjanna, sem reyndar hefur verið talinn til „frjálslyndra afla“ vestra, þ.e. demókrata. Prófessorinn benti á hið augljósa að ákærur sak- sóknara væru alla tíð aðeins önnur hlið málsins. Slíkar ákærur þyrfti að sannreyna fyrir dómi. Í þessu tilviki hefðu ákærendur þó ekki neinar áhyggjur af þeim þætti, því að þeir vissu að enginn dómstóll myndi nokkru sinni líta á þær. Þeir gætu því sagt hvað sem væri þar. Hefðu hinir ólesnu lesið ákærurnar þá hefðu þeir sennilega orðið gáttaðir. Hinir ákærðu Rússar voru sagðir beintengdir við menn sem væru sennilega beintengdir við Kreml. Þeir hefðu ætlað sér að fremja skemmdarverk í bandarísku alríkiskosningunum. Saksóknarar teldu ljóst að þeir hefðu varið til þess verks 95.000 dollurum! Saksóknararnir ákváðu að ákæra Rússa fyrir pen- ingaþvott vegna þeirrar fjárhæðar. Rússland ætlaði sér með öðrum orðum að fremja hermdarverk á bandarískum kosningum og veittu til þeirrar atlögu upphæð sem svarar til tíu milljóna íslenskra króna. Það hljómar sem svipuð upphæð og sú sem var sögð hafa verið notuð til að hafa áhrif á kosningar til stjórn- ar Neytendasamtakanna! Þeim hefur farið stórlega aftur þarna í Kreml því þetta er aðeins brot af framreiknuðum upphæðum sem þaðan var veitt til stjórnmálastarfsemi íslenskra sósíal- ista forðum tíð, sem Samfylkingin nýtur nú góðs af í skrifstofum sínum og mætti þó margfalda þær upp- hæðir með 1.000 vegna stærðarmunar þjóðanna. Upp- og eftirköst En Trump gerði ekkert með þetta upphlaup fremur en önnur úr sömu átt og átti sinn fund með Pútín. Fund sem Henry Kissinger sagði nýlega í viðtali við FT að hefði verið algjörlega óhjákvæmilegt að halda og fyrir löngu kominn tími á. En þegar menn þóttust geta lesið það úr orðum for- seta Bandaríkjanna á blaðamannafundi að hann tæki jafnmikið mark á yfirlýsingum Pútíns og bandarískrar leyniþjónustu, þótti góðkunningjum í fréttaveitum vestra að eitthvað hryllilegt hefði gerst. John Brennan, sem verið hafði forstjóri CIA og er nú launaður álitsgjafi hjá CNN, dró ekki af sér. Hann sagði Trump hafa gert sig sekan um landráð. Við því liggur að dæma skuli þann mann til dauða í Bandaríkj- unum. Brennan þessi hefur svo oft gerst sekur um dóm- greindarleysi og vanstillingu síðustu ár og að fara hvað eftir annað eiðsvarinn með skrök við yfirheyrslur þing- nefnda að stórundarlegt er að Obama hafi gert hann að forstjóra CIA. Trúa skal leyniþjónustum hvað sem tautar Og öll vinstrielítan hefur nú algjörlega skipt um kúrs. Henni finnst algjörlega ómögulegt að CIA og öllum hinum 16 leyniþjónustunum skuli ekki trúað eins og nýju neti hvenær sem þær hósta einhverju upp. Öðruvísi mörgum áður brá. Það hefur nú legið fyrir í hálfan annan áratug að það reyndist heldur lítið að marka CIA þegar hún fullyrti að Saddam Hussein hefði komið sér upp gereyðing- arvopnum og undirstrikaði að sú fullyrðing væri hafin yfir allan vafa („slam dunk“ á körfuboltamáli). CIA með sína 300.000 starfsmenn komst ekki að því að Sovétríkin væru að hrynja fyrr en eftir að Austur- Þjóðverjar tóku að hrúgast yfir múrinn. Það gerði svo sem ekki mikið til. Verra var það, að 6-7 árum fyrr missti CIA algjörlega af því hvað var að gerast í Kreml þegar Andropov, þáverandi Sovétleiðtogi, var farinn á taugum og taldi að flest benti til að Bandaríkin væru að hefja kjarnorkuárás á Sovétríkin og þau neyddust sennilega til að verða fyrri til! (Sjá Taylor Downing: 1983 Reagan, Andropov and a World on the Brink). Robert Gates, síðar varnarmálaráðherra, sem þá var aðstoðarforstjóri CIA, hefur fjallað um þessa atburði með sláandi hætti og hversu alvarlegir þeir voru, og einkum það að leyniþjónustan hafði engan pata haft af því sem var að gerast! Þá má ekki gleyma því að þrír forkólfar leyniþjónust- anna trítluðu til Obama fráfarandi forseta og Trumps nýkjörins forseta með nú alræmda aðkeypta samsuðu fyrrverandi njósnara Breta, Christopher Steele, sem kosningastjórn Hillary Clinton hafði pantað og greitt, eins og um stóralvarlegt plagg væri að ræða. Þeir hefðu eins getað tölt um með notaða matreiðslubók. Sú „skýrsla“ er hinn raunverulegi grunnur að hinni skrítnu rannsókn sérstaks saksóknara. Það er algjörlega óskiljanlegt að allur sá aðdragandi hafi ekki verið rannsakaður í þaula. Kannski kemur að því. Því fyrr því betra. Morgunblaðið/Árni Sæberg ’ Verra var það, að 6-7 árum fyrr missti CIA algjörlega af því hvað var að gerast í Kreml þegar Andropov, þáverandi Sovét- leiðtogi, var farinn á taugum og taldi að flest benti til að Bandaríkin væru að hefja kjarn- orkuárás á Sovétríkin og þau neyddust senni- lega til að verða fyrri til! 5.8. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.