Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.08.2018, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5.8. 2018
VETTVANGUR
Í lögum mun vera ákvæði þessefnis að ef landeigandi vill girðaland sitt af þarf nágranninn sem
á aðliggjandi land að taka þátt í til-
kostnaðinum til helminga. Fyrir fá-
einum dögum bárust fréttir af því
að peningamaður sem vildi bola
fjárvana nágrönnum frá landi sínu,
vakti upp þetta girðingarákvæði.
Skömmu síðar var jörð eins blanka
bóndans orðin auðmannsins. Auð-
urinn og valdið voru með öðrum
orðum á sömu hendi eins og fyrri
daginn.
Einn ríkasti auðkýfingur Bret-
lands kaupir miklar lendur á Ís-
landi. Hann er sagður mikill nátt-
úruverndarsinni þótt heima fyrir sé
hann þekktur fyrir annað. Fyrir
skömmu kom fram í fréttum að
hann hafi selt virkjunarrétt í á sem
liggur um land hans. Með öðrum
orðum, peningarnir hafa forgang
þar á bæ umfram náttúruvernd. Og
nú fara Bretar að
kannast við sinn
mann.
Norður af Vík
í Mýrdal er
svissneskur auð-
kýfingur að láta
þann draum ræt-
ast að geta lokað
að sér í heiða-
landinu sínu og
þar með látið
sem hann búi á
tunglinu. Einfalt
mál ef seðlarnir
eru nógu margir.
Í Fljótum gefur hver bóndinn á
fætur öðrum eftir land sitt í hendur
peningamanna sem vilja gera Fljót-
in að auðmannaparadís með lúx-
ushótelum. Hjá þeim munu engir
sjúkraliðar, kennarar eða trésmiðir
gista. Til að njóta dýrðarinnar verð-
ur þú að vera hluti af hinum dýra
heimi.
Og nú heyrum við í einkaþot-
unum að nýju á Reykjavíkur-
flugvelli. Déjà vu heitir hún á
frönsku, tilfinningin að þú hafir lifað
þessa tíma áður.
En eitt hefur reyndar breyst frá
því í aðdraganda hrunsins. Fjár-
festar eins og þessi mannskapur er
kallaður, eru búnir að uppgötva hví-
líka auðlind er að finna í eignarhald-
inu á íslensku landi, í heimi sem all-
ur er að verða upp á túrismann og
þarf auk þess í sívaxandi mæli á
hreinu drykkjarvatni að halda að
ógleymdri orkunni. Allt þetta, nátt-
úruperlurnar, vatnið og orkuna, fá
menn í kaupbæti geti þeir komist
yfir land íslenska bóndans.
Og það er þarna sem ríkisstjórnin
kemur inn í myndina. Í fyrsta lagi
virðist hún ætla að festa í sessi þá
ósvinnu að landeigendur geti rukk-
að okkur fyrir að njóta sköp-
unarverksins. Þetta er grafalvarlegt
mál og má furðu sæta að enginn
skuli taka þetta upp í ríkisstjórn
eða á Alþingi.
Í öðru lagi er tímamótayfirlýs-
ingin úr Stjórnarráðinu í vikunni
um jafnræðið:
Eitt verður yfir
alla að ganga,
sagði dóms-
málaráðherrann,
það yrði að virða
jafnræði ein-
staklinganna.
Þannig gengi
ekki að setja
eina reglu fyrir
almenning og
aðra fyrir auð-
menn. Og alls
ekki megi gera
greinarmun á Ís-
lendingum og útlendingum, slíkt
hlyti að flokkast undir rasisma
heyrðist sagt í spjallþætti!
Eitt verður yfir alla að ganga,
hvað þýðir það? Getur verið að svo
sé litið á, að jafnræði sé með blanka
bóndanum og ríka manninnum sem
komst yfir land þess fyrrnefnda í
krafti auðlegðar; að jafnræði sé með
náttúruverndarsinnanum í Kópa-
vogi og breskum auðkýfingi sem
báðir hafa skoðun á því hvort virkja
eigi í Þverá í Vopnafrði?
Er ekki eitthvað bogið við jafn-
ræðisreglu sem aldrei spyr um vald
auðsins? Eða er eitthvað bogið við
ríkisstjórn sem túlkar jafnræðið
óháð valdi og auðlegð? Hvað segir
okkar ágæti dómsmálaráðherra um
það? Held reyndar að tímabært sé
að spyrja ríkisstjórnina alla.
Tímabært að spyrja ríkisstjórn-
ina um jafnræðiskenninguna
’Og það er þarna semríkisstjórnin kemurinn í myndina. Í fyrstalagi virðist hún ætla að
festa í sessi þá ósvinnu að
landeigendur geti rukkað
okkur fyrir að njóta sköp-
unarverksins...Í öðru lagi
er tímamótayfirlýsingin
úr Stjórnarráðinu í vik-
unni um jafnræðið.
Morgunblaðið/Eggert
Úr ólíkum
áttum
Ögmundur Jónasson
ogmundur@ogmundur.is
Svanborg Sigmarsdóttir, upp-
lýsingafulltrúi Ríkisendurskoðunar,
tísti um tungutak
borgarbúa: „Hef
heyrt/séð Reyk-
víkinga tala um að
borða bjúgur.
Hvaðan kemur
þetta auka r? Er
best að útrýma þessari vitleysu
með því að elda bara sperðla?“
Hún bætti svo við: „Ég gæti sætt
mig við að fólk sé að borða bjúg,
það er ógeðslegt en skiljanlegra.“
Þórdís Gísladóttir rithöf-
undur tísti: „Hvers vegna hugsa
amerískir túristar
upphátt í fjöl-
menni og gala
hver á annan og
segja óspurðir og
nefmæltir frá mat-
aræði sínu og fim-
leikaiðkun barnabarna og tilkynna
sessunautum að einhver Bob hafi
einu sinni verið í sjóhernum? Mig
langar að sussa á þetta gamla fólk.“
Spjallþáttastjórnandinn Gísli
Marteinn Baldursson brást við
færslu Lögreglunnar á höfuðborg-
arsvæðinu á Twitter um kvartanir
vegna tillitslausra hjólreiðamanna á
höfuðborgarsvæðinu í sumar.
Hann tísti: „Vafalaust eru einhverjir
hjólreiðamenn tillitslausir – en ef
okkar góða lögregla myndi standa
sig í að sekta þá bíla sem leggja
uppá hjólastígum/gangstéttum og
eins þær þúsundir ökumanna sem
ekki taka tillit til hjólafólks, þá er
ég viss um að hjólafólk væri í betra
skapi.“
Ljóðskáldið og varaþingkonan
Eydís Blöndal tísti: „Í vaðlauginni
í Vesturbæjarlaug sat vinkonu-
hópur með tárin í
augunum og sór
eið þess efnis að
hætta ekki að vera
vinkonur þótt þær
væru að byrja í
Hagaskóla. Tærari og sterkari til-
finningar má einungis finna á fæð-
ingardeildum.“
Tónlistarkonan Salka Sól Ey-
feld tísti: „Var að fá símtal þar sem
ég var beðin um að syngja upphafs-
stefið í Ducktales og ég sagði strax
„ÉG SKAL GERA ÞAГ og fattaði
svo að það er önnur teiknimynd
og nú er ég að gjöra svo vel að
hugsa minn gang.“
Og Sævar Helgi Bragason,
ritstjóri Stjörnufræðivefsins, deildi
smá fróðleik á Twitter í tilefni þess
að svokölluð silf-
urský sáust á himni
um miðja vikuna:
„Falleg silfurský á
himni í nótt. Silf-
urský sjást um
miðnætti á þessum
tíma árs. Þau eru örþunnar bláhvít-
ar eða silfurleitar skýjaslæður í 80-
85 km hæð í kaldasta hluta loft-
hjúpsins. Þau eru úr agnarsmáum
ískristöllum sem eru 500 sinnum
minni en breidd mannshárs.“
Rithöfundurinn Yrsa Sigurð-
ardóttir tístir á ensku en lauslega
þýtt er nýjasta tíst
hennar svohljóð-
andi: „Stafaði
tölvupóst minn
við afgreiðslu-
mann í verslun og
sagði óvart: „K
eins og í Kim Kardashian“. Mig
langar að fara aftur og segja: „Af-
sakið, ég meinti K eins og í Kafka.“
AF NETINU
Opið: 8-18 virka daga 10-14 á laugardögum Síðumúla 22 | Sími 517 0404 | serefni.is
Veldu betri málningu
PALLAOLÍA
• Allround olían er efnisrík gæðaolía sem endist lengur
• Margir fallegir litir*
* Litur á palli EJLINGE