Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.08.2018, Blaðsíða 29
5.8. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29
segir Karólína mikið um varðturna
sem hafa verið varðveittir. „Þarna
var mikið um sjóorrustur þannig að
heimamönnum var mikið í mun að
vernda svæðið. Það skipti miklu máli
hver átti rétt á hafinu þarna á milli Ír-
ans og Óman. Þannig er það enn þann
dag í dag og þarna á milli sigla allir
bátar sem þarf að fara með inn í
Persaflóa. Ómanar hafa alla tíð siglt
mikið og eru miklir sérfræðingar í
siglingafræðum.“
Karólína segir að hægt sé að fara í
margar skipulagðar ferðir, sér-
staklega í kringum Múskat. Hún seg-
ir Ómana mjög gestrisna og taka vel
á móti ferðamönnum. Þá sé vinsælt
að fara á útimarkaði og prútta og
Karólína hvetur Íslendinga til að vera
ófeimna við það, þótt það sé eitthvað
sem við eigum ekki að venjast frá Ís-
landi. „Það er ætlast til að maður
prútti. Þeim finnst það bara gaman
og þetta er hefðin þarna. Ef maður
segir já við fyrstu upphæðinni sem
þeir bjóða þá er því auðvitað yfirleitt
tekið en þeir verða kannski frekar
hissa,“ segir Karólína og hlær. „En
það er sko alveg á hreinu að þeir eru
ekki að selja manni neitt nema þeir
séu að græða eitthvað á því þannig að
maður þarf ekkert að hafa sam-
viskubit og líða illa yfir því að prútta
við þá.“
Þegar blaðamaður spyr hvað sé
eftirminnilegast frá Óman, segir Kar-
ólína það vera náttúrufegurðina í
norðurhluta landsins. „Náttúran og
fegurðin í þessum grýttu fjöllum og
nálægðin við náttúruna. Það var líka
gaman að sjá allt aðra lifnaðarhætti
en við erum vön.“
Að lokum leikur blaðamanni for-
vitni á því hvort ætlast sé til að ferða-
menn klæði sig á sérstakan hátt þeg-
ar ferðast er á þessum slóðum.
Karólína segir svo ekki vera, málið sé
bara að klæða sig af virðingu við
heimamenn. Það tíðkist ekki að
ganga um á hlýrabol eða í mjög stuttu
pilsi eða stuttbuxum. „Ég mæli með
því að fólk sé í bol sem hylur axlirnar
og konur ættu ekki að vera í pilsi sem
er fyrir ofan hné. Karlmenn ættu að
gera slíkt hið sama, það er að segja
ekki vera í hlýrabol og passa að stutt-
buxurnar séu ekki mjög stuttar. Á
ströndum og við sundlaugar er að
sjálfsögðu allt í lagi að vera í bikiníi
eða sundbol og karlmenn mega vera
berir að ofan og í speedo sundskýlu
þess vegna, ef þeir vilja.“
Á hersafninu í Múskat er margt spennandi að sjá. Karólína segir áhugasama vel geta varið heilum degi á safninu.
Gamall varðturn við innsiglinguna að höllinni í Múskat.
’Það er ætlast til aðmaður prútti. Þeimfinnst það bara gaman ogþetta er hefðin þarna.
Hægt er að kaupa ýmsa fallega muni á gamla markaðnum í Múskat og Karólína
hvetur fólk til að vera óhrætt við að prútta um verðið.
Einar, sonur Karólínu, ásamt bílstjóra og leið-
sögumanni sem Karólína segir að hafi sýnt
þeim staði sem þau hefðu annars ekki farið á.
Helga Mogensen
Kristin Sigfríður Garðarsdóttir
Vagg og velta
Íslensk hönnun - Íslenskt handverk
Vesturgötu 4, 101 Reykjavík, s. 562 8990
www.kirs.is,
Kirsuberjatréð Íslensk Hönnun
Opið: Mán.-fös. 10-18, lau. 10-17, sun 10-17
Daglegir hádegis-
tónleikar í Eldborg.
21. júní –6. ágúst.
harpa.is/rvkclassics
Tónlistar- og ráðstefnuhúsið í Reykjavík
jakkafatajoga.is
ÁNÆGJA EFLING
AFKÖST