Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.08.2018, Síða 8
HENRY WILLIAM DALGLIESH CAVILL fæddist á bresku eyjunni Jersey
í Ermasundi árið 1983. Móðir hans var húsmóðir, fædd og uppalin á eyjunni,
en faðir hans var verðbréfamiðlari frá Chester í Englandi.
Leikferill Cavill hófst þegar hann var 17 ára gamall og var uppgötvaður af
ráðningarstjóra myndarinnar The Count of Monte Cristo, en í kjölfar þess
fór hann með hlutverk í sjónvarpsþáttunum Midsomer Murders og The In-
spector Lynley Mysteries áður en hann fór með aðalhlutverkið í myndinni
Laguna og hlutverk Albert Mondego í The Count of Monte Cristo.
Cavill vakti athygli fyrir útlit sitt og fékk fjölmörg hlutverk sem æðrulaus,
hetjuleg og karlmannleg persóna, dilkadráttur sem hefur fylgt honum út fer-
ilinn.
Hann fór með hlutverk í myndum á borð við I Capture the Castle, Hell-
raiser: Hellworld, Red Riding Hood og Tristan + Isold á árunum 2003 til
2007, en við tók stórt hlutverk í þáttunum The Tu-
dors, þar sem Cavill lék Charles Brandon, fyrsta her-
togann af Suffolk og tengdabróður Hinriks áttunda
Englandskonungs. Fyrir leik sinn í The Tudors var
Cavill tilnefndur til Golden Globe verðlauna auk þess
að vinna Emmy verðlaun árið 2008.
Cavill skaust upp a stjörnuhimininn í janúar 2011
þegar tilkynnt var að hann myndi fara með hlutverk
Superman í væntanlegri mynd Zack Snyder um ofur-
hetjuna geysivinsælu, Man of Steel, en hann er fyrsti
leikarinn sem ekki er fæddur í Bandaríkjunum til að
skella á sig S-skildinum goðsagnakennda. Cavill var í
kjölfarið kosinn kynþokkafyllsti maður heims af
Glamour tímaritinu.
Cavill hefur troðið sér í níðþröngan Superman bún-
inginn við tvö önnur tilefni á stóra skjánum, í mynd-
unum Batman v Superman: Dawn of Justice og Jus-
tice League, en samhliða þeim hefur hann brugðið sér
í hlutverk hinna ýmsu spæjara. Í spæjaramyndinni
The Man from U.N.C.L.E. leikur Cavill spæjara frá
CIA sem neyðist til að vinna með spæjara frá KGB til
að ráða niðurlögum sameiginlegs óvinar Bandaríkj-
anna og Rússlands í miðju stormsauga kalda stríðsins
og í Mission: Impossible - Fallout, sem frumsýnd var í
síðustu viku, leikur Cavill spæjarann harðsvíraða
August Walker. petur@mbl.is
Í PRÓFÍL
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5.8. 2018
HLUTVERK Níu árum áður en Cavill brá sér í hlut-
verk ofurmennisins átti hann að fara með hlutverkið
í myndinni Superman: Flyby árið 2004, en eftir að
leikstjórinn Joseph McGinty Nichol, eða McG, yfirgaf
verkefnið og Brian Singer tók við var Cavill skipt út
fyrir Brandon Routh. Myndin kom út árið 2006 undir
nafninu Superman Returns.
Þetta var þó ekki eina stóra hlutverkið sem naum-
lega rann úr greipum Cavill. Kappinn var orðaður við
hlutverk töfradrengsins Cedric Diggory í Harry
Potter-seríunni, en hlutverkið fór að lokum til Ro-
bert Patterson. Auk þess vildi Stephany Mayer, höf-
undur Twilight bókanna, að Cavill færi með hlutverk
vampírunnar Edvards Cullen, en aftur varð Patter-
son fyrir valinu. Árið 2005 stóð valið um hlutverk
James Bond í myndinni Casino Royal á milli Cavill og
Daniel Craig, en eins og aðdáendur njósnarans vita
fór hlutverkið til Craig. Þá voru sögusagnir um að
framleiðendur Batman Begins væru að íhuga að ráða
Cavill sem ofurhetjuna Batman.
Cavill þótti of ungur að leika Bond í Casino Royal, hann
segist þó ennþá vera spenntur fyrir hlutverkinu.
Næstum því
hlutverk
DÝRAVINUR Árið 2014 var Cavill
tilnefndur sem sendiherra Durrell
Wildlife Conservation Trust, en
samtökin vinna að því að vernda
dýr í útrýmingarhættu. Hann hef-
ur síðastliðin ár stutt hina svoköll-
uðu Durrell-áskorun, 13 kíló-
metra langt hlaup sem fer fram á
Jersey, heimaeyju Cavill.
Segist Cavill vera mikill dýravin-
ur, á hann meðal annars hund sem
heitir Kal, en nafnið er tilvísun í
nafn Ofurmennisins. „Kal hefur
verið lífsförunautur minn síðustu
fjögur ár,“ sagði Cavill í viðtali við
5 News, en hann tók sjálfur þátt í
Durrell-áskoruninni í ár.
Hleypur
fyrir dýr
AFP
Lífsförunautur Cavill síðustu fjögur ár heitir Kal og er hundur.
YFIRVARASKEGG Fyrir hlutverk sitt
sem August Walker í Mission: Impossible
- Fallout safnaði Cavill í myndarlegt yf-
irvaraskegg sem vakið hefur mikla athygli
í aðdraganda myndarinnar. Athyglin hef-
ur verið bæði af því góða og slæma, en
mest hefur athyglin verið að atferli
skeggsins í einni stiklu myndarinnar, þar
sem það virðist vaxa töluvert á nokkrum
sekúndum.
Atvikið kemur fram í einu af hinum
fjölmörgu bardagaatriðum myndarinnar
ásamt persónu Tom Cruise, Ethan Hunt.
Setur Cavill sig þá í stellingar til að
lúskra á illmenni þegar hann, eins og
ýmsir á netheimum hafa komist að orði,
„hleður hnefana eins og haglabyssur“
þegar skeggvöxtur kappans virðist þykkj-
ast.
Persóna Cavill í Mission: Impossible, August
Walker, skartar fríðu yfirvaraskeggi.
AFP
Yfirgengilegt
skegg
Hið breska
Ofurmenni
Cavill var valinn
kynþokkafyllsti
maður heims af
Glamour.
AFP
Cavill þandi
spæjaravöðvana í
The Man from
U.N.C.L.E.
’ Cavill er fyrsti leikarinn semekki er fæddur í Bandaríkj-unum til að skella á sig S-skild-inum goðsagnakennda.
Cavill með S-skjöldinn fræga á brjósti.
Ármúli 7, Reykjavík | Sími 568 0708 | www.fako.is
Nýjar vörur
Matardiskur 2.950
Forréttardiskur 2.550
Ljós
21.000
Glas 1.550
Ljós
17.000
30-50%afsláttur afvöldumvörum