Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.08.2018, Síða 12
Listamaðurinn Ólafur Elíasson hefur gengið íslenskar fjörur og safnað því sem þar rak á land. Það nýtir hann í innsetningu
sem nú má sjá í Marshall-húsinu, en á næstunni verður opnaður þar SOE Kitchen 101, sprettiveitingastaður hans og systur
hans Victoríu Elíasdóttur. Í loftinu hanga glerhnettir og áttavitar sem búnir eru til úr efniviði íslenskra stranda. Gestir geta
notið matar og um leið upplifað rýmið, sem er vandlega skipulagt til þess gleðja augað og andann.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
ur enn í mér. Það er svo skrítið að þegar mað-
ur keyrir frá Keflavík og horfir til vinstri út á
haf er maður að horfa í norður,“ segir Ólafur
og rifjar upp stundir heima hjá ömmu og afa.
„Þegar ég var barn eyddi ég miklum tíma
hjá afa og ömmu sem bjuggu uppi á holtinu í
Hafnarfirði, sem var á þeim tíma útjaðar borg-
arinnar. Oft horfðum við út um gluggann á sól-
ina setjast bak við Snæfellsjökul, í norðri. Og
þá fannst mér ég alltaf vera horfa í suður, í átt
til Danmerkur, þar sem móðir mín og faðir
bjuggu á þeim tíma,“ segir Ólafur og útskýrir
að þarna kviknaði einnig vitund hans um ljós
og birtu.
„Þetta er kannski ekki mikilvægt atriði en
ástæðan fyrir því að ég tók svona vel eftir birt-
unni, sem síðar í lífinu átti eftir að leika svo
stórt hlutverk í list minni, er að þegar ég var
um sex ára gamall var olíukrísa í heiminum
sem hafði þau áhrif á Íslandi að það var lokað
fyrir rafmagn á vissum tímum dags. Það var
hljóð úr lúðri sem glumdi um bæinn og svo var
rafmagnið tekið af. Þegar ég var lítill fannst
mér þetta mjög spennandi; þetta rafmagns-
leysi. Þá var eina ljósið birtan að utan og við
fórum út í glugga og horfðum á sólina setjast
yfir Snæfellsjökul. Maður sá jökulinn dökkna
með baklýsingu sólarinnar. Það var mjög
töfrandi, þessi ljósaskipti og bláu litirnir í
himninum og þessi stemmning sem myndaðist
í þessari ótrúlegri birtu. Ég á þessa minningu
úr æsku sem er sveipuð töfrum, þegar fjöl-
skyldan safnaðist saman fyrir framan
gluggann við kertaljós og horfði á sólarlagið.
Ef áhugi minn á ljósi á sér einhverjar rætur
eru þær þarna, en þetta er fyrsta minning mín
að einhverju sem hefur með birtu að gera,“
segir Ólafur.
Að skynja landið og sjálfsmyndina
Er þessi áhugi á áttum líka kannski uppruninn
frá þessum tíma?
„Já, af því ég var svo ringlaður í áttunum. En
í dag hef ég meiri áhuga á því hvernig við skynj-
um rýmið sem við erum í. Hvenær er rými op-
inbert og hvenær ekki? Og hvernig á að skynja
borgina sína og umhverfið sitt í stóra samheng-
inu, ekki bara að skynja sína litlu götu? Hvernig
skynjum við landið okkar og sjálfsmynd? Þetta
hefur að gera með að finna áttirnar eða finna
mína leið í öllu þessu. Ísland er alveg einstakt
því fyrir Íslendingum er það alveg á kristaltæru
að þeir eru Íslendingar. En hvað mig varðar, þá
hef ég búið í 23 ár í Þýskalandi en mér finnst ég
tilheyra Íslandi. Mér finnst ég líka tilheyra Dan-
mörku, og líka Þýskalandi. Þannig að sjálfs-
mynd mín er sambland af því hverju ég tilheyri.
Ég hef ferðast svo mikið um Bandaríkin að ég
verð að segja að það hefur haft mikil áhrif á mig,
Trump eða ekki. Eins hafa ferðir til Afríku
kennt mér svo margt. Þannig að þegar ég hugsa
um sjálfsmynd hugsa ég hvernig ég geti sam-
einað allar þessar sögur í lífinu og þegar ég
hugsa um áttavitann er hann tákn um að finna
sér sinn stað í tilverunni. Hvaðan við erum að
koma og hvert við erum að fara.“
verki eftir mig, sem eru mikill fjöldi hvítra lego
kubba. Alla fimmtudaga munu tónlistarmenn
frá menningarhúsinu Mengi spila og taka upp
tónverk sem mun hljóma hér, en það verður
bætt í verkið með nýju tónlistarfólki í viku
hverri. Í lok verða svo tónleikar þar sem verk-
ið verður spilað með öllu því tónlistarfólki sem
kom að gerð þess. En allt þetta er til þess að
ýta undir það sem er hér í forgrunni, og það er
að fá fólk til þess að koma hingað, vera saman
og borða. Fókusinn er að vera með tilraunaeld-
hús,“ segir Ólafur.
Tími til að deila hugmyndum
„Í stúdíó mínu í Berlín, SOE (Studio Olafur
Eliasson), vinna um hundrað manns og við er-
um oft um 110 í hádegismat. Ég er með eld-
hústeymi undir stjórn systur minnar Victoríu
og hefur hún gert góða hluti, en ég fékk hana
loksins til að koma og taka við eldhúsinu. Hlut-
verk matarins í stúdíóinu er ekki einungis mat-
urinn sjálfur eða gæði hans heldur gefst þarna
tækifæri fyrir hin ýmsu teymi að kasta hug-
myndum sín á milli. Því stundum er það þann-
ig að þeir sem vinna á stálverkstæðinu tala
ekki mikið við fólk sem vinnur á smíðaverk-
stæðinu, þó að þeir séu kannski að vinna að
sama verkinu. Svo eru þarna arkítektar, verk-
fræðingar, fólk sem sér um samfélagsmiðlana
og margt fleira fólk. Eldhúsið, eða hádeg-
ishléið, veitir tækifæri til félagslegra sam-
skipta og þar get ég miðlað til þeirra þeim
gildum sem ég trúi á og vil viðhalda í stúdíóinu
mínu,“ segir Ólafur.
„En það tengist fleira matnum, eins og um-
hverfismál. Við erum í nánu samstarfi við
bændur sem rækta allt lífrænt. Við eldum bara
grænmetismat og erum mjög virk í að hugsa
um nýtingu matarins. Ég get ekki sagt að eld-
húsið sé beinlínis tilraun til listar en við gerum
margar tilraunir. Ég gerði kokkabók með upp-
skriftum úr SOE eldhúsinu og það stendur til
að gera framhaldsbók með uppskriftum úr
þessu eldhúsi hér,“ segir hann og er spenntur
fyrir þessu nýja verkefni hér á landi.
„Fyrst og fremst er hér áhersla lögð á gæði
matarins, rýmið og listina. Svo verða líka ný
verk í stúdíói mínu hér á efri hæð sem fólk get-
ur skoðað eftir að það hefur borðað.“
Töfrandi birta yfir Snæfellsjökli
Ólafur á margar minningar frá Íslandi sem
barn og hafa þær haft áhrif á list hans.
„Ég man þegar ég lenti á Íslandi sem barn,
og það er enn fast í mér, að þegar ég lendi í
Keflavík finnst mér alltaf að ég horfi suður til
Reykjavíkur. Einhvern veginn fannst mér
þetta vera öfugt við það sem það er og það sit-
það að finna sinn stað í heiminum, eða að finna
sína leið?
„Það snýst um að rata rétta leið. Á hafinu
eru engir vegir þannig að það þurfti að nota
áttavita til þess að vita hvert maður væri að
fara, en einnig til að vita hvar maður var. Átta-
viti er kjarninn, hann sýnir þér hvar þú ert og
hvert áttirnar liggja. Ég er nógu gamall til
þess að muna þegar maður gekk um náttúruna
með áttavita og það er ekkert leyndarmál að
ég var ekkert sérlega góður í því! En ég lærði
að ganga um hálendi Íslands með áttavita þeg-
ar ég fór í ferðir með Útivist sem unglingur.
Þannig að ég lærði á áttavita,“ segir hann.
„Ég hef mjög mikinn áhuga á tilfinningunni
fyrir rými og fyrir mér er áttavitinn tækifæri
til þess að vita í hvaða átt maður snýr. Þegar
maður er inni í húsi veit maður oft ekki hvað er
í suður og hvað í norður.“
Er mikilvægt að vita það?
„Mér finnst mikilvægt í þessum heimi að
tapa ekki tilfinningunni að vita hvar maður er.
Það er sífellt erfiðara að finna leiðir raunveru-
leikans og þetta hefur einnig með það að gera
að raunveruleikinn er miklu minna raunveru-
legur en við höldum. Við erum oft minnt á það
að það sem við héldum vera raunverulegt í
gær reynist í dag vera falskt eða gervi. Að
sumu leyti sýnir það okkur samt sem áður að
gjörðir okkar hafa áhrif á raunveruleikann.
Verst er þegar raunveruleikinn stendur í stað
og verður hlutlaus. Ekkert mun breytast nema
við tökum sjálf þátt í að breyta.“
Langborð undir glerhnöttum
Yfir borðum í veitingasal Marshall-hússins,
þar sem SOE 101 sprettiveitingastaðurinn (e.
pop-up) verður næstu mánuði, hanga líka stór-
ir glerhnettir sem einnig eru hluti af innsetn-
ingu Ólafs.
„Það eru í þeim bláir og grænir fletir, en
grænu fletirnir eru úr gleri sem ég bjó sjálfur
til. Græni liturinn er úr sandi sem kemur und-
an jöklum. Þessi sandur er raunar frá jöklum á
Grænlandi, en þegar jökulsárnar renna undan
jöklum kemur þessi sandur. Og blái liturinn er
búinn til úr steinefnum sem ég fann í nátt-
úrunni. Svörtu fletirnir í hnöttunum eru eins
og heimsálfur, en ekki endilega einhverjar
ákveðnar heimsálfur. Áttavitarnir og þessir
hnettir vinna vel saman,“ segir hann.
„Svo höfum við raðað borðum á annan hátt
og höfum langborð, sem þýðir ekki endilega að
þú þurfir að tala við ókunnugt fólk við hliðina á
þér, en þetta skapar aðra stemmningu. Og ég
gerði einn vegg í sægrænum lit; það er liturinn
á hafinu hér fyrir utan síðla dags. Það verður
einnig barnahorn fyrir krakkana með eldra
Þ
að er sönn ánægja að fá að elta Ólaf
Elíasson upp á vinnustofu hans í
Marshall-húsinu við höfnina og
hlusta á hann ræða hugmyndirnar
að baki nýjustu verkum hans. Á
borðum og í hillum kennir ýmissa grasa; þar
liggur efniviður listamannsins; rekaviður, flot-
holt, lím, úðabrúsar, áhöld, seglar, vírar, bauj-
ur og annað mannanna rusl sem rekið hefur á
Íslandsstrendur. Úr öllu þessu hefur Ólafur
skapað hangandi listaverk; óróa sem eru
heimatilbúnir áttavitar og eiga að fylla rýmið á
SOE 101. Kannski gefst fólki tækifæri á að
staðsetja sig í heiminum, sem er stór og flók-
inn og við dálítið áttavillt. Fyrir hina sem eru
með áttirnar á hreinu er hægt að njóta matar
Victoríu og myndlistar Ólafs Elíassonar í
þessu þriggja mánaða tilraunaeldhúsi þeirra
systkina.
Gersemar strandarinnar
Ólafur sækir bæði hugmyndir og efnivið til Ís-
lands, þar sem rætur hans liggja.
„Ég og mitt fólk tíndum rekavið úr fjörum,
eins og ég hef oft áður gert. Snemma í vor, í
mars eða apríl, keyrðum við á Strandir og
hreinsuðum nánast ströndina af ýmsu dóti, en
þar má oft finna alls kyns spennandi hluti. Í
raun er þetta mengun, og svo rekaviður. Við
fylltum bílinn nokkrum sinnum með öllum
þessum gersemum strandarinnar. Og með
þessum fundnu hlutum og rekaviði, ásamt efni
sem ég kom með frá Berlín, bjó ég til 24 lítil
listaverk sem eiga það sameiginlegt að vera
áttavitar,“ segir Ólafur, en hann er mikill
áhugamaður um áttavita. Hann nefnir að í dag
sé nánast ekki hægt að kaupa venjulegan átta-
vita, enda allir með innbyggðan áttavita eða
GPS-tæki í símum sínum og ekki er lengur
þörf á gamla góða áttavitanum.
„Ég safna áttavitum og á í Berlín gott safn
af þeim, aðallega úr skipum. Það sem mér
finnst spennandi er að ef þú hengir segul í
band bendir hann í norður. Þannig að þegar ég
hengi upp segul í ákveðnu rými sé ég ekki bara
í hvaða átt norður er heldur einnig hvernig
rýmið snýr. Þannig að þessi ljóðrænu verk eru
í raun öll áttavitar og snúa öll í sömu átt,“ segir
Ólafur, sem hyggst síðar leyfa þessum verkum
að fara á aðrar sýningar víða um heim.
„Ég held það væri ákaflega fallegt ef mér
tækist að dreifa þessum íslensku áttavitum um
heiminn. Eftir þessa sýningu ætla ég að fara
með þá víða; til Ástralíu, Beirút, Hong Kong,
Kanada, Suður-Afríku og til fleiri staða.
Ímyndaðu þér að allir þessir áttavitar, eftir að
hafa hangið hér, munu hanga á öllum þessum
stöðum heimsins. Og þeir munu samt sem áður
alltaf benda í norður, og hanga í sömu átt og
hér. Þeir benda allir í norður, ekki endilega til
Íslands, en nálægt því. Þannig verða þeir nán-
ast eins og flokkur fugla sem allir snúa í sömu
átt,“ segir Ólafur.
Rýmið og raunveruleikinn
Hver er hugsunin á bak við þessa áttavita? Er
Íslenskir áttavitar
fara á flug
’ Ég hef mjög mikinn áhuga á tilfinningunni fyrir rými og fyrir mérer áttavitinn tækifæri til þess að vita í hvaða átt maður snýr. Þegarmaður er inni í húsi veit maður oft ekki hvað er í suður og hvað í norður.
VIÐTAL
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5.8. 2018