Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.08.2018, Page 15
kvarða. Við höfum talað um það lengi að
gera veitingastað þar sem hann hannar út-
litið og ég sé um rekstur og matreiðslu.
Fyrir okkur er þetta tilraun til að vinna ná-
ið saman, þó að auðvitað komi miklu fleiri
að verkefninu. Það eru um 30 manns sem
koma að þessu á einhvern hátt. Ég hugsa
stundum að maður sé hálf bilaður að ráðast
í svona verkefni fyrir þrjá mánuði! Að opna
alveg nýjan veitingastað í þrjá mánuði en
það er ekkert útilokað að við gerum eitt-
hvað til framtíðar. Þetta er afar litríkt til-
raunaverkefni,“ segir hún.
„Leifur Kolbeinsson, eigandi Marshall
restaurant og bar, er að bjóða okkur vel-
komin á sinn stað og vegna þess er þetta
verkefni að veruleika orðið,“ segir Victoría.
„Ég hugsa fyrst og fremst að þetta sé til-
raunaverkefni hjá okkur. Við erum með
ákveðnar hugmyndir um hvað þetta á að
vera en við erum líka opin fyrir því að sjá
hvað úr þessu verður. Ólafur er alltaf mjög
bjartsýnn en ég stilli væntingum í hóf,
kannski til þess að verða ekki fyrir von-
brigðum. Það fylgir því ákveðin ábyrgð að
koma verkefninu í gang og halda síðan utan
um konseptið. En ég er svo heppin með
mitt frábæra teymi og í undirbúningnum er
þegar búinn að myndast góður andi milli
starfsmanna. Ég trúi því að það sé stór
hluti þess að njóta velgengni í starfi þegar
fólkið mætir glatt til vinnu og samskiptin á
vinnustað eru skýr, heiðarleg og jákvæð.
Ég verð hér í þessa þrjá mánuði en Ólafur
kemur af og til,“ segir hún.
„Undirbúningurinn hefur tekið marga
mánuði. Við vitum vel að stutt verkefni sem
þetta skilar okkur ekki kössum af seðlum
en eitt er víst að verkefnið verður aldeilis
skemmtilegt og lærdómsríkt. Okkur langaði
mikið til þess að standa að þessu saman,
verkefnið er drifið áfram af ástríðu fyrst og
fremst.“
’ Ég er alin upp við það aðpabbi minn var lista- og mat-reiðslumaður. En ég er ekki hrifinaf því þegar fólk segir að ég sé
listamaður í eldhúsinu. Ég er
matreiðslumaður í eldhúsinu.
Vonandi nokkuð hæfileikarík!
Morgunblaðið/Ásdís
„Við vitum vel að stutt verkefni sem þetta
skilar okkur ekki kössum af seðlum en eitt
er víst að verkefnið verður aldeilis
skemmtilegt og lærdómsríkt. Okkur lang-
aði mikið til þess að standa að þessu sam-
an, verkefnið er drifið áfram af ástríðu
fyrst og fremst,“ segir Victoría um verk-
efni sitt og bróður síns Ólafs Elíassonar.
Maturinn í SOE 101 verður ferskur og bragðgóður og tilvalinn til þess að deila.
Ljósmynd/Maria del Pilar Garcia Ayensa / Studio Olafur Eliasson
5.8. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15